Þjóðviljinn - 28.04.1964, Side 5

Þjóðviljinn - 28.04.1964, Side 5
T Þriðjudagur 28. apríl 1964 ÞlðÐVILIINN SÍÐA Þessi myntl aí meistaraflokksliði ÍR var tekin nú í vor, er liðið hafði enn einu sinni sigrað á Islandsmótinu í körfuknattleik. Fremstur stendur með bikarinn Þorsteinn Hallgrímsson, fyrir- liði liðsins. Þjálfari liðsins er Helgi Jóhannsson. Körfuknattleikur: EVRÓPUBIKAR- KEPPNINA í HAUST Á fundi K.K.Í., sem haldinn var laugard. 25. þ.m., var samþykkt að veita íslandsmeisturum Í.R., leyfi til að tilkynna þátttöku sína í Evr- ópubikarkeppni meistaraliða 1964. Keppnin fer fram á tímabilinu 1. nóv. 1964 til 31. marz 1965. Um 30 meistaralið taka ár- lega þátt í keppni þessari, sem er útsláttarkeppni. þannig að leikið er heima og heiman, og það lið er sigrar eða hefur hagstæðara hlutfall, heldur á- fram. Sovétmeistararnir hafa unnið keppnina undanfarin ár, en Real Madrid verið í öðru sæti. Landsliðið til USA Á sama fundi var samþykkt að taka boði ,,People Sports Committee, Inc.,“ um að senda landsliðið í þriggja vikna keppnisferðalag til Bandaríkj- anna í ársbyrjun 1965. Ráðgert er að liðið fari ut- an í janúarbyrjun og leiki 12 leiki við skóla- eða áhuga- mannalið á austurströnd Bandaríkjanna. Félagsskapur sá er að boð- inu stendur mun greiða ferða- kostnað landsliðsins milli Is- lands og Bandaríkjanna, all- an ferðakostnað á milli leik- staða, svo og allt uppihald á meðan á ferðinni stendur. Hinsvegar er gert ráð fyrir að seldur aðgangseyrir að leikjum liðsins muni standa straum af kostnaði þesssum. Þetta mun vera eitthvert glæsilegasta tilboð, sem íslenzk um íþróttaflokki hefur nokkru sinni borizt. og sannar það hvert álit íslenzkur körfuknatt- leikur hefur unnið sér á und- anfömum mánuðum. Árangur unglingalandsliðsins í París sl. haust og góður leikur lands- liðsins á Polar Cup í Helsinkí áttu sinn þátt í að liðinu er boðið í þessa för. Landsliðsnefnd K.K.Í. mun á næstunni velja 20—30 pilta til landsliðsæfinga. 'fc, Bandaríkjamaðurinn A1 Oerter setti sl. laugardag heimsmet í kringlukasti — 62.94 m. Gamla metið átti hann sjálfur, og var það 32 cm. skcmmra Oerter hefur tvisvar sinnum sigrað í kringlukasti á olympíuleikun- um. Iiann er 27 ára gamall. Það er því Ijóst, að Oerter verður meðál líklegustu sig- urvegara í Tokíó í haust, og ekki ósennilegt, að honum tak- ist að endurtaka afrekin frá Reykjavíkurmótið, Fram-Víkingur 8:2 Víkingur me& nýtt knattspyrnulii Síðasti leikur norsku gestanna Fredensborg réði ekki við hraða FH og tapaði-18:32 AI Oerter. Melboum 1956 og Róm 1960. Næstbezta kast Oerters í keppninni í Walnut, Kali- forníu, á laugardaginn var 62.89 metrar. ie Komungur bandarískur íþróttamaður, Randy Mat- son, varpaði 19.53 m. í kúlu- varpi á laugardaginn. Mat- son er aðeins 18 ára gam- all, og hann hefur sex sinn- um bætt persónumet sitt síð- an keppnitímabílið hófst. Árangur Matsons er óopin- bert heimsmet drcngja. Þctta er efnilcgasti kúluvarpari sem fram hefur komið á síðari árum. •je Ungverjar sigruðu Frakka í Iandsleik í knatt- spyrnu sl. laugardag — 3:1. Leikurinn fór fram í París og var þáttur í Evrópubikar- keppni landsliða. I hléi var staðan 2:0. Tichy skoraði 2 mörk fyrir Ungverjaland og Albert eitt. Cossou skoraöt fyrir Frakkland. Seinni leik- ur liðanna verður í Buda- pest 23. maí. utan úr heimi Annar leikur Reykja- víkurmótsins fór fram á sunnudaginn og átt- ust þá við Fram og Víkingur. Fram tefldi fram mikið til sömu mönnum og í fyrra, en Víkingur kom með næstum nýtt lið, sem er frískara og lofar meiru, en lið þau sem Víkingur hefur teflt fram á undanförnum árum. Þótt markamunurinn væri þetta mikill, gefur það ekki rétta hugmynd um leikinn og gang hans. Fram náði ekki þeim tökum á leiknum, sem mörkin þenda til, og miðað við að það er næstum sama lið og í fyrra, hafa þeir ekki bætt við sig síðan þeir sáust síðast. Vera kann þó, að þeir hafi ekki tekið lið Víkings al- varlega. og að þegar meira liggur við verði þeir harðari og taki skipulagðan leik meira í þjónustu sína en á sunnudag- inn. Á liði Víkings var nokkur viðvaningsbragur, en þeir eru frískir og í þeim mikill bar- áttuvilji. Haldi þessir piltar vel saman er ekki ólíklegt að í liði þessu geti myndazt kjarni sem síðar megi spinna utan- um. Það kom ekki lítið á óvart, að Víkingur skyldi skora fyrsta markið í leiknum, en það skeði þegar á fyrstu mínútum leiks- ins, eða á 3. mínútu, og skor- aði það örn Henningsson. Baídur Scheving jafnaði fyr- ir Fram 9 mín. síðar, og það er Baldur, sem eftir rúmlega 20 mín leik gefur Fram forust- una. Baldvin miðherji Fram bætir við 7 min fyrir leikslok. Alveg í byrjun síðari hálf- leiks bætir Baldvin enn við, og litlu síðar bætir Guðmundur Gústafsson við og standa leik- ar 5:1. Víkingar eiga af og til sókn og i þrjú skipti tekst bakverði Frgnp,,að bjarga af línu. Enn bætir Baldvin við markatöluna 6:1. En rétt eftir miðjan hálfleikinn tekst mið- herja Víkings. Gylfa Haralds- syni, að skora fyrir Víking 6:2. Þegar eftir eru um 10 min. af leiknum skorar Hallgrímur Scheving fyrir Fram, og Framhald á 9. síðu. Hafnfirðingar náðu vel saman í leik sínum við Fredensborg á laugardagskvöldið, og náðu einum af sínum mjög góðu leikjum. Hjálpaði það til að þeir fengu mótherja sem léku með hraða, eins og þeir sjálfir. Að þessu sinni var hraði F.H. virkari en mótherjanna, og skyttur betri, sem leiddi til þess að F.H. vann yfirburða- sigur yfir hinu norska liði, 32:18. Að vísu vantaði Norðmenn- ina bezta mann sinn, Kjell Svestad, sem undanfarið hef- ur stjórnað liði Fredensborg, enda þeirra reyndastur og með 44 landsleiki að baki. Knut Larsen. sem tók nú við forustu liðsins og hefur leikið 29 sinnum í landsliði Norðmanna, náði ekki eins ----------------------------------<5> Handknattleikur HRAÐKEPPNIN HEFST I KVÖLD í kvöld hefst á Hálogalandi hraðkeppnimót í handknattleik. Þátttakendur eru öll liðin úr 1. deild í vetur, og auk þess Haukar frá Hafnar- firði, sem sigruðu í 2. deild í ár. Mótið hefst kl. 20.15 í kvöld, þriðjudag, en annað kvöld, miðvikudag, verður síðari bluti mótsins, þar með tali.nn úrslitaleikurinn. Öllum handknattleiksunn- endum leikur forvitni á því Framhald á 9. síðu. góðum tökum á mönnum sín- um, og var ekki eins skotviss og Svestad. Eins og FH-liðið lék í þessum leik, eru ekki miklar líkur til að það hefði breytt miklu um sigur FH, þótt Fredensborg hefði haft sterkasta lið sitt. f fyrri hálfleik börðust Norð- menn hart, og þegar liðnar voru um 23 mín. var marka- munur aðeins 3 mörk eða 11:8. En á þessum 7 mín. sem eftir voru til hlés, skoruðu FH- menn fjögur mörk í röð og lauk hálfleiknum með 15:8. Lið FH hefur sjaldan fallið betur saman í vetur, og aldrei notið sín eins vel með hraða þann, sem þeir hafa tamið sér. Þessi hraði er það, sem koma skal í nútíma handknattleik. og eru FH-menn á réttri leið, og þegar þeir koma í stóran sal mun árangurinn af hrað- anum fyrst koma verulega f ljós. Kristján Stefánsson er stöðugt að verða virkari og falla betur og betur inn í lið- ið, og gefur þ\n mjög aukinn styrk. Páll Eiríksson er líka einn af þeim ungu mönnum FH, sem er ört vaxandi og hefur tileink- að sér hraðann. Þótt Ragnar geti átt svolítið misjafna leiki. er hann alltaf „kunstner- inn” í leiknum. Har-n fram- kvæmir oft ýmislegt sem á- horfandanum dettur sfzt í hug Þetta gerir leik hans litríkari og skemmtilegri á að horfa, án þess að sagt verði, að hann sé Framhald á 9. síðu. Sigurvegararnir með verðlaunagripina. HALLD0R GUÐBJORNS- S0N VANN DRENGJAHL Hinn efnilegi hlaupari Halldór Guðbjömsson (KR) sigraði í drengjahlaupi Ármanns, sem fram fór s.l. sunnudag. Leiðin, sem hlaupin var, er um 1500 metrar, og er hlaup- ið á söfu slóðum og í víða- vangshlaupi ÍR. en aðeins styttra út í Vatnsmýrina. Halldór Guðbjömsson sigraði örugglega í hlaupinu, en hanr. bar einnig sigur úr býtum í þessari keppni í fyrra. Hall- dór er bróðir Kristleifs Guð- björnssonar, og virðist hann ætla að feta í fótspor eldri bróðurins. Það verður gaman að fylgjast með þessum efni- lega íþróttamanni í framtíð- inni. Fremstir í keppninni urðu þessir piltar: 1. Halldór Guðbjömsson (KR) 4.53.3 mín. 2. Jón H. Sigurðsson (HSKl 4.59.2 mín. 3. Ölafur Guðmundsson (KR) 5.00.9 mín. 4. Þórður Guðmundsson (Breiðablik) 5.18.7 mín. 5. Bjarni T. Magnússon (KR) 6. Jón Kjartansson (A) 7. Gísli Binarsson (KRl 8. Einar Ma^nússtsi Breiða- blik). 1 briggja manna sveitar- keppninni sigraði a-sveit KR með miklurn vfirburðum — 9 st. Næstar komu þrjár sveit- ir, allar með 23 stig: Sveit Héraðssambandsins Skarphéð- ins, b-sveit KR og sveit umf. Breiðabiiks. Kópavovi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.