Þjóðviljinn - 28.04.1964, Blaðsíða 6
X
F
g SlÐA
ÞlðÐViLJINN
Þriðjudagur 28. apríl 19S4
Síld sem forréttur
Síld í legi
1 síld
Lögur:
IV2 dl. borðedik .
1 dl. sykur
Vs tsk. hvítur pipar
1 tsk. svartur pipar
1 fínt hakkaður laukur
Leggið flökin í bleyti yfir
nótt. Roðflettið þau og skerið
niður i um 1 cm þykka strimla.
Raðið bitunum á fat, þannig
að flökin sýnist heil. Hrærið
löginn saman svo að sykurinn
leysist upp. Hellið honum yfir
síldina. Látið síldina standa á
köldum stað, helzt yfir nótt.
Purjusíld
(Fyrir fjóra)
2 sildar
IV2 dl. sykur
a‘/a dl. borðedik
1 lárviðarlauf
1 litill purjulaukur
3 stk. negull
5 piparkorn
dill
Leggið flökin í bleyti í 10
tima. Hrærið edik og sykur
saman og bætið lárviðarlauf-
inu, smátt skomum purjulauk,
negul og kryddkomum út í.
Leggið flökin í heilu lagi i lög-
inn. Látið þau liggja í nokkum
tíma, helzt yfir nótt. Skerið
sildina niður í mjóar ræmur og
leggið þær á fat. þannig að
flökin sýnist heil. Ausið svo-
litlum legi yfir sfldina og
skreytið hana með fínt skom-
um graslauk.
Síld í lómatsósu
(Fyrir fjóra)
1 síld
1 msk kryddedik
1—3 msk. tómatsósa
3 msk. matarolía
1—2 msk. vatn
1 hakkaður laukur
hvítur pipar
V2—1 msk. sykur
dillgrcinar
Leggið flökin í bleyti, eins
og vanalega. Hrærið saman öll
efnin í sósuna. Þurrkið af
flökunum og leggið þau í heilu
lagi í sósuna. Látið þau draga
hana í sig nokkra tíma. Skerið
flökin niður á ská. Leggið þau
á disk eða fat, svo að flökin
sýnist heil. Hellið sósunni yfir
og stráið dillgreinum yfir.
Snarl
Amerísk síld
3 síldar
8 stórar kartöflur
2 msk. fínt klippt dill
2 dl. þykkur súr rjómi
1 fínt hakkaður laukur
Hreinsið síldina og látið hana
liggja nokkra tíma í köldu
vatni. Flakið síldina og skerið
flökin i jafnstóra bita. Burstið
öll óhreinindi af kartöflunum,
vefjið utan um þær alúmíum-
pappír og bakið í miðlungs-
heitum ofni eða á glóð í u.þ.b.
50 mínútur. Flettið pappímum
utan af þeim, svo að pappírs-
búturinn sé eins og skál í
kringum hverja kartöflu. Sker-
ið kross á hverja kartöflu.
Skreytið síldina með dilli og
berið hana á borð með kartöfl-
unum, lauk og rjóma.
Síldarfreisting
(Fyrir fjóra)
2 síldar
2 laukar
SILD
SÍLD
SÍLD
2 tómatar
1 dl. rjómi
V2 kg. hráar sneiddar kart-
öflur
cayennepipar, olífuolía
Flakið síldina og leggið flök-
in í bleyti yfir nótt. Látið
vatnið renna vel af þeim. Sker-
ið laukinn og kartöflumar í
þunnar sneiðar og flökin í
smábita. Leggið kartöflur, sfld
og lauk til skiptis í lög í smurt
eldfast mót. Kryddið með of-
urlitlum cayennepipar og hell-
ið svolítilli ólífuolíu á milli
laga. Látið réttina stikna við
hægan hita í 1 tíma í lokuðu
móti (eða breiðið alúminíum-
pappír yfir mótið). Hellið rjóm-
anum yfir réttinn rétt áður en
hann er tiTbúinn.
Kvöldverðarsíld
(Fyrir f jóra)
2 síldar
1 laukur
3 dl. súr rjómi
3 msk. kavíar
2 harðsoðin egg
1 tómatur
1 knippi graslaukur
Hreinsið og flakið síldina.
Leggið hana í bleyti í 8 tíma.
Flysjið laukinn og sneiðið hann
þunnt niður. Leggið laukinn á
fat. Þurrkið síldarflökm. Sker-
ið þau í þykkar sneiðar og rað-
ið ofan á lauksneiðamar.
Blandið rjómanum og kaví-
amum saman og hellið yfir.
Skerið eggin og tómatana í
flísar. Skreytið réttinn með
flísunum og klippið graslauk-
inn yfir. Berið síldina á borð
ískalda með nýsoðnum kart-
öflum.
Sherrysíld
(Fyrir fjóra)
2 síldar
2 msk. fínt hakkaður
rauðlaukur
1 msk. fínt klippt dill
Sósan
2 msk. borðedik
2 msk. matarolía
V4—1 dl. sykur
2 dl. tómatsafi
6 steytt piparkom
1 msk. sherry
Hreinsið síldina og leggið
hana í vatnsblandaða mjólk
yfir nótt. Flakið hana og roð-
flettið. skerið flökin í þunnar
jafnstórar sneiðar. Þeytið sam-
an efnin í sósuna, bragðið á
henni þar til rétti keimurinn
er kominn. Hellið sósunni yf-
ir síldina. Stráið lauk og dilli
yfir síldina og látið hana
standa á köldum stað í nokkra
tíma, svo að hún fái að sjúga
sósuna í sig.
Sí1dar_..kokkteiI1“
(Fyrir fjóra)
1 síld
1 salathöfuð
2 msk. hakkaðar niður-
soðnar rauðrófur
2 msk. kapers
2 msk. fínt hakkaður Iaukur
2 msk. fínt hakkaður
graslaukur
4 eggjarauður
Sósan:
2 msk. chilisósa, eða tómat-
sósa
1 msk. þykkur rjóml, rifin
piparrót
Hreinsið síldina og leggið
hana í bleyti í 12 tíma. Flakið
síldina og roðflettið og skerið
í næfurþunnar sneiðar. Skerið
salatið í sneiðar og skiptið því
niður í lítil glös. Komið sfld-
inni, rauðrófunum, kapersinu
og graslauknum smekklega fyr-
ir í glösunum. Látið eina
eggjarauðu mitt í hverja skál.
Blandið chilisósuna eða tómat-
sósuna með rjómanum og
kryddið með piparrótinni eftir
smekk. Ausið svolítilli sósu
yfir hverja skál.
Sem heitur
réttur
Síld í „hempu“
2 sfldar
2 msk. fínt hakkaður
rauðlaukur
2 msk. fínt klippt dill
2 harðsoðin egg
2 msk. smjör
1 dl. rjómi
Hreinsið síidina og leggið í
bleyti I 12 tíma. Flakið hana
og leggið flökin á smurð alúm-
íumblöð. Stráið lauknum, dill-
inu og eggjunum yfir. Leggið
nokkrar smjörklínur á flökin
og hellið rjómanum yfir. Pakk-
ið síldinni vel inn í alúmíum-
pappírínn og látið pakkana
stikna í miðlungsheitum ofni
eða á glóð í 15 til 20 mínútur.
Berið á borð með kartöflum.
Síld í móti
(Fyrir fjóra)
2 sildar
V2 kg. hráar kartöflur
2 laukar
3 msk. smjör
1 tsk. hvitur pipar
1 dl. rjómi
2 msk. brauðmyisna
Hreinsið sfldina og leggið
hana í bleyti í 12 tíma. Flakið
hana og skerið flökin í tvennt
eftir endilöngu. Flysjið kartöfl-
umar og laukinn og skerið nið-
ur í þunnar sneiðar Steikið
laukinn á pönnu í helmingnum
af smjörinu án þess að láta
hann fá lit. Leggið sfldina,
kartöflurnar og laukinn til
skiptis í lög í smurt eldfast
mót (helzt grunnt). Stráið of-
urlitlum pipri og hellið rjóm-
anum yfir. Stráið þunnu lagi
af brauðmylsnu ofan á og
leggið afganginn af smjörinu
efst í klínum. Bakið í miðl-
ungsheitum ofni í u.þ.b. 35
mínútur. eða þangað til kart-
öflurnar eru orðnar mjúkar.
Berið strnx á borð.
Steikt síld með
lauksósu
(Fyrir fjóra)
2 saltsíldar
2 msk. hveiti
1 egg
2 msk brauðmylsna
2—3 msk. smjör
lauksósa
2 msk. smjör
1 hakkaður laukur
IV2 msk. hveiti
4 dl. mjólk
salt, hvítur pipar
Hreinsið síldina og leggið
síðan í bleyti í 12 tíma. Flakið
hana og veltið flökunum upp
úr hveiti, síðan þeyttu eggi og
loks brauðmylsnunni. Steikið
sfldina þar til hún er fallega
gulbrún og leggið á heitt fat.
Steikið laukinn í IV2 msk. af
smjöri, stráið hveitinu yfir og
þynnið með mjólkinni. Krydd-
ið sósuna með pipri, saltið
hana og látið smjörkh'nu í
sósuna áður en hún er borin
fram.
Steikt saltsíld
2 saltsíldar
2—3 msk. gróft rúgmjðl
2—3 laukar
2 msk. smjör
1 dl. rjómi
Hreinsið síldina og leggið
hana í bleyti (notið mikið vatn)
yfir nóttina. Flakið hana og
roðflettið. Veltið flökunum upp
úr rúgmjöli. Flysjið laukinn og
skerið í þunnar sneiðar. Steik-
ið lauksneiðarnar í smjöri.
Brúnið afganginn af smjörinu
og steikið sfldarflökin, þar til
þau eru gulbrún báðum megin.
Hellið rjómanum yfir og látið
sfldina krauma í nokkrar mín-
útur. Leggið hana á heitt fat,
þekjið hana með lauknum og
hellið sósunni yfir.
Saltsíld. með brúnuðu smjöri
Leggið sfldarflök í bleyti yf-
ir nótt. Leggið þau upp á fat.
Stráið yfir hana hökkuðum
harðsoðnum eggjum, sem þið
blandið með fínt hökkuðu dilli
og 1 msk. af fínt hökkuðum
lauk. Rétt áður en sfldin er
borin fram hellið þið brúnuðu
smjöri yfir hana.
Gufusoðin síld
V-hálsmáliB
Ef þið cruð orðnar lciðar á gamla sumarkjólmun, er ekkert
vandaminna cn breyta hálsmálinu og sníða á hann hvítan kraga.
Hálsmálið, sem mest ber á í vor er flegna v-hálsmálið.
(Fyrir fjóra)
2 sildar
Sósan
3 msk. matarolia
1 msk. kryddedik
V2 msk. vatn
V2 tsk. hvitur pipar
1 tsk. franskt sinnep
Skreytt með:
2 hökkuðum harðsoðnum
eggjum
2 msk. hökkuðum niður-
soðnum rauðrófum
1 litlu epli
2 tsk. hökkuðum karpers
1 knippi af dilli
Hreinsið og flakið síldina og
leggið hana í bleyti yfir nótt.
Skolið flökin og þurrkið þau
vel. Leggið flökin upp á fat og
setjið fatið yfir sjóðandi vatns-
pott. Látið sfldina sjóða yfir
gufunni. þangað til hún er
hálfsoðin. Ausið öllu soði af
henni.
Blandið saman matarolíu.
kryddediki, vatni, sinnepi og
hvítum pipar. Hellið sósunni
yfír síldina og skreytið með
eggjunum, rauðrófunum og
eplinu. sem skorið hefur verið
í teninga.
Stráið að lokum kapersinu
og dillinu yfir. Berið á borð
með nýsoðnum kartöflum.
Nýjar síldarbollur
(Fyrir fjóra)
1 síld
1 lítill rauðlaukur
3 miölungsstórar kartöflur
1 epli
V? hg kjötfars
1 egg
1 msk. brauðmylsna
Leggið síldina í bleyti yfir
nótt. Takið öll smábein úr
henni. Hakkið síldina fínt og
Framhald á 9. síðu.
*
Dragtarveður
Nú cr veðrið tii þess að taka vordragtina út úr skápnum. Ungu
stúlkurnar í París hafa löngum þótt Iagnar við að klæða sig
smekklega fyrir litla peninga. Þessi stúlka er frá París og eign-
aðist nýja vordragt með því að Iífga gömlu dragtina sína upp
með svörtu mjóu bclti.