Þjóðviljinn - 14.05.1964, Side 3
Fímmtudagur 14. maí 1964
SlÐA 3
Ráðherrafundur Atlanzband alagsins í Haag
Tvær sprenglngar
enn í Madrid í gær
MADRID 13/5 — Tvær sprengj-
ur sprungu á götum úti í Madr-
id í nótt, og hafa þá orðið
þrettán sprengingar í borginni
síðan á mánudag.
Lögregluforingi
drepinn í Caracas
CARACAS 13/5 — Foringi í
leynilögi’eglunni í Venezúela var
myrtur á heimili sínu í Caracas
í gær.
Amerískir slagarar
bannaðir í Djakarta
DJAKARTA 13/5 — Borgarstjór-
inn í Djakarta, höfuðborg Indó-
nesíu, hefur lagt til að sett
verði bann við amerískum dæg-
urlögum til að mótmæla fjand-
skap Bandaríkjanna í garð
Indónesa. Þegar hefur verið
bannað að sýna bandarískar
kvikmyndir í borginni.
Davíð Ojstrak á
spítala eftir slag
MOSKVU 13/5 — Hinn heims-
kunni sovézki fiðlusnillingur,
Davíð Ojstrak, hefur verið lagð-
ur í sjúkrahús eftir að hafa
fengið aðkenningu að hjarta-
slagi. Ojstrak hneig niður á æf-
ingu 1 Leníngrad vegna of-
reynslu.
Landbúnaðarsýning
Breta í Moskvu
MOSKVU 13/5 — Landbúnaðar-
ráðherra Breta, Christopher
Soames, kom í dag til Moskvu,
þar sem hann mun opna brezka
landbúnaðarsýningu og eiga
viðræður við hinn sovézka
starfsbróður sinn, ívan Volovt-
sénko.
Ítalía sigraði USA
á bridgemótinu
NEW YORK 13/5 — Italska
sveitin sigraði í dag bandarísku
sveitina á heimsmeistaramótinu
f bridge með 158 stigum gegn
112.
Ekki samkomulag um
eitt einasta atriði
GENF 13/5 — Fyrsta af fimm
nefndum sem skipaðar voru á
viðskiptaráðstefnunni í Genf
hefur nú lokið störfum, en ekki
náðist samkomulag í henni um
eitt einasta atriði.
Hoggan persona non
grata í Austurríki
VÍNARBORG 13/5 — Innanrík-
isráðherra Austurríkis sagði í
dag að bandaríska prófessom-
um David Hoggan myndi verða
vísað úr landi ef hann héldi
nokkra fyrirlestra í Austurríki.
Hoggan fékk nýlega tvenn verð-
laun í Vestur-Þýzkalandi fyrir
bók sem hann hefur ritað. en
þar heldur hann uppi vörnum
fyrir Hitler og gerðir hans 5
síðari heimsstyrjöldinni. Sagt
var að Hoggan myndi rekinn
úr landi ef hann gerði alvöru
úr þeírri ætiun sinni að halda
fyrirlestra í Linz og Graz um
upptök heimsstyrjaldarinnar.
Belgískir flugmenn
lee-íria «íður vinnu
BRUSSEL 13/5 — Flugmenn
belgíska flugfélagsins SABENA
lögðu niður vinnu i dag og er
ætlunin að verkfallið standi í
tvo daga. Það er háð til að
fylgja eft'r kröfum um aukinn
vikulegan hvfldartíma.
Venus revnist stærri
MOSKVU 13/5 — Radarmælingar
sovézkra stjömufræðinga hafa
leitt í ljós að plánetan Venus er
nokkru stærri en talið hefur
verið fram að be=su oe hún er
einnig heldur nær jörðinni, eða
270 km, segir i frétt frá Tass.
DRÆMAR UNDIRTíKTIR UNDIR
TUMÆU BANDAKÍKJAMANNA
HAAG 13/5 — Það er komið á daginn sem við
var búizt að tilmæli Rusks, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á ráðherrafundi Atlanzhafsbanda-
lagsins í Haag til annarra NATO-ríkja um að þau
veittu Bandaríkjunum aðstoð bæði í stríði þeirra
í Suður-Vietnam og viðskiptastríðinu gegn Kúbu
hafa fengið dræmar undirtektir. Fulltrúar hinna
NATO-ríkjanna hafa ýmist leitt hjá sér að svara
þeim, eða hafnað þeim algerlega, eins og Couve
de Murville, utanríkisráðherra Frakka, gerði í
ræðu sinni í dag.
— Á sama tíma og Krústjoff forsætisráðherra er fagnað af
allr! hinni egypzku þjóð fyrir vináttu og rausn Sovétríkjanna
í hennar garð, halda brezkir heimsvaldasinnar áfram vonlausu og löngu töpuðu stríði sínu gegn
Aröbum. — Myndin er af brezkum hermönnum á leið i eyðimerkurstríðið í Suður-Arabíu.
Qlíkt kafðst þeir að
Mannfjöldi fagnaði Krústjoff
Mikið um dýrðir við
vígslu Assúunstíflu
KAÍRÓ 13/5 — Geysilegur mannfjöldi fagnaði ákaft í dag
þeim Krústjoff, fórsætisráðherra Sovétríkjanna, Nasser
forseta Egypta, og A1 Sallal, forseta Jemens, þegar þeir
vígðu í sameiningu fyrsta áfanga í hinni miklu stíflugerð
í Níl við Assúan, sem gerbreyta mun öllum efnahag
Egypta.
Þeir settu hver sinn múr-
stein j þennan fyrsta stiflugarð,
sem nálgast nú að vera full-
gerður, en ætlunin er að Ijúka
honútn fyrir helgina, og munu
þeir . Krústjoff fara yfir Níl á
honum á laugardaginn.
Þessi stífla í Níl er gerð til
þess að leiða hið mikla fljót í
nýjan farveg sem grafinn hefur
verið niður í eyðimörkina. Fyrst
þegar því er lokið, verður hægt
að byrja á að gera hina eigin-
legu stíflu i fljótinu. Á morg-
un verður fljótinu opnaður þessi
nýi favegur. sem er um tveggja
kílómetra langur skurður, með
dýnamítsprengingu. 1 miðjum
skurðinum hafa verið gerð sex
mikil göng sem vatnið mun
renna um, en stálþil eru fyrir
göngunum. svo að hægt verður
að stilla vatnsrennslið. Þarna
er ætlunin að koma fyrir miklu
raforkuveri.
Stíflan í Assúan, raforkuver-
in og áveitukerfin, sem henni
munu fylgja, er eitt mesta
mannvirki í heimi, ef ekki það
mesta, og mun gerbreyta öllum
efnahag Egypta. Framkvæmd
verksins sem að öllu leyti er
unnið fyrir sovézkt fé og und-
ir stjórn sovézkra verkfræðinga
(þeir eru þar nú 1.500 talsins),
hefur gengið einstaklega vel og
hafa allar áætlanir fyllilega
staðizt, en það er næsta óvenju-
legt. þegar um slík stórvirki er
að ræða.
Aukakosningar í Bretlandi
íhaldsmenn verja í
dag fjögur þingsætí
Hann sagði að þegar Frökkum |
hefði legið á, hefðu bandamenn
þeirra í NATO ekki veitt þeim
neina aðstoð. Frakkar hefðu
gjarnan kosið að geta reitt sig á
aðstoð annarra NATO-ríkja í
stríðinu í Indókina og síðar í
Alsír. Sú aðstoð hefði verið veitt
með hangandi hendi.
Minnt á Súez
Bandamenn Frakka. og þar
átti hann fyrst og fremst við
Bandaríkin, hefðu ekki sýnt þeim
neina sérstaka samúð eða skiln-
ing á aðstöðu þeirra í Súezstríð-
inu. Enginn gæti heldur haldið
því fram að Hollendingar hefðu
getað reitt sig á aðstoð banda-
manna sinna í stríði sínu í Indó-
nesíu, og sama máli hefði gegnt
um Belga í Kongó og Portúgala
í Angóla. Nú væri það Kúba,
Vietnarp, Malasía ,og Aden sem
hæst bæri. Hvert ajMldarríki
hefði sínar skyldur til að bera
og sínum hagsmunum að gegna
ög ætti enga kröfu á að önnur
ríki bandálagsins kaému því til
aðstoðar.
Leiða hjá sér
Ekki er vitað til þess að nokk-
ur þeirra ráðherra sem talað
hafa á fundinum í Haag hafi
tekið heils hugar undir tilmæli
Bandaríkjanna um aðstoð í
stríðinu í Suður-Vietnam eða til
að framfylgja viðskiptabanninu
á Kúbu. Bretar munu þó hafa
haft við orð að til mála kæmi
að þeir veittu stjórninni í Sai-
gon einhveria aðstoð, en þó alls
ekki hemaðarlega, en Bretar
hafa algerlega hafnað öllum til-
mælum um að taka þátt í við-
Birtar í „Pravda"
Tillögur
um lausn
Togliattís
deilunnar
LONDON 13/5 — Á morgun,
fimmtudag, fara fram í Bret-
landi aukakosningar j fjórum
kjördæmum, og hefur íhalds-
flokkurinn hingað til haft meiri-
hluta í þeim öllum. Þrjú eru
í Englandi en eitt í Skotlandi.
Af úrslitum þessara auka-
kosninga, sem verða þær síðustu
fvrir þingkosningarnar í haust.
telja menn að ráða megi hvernig
fsra muni i október.
í Rutherglen við Glasgovv í
Skotlandi hafði Ihaldsflokkurinn
1.522 atkvæða meirihluta í síð-
ustu þingkosningum. Verka-
mannaflokkurinn gerir sér all-
ar vonir um að bæta nægilega
við fylgi sitt til að vinna þetta
þingsæti af Ihaldsflokknum. Það
er aðeins í einu þessara fjög-
urra kjördæma sem íhalds-
flokkurinn getur gert sér nokkr-
ar verulegar vonir um sigur.
Það er i Winchester í Hamps-
hire, þar sem hann hafði um
13.000 atkvæða meirihluta 1959.
MOSKVU 13/5 — Aðalmálgagn
sovézkra kommúnista, „Pravda“,
birti í dag tillögur formanns
ítalska kommúnistaflokksins.
Palmiro Togliatti, um hvernig
beri að vinna að lausn á deil-
um flokkanna í Kína og Sovét-
ríkjunum.
AFP-fréttastofan skýrir frá
bessu, en rekur ekki nánar,
hverjar tillögur Togliattis voru.
Hins vegar er vitað að afstaða
ítalskra kommúnista hefur ver-
ið sú að enda þótt þeir styðji
að öllu leyti sjónarmið sov-
ézka flokksins í öllum helztu á-
greiningsmálunum, beri fyrir
hvern mun að forðast að þessar
deilur leiði til algerra vinslita
innan hinnar kommúnistísku
hreyfingar Þvi hafa ítalskir
kommúnistar verið mótfallnir
hinnj sovézku tillögu um al-
bjóðaþing kommúnistaflokkanna.
a.m.k. ekki fyrr en að loknum
rækilegum undirbúningi. Slíkt
þing, segir Togliatti, verður að
undirbúa miklu betur en síð-
asta þing flokkanna. sem hald-
ið var ! Moskvu 1961.
Sama afstaða Svía
Formaður sænskra kommún-
ista, C. H. Hermansson, lét i
Ijós sömu skoðanir í dag. Hann
sagðist ekki telja að slikt al-
þjóðaþing myndi bera nokkurn
iákvæðan árangur að svo stöddu.
Þetta þýddi hins vegar ekki að
flokkur hans væri hlutlaus i
deilunum — Fiokkur okkar
telur það rangt að kalla þenn-
an ágreining deilu milli Moskvu
og Peking, sagði hann. Ágrein-
ingurinn fjallar í rauninni um
það á hvern hátt bezt sé hægt
að tryggja frið og félagslegar
framfarir við hinar flóknu að-
stæður sem ráða ! heiminum !
dag Þvi er hér um að ræða
mál sem varða hvern einasta
mann, sagði Hermansson.
skiptastríðinu gggn Kúbu og
sama máli gegnir um önnur
NATO-ríki. utan Vestur-Þýzka-
lands.
Bonnstjómin hefur hins vegar
harðneitað að skipta sér nokkuð
af stríðinu í Suður-Vietnam, og
varð McNamara landvamaráð-
herra ekkert ágengt í því efni
þegar hann var í Bonn um helg-
ina.
Ósammála um flest
Það má heita að ekkert það
mál liggi fyrir fundi NATO-ráð-
herranna sem samkomulag sé
um. Þriðja höfuðmálið auk S-
Vietnam og Kúbu. sem fyrir
fundinum liggur, er Kýpurmálið,
þar sem tvö aðildarríki banda-
lagsins, Grikkland og Tyrkland,
eigast við í fullum fjandskap,
svo að litlu hefur mátt muna
að ófriður hæfist milli þeirra.
Það mál var rætt á lokuðum
fundum ráðherranna bæði fyrir
og eftir hádegi í dag.
Stórveldin ávítuð
Spaak. utanríkisráðherra Belg-
íu, réðst í dag af þeirri heift
sem honum er lagin á stórveldi
bandalagsins fyrir að sniðganga
algerlega minni aðildarrik'n. Til-
efnið var yfirlýsing um Þýzka-
landsmálið sem birt var í gær
að loknum sérstökum fundi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
Bret.lands. Frakklands og Vest-
ur-Þýzkalands. án þess að hún
væri borin undir hina ráðherr-
ana. Ef hald'ð vrði áfram að
sniðcanga smáríki bandalagsins
á þann hátt. myndi bað verða
til þess að þau yrðu utangarðs.
Gerbrevtt ástand
Spaak gerði annars. eins og
fleiri ráðherrar, grein fyrir sjón-
armiðum sínum til þeirrar end-
urskipulagningar sem gera þyrfti
á handalaginu. og nefndi ýms
atriði sem gerðu óhjákvæmilegt
að vinda bráðan bug að slíkri
endu rs k i nu Iggn in gu.
Þar taldi hann eitt höfuðat-
riðið vera bá „gerbreytingu sem
nrðið hefði á viðhorfunum til
kommúnistaríkjanna á síðustu 5
árum“. Enda þótt þetta hefði
ekki leitt af sér neina grund-
vallarbreytingu varðandi vanda-
mál Þýzkalands og Berlínar, yrði
að neyta sérhvers færis á að
komast að samkomulagi \nð
kommúnistaríkin, sagði Spaak.
Örvrkiar í Róm
” kröfugöngu
RÓM 1/5 — Mörg þúsund ör-
yrkjar fóru í píslarvættisgöngu
um götur Rómaborgar f dag til
að vekja athygli á kröfum sfn-
um. Þeir báru spjöld með áletr-
unum sem þessum: Við viljum
lífeyri i stað loforða; flækings-
hundum er veitt björg, en hvað
með okkur? — Gangan stað-
næmdist við þinghúsið og höfðu
bá ýmsir bingmenn áður slegizt
í hópinn Flvtia varð tvo göngu-
manna í sjúkrahús.