Þjóðviljinn - 20.05.1964, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 20. maí 1964 — 29. árgangur — 110. 'tölublað.
Væntanleg hingað í næstu viku
önnur nýju flugvélanna af
gerðinni Rolls Royce 400
(Canadair) sem Loftleiðir hafa
fest kaup á er væntanleg
hingað til lands í næstu viku.
— Sjá nánar frétt á 12. síðu.
Viðbúnaður á Kúbu vegna hótana
um landgóngu þar
Sveitir gagnbyltingarmanna eru sag&a,
vera i þann mund oð ganga />ar á land
HA.VANA og- MIAMI 19/5 — Ástandið á Karíbahafi verður ískyggilegra
með hverjum degi. Sveitir gagnbyltingarmanna sem hafa aðalstöðvar sín-
ar í Bandaríkjunum hafa gert strandhögg á Kúbu og unnið þar ýms spell-
virki og fréttir hafa nú borizt af því að hópar þeirra séu á leiðinni þang-
að og ætli að ganga þar á land og búa þar um sig. Mikill viðbúnaður er
sagður á Kúbu til að taka á móti þeim, og jafnframt hefur Kúbustjórn
gefið til kynna að hún geti ekki horft á það aðgerðarlaus að bandarískar
njósnaflugvélar rjúfi lofthelgi Kúbu sýknt og heilagt.
Aðalfréttaritari „New York
Viðræður um
sumningumál
•tc Viðræðufundir ríkisstjórnarinnar og nefndar Alþýðusam-
bandsins héldu áfram í gær; en fyrir helgina og um hana
voru að störfum vinnunefndir sem aðilar höfðu sett til að
athuga einstaka þætti hins flókna samningamáls.
•fc, Sáttasemjari ríkisins hefur haldið tvo sáttafundi með
deiluaðilum í vinnudeilunum norðan. lands og austan. Var
hinn fyrri fyrir helgi en hinn síðari i gærkvöld.
•fc Félögin hafa ekki enn boðað verkfall, en hin sameigin-
lega samninganefnd verkalýðsfélaganna á. Norðurlandi og
Austurlandi hefur fengið til þess heimild frá félögunum.
Björn Pálsson fær
nýja flugvél
Times” um málefni rómönsku
Ameríku, Tad Szulc, birtir í
dag í blaði sínu skeyti sem dag-
sett er „einhvers staðar í Kar-
íbahafi”. Þar segir hann að einn
af leiðtogum gagnbyltingar-
manna. Manuel Ray, sé nú á
leiðinni til Kúbu með hóp
manna, þaulæfða spellvirkja og
undirróðursmenn, og ætli þeir
að freista þess að ganga á land
á eynni.
Fyrir 20. maí
Szulc hefur eftir Ray, að hann
geri sér vonir um að geta aftur
komið upp andspymuhreyfingu 1
gegn stjórn Castros, eins og'
þeirri sem gengið var milli bols
og höfuðs á eftir innrásina í
Svínaflóa 1961. Ray gerir sér
ekki vonir um að ná skjótum
árangri í baráttu sinni gegn
Castro, en vonast til að geta bú-
ið um sig í fjöllum landsins og
haldið þar uppi stöðugum skæru-
hemaði. Ray hefur áður látið
hafa það eftir sér að hann ætli
að vera genginn á land á Kúbu
fyrir 20. maí, en það er hinn
gamli fullveldisdagur landsins.
Strandhögg
Venceremos!” hljóðar vígorð Kúbumanna: „Við munum sígra!” — og gagnbyltingarmenn munu
aftur reka sig á að samhent og einhug þjóð mun taka á móti þeim og veita þeim þá ráðningu
sem þeir hafa til unnið.
r rr
A annan í hvítasunnu kom
Björn Pálsson flugmaður til
Iandsins með nýja flug,vél sem
hann hefur fest kaup á úti i
Bretlandi. Nýja vélin er af gerð-
inni De Havelancl Dove og tekur
níu farþega og tvo flugmenn.
Vélin er nýyfirfarin, bæði að
innan og utan og nýskoðuð og er
hún tílbúin til notkunar strax.
Sagði Biörn í viðtali við Þjóð-
viljann að vélin hefði reynzt
ágætlega á heimfluginu og ætti
hún að geta lent ■ á flestum
smærri flugvöllum hér á landi.
Verður hún notuð til áætlunar-
leigu- og sjúkraflugs. Björn
á þrjár flugvélar fyrir en eina
þeirra, Lóuna, sem tekur sextán
farþega hyggst hann selja með
haustinu þar eð hún hefur reynzt
of stór og dýr í rekstri til áætl-
unarflugs út á land. Myndin er
tekin af Birni við vélina við
komuna hingað á mánudaginn.
— (Ljósm. Bj. Bj.).
Annar flokkur gagnbyltingar-
manna, sem er undir stjórn
Manuel Artime. eins af foringj-
unum fyrir hinni smánarlegu
hrakför í Svínaflóa um árið, er
sagður hafa gert strandhögg á
Kúbu og sprengt í loft upp sex
brýr. Þessir gagnbyltingarmenn
kalla sig „Byltingarhreyfinguna
til endurheimtar Kúbu” og það
voru menn úr þeim félagsskap
sem réðust á miðvikudaginn var
á sykurhreinsunarstöð í Puerto
Pilon í Oriente-fylki og kveiktu
í henni. Þá var sagt að með
þeirri árás væri byrjað stríð
gegn stjórn Castros.
Viðbúnaður
Fréttaritari ítalska kommún-
istablaðsins „TUnita” á Kúbu,
Saverio Tutino, símar frá Hav-
ana:
„Á ytra borðinu virðist ekki
vera hér mikið um að vera.
Gagnráðstafanir voru gerðar
þegar fyrir nokkrum vikum.
Það verða aðeins fyrstu skyndi-
árásimar sem bera árangur.
Það eru ekki nægar fallbyssur
til að verja ströndina fet fyrir
fet. Það er þó ástæða til að
undrast að sykurhreinsunarstöð
Framhald á 3. síðu.
Sjómenn láta ekki UU ræna
tugþásundum króna af hlut
■ Eins og kunnugt er hafa
öll sjómannasamtökin, sjó-
mannafélögin, Sjómanna-
sambandið og Farmanna- og
fiskimannasamband íslands,
krafizt þess, að gert verði
upp fyrir þorskveiðarnar í
nót eftir eina hringnóta-
samningnum sem í gildi er.
Stjórnarklíkan í LÍÚ hefur
hins vegar „fyrirskipað“ út-
gerðarmönnum að gera upp
eins og ef þorskveiðarnar í
nót heyrðu undir netakjör-
in!
★ Heyrzt liefur að útgerðar-
menn ýmsir séu staðráðnir í að
gera upp við skipverja sína sam-
kvæmt réttum samningum, og
mun það sjást næstu daga.
★ Hér er um mikið hagsmuna-
mál sjómanna að ræða og fá-
heyrða ósvífni stjórnar ,.Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna“ sem svo nefnir sig. Get-
ur sú upphæð, sem útgerðarmenn
hyggjast ætla að hafa af skip-
verja numið allt að 20 þúsund
krónum á hlut, á skipum sem
hafa 900—1000 tonna afla.
★ Sjómenn munu vera vel á
verði og halda fast við samn-
inga sína, og það eru ekki ein-
tóm blíðmæli í garð stjórnar
Llt! sem heyrast þessa dagana
í verstöðvunum suðvestanlands.
Fischer verður ekki með í Amsterdam
I dag liefst í Amsterdam í
Hollandi skákmót sem fylgzt er
með um heim allan, millisvæða-
mótið, en sex skákmeistarar
fara þaðan til áskorendamóts.
ins, þar sem keppt er um rétt-
inn til að skora á núverandi
heimsmeistara í skák, Tígran
Petrosjan, til einvigis um þann
eftirsótta titil.
Það veldur vonbrigðum um i
allan heim að bandaríski skák-!
snillingurinn Robert Fiseher
verður ekki meðal þátttakenda, I
þó hann hefði unnið sér rétt til |
þess.
Þátttakendur verða þessir:
Frá Sovétríkjunum: Tal. Smisl-
off, Spasskí, Bronstein, Stein.
Frá Bandaríkjunum: A.
Bisguier, S. Reshevsky, L. Ev-
ans. — Frá Suður-Ameríku:
Rosetto, Foguelman, Quinones
— Frá Evrópu utan Sovétríkj-
anna: Portisch, Bilek, Lengyel,
Gligoric, Ivkov, Pachman, Tring-
o_v, Darga, Larsen. — Frá
Ástraliu: Berger. — Perez frá
Kúbu er fulltrúi Mið-Ameríku-
svæðisins. Vranesic er fulltrúi
Kanada oa frá Vestur-Asíu
kemur Porat.
)■