Þjóðviljinn - 12.06.1964, Side 1
Föstudagur 12. júní 1964
29. árgangur
129. tölublað.
!
I
Norðaustan bræla er nú
á stldarmiðunum eystra
i
VerSlagsróS sjávarúfyegsins ákveSur brœSslusildarverSiS
Verksmiðjurnar greiða kr. 185
Skipasmíðar í Færeyjum
fyrir málið
□ Verðlagsráð sjávarútvegsins mun nú hafa
komizt að niðurstöðu varðandi verð á bræðslusíld
í sumar, þótt enn hafi ekki verið gengið endanlega
frá þessu. Munu síldarverksmiðjumar greiða kr.
185 fyrir málið, en þar em innifaldar kr. 3, sem
gert er ráð fyrir að leggja í sérstakan sjóð og greiði
hann ákveðnar uppbætur á mál til síldveiðiskipa,
sem flytja sjálf síldarfarm um lengri vegalengdir
(mlllí Iandshluta), þegar um löndunarerfiðleika
eða mikla löndunarbið er að ræða á vissum
svæðum.
□ í fyrra var verðið á málinu í bræðslu kr
150, en lækkaði um 16 kr. ef lagt var upp í flutn-
ingaskip. Hækkun bræðslusíldarverðsins frá því í
fyrra nemur því um 23%.
<
Myndin er tekin í skipasmíðastöðinni við Skálafjörð í Færeyjum fyrir nokkrum dögum. Einn af
starfsmönnunum vinnur að ytri frágangi á stjórnpalli 300 brúttólesta stálskips, en liað er annað
tveggja fiskiskipa sem verið er að fullgera í skipasmíðastöðinni þessa dagana. Aður hefur verið lok-
ið við smíði tveggja stálskipa þarna í Skála og hefur a.m.k. annað þeirra, Goðanes, komið hingað
til Iands og vakið athygli sjómanna og útgerðarm anna íslenzkra sem skoðað hafa. — Frá skipasmíða-
stöðinni í Færeyjum og endurnýjun færeyska fiski skipaflotans er nánar sagt á 7. síðu blaðsins i dag.
Verðlagsráð sjávanátvegsins
hefur verið á stöðugum fundum
undanfarið um þessi mál, enda
voru sjómenn og aðrir orðnir
óþolinmóðir að fá einhverja vit-
neskju um væntanleg kjör á síld-
inni.
Hækkunin sem verður á
bræðslusíldinni mun m. a. stafa
Hvar er stuðningurinn við málstað undirokaðra í Suður-Afríku?
við S-Afríku fyrstu
4 mánuði ársins hafa tvöfaldazt
Fyrstu 4 mánuði þessa árs fluttu íslendingar inn vörur
frá Suður-Afríku fyrir 945.000,00 krónur en á sama tíma
í fyrra nam innflutningurinn 488 þúsund krónum, og eru
viðskipti íslands við fastistaríki • Verwoerds því um það
bil tvöfalt meiri í ár en í fyrra.
Þjóðviljinn vill vekja athygli
á þessum staðreyndum. ekki sízt
með tilliti til stöðugt vaxandi
kúgunar Suður-Afríkustjómar á
þeldökkum mönnum. Kynþátta-
stefna Suður-Afríku hefur verið
eitt aðalvandamál á ráðstefnum
Sameinuðu þjóðanna undanfárið,
fjölmargar alþjóðastofnanir hafa
vikið Suður-Afríku úr samtökum
sínum, og virk barátta hefur ver-
ið háð gegn stjóm Suður-Afríku
víða um lönd, m. a. með því að
forðast viðskipti sem mest, þótt
Banasiys a
síldarbdt
Neskaupstað, fimmtudag. —
Banaslys varð á síldarbát í
morgun. Var báturinn Heimir
SU að veiöúm 100-120 sjómílur
norður af Hraunhafnartanga og
voru skipverjar nýbúnir að kasta
á síld og byrjaðir að snurpa nót-
ina. Hljóp þá tó upp af spilskífu
og slóst í höfuð eins hásetans.
Karls Stefánssonar, sem hné
þcgar niður og var látinn.
Karl heitinn var ættaður úr
Breiðdal og á þar foreldra á lífi.
Var lík hans fíutt til Stöðvar-
fjarðar.
Sjópróf út af þessu hörmulega
slysi eiga að hefjast hjá bæjar-
fógetanum í Neskaupstað seint
í kvöld. — H.G.
ekki væri um beint viðskipta-
bann að ræða.
Á Norðurlöndunum hafa við-
skipti við Suður-Afríku t. d.
dregizt allverulega saman fyrir
beinar aðgerðir ýmissa fjölda-
samtaka, t.d. verkalýðshreyfing-
arinnar. samvinnuhreyfingarinn-
ar og mjög sterks áróðurs æsku-
lýðssamtaka þessara landa.
Þáttur Æskulýðs-
sambandsins
Æskulýðssamband íslands tók
þetta mál einnig upp á sínum
tima, og þáverandi formaður,
Ólafur Egilsson, boðaði m.a. til
blaðamannafundar, þar sem
hvatt var til sömu aðgerða hér
á landi og í nágrannalöndum
okkar. En forysta Æskulýðssam-
bandsins náði skammt; fyrir ut-
an þennan eina blaðamannafund
mun ekki hafa heyrzt orð frá
því um þessi mál. Fólk var hvatt
til að kaupa ekki vörur frá S-
Afríku. en hins vegar með öllu
vanrækt að fræða fólk um,
hvaða vörur frá Suður-Afríku
eru í búðum á hverjum tíma.
Innantómt orðagjálfur?
Þessa daga er beðið í ofvæni
eftir dómsuppkvaðningu fasista
böðlanna í Suður-Afríku yfir
helztu foringjum blökkumanna
vegna þátttöku í baráttu
fyrir einföldustu mannréttindum
þeim til handa. Er ekki kominn
tími til að félagssamtök og al
menningur á íslandi gefi þessum
málum meiri gaum, og taki virk-
an þátt í þeirri baráttu, sem háð
er í fjölmörgum löndum gegn
kynþáttakúgurum Verwords? Eða
ætla íslendingar einir allra
menningarþjóða að svívirða á
borði mannréttindabaráttu þel-
dökkra í S-Afríku, en þykjast
fúsir að veita þeim fyllsta stuðn-
ing — með innantómu orða-
gjálfri?
af mikilli verðhækkun á sildar-
afurðum erlendis. Verðhækkun á
lýsi er 15-20 sterlingspund á
tonnið og tonn af síldarmjöli
hefur hækkað um 3-4 sterlings-
pund. En jafnframt má geta þess,
a 5 þrátt fyrir þessa hækkun á
bræðslusfidarverðinu, mun hér
vera um miklu lægra verð að
ræða heldur en t.d. í Noregi.
Eins og fyrr segir hefur Verð-
lagsráðið ekki gengið endanlega
frá þessum málum. Morgunblað-
ið birti hins vegar frétt um
verðákvörðunina í gær, og hefur
það því komizt yfir fréttina eftir
einhverjum krókaleiðum. Má í
sambandi minna á, að fyrir
nokkrum árum voru vissir aðilar
í Verðlagsráði með dylgjur í garð
Tryggva Helgasonar fulltrúa sjó-
manna um að hann hefði látið
Þjóðviljanum í té upplýsingar
varðandi samningamál, og sendu
kæru á hendur honum til ráð-
herra. Verður fróðlegt að sjá
viðbrögð þeirra nú varðandi frétt
Morgunblaðsins um sfidarverðið,
áður en gengið hefur verið end-
anlega frá málinu í Verðlagsráð-
inu.
I Norðaustan bræla er
nú komin á síldarmiðunum
báðum megin við Langanes
og hamlaði nokkuð veiði hjá
flotanum í fyrrinótt.
■ Flotinn fékk þó dágóð-
an afla frá 100 til 150 sjó-
mílur úti á hafinu og gætti
brælunnar þar minna. Þann-
ig fengu 26 skip 26 þúsund
mál á þessum slóðum í
Eyrrinótt.
Raufarhöfn
Löndunarstöðvun skall á klukk-
an hálf ellefu í gærdag hjá S.R.
Raufarhöfn og voru þá til stað-
ar í þróm og tönkum sextíu þús-
und mál sfidar. Bræðsla hófst
í verksmiðjunni klukkan átján
í fyrrakvöld og losna tvær þrær
með fimm þúsund mála afköst-
um verksmiðjunnar á sólar-
hring. Þrjú skip biðu losunar
fram eftir deginum í gær og
fengu löndun klukkan sjö um
kvöldið. Það voru Guðrún frá
Hafnarfirði með 1000 mál, Bára
KE með 250 mál og Sunnutind-
ur með 350 mál.
Þjóðviliinn hafði sambandd
við síldarleitina á Raufarhöfn
kl. sjö í gærkvöld og höfðu þá
eftirtalin skip tilkynnt afla sinn
þangað og höfðu tekið stefnuna
á Eyjafjarðarhafnir og Siglu-
fjörð. Bára KE 300 mál, Guð-
bjartur Kristján ÍS 600 mál,
Sigurður Bjamason EA 1100.
Oddgeir ÞH 800, Hólmanes SU
800. Hannes Hafsteinn EA 1000.
Fengu þeir þennan afla 120 til
150 sjómílur norðaustur af
Raufarhöfn. Norðaustan brælan
hafði ekki tekið völdin á þess-
um slóðum og var ekki slaemt
veiðiveður á þessum slóðum.
Siglufjörður
I gær komu níu bátar með
tíu þúsund mál síldar til Siglu-
fjarðar og er þegar hafin
Framhald á 9. siðu.
Afgreiðsla Happdrætt-
is Þjóðviljans er að Týs-
götu 3, sími 17514, opin
kl. 9—12 og 1—6 e.h.
Loka ríkisstofnanirnar á
laugardöpm f sumar?
í gær barst Þjóðviljanum
eftirfarandi fréttatilkynning frá
ríkisstjórninni um heimild til
niðurfellingar vinnu á laugar-
dögum yfir sumarmánuðina
fjóra hjá ríkisstofnunum gegn
því að unnið verði til kl. 6
á mánudögum allt árið um
kring í stað kl. 5 áður.
»> 2. gr. dóms kjaradóms frá
Styðjið Keflavíkurgönguua með fjárframlögum
Þegar við höfðum sam-
band við skrifstofu hernáms-
andstæðinga í gær voru for-
stöðumenn göngunnar bjart-
sýnir vegna þeirrar undir-
tekta, sem gangan hefur hlot-
ið. Hinsvegar voru þeir með
nokkurn barlóm vegna
fjármálanna. Framkvæmd
slíkrar göngu kostar mikið
starf en ekki síður fjármuni.
Kostnaður nemur yfirleitt
tugum þúsunda króna. And-
stæðingar hersetunnar hafa
til engra að leita nema til
s’jálfra sín um fjárframlög
og verður því hver og einn
sem telur þessi mál nokkru
skipta að leggja eitthvað af
mörkum.
Skrifstofa hernámsand-
stæðinga er í Mjóstræti 3 og
hefur opið í dag og á morg-
un kl. 14—18.30. Sími 24701.
3. Júlí 1963, segir svo:
tímabilinu frá 1. júní til 30.
september ár hvert er heimilt,
með samkomulagi forstöðu-
manna hlutaðeigandi stofnana
og starfsmanna, að fella niður
vinnu á laugardögum, enda
lengist dagvinnutími aðra daga
vikunnar, svo að full vinnuvika
náist á 5 dögum“.
Orðið hefur að samkomulagi,
að heimild þessari sé beitt, með
því skilyrði, að fært sé að dómi
forstöðumanns og viðkomandi
ráðuneytis að fella niður störf
á umræddum tíma, svo og. að
vinnutími þeirra starfsmanna.
sem ekki vinna á laugardögum
skv. framansögðu, lengist • í
staðinn um eina klst. á mánu-
dögum allt árið með þeim hætti.
að þá verði unnið til kl. 18“.