Þjóðviljinn - 12.06.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.06.1964, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. júní 19ff4 ntomnra SIÐA g Þannig skoradi KR íjória og síöasta niarkiö í leiknum. Ellert scndir knöttinn snyrtilega í mann- laust markið, án l>css varnarmcnn Þróttar íái rönd viö reist. (Ljósm. Bj.Bj). Knatfspyrna-1. deild KR VANN ÞRÓTT - 4:0 í FREKAR SLÆMUM LEIK Það var engan veginn tilþrifamikill leikur, sem KR og Þróttur sýndu á miðvikudagskvöldið, er liðin mættust í fyrri umferðinni í íslandsmótinu. Yfirburðir KR lágu í því að þeir gátu skorað en Þróttur ekki. samleikinn þegar mest reið á að ná saman. Á 37. mín. er Gunnar Guð- mannsson kominn út til hægri og sendir yfir, og þar fyrir Ellert með sinn góða skalla, og skallar hann vægðarlaust í hom marksins óverjandi fyrir Guttorm, og þannig lauk fyrri hálfleik. Seínni hálfleikur Á 15. mín. síðari hálfleiks gera KR-ingar áhlaup. Gunn- ar Guðmannsson sendir yfir til hægri þar sem Jón Sig- urðsson er fyrir, en hann send- ir knöttinn til Ellerts, sem stendur á miðjum markteig, og þarf ekkert annað að gera en blaka v;ð knettinum og senda hann í mannlaust mark- i ð. Þegar hér var komið var mikil deyfð kominn yfir Þrótt- ara, og leikur þeirra á eng an hátt sannfærandi. þó tókst KR ekki að skora fleiri mörk en tvisvar áttu þeir skot í stengurnar á marki Þróttar. Liffin Leikur KR var langt- undir þvi sem liðið getur, þótt þeir sigruðu með þessum yfirburð- um. Hraði manna var lítill, nema hvað Gunnar Felixson, og nafni hans Guðmannsson ógnuðu oft með hlaupum sín um, en það er ekki sá hraði sem við er átt, þegar talað er um hraða í knattspymu . Annars voru framverðir KR virkir í þessum leik, þeir Þórður Jónsson og Sveinn Jónsson. Hinn ungi miðvörð- ur KR lék síðari hálfleikinn því Hörður Felixson hætti fyr- ir leikhlé, og sýndi hann enn að þar er réttur maður ; réttum stað. Framhald á 9. síðu. Hverjir ’fara héðan Þátttaka í Norður landamóti ungl. Stjórn FRÍ hefur á fundi sínum í dag 10. júní, samþykkt eftir- talin lágmörk, sem gilda fyrir væntanlegu vali 'til þátttöku í Norður- landam. unglinga, sem fram fer í Osló 6.—9. ágúst n.k. Jafnframt samþykkir stjórnin, að væntanlegir keppendur greiði helming ferða- kostnaðar. «>- Úti á vellinum náðu Þrótt- arar oft svo lítið saman og komust - upp að marki KR. en þar rann a!lt útí sandinn. Annaðhvort fóru skotin fram- hjá eða þá að þeir voru allt of seir.ir til að notfæra sér möguleikana. Vörn KR var að visu sterkari og ákveðnari en Þróttarvörnin. Það sem gerði leikinn svo lakan og leiðinlegan á að horfa var það að það vantaði yfir- leiít alian frískleik í leikmenn. Það vantaði þann hraða sem vér'ður að krefjast af fyrstu- deildsrliðum. Allt gekk svo silalega; það var eins og þeir æ.ttu svo erfitt með að hreyfa lirn.i sína og líkama, með ör- fáum undantekningum þó. Þetta varð til þess að allur samleikur var svo hægfara og ónákvæmur að furðu sætti. Varðar • þetta bæði liðin, þó var KR-liðið heldur jákvæð- ara hvað þetta snertir. Gangur leiksins Þróttur byrjaði ekki illa, því á annarri mínútu munaði hárs- breidd að þeir skoruðu. Var það Axel sem skaut rétt fram- hjá. En KR-ingar voru yfirleitt sælcnari upp við markið, og á 5. mín. á Gunnar Felixson skalla í stöng. Vörn Þróttar varð fljótt sek um það að opna um of, og á 15, mín. nær Gunnar Felixson knettin- um á sínum vallarhelmingi og eru varnarmenn þá enn fram- ar og einleikur Gunnar innað marki Þróttar og tókst vöm- inni ekki að hindra að hann skoraði með föstu skoti. Á 25. mín. átti Þróttur gott tækifæri. Ólafur er of lengi að. búa sig undir• að skj.óta og fótur komst fyrir. Aðeins 5. mín. síðar fær Ellert góða sendingu með jörðu frá Gunn- ar Guðmannssyni og viðstöðu- laust skýtur hann og skorar mjög glæsilega. Þróttarar sækja hvað eftir annað upp að marki KR, en aldrei tekst þeim að skapa sér nægilega opið færi, og oftast var það vegna of mikils ein- leiks, sem aftur sleit í sundur Frjálsar íþróttir Mikill íþróttaáhugi innan „Skarphéðins" ÍÞRÓTTAHELGI SKARP- HÉÐINS Á LAUGARVATNI Þáð er líflegt íþróttastarf á Laugarvatni um þessar mundir. Benedikt Jakobsson "er eystra á vegum íþróttakennaraskólans, og undir hand- leiðslu hans æfir einnig íþróttafólk úr Héraðs- sambandinu Skarphéðni. Unglingakeppnin í iok ágústmánaðar Unglingakeppni FRI 'fer fram í Reykjavík dagana 29. og 30 ágúst. Fyrirkomulag keppn- innar er þannig, að all- ir unglingaflokkarnir, þ.e. sveinar, drengir og unglingar — og svo stúlknaflokkar, þreyta keppni hvert á sínum heimavelli (eða öðrum velli) frá upphafi keppnistímabilsins til 1. ágúst. Afrekin skulu síðan senda Laganefnd FRl. pósthólf 1099, fyrst 1. júlí og síðan loka- skýrsla í síðasta lagi 5. ágúst. Þegar stjóm FRl hafa bor- izt skýrslur um afrekin mun birtast listi í blöðum og út- varpi, fjæst í byrjun júlí til þess að keppendur geti fylgzt með möguleikum til að kom- ast í úrslit í lok ágúst. Síðan kemur skrá um þá sem verða í lokakeppninni. Stjóm FRl greiðir helming farareyris utanbæjarmanna og mun einnig aðstoða við útveg- un á svefnplássi ef þess er óskað. Keppnisgreinar Unglinga- keppninnar 1964 eru þessar: Sveinar: (f. 1948 eða síðar) 100 m hl„ 400 m hl„ 800 m grindahlaup, hástökk, lang- og spjótkast. Drengir (f. 1946 og 1947). 100 m hl.. 400 m hl., 800 m hlaup, 1500 m hl., 110 m gr.hl., hástökk. langstökk, stangar- stökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast. Unglingar: (f. 1944 og 1945). 100 m hl„ 200 m hl„ 400 m hl., Framhald á 9. síðu. Mikil aðsókn er nú orðin að Iþróttakennaraskóla Islands á Laugarvatni, og mun Benedikt vera að prófa íþróttagetu um- sækjenda um skólavist næsta vetur. A Laugarvatni' eru einnig 17 piltar úr ungmannfélögunum á sambandssvæði Skarphéðins. Vinna þeir í 4 stundir á morgnana að iþróttamann- virkjagerð á staðnum, en síð- dégis njóta þeir íþróttakennslu af hálfu Iþróttakennararskól- < ans, og mun Benedikt Jakobs- son vera aðalþjálfari. Þessi dvöl stendur í vikútíma. Æfingahelgi Um næstu helgi efnir Hér- aðssambandið Skarphéðinn til tveggja daga æfinga fyrir frjálsíþróttafólk úr ungmenna- félögunum á sambandssvæðinu. Þjálfarar verða þeir Þórir Þorgeirsson og Benedikt Ja- kobsson. Héraðsmót Skarphéðins verð- ur háð að Þjórsártúni 4. og 5. júl£. Hinn 28. þ.m. gengst Skarp- héðinn fyrir fjölþættu starfs- íþróttamóti að Brautarholti á Skeiðum, og verður þar keppt í mörgum starfsíþróttagrein- um fyrir konur og karla. Mikil gróska er í íþrótta- málum héraðsins. og mun Skarphéðinn hafa fjóra starf- andi iþróttakennara á sínum vegum fyrrihluta sumars. Sundmót Skarphéðins var Framhald á 9. síðu. Stjórn FRl vekur athygli á að þátttaka verður takmörkuð, þrátt fyrir unnin tilskilin lág- marksafrek. Lágmörkin eru þessi: 100 m. hlaup 11.0 sek. 200 m. hlaup: 22,5 sek. 400 m. hlaup: 50,0 sek. 800 m. hlaup: 1:57,0 mín. 1500 m. hlaup: 4.00,0 mín. 3000 m. hlaup: 8:50,0 mín. 110 m. grindahlaup: 15.5 sek. 400 m. grindahlaup: 55,0 sek. 1500 m hindrunarhlaup: Hástökk 1,90 m. 4:23,0 mín. Stangarstökk: 3,90 m. Langstökk: 6,90 m. Þrístökk: 14,20 m. Kúluvarp: 14,75 m. Kringluast: 43,00 mk. Sleggjukast: 45,00 m. Spjótkast: 65,00 m. (Frá FRl). Frjálsíþrótta- námskeið Frjálsíþróttadeildar Ármanns mun gangast fyrir námskeiði í frjálsum íþróttum á íþrótta- svæði félagsins við Sigtún fyrir pilta 13 ára og eldri. Námskeiðið mun verða hald- ið mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 6—8. Aðalkennari námskeiðsins verður þjálfari frjálsíþrótta- deildarinnar, Artúr Ólafsson, og honum til aðstoðar munu verða nokkrir íélagar frjáls- íþróttadeildar. Allir piltar eru velkomnir á umrætt námskeið sem mun standa í mánuð. ENN EIN NÝJUNG FRÁ SJÖFN REX FH - Breiða- blik keppa Á morgun fer frarh leikur í 2. deild knattspymunnar. Það eru FH og Breiðablik, sem keppa á knattspyrnuvellinum í Hafnarfirði. PH hefur leikið einn leik áður í 2. deild á sumrinu, og unnu þá Víking — 4:0. Breiða- blik hefur hinsvegar leikið tvo leiki og tapað báðum, þó með litlum mun. Það var gegn Vestmanneyingum og Víkingi. SisSKIPIIMAlNING NÝJA REX SKIPAMÁLNINGIN ER AFBRAGÐS STERK OG ENDiNGARGÓÐl REYNSLAN SANNAR GÆÐI REX VARANNA ifii ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.