Þjóðviljinn - 12.06.1964, Page 4
4 SlÐA
Otgef&ndi: Samelnmgarflokkui alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
RitsMórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.).
Sigurdur Guömundsson.
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjarnason.
Fréttaoritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsia. auglýsingar. prentsmiðja. Skóiavörðust 19.
Sími 17-500 (5 linur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Sjómannakjör
Haft ér eftir Emil Jónssyni ráðherra að hann hafi
á sjómannadaginn átalið það að ekki skyldi
alltaf ganga greiðlega að manna fiskiskipin ís-
lenzku, heldur hnöppuðust menn að störfum í
landi. Þetta á þó eðlilegar orsakir, og þá helzt að
kjör sjómanna eru ekki nándar nærri nógu góð,
og þeir hafa í flestu mætt algeru skilningsleysi
af hálfu ríkisstjórnar og samtaka útgerðarmanna.
Ekki er líklegt að Alþýðuflokkurinn sé orðinn svo
rúinn sjómannafylgi að einhver flokksmanna hafi
ekki getað frætt Emil á því hvernig síldveiðisjó-
mönnum líkuðu gerðardómslögin og gerðardóm-
urinn um árið, þegar loks komu uppgrip af síld
eftir mörg og löng aflaleysissumur. Og reiðir
urðu bátasjómennirnir í vor, þegar íhaldið í LIU
fyrirskipaði að svindlað skyldi á uppgjörinu fyrir
þorskveiðarnar í nót. Algert skilningsleysi og
þvergirðingsháttur útgerðarmanna við eðlilegum
og sjálfsögðum kröfum um leiðréttingar á sjó-
mannasamninguhum, sem neytt hefur t.d. togara-
sjómenn til að standa í 130 daga verkfalli, er
heldur ekki vel til þess fallið að fryggja góðan
mannskap á togarana, samtímis því að nóg er um
vinnu í landi.
jjað er staðreynd sem ekki verður komizt fram-
hjá að á síðustu árum hefur. stefrtt-Lil sívax-
andi vinnuþrældóms á fiskiskipaflotanum. Þar
eiga sinn þátt breytingarnar sem orðið hafa á
úthaldstíma, að veiðar mega heita stundaðar hvíld-
arlaust áfið um kring. Hóflaus aukning veiðar-
færa, ekki sízt þorskanetanna, hefur einnig átt
hlut að auknum þrældómi á sjónum. Þetta á ekki
einungis við um háseta, heldur líka ekki síður
vélstjóra og stýrimenn á bátunum, sem yfirleitt
verða að vinna sömu verk og aðrir skipverjar auk
sinna eiginlegu starfa, oft ótrúlega langan vinnu-
og vökutíma. Það fer áreiðanlega að verða mikil-
vægf atriði til að fá menn á sjó að tryggja sjó-
mönnum að þeir geti oftar en einu sinni á ári
tekið sér frí og annazt heimili sín og notið ein-
hvers þess sem þeir fara á mis í svo til stanz-
lausri sjósókn. Hér eiga stéttarfélög sjómanna
mikið verkefni, að samlaga vinnutíma og vinnu-
kjör sjómanna breyttum tímum og sjósóknarað-
ferðum. Sjómennirnir sjálfir þurfa að láta þessi
mál meira til sín taka, leita úrbóta og koma kröf-
um sínum um þær á framfæri. Þeir gætu sjálfir
gert sitt til að eyða misskilningi á borð við það
sem aðalblað Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnar-
innar sagði nýlega í forystugrein, að ráðið til að
lækna mein togaraútgerðarinnar væri að senda
tíu menn í land af hverjum togara.
j^ei, það er ekki bjargráð að skerða hlut sjómanna,
auka vinnuþrælkunina á sjónum, fækka skip-
verjum og lengja vinnutímann, heldur stórbætt
kjör sjómanna, styttur vinnutími og rækileg land-
frí. Og æskilegur væri aukinn skilningur stjórn-
arvalda og útgerðarmanna á því að sjómenn
þarf til að stunda fiskveiðar, en framkoma þessara
máttarvalda gætí oft bent til þess að sú staðreynd
væri þeim ekki alltof ljós. — s.
--------— ÞJÓÐVILJINN ---------
LISTAHÁTÍÐIN
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Brunnir Kolskógar
eftir EINAR PÁLSSON
leikstjóri HELGI SKÚLASON
Föstudagur 12. júni 1964
Frá sýningunni á Brunnir Kolskógar
Framlag Leikfélags Reykja-
víkur til Listahátíðarinnar er
harmleikur í einum þaetti eft-
ir Einar Pálsson — auk hans
er í sambandi við hátíðina
sýndur eýiþáttungur eftir Odd
Björnsson. Meiri varð hlutdeild
íslenzkrar leikritunar ekki að
þessu sinni.
Leikrit Einars heitir Brunn-
ir Kolskógar. Höfundur víkur
sér aftur til þeirra daga sem
íslendingar hafa átt versta og
djöfullegasta í sögu sinni —
til Móðuharðinda árið 1783.
Leikurinn gerist þá um haust-
ið á Öræfum. Þangað er kom-
inn grimmúðugur klerkur, síra
Jón á Meðallandi, sem að sjálf-
sögðu sér í eldgosi og pest
refsingu drottins himnasjóla
fyrir ógurlegar syndir mann-
anna — og þá sér í lagi þá
synd Geirlaugar, dóttur Arnórs
bónda í Öræfum, að eiga barn
Brynjólfur í Brunnir Kolskógar
Aðalfundur Skógræktarfé-
iags Reykjavíkur var haldinn
20. maí s.l.
Formaður félagsins, Guð-
mundur Marteinsson, setti
fundinn og tilnefndi fundar-
stjóra Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritara. cn hann til-
nefndi fundarritara Guðbrand
Magnússon, fyrrverandi for-
stjóra.
Formaður minntist látins fé-
laga, Jónasar Halldórssonar,
forstjóra, sem var mikill skóg-
ræktaráhugamaður og forustu-
maður tveggja • Heiðmerkur-
landnemafélaga. Vottuðu fund-
armenn honum vírðingu sína
með því að rísa úr sætum.
Flutti formaður síðan skýrslu
stjómar.
Gat hann þess, að merkasti
viðburður ársins á sviði fé-
lagsstarfseminnar hefði verið
það, að borgarstjórnin fól fé-
laginu varðveizlu höfuðbólsins
Elliðavatns. Sú ráðstöfun
myndi bæta á ýmsan hátt að-
stöðu við störfin á Heiðmörk.
Heiðmerkurgirðingin yrði færð
út, svo að bærinn að Elliða-
vatni. túnið og næsta ná-
grenni yrðu hluti af Heiðmörk.
Framkvæm^astjóri félags-
ins, Einar G. Sæmundsen,
í lausaleik með hollenzkum
duggara. Boðar klerkur af
mælsku að Geirlaugu skuli
refsað til að reiði drottins
linni. Stúlkan er hins vegar
vitskert orðin af margvísleg-
um sálarkvölum. Þá er til
nefnd systir bónda, Steinvör,
sem mísst hefur mann sinn
og fjögur börn i harðindunum
og hefur einkum það hlutverk
í leiknum að reyna að herða
Arnór upp gegn yfirgangi
prestsins. Þessar eru persón-
ur leiksins.
Verk þetta er að mínu viti
mjög gallað. Persónur eru mjög
statískar, höfundurinn er ákaf-
lega fljótt búinn að koma því
til skila sem han.n hefur um
þær að segja, í samskiptum
þeirra innbyrðis bætist sára-
lítið við Þau átök sem verða
í leiknum eru helzt um sál
Arnórs bónda: hann á um tvo
kosti að velja og eru báðir
nokkurnveginn eins slæmir og
hugsanlegt er — annar er að
framselja dóttur sína vitskerta
yfirvöldunum til brennimerk-
ingar og Spunahúss og fara þá
með klerki niður á Meðalland
þar sem máske er einhver von
í matföngum; hinn er að sitja
kyrr og farast með sínu fólki
öllu. En þessi átök renna ein-
hvernveginn út í sandisn. Fólk-
ið er sett niður við fordyri hel-
vítis og þaðan verða allar
mannlegar athafnir og ákvarð-
anir ósjálfráðar, brjálaðar,
marklausar. Helvítistemað er
leikið af svo mikilli þrákelkni
að það yfirgnæfir raddir per-
sóna, einstaklinga; fólkið situr
og þylur eða hlustar á margar
og langar og hryllilegar lýsing-
ar á eldi 0:g hungri, kvöl og
dauða — svar þess er lang-
varandi og tryllt skelfingaróp.
Þannig líkist þetta verk
framur mynd en leikriti, mynd,
málaðri í sterkum og dökkum
litum — og máske einhver for-
máli letraður undir. f leikskrá
stendur, að „aldarfarslýsing og
orðalag" séu „að .mestu eftir
lýsingu síra Jóns Steingríms-
sonar á Skaftáreldum". Og það
er einmitt þessi „aldarfarslýs-
ing“ sem ber leikinn ofurliði.
Ekki þar fyrir að Einar Páls.
son hefur ýmsa kosti til að
bera — hann hefur auga fyr-
ir ýmsu því sem skapar and-
rúmsloft á sviði, penni hans
er hressilegur og hreint ekki
fátækur. Því má heldur ekki
gleyma að þetta er fyrsta leik-
rit Einars sem sýnt er á sviði
— venjulega er gert ráð fyr-
ir því að menn vaxi af reynsl-
unni. Ef til vill má og hafa
bað í huga, að þótt Brunnir
Kolskðgar séu sjálfstætt leik-
rit þá er það samið sem nokk-
urskonar hliðstæða við annan
einþáttung — úr nútimalífi —
„Trillan"; hugsanlegt er að
þessi tvö verk gætu veitt hvort
öðru nokkurn stuðning.
Hlutverkin eru misjafnlega
þakklát — það hlýtur til að
mynda að vera frémur léiðih-
legt fyrir Gísla Halldórsson
að leika síra Jón, frá hendi
höfundar er í þeim manni að-
eins til einn tónn. En þar er
skemmst frá að segja að leik-
endur skiluðu hlutverkum sín-
um nokkumveginn eins vel og
hægt var að ætlast til. En þeir
voru, auk Gísla, Brynjólfur Jó-
hannesson (Arnór), Kristín
Anna Þórarinsdóttir (Geir-
laug) og Helga Bachmann
(Steinvör) Steinþór Sigurðs-
son gerði leiktjöld sem hæfðu
ágætlega þeim voveiflegu tíð-
indum sem lýst var í leikn-
um. Páll ísólfsson samdi
þokkalega tónlist við verkið.
Leikstjóm hefur Helgi
Skúlason annazt af ágæt.ri sám-
vizkusemi.
Leikurum, höfundi og öðrum
aðstandendum sýningarinnar
var vel fagnað í leikslok.
Á. B.
Ieggja jörðina Elliðavatn til
Heiðmerkur. Jafnframt þakk-
ar fundurinn borganstjóminni
mikilsverðan stuðning við fé-
lagið fyrr og síðar.
Aðalfundur Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur 20. maí 1964
lýsir ánægju sinni yfir lögum
þeim er samþykkt voru á síð-
asta Alþingi og heimila að bú-
fjárhald í Reykjavik og nokkr-
um .öðrum lögsagnarumdæm-
um verði takmarkað eða bann-
að.
Voru báðar þessar ályktanir
samþykktar einróma.
Stjóm Skógræktarfélags R-
víkur er þannig skipuð:
Guðmundur Marteinss., verk-
fræðingur. formaður. Sv.ein-
björn Jónsson. hæstaréttarlög-
maður, varaformaður, Ingólf-
ur Davíðsson, grasafræðingurr
ritari, Jón Helgason, kaupmáð-
ur, gjaldkeri, Lárus Blöndal
Guðmundsson bóksali, með-
stjórnandi.
Elliðavatnsbýlið í vörzlu
Skógræktarfélags Rvíkur
flutti skýrslu um verklegar
framkvæmdir félagsins i
Fossvogsstöðinni og á Heið-
mörk og við Rauðavatn á ár-
inu 1963.
Gat hann þess, að miklar
skemmdir hefðu orðið í græði-
reitum félagsins í Fossvogi af
völdum 9. apríl-veðursins í
fyrra.
Þá voru um vorið afgreiddar
úr Fossvogsstöðinni um 260
þúsund trjáplöntur og dreif-
settar rúmlega hálf miljón
plantna, og auk þess sáð trjá-
frmi 15 trjátegunda á 1000 fer-
metra svæði.
Á Heiðmörk urðu afföll
miklu minni en í Reykjavík,
en þó nokkur. Þar voru i
fyrravor gróðursettar rúmlega
100 þúsund plöntur, sem var
miklu minna en undanfarin ár,
sökum vanhalda af völdum
aprílveðursins.
Þá las gjaldkeri, Jón Helga-
son, kaupmaður, reikninga fé-
lagsins fyrir árið 1963.
Hið óvenjulega óhagstæða
tíðarfar hafði einnig sín á-
hrif á fjárhagsafkomu félagsins
og sýndu reikningamir að um
78 þúsund króna halli hafði
orðið á rekstri félagsins áríð
1963.
Síðan fór fram stjómar-
kosning og kosning fulltrúa á
aðalfund Skógræktarfélags Is-
lands á komandi sumri. Úr
stjóm áttu að ganga Svein-
björn Jónsson og Ingólfur
Davíðsson. og voru þeir báðir
endurkjörnir.
Loks voru bornar fram eft-
irfarandi tvær ályktanir:
Aðalfundur Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur 20. maí 1964
fagnar þeirri ákvörðun borgar-
stjómar Reykjavíkur að
FLUCSÝNhJ. sími18823
FLUGSKÓLI
Kennsla fyrir einkaflugpróf — atvinnuflugpróf.
Kennsla í NÆTURFLUGI
yfirlandsflugi
blindflugi.
Bókleg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar i nóvember
og er dagskóli.
Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf, vor og haust.
FLUGSÝN h.f. sími 18823