Þjóðviljinn - 12.06.1964, Blaðsíða 12
Ráðstefna Stjórnunaríélags íslands
Samstarf um hagræðingu til að auká
hagvöxtinn og bæta lífskjörin
■ Dagana 7.—9. júní gekkst Stjórnunarfélag íslands fyrir ráðstefnu að
Bifröst í Borgarfirði um hagræðingu í íslenzku atvinnulífi. Markmið ráð-
stefnunnar var að kanna, hvar íslendingar væru á vegi staddir í þessum
efnum, einkum með samanburði við nágrannaþjóðirnar, og hvernig bezt
yrði háttað alhliða starfsemi á sviði hagræðingar í íslenzku atvinnulífi.
A milli fyrirlestra og umræöna var ráðstefnunni skipt í sex umræðuhópa og hér á myndinni sézt
einn slíkur hópur, talið frá vinstri: Ottó Schopka frá Landssambandi iðnaðarmanna, Eðvarð Sigurðs-
son frá Verkamannafél Dagsbrún, Flosi A. Sigurðsson frá Veðurstofu Islands, Aðalsteinn Guðjohnsen
frá Eafmagnsveitu Reykjavíkur, Gunnar Grímssonfrá SÍS, Sveinn Guðmundsson frá Sjálfvirkni og
Einar ögmundsson frá Alþýðusambandi Islands.
Borgarfjariarferð Sósíal-
. istafélagsins á sunnudag
Föstudagur 12. júní 1964 — 29. árgangur — 129. tölublad.
Tvö flutningaskip
komin til landsins
■ Tvö flutningaskip hafa bætzt í íslenzka flotann tvo
síðustu daga. Annað þeirra er nýtt frystiskip eign Jökla
h.f. en hitt er nýlegt skip sem Gunnar Halldórsson út-
gerðarmaður og fleiri eiga.
■ Á sunnudaginn keitnin;
efnir Sósíalistafélag Reykja-
ríkur til skemmtiferðar um
Borgarfjörð og verður lagt
af stað frá Tjamargötu 20
kl. 9.30 f.h. Fararstjóri verð-
ur Björn Þorsteinsson sagn-
Ragnar Björnsson
tekinn við stjórn
hljómsveitar-
innar
Ragnar Björnsson.
Ungverksi hljómsveitarstjór-
inn, István Szalatsy, sem stjórn-
að hefur hljómsveitinni á sýn-
ingum á Sardasfurstinnunni í
Þjóðleikhúsinu, fór af landi
brott sl. mánudag en í stað
hans hefur Ragnar Björnsson
tekið við stjóm hljómsveitar-
innar.
Ragnar hefur áður stjórnað
hljómsveit fyrir Þjóðleikhúsið
auk þess sem hann hefur stjóm-
að Sinfóniunljómsveit Islands
nokkrum sinnum og margra ára
bil verið stjórnandi Fóstbræðra.
fræðingur. . Farseðla þurfa.
menn að hafa tryggt sér
fyrir kl. 4 síðdegis á laug-
ardag hjá Ferðaskrifstofunni
Landsýn, Týsgötu 3, sími
22890 en allar upplýsingar
um ferðina er einnig hægt
að fá á skrifstofu Sósíalista-
félags Reykjavíkur að Tjam-
argötu 20, sími 17510.
■ Farið verður um Þing-
völl og Kaldadal að Kal-
mannstungu og hellirinn
Víðgelmir í Hallmundar-
hrauni skoðaður. Síðan verð-
ur ekið að Húsafelli og það-
an að Barnafossi og Hraun-
fossum. í heimleiðinni verð-
ur komið vjð í Reykholti og
þaðan ekið út fyrir Dali um
Dagana 12,—14. júní verður
haldið skátaþing í skíðahótelinu
í Hlíðarfjalli við Akureyri.
Þangað munu koma um 80—90
fulltrúar frá flestum skátafélög-
um á landinu. Ennfremur verða
þar áheyrnarfulitrúar og sitja
þv á annað hundrað skátar
þingið.
Skátaþing eru haldin annað
hvert ár. Á síðasta þingi voru
þessir kosnir { laganefnd: Páll
Gíslason varaskátahöfðingi,
Ragnhildur Helgadóttir lögfræð-
ingur, Erla Gunnarsdóttir frá
Kvenskátafélagi Reykjavíkur,
Guðmundur Ástráðsson frá
Skátafélagi Reykjavíkur og Ing-
ólfur Ármannsson framkvæmda-
stjóri bandalagsins.
Tillögur nefndarinnar um
breytingar á lögum Bandalags
Dragháls og Hvalfjörð til
Reykjavíkur. Sjá nánari leið-
arlýsingu á Kaldadalsvegi á
4. síðu.
--------------------1—_
Framlag Þjóð-
leikhúsins til
iistahátíðar
I frétt hér í blaðinu í gær
var sagt. að leikritið ..Kröfu-
hafar“ eftir August Strindberg
væri sýnt í Þjóðleikhúsinu á
vegum Bandalags íslenzkra
listamanna. Þetta er ekki rétt.
Leikritið er framlag leikhússins
til listahátíðarinnar sem nú
stendur yfir.
íslenzkra skáta liggja nú fyrir
o.g munu þær verða aðalmál
þingsins ásamt fræðslumálum,
útgáfumálum og fjármálum
BÍS.
Þingsetning fer fram í skíða-
hótelinu kl. 20 þann 12. júnj og
eu áætlað að það standi fram
á miðjan dag 13. júní. Skáta-
höfðingi fslands er Jócnas B.
Jónsson.
Nýr ambassador
Hinn nýi ambassador Hollands
Dr. Jan Herman van Roljen af-
henti í dag forseta íslands trún-
aðarbréf sitt við hátíðlega at-
höfn á Bessastöðum.
(Frá skrifstofu forseta
fslands).
■ Formaður Stjórnunarfé-
lagsins, Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri, skýrði frá
störfum ráðstefnunnar á
fundi með blaðamönnum
í gær, en auk hans tóku þar
til máls Hannibal Valdimars-
son forseti Alþýðusambands
íslands, Kjartan Thors, for-
seti Vinnuveitendasambands
íslands Sveinn Björnsson
framkvæmdastjóri Iðnaðar-
málastofnunar íslands, Egil
Ahlsen og John Andrésen,
en þeir tveir síðastnefndu
voru gestir á ráðstefnunni og
fluttu fyrirlestra um hag-
ræðingarmál í Noregi. Létu
þeir allir í l'jós ánægju sína
með ráðstefnuna og töldu
hana mikilvægt spor í þá
átt að leggja grundvöll að
hagræðingu í íslenzku at-
vinnulífi, þar sem byggt
væri á samstarfi og skilningi
heildarsamtaka vinnumark-
aðarins.
■ Sveinn Björnsson tók m.
a. svo til orða, að segja
mætti að með hagræðingu í
atvinnulífinu væri verið að
leita að leiðum til að gera
kökuna stærri, sem til skipta
kemur milli þegna þjóðfé-
lagsins og væru án efa all-
ir sammála um nauðsyn
bess. En eftir stæði sem áð-
ur að ákvarða í hvaða hlut-
föllum kökunni væri skipt,
þ.e. hve stóran bita hver
fengi í sinn hlut.
Beinir aðilar að ráðstefnunni
auk Stjómunarfélagsins voru
Alþýðusamband Islands og
Vinnuveitendasamband Islands,
og voru norsku gestimir, Egil
Ahlsen frá Aiþýðusambandi
Noregs og John Andrésen frá
Norska vinnuveitendsambandinu
hingað komnir að tilhlutan ASl
og Vl. En einnig sóttu ráðstefn-
una fulltrúar frá einstökum fé-
lögum og fyrirtækjum.
Islenzkir fyrirlesarar á ráð-
stefnunni voru Sveinn Björns-
son, framkvæmdastjóri Iðnað-
armálastofnunar Islands, Sig-
urður Ingimundarson, for-
stöðumaður Verkstjóranám-
skeiða, Benedikt Gunnarsson
deildarstjóri IKO, en einnig
voru flutt nokkur styttri erindi
um hagræðingu ; íslenzkum
fyrirtækjum og stofnunum.
Á milli fyrirlestra og um-
ræðna um þá var ráðstefnunni
skipt niður í 6 umræðuhópa,
sem tóku til meðferðar ýmis
vandamál. Þá voru einnig sýnd-
ar fræðslukvikmyndir um hag-
fræðingarmál.
Drög að samkomulagi
Á ráðstefnunni kynnti Sveinn
Bjömsson greinargerð um
drög að samkomulagi samtaka
launþega og vinnuveitenda um
undirbúning og framkvæmd
vinnurannsókna og einnig fengu
fulltrúar í hendur reglur, sem
Landsamband verkalýðsfélaga í
Noregi og norska vinnuveit-
endasambandið hafa samþykkt
varðandi framkvæmd vinnu-
rannsókna, framleiðslunefndir
-samstarfsnefndir) og kerfis-
bundið starfsmat, en eins og
Þjóðviljinn skýrði frá í gær,
hafa þessi mál verið í athugun
hjá Alþýðusambandinu og
Vinnuveiendasambandinu.
Loks gerði ráðstefnan nokkr-
ar ályktanir um hagræðingu í
íslenzku atvinnulífi og er þar
m.a. lögð áherzla á aukna fræðslu
almennt um þessi mál og heil-
brigt samstarf vinnuveitenda og
launþega til þess að greiða göt-
una fyrir hagræðingu og þar
með framleiðni, framleiðslu-
F-^mhald á 9. síðu.
Síðdegis í gær kom nýtt skip
Jökla h.f. hingað til Reykjavík-
ur. Nefnist það Hofsjökull og
er kæliskip. Er það sérstaklega
gert til flutnings á frosnum
fiski og ávöxtum og á að geta
lestað 2500 tonn. Er skipið hið
vandaðasta og búið öllum nýj-
ustu siglingatækjum og frysti-
vélum.
Skipið var afhent frá Granga-
mouth Dockyard í Sko'tlandi 2.
júní sl. og sigldi þá til London
til þess að taka þar farm til
Reykjavíkur. Skipið reyndist vel
Leikfélag Reykjavíkur gerir
sér Ieikferð til Færeyja og sýn-
ir í Þórshöfn Hart í bak eftir
Jökul Jakobsson. Farið verður
í tveim hópum, sá fyrri fer með
Heklu á morgun, seinni hópur-
inn fer út á þriðjudag og lcgg-
Ur allur hópurinn af stað heim
aftur frá Þórshöfn þann 22.
júní. Sýningamar fara fram á
vegnm Havnar sjónlcikarfélags
og fyrsta sýningin verður þjóð-
hátíðardaginn, 17. júní. Þátt-
takendur í förinni verða nítján.
Fyrirsvarsmenn Leikfélagsins
skýrðu fréttamönnum frá þessu
ferðalagi í gær. Þeir skýrðu
ennfremur frá því, að leikið
yrði í hinu gamla leikhúsi Þórs-
hafnarbúa, s em tekur álíka
marga í sæti og Iðnó. Notuð
verða þau ferðaleiktjöld sem
höfð voru við leiksýningar úti
á hgndi.
Ekki verður þvi haldið fram
með fullum rétti að þetta sé
fyrsta utanferð Leikfélagsins,
því það var þess sýning á
Gullna hliðinu sem Finnar sáu
árið 1938, þótt sú ferð væri
farin í nafni Þjóðleikhússins.
Fyrir nokkrum árum var áform-
uð Færeyjaferð, en þá gat ekki
orðið af þvi að þessir næstu
grannar okkar væru heimsótt-
ir. Ekki er þó félagið með öllu
saklaust af leiklist í Færeyjum,
því Erna Sigurleifsdóttir, sem
töluvert lék fyrir L.R. var bú-
Þegar nokkuð var liðið á
sýningu . Þjóðleikhússins á
„Kröfuhöfum“ Strindbergs í
gækvöld tóku áhorfendur. cink-
um þeir sem á svölum voru,
að ókyrrast í sætum sínum.
Megn brunalykt barst inn í sal-
inn og mátti ætla að kviknað
hefði í húsinu.
Allmargir stóðu upp úr sæt-
um sínum og leituðu útgangs-
dyra. Þeir gengu þó aftur til
sæta sinna þegar þeim var
sögð skýringin á stybbunni:
Mótor í dælu sem dælir lofti
á heimieiðinni og er ganghraði
þess 13.5 sjómílur. Skipstjóri á
Hofsjökli er Ingólfur Möller.
1 fyrradag kom annað nýtt
flutningaskip hingað til Reykja-
víkur. Nefnist það Jarlinn og
er eign Gunnars Halldórssonar
útgerðarmanns o.fl. Jarlinn er
10 ára gamalt skip, keypt frá
Svíþjóð. Er það ætlun eigend-
anna að láta það vera f milli-
landasiglingum og sigla einkum
á smærri hafnir hér við land.
Skipstjóri á Jarlinum er Guð-
mundur Kristinsson.
sett í Færeyjum um nokkurra
ára skeið og stjómaði þar leik-
sýningum.
Hart £ bak hefur nú verið
sýnt 190 sinnum hjá Leikfélag-
inu og áhorfendur orðir 40—50
þúsund. Leikstjórinn, Gisli Halí-
dórsson, sem einnig fer með
hlutverk í leiknum, kvaðst ekki
álíta að' leikendur væru þréytt-
ir orðnir á verkefninu né held-
ur léttúðugir gagnvart þvi, og
hefðu leikarar reyndar ekki
nema gott af því að leika svo
oft í svo vel skrifuðu verki.
Starfsemi Leikfélagsins hefur
gengið vel í vetur; það hefur
sýnt sex leikrit, og voru um
tíma fjögur á sviði samtímis,
en það hefur ekki komið fyrir
áður. Sýningar voru 150» og
hafa ekki verið fleiri áður í
sögu félagsins — í fyrra voru
þær 120 og árin þar á undan
sitt hvoru megin við hundrað.
f sumar er ráðgert að fara
umhvérfis landið og sýna gám-
anleikinn Sunnudagur i New
York. Fyrsta verkefnið á næsta
hausti er Vanja frændi eftir
Anton Tsjékhof, og er það ann-
að leikrit þessa ágæta Rússa
sem L.R. flytur — áður hefur
það sýnt Þrjár systur. Gísli
Halldórsson verður leikstjóri og
leikur auk þess eitt aðalhlut-
verkið — af öðrnm leikurum má
nefna Helga Skúlason, Helgu
Bachmann og Bríet Héðinsdótt-
inn í salinn hafði „brunnið yf-
ir“. Slökkviðliðið var kvatt á
vettvang og slökkti strax á öll-
um loftdælum. Hélzt reykjar-
lyktin því í húsinu út sýn-
inguna. Leikararnir létu þetta
ekkert á sig fá.
Leiksýningin tókst annars
með afbrigðum vel og var leik-
endum, þeim Helgu Valtýsddótt-
ur, Rúrik Haraldssyni og Gunn-
ari Eyjólfssyni og leikstjóran-
um Lárusi Páissyni ákaflega
fagnað í lok hennar og voru
þau kölluð fram á leiksviðið
mörgum sinnum.
Skátaþing haldið á
Akureyrí um helgina
Færeyjaför Leikfélagsins
Fer með Hart í bak
til Þórshafnar
ur.
Leikhásgestir héldu
cð kviknað hefði í
i