Þjóðviljinn - 27.06.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 27.06.1964, Blaðsíða 6
6 SlBA ÞJÓÐVILJINN Laugardagar 20. Júní 1964 0 HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVIUANS II. flokkur - 6 vinningar: Trabant - 4 ferðir - Ferðaútbún- aður fyrir 15 þúsund krónur - Verðmœti vinninga krónur 166.000 Dregið í þessum flokki HÞ 5. júlí 1964 1. VINNINGUR: TRABANT (síation gerð) Vin- sæl, sparneytin 4ra manna bifreið. — Ör- ugg varahlutaþjónusta og verkstæði. Bíllinn er mikið eftirspurður hér á landi og þykir hafa flesta þá eiginleika sem krafizt er af slík- 'um smábílum. 2. VINNINGUB ER FERÐ: REYKJAVÍK — LONDON — VÍN _ DÓNÁ — VALTA. — 18 DAGA FERÐ Farið verður 10. ágúst frá Reykjavík til London og kom- ið þangað að kvöldi. Dvalizt verður á fyrsta flokks hóteli yfir nóttina og farið daginn eftir til Vínar kl. 4 e.h., þann dag verður lagt upp í ferð með fljótaskipinu Amur eða Dunal, sem ganga frá Vín til Izmail við Svartahaf. Þetta eru 1. flokks fljótaskip með hljómlistarsölum, veitingasölum, loftkælikerfi og sólbaðsstöðum á dekki. 1. fl. þjónusta og farþegaklefar. Siglt verður í gegnum 5 þjóðlönd og komið við i eftirtöldum borgum: Bratislava, Budapest, Novi Sad, Belgrad, T. Sverin Lom, Ruse, Giurgiu, Galati og Izmail. Stoppað verður i þess- um borgum og geta farþegar skotizt í smáferðir í umhverfið gegn aukagjaldi. Til Izmail verður komið þann 16. ágúst, en þá verður stigið á skipsfjöl á Osetja, sem siglir yfir Svartahaf til Yalta, en þangað er komið að morgni þess 17. ágúst. Þann dag verður skoðað umhverfi Yalta svo sem Alupka, Livadija og Nikitsky-garðurinn, en auk þess verður farið á baðströnd- ina og siglt á hraðbátum á sjó út. Alls konar skemmtanir verða á skipunum á kvöldin og er allt innifalið i ferðagjald- Ferðaútbúnaður íyrir 15 þús. kr. inu. Frá Yalta verður siðan farið með sama skipi til Izmail og aftur upp eftir Dóná til Vinar. Þangað verður komið þann 24. ágúst, en þar verður stoppað í 1—2 daga og flogið þaðan til London og stoppað þar til föstudagsins 28. ágúst, en þá verður flogið heim til Reykjavíkur með viðkomu i Glasgow. Þetta er ferð með viðkomu í 8 löndum. — Stórkostlega glaesi- leg ferð. 3. VINNINGUR VERÐUR FERÐ: REYKJAVÍK — KAUP- MANNAHÖFN — CONSTANSA í RÚMENÍU — 18 daga FERÐ Flogið verður laugardaginn 21. ágúst til Kaupmannahafnar og dvalið þar til 23., en þá verður flogið þaðan með nýtízku flugvélum, og eftir 3ja tíma flug lent í Constanza í Rúmeniu, gömlum og fallegum hafnarbæ við Svartahaf. En þaðan verð- ur ekið beint að Hótel Ovidiu sem liggur við Svartahaf og er staðsett í hinum fræga baðstað sem nefndur er Mamaia. Þar verður dvalizt við hina frægu sandströnd, sem fræg er um heim allan, en þar eru taldir vera að jafnaði 300 sólar- dagar á ári. Þaðan er hægt að ferðast til ýmissa nærliggjandi staða gegn aukagjaldi, svo sem Istanbul i Tyrklandi, Búkar- est, Odessa, Dónár-hólmanna, veiðiferðir um Svartahaf, svo eitthvað sé nefnt, en á þessum fræga baðstað er einnig margt um að vera sem prýða má slíka staði, þannig, að dvölin verð- ur ánægjuleg öllum sem þar gista. Að 14 dögum liðnum, eða 6. september, verður flogið aftur til Kaupmannahafnar og til Reykjavíkur daginn eftir þann 7. september. 4. VINNINGUR VERÐUR FERÐ: REYKJAVÍK — KAUP- MANNAHÖFN — BUDAPEST — EALATON- VATN í UNGVERJALANDI. — 18 DAGA FERÐ Farið verður til Kaupmannahafnar laugardaginn þann 17 júli og dvalizt þar til 20. júli, en þá verður flogið með Ðug- vél frá ungverska flugfélaginu Malev til Budapest. En þaðan verður ekið i ferðabílum til hótels i Siofolk við Balaton- vatn, en þar verður dvalizt í 10 daga á bráðfallegri 10 km. langri baðströnd, en hótelin eru fárra mínútna gang frá ströndinni. Þar, eins og víðast annars staðar við baðstrendur, eru ýmsar skemmtanir, siglingar á vatninu o.s.frv. Þaðan verð ur farið til Budapest og dvalizt þar í 3 daga á hóteli á hinni frægu Margrétarey, en á meðan verður farið í ýmsar styttri ferðir um Budapest. Sunnudaginn 2. ágúst verður flogið aft- ur til Kaupmannahafnar og daginn eftir heim til Reykjavíkur. 5, VINNINGUR ER FERÐ: REYKJAVIK JÚGÓSLAVÍA. — 21 DAGS FERÐ MUNCHEN — Flogið til Luxemborgar þann 5. sept. og næsta dag til Munchen og verið þar næstu nótt. Mánud. 7. sept verður stigið upp í langferðabíl og hefst þar með 14 daga ferðalag suður til Júgóslaviu. Farið verður í gegnum Salzburg til Vill- ach og gist þar en siðan suður Karavankefjöll og Podkoren- skarðið til hins fræga Alpavants Bled. Þaðan verður farið gegnum Bosniu með viðkomu í Banja Luka, Jajce til Sarajevo en þar verður dvalið á þriðja degi. Frá Sarajevo verður farið meðfram Neretaánni til Mostar og að lokum til Dubrovnik (Perlu Adriahaísins). Þar verður dvalið í 4 daga, farið í stuttar ferðir um nágrennið og verið á baðströndinnl. Farið verður í styttri ferðir til Kotorflóa, Lovcenfjalls, Spliteyju, skoðað verður Salona, Plitvicevatnið og að lokum hinir frægu Postojnahellar. Frá Split verður farið til Zafar, Opatija, Bled, Gastein og til Munchen verður komið á 15. degi, þann 21. september kl. 7 um morgun, en þá verður farið til Luxem- borgar og heim með flugvél þann 24. eða 25. september. 6. VINNINGUR ER FERÐAÚTBÚNAÐUR FYRIR 15 ÞÚSUND KRÓNUR. (Tjald, svefnpoki, ferðaprimus o.fl.) AFGREIÐSLA HAPPDRÆTTISINS Týsgata 3 — Reykjavík — Sími 17514. i %

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.