Þjóðviljinn - 27.06.1964, Blaðsíða 1
Laugardagur 27. júní 1964 — 29. árgangur — 141. tölublað.
DREGIÐ EFTIR 9 DAGA
■ Skrifstofa Happdrættis Þjóðviljans að Týsgötu 3 er
opin í dag kl. 9—12. Komið og gerið skil fyrir helgina. í
gær var ágætur skiladagur og í blaðinu á morgun munum
við birta stöðuna í deilda- og landshlutakeppninni í fyrsta
sinn.
FRUMLEG FJÁRÖFLUNARAÐFERÐ:
Jósafat stefnir og vill
M •!• ' • I '
2,4 miliomr krona
□ I febrúar í vetur varð maður að nafni Jósafat Arngríms-
son landskunnur fyrir mjög sérstæða fjármálastarfsemi á suður-
nesjum og naut þá um skeið gestrisni hins opinbera. Nú hefur Jósa-
fat þessi enn vakið á sér athygli með nýstárlegum fjáraflatilraun-
um. I gær sendi hann Magnúsi Kjartanssyni ábyrgðarmanni Þjóð-
viljans, Benedikt Gröndal ábyrgðarmanni Alþýðublaðsins og Þór-
arni Þórarinssyni ábyrgðarmanni Tímans sáttakæru og fer fram á
að fá samtals greiddar 2,4 miljóm'r króna, eina milión frá Aíþýðu-
blaðinu, 800.000 kr. frá Þjóðviljanum og 600.000 kr. frá Tím-
anum!
■ Sáttakæru þessa rök-
styður Jósafat með því að
blöðin hafi birt fréttir um
réttarrannsóknina gegn hon-
um, og telur hann fréttirnar
til þess fallnar „að skaða mig
fjárhagslega og rýra mig í
áliti meðborgaranna og valda
mér miska“ Telur hann sig
Árangur af fimm vikna viSrœSum:
Tilboð í 70 miljón
kr. skipasmíðastöð
□ Undanfarið hefur Félag ísl. dráttarbrautaeigenda átt viðræður við
fulltrúa pólsku útflutningsstofnunarinnar CEKOP um smíði á dráttar-
brautum og skipasmíðastöðvum fyrir stálskip allt að 400 smálestum að
stærð. Hafa Pólverjar nú gert tilboð í slíka skipasmíðastöð fyrir Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur, og er áætlaður kostnaður um 70 miljónir króna að
vöxtum meðreiknuðum. Það sem keypt er frá Pólverjum til þessara fram-
kvæmda nemur 23 miljónum króna, og bjóðast Pólverjar til þess að lána
60% af því fé til fimm ára með 6% vöxtum.
-i«trMwasy3?.>'■.“.I.jiyt' »■
Bjarni Einarsson, formaður
Féiags ísl. dráttarbrautaeigenda
skýrði fréttamönnum frá þessu
sl. fimmtudag. Kvað hann fé-
lagið undanfarið hafa átt við-
rasður við opinbera aððiia. svo
og samtök sjávarútvegs og iðn-
aðar, um þessi mál, og einnig
hefði rannsókn farið fram á því
hver sé þörf íslenzka skipastóls-
ins fyrir endurnýjun og við-
hald, svo og líkleg stærðarmörk
skipanna. Er niðurstaðan á þá
leið, að dráttarbrautir verði að
geta tekið upp 400 lesta skip í
slipp.
1 febrúar ákvað svo Skipa-
smíðastöð' Njarðvíkur, en Bjarni
er forstjóri hennar, að leita eft-
ir tilboði frá CEKOP í slíka
stöð, og er árangurinn sem að
framan greinir. Framgangur
þessa máls er að sjálfsögðu al-
gjörlega háður því, hver verð-
ur fyrirgreiðsía ríkisvaldsins,
einkum hvað lánsfé snertir.
Rikisstjórnin hefur nú loks tek-
ið þessi mál til athugunar, c»g
á fundi sínum sl. þriðjudag á-
kvað hún að setja stálskipasmíð-
ar og viðhald á íslenzkum stál-
fiskiskipum fremst í fjárfesting
aráæt.lun sinni.
nýja skipasmíðastöð i Njarðvík-
um verði byggð á fjórum árum
í þrem áföngum. Er hér um
mikið mannvirki að ræða, stöð-
in á sem fyrr segir að geta tek-
ið allt að 400 lesta skip í slipp
en auk þess er gert ráð fyrir
átta hliðarstæðurn, Er svo t.il
ætlazt, að aðrar skipasmíða-
stöðvar sem kaupa vilja drátt-
arbrautir frá Póllandi, geti haft
hliðsjón af þessari áætlun. Það
kom fram á fundinum, að Pól-
verjar standa nú þjóða fremst
í smíði fiskiskipa og eru Japan-
ir einir þeim fremri.
ekkert misferli hafa fram-
ið, „enda engar kærur bor-
izt á mig, hvorki frá íslenzk-
um né amerískum aðilum“.
■ í tilefni af þessari
staðhæfingu Jósafats skal á
bað bent að réttarrannsókn-
inni gegn honum er ekki
enn lokið. Var málið talið
svo umfangsmikið að skipað-
ur var sérstakur rannsókn-
ardómari til að sinna því,
Ölafur Þorláksson lögfræð-
íngur. Var Jósafat fyrst
þaldið lengi í gæzluvarð-
haldi, en síðan hefur rann-
sókn haldið áfram. Mun
’-'enni nú vera langt komið
n niðurstöður hennar verða
sendar saksóknara ríkisins
sem tekur ákvörðun um
framhaldsaðoerðir. Þannií? er
ekki enn að því komið að
Tósafat herist kæra; og mun
bað algert einsdæmi að rann-
sóknarþolar höfði meiðyrða-
mál meðan rannsókn á sök-
um þeirra er ekki lokið! Hins
vegar ber það vott um mikla
forsjálni að Jósafat skuli
"evna að afla sér fiár fyrir-
fram, og upphæðirnar sem
hann fer fram á bera því
vott að hann telur si<? burfa
á miklu að halda. Og lofs-
vert má bað teljast að hann
skuli að þessu sinni hagnýta
sér nöfn lifandi manna í
auðgunarskyni.
■ Sáttakœran til Þjóð-
viljans er mjög skemmtileg
Meðal annars kœrir Jósafat
út af svofelldum ummœlum
.Veizluhöld af þessu tagi
munu vera daglegur viðburð-
ur á Keflavíkurflugvelli. og
iósaföt bjóðarinnar virðast
vera furðu mörg“!
SIGUR YFIR SVÍUM —
JAFNTEFLI VIÐ DANI
Norðurlandameistaramót kvenna í handknattleik hófst á Laugar-
dalsveilinum í gærkvöld með kcppni milli íslands og Svíþjóðar.
Það var hellirigning þcgar fyrirliðarnir heilsuðust, og hélzt regn-
ið mestallt kvöldið. Milli fyrirliða islenzka Iiðsins og þess sænska
á myndinni sést dómarinn, Knud Knudsen frá Danmörku. — Sjá
frásögn af keppninni á 12. síðu. (Ljósm. Bj. Bj.),
BÁTUR STRANDAR
Á RAUFARHÖFN
RAUFARHÖFN 26/6 — Um
fjögur leytið í dag strandaði
síldarbáturinn Jökull frá Ólafs-
vík á svonefndum Kotflúðum
víð innsiglinguna til Raufar.
hafnar. Báturinn var með sex
hundruð mál af síld og var að
koma af veiðisvæðinu á Héraðs-
flóa.
Orsökin fyrir strandinu er tal-
in sú að hér við bryggjuna ligg-
ur stórt flutningaskip sem er
mjög hátt í sjó og skyggir á inn-
siglingarmerkin. Einnig var
skyggni slæmt þar eð reykinn
frá verksmiðjunni lagði út á
sundin. Fór báturinn af þessum
sökum of grunnt.
Reynt hefur verið að toga
I í bátinn í dag til þess að ná
65 skip fengu um 50 þúsund mál
fyrrinótt en lítil veiii var í gær
*
I
í fyrrinótt var ágæt veiði á veiðisvæðinu fyrir Austur-
landi og tilkynntu 43 skip um afla sinn til síldarleitarinn-
ar á Raufarhöfn. Voru þau samtals með um 50 þúsund
mál. í gær var lítil sem engin veiði en samkvæmt upp-
lýsingum síldarleitarinnar á Seyðisfirði um tíu leytið í
gærkvöld voru allmörg skip þá að kasta.
Skipin héldu sig flest í gær-
kvöld á Héraðsflóadýpinu 12-30
rnílur undan landi. Var þá gott
Svo er ráð fyrir gert, að hin veður á miðunum en ofurlítil
kvika. Þoka var á miðunum í
gær en birti með kvöldinu.
Skip hofðu rneldað sig til síld-
arleitr.rinnar á Seyðis.firði í gær-
dag. Mestan afla hafði Gunnar f
frá Reyðarfirði, 1100 mál. Allar
þrær eru fullar á Austurlandi
verður löndunarbið þar fram á
sunnudag og sumstaðar fram á
mánudag.
í gærkvöld biðu þessi skip
löndunar á Raufarhöfn: Frey-
faxi Keflavík með 850 mál, Sif
Isafirði með 450, Gulltoppur
Keflavik með 450, Mummi Garði
með 800 og Slcipaskagi Akranesi
með 450 nál.
honum út en það hefur ekki
borið árangur. Er hann orðinn
fullur af sjó og mun vera eitt-
hvað brotinn. Er nú beðið eftir
froskmanni til þess að kanna
skemmdimar. Ætlunin er að
reyna að losa síldina úr bátnum
í nótt og dæla síðan úr honum
sjónum og draga hann. upp að
bryggjunni. Jökull er eign Víg-
lundar Jónssonar útgerðarmanns
i Ölafsvík.
Snarpur jarð-
skjálfiakippur
Um kl. 9.45 í gærkvöld fannst
allsnarpur jarðskjálftakippur hér
í Reykjavík. Þjóðviljinn hafði
samband við veðurstofuna í
gærkvöld og spurðist fyrir um
það hvort kippsins hefði ekki
orðið vart á jarðskjálftamælum
hennar. Mælarnir höfðu þá ekki
verið athugaðir en margt fólk
einkum úr Laugarneshverfi og
víðar úr austurbænum hafði
orðið kippsins vart og hringt til
veðurstofunnar og látið , hana
vita.
Oöldin mognmt /
suðurríkjum USA
Sjá síðu Q
é
L