Þjóðviljinn - 03.07.1964, Side 4
4 SlÐA
MÓÐVILJINN
Föstudagur 3. júlí 1964
Gtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Rltstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, préntsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 niánuði
Sigur samstöðunnar
Yerkamannafélagið Dagsbrún hefur nú samþykkt
nýja kjarasamninga og gilda þeir til 5. júní
næsta árs. Án efa hefur sumum þótt það full langt
gengið til þessara samninga, sem gerðir eru innan
ramma samkomulagsins við ríkisstjórnina, að
verkalýðshreyfingin skyldi slá á frest réttmætum
kröfum sínum um hækkun á kaupi eða aðrar
raunhæfar ráðstafanir til aukningar kaupmáttar-
ins. En fyrst ber að líta á þann mikilvæga sigur,
sem verkalýðshreyfingin vann með því að knýja
ríkisstjórnina til samninga um stöðvun verðbólg-
unnar. í þeim samningum ber að sjálfsögðu hæst
ákvæðið um verðtryggingu kaupsins, en bann við
vísitöluuppbótum á kaup var sem kunnugt er eitt
af „prinsipum“ viðreisnarstjórnarinnar. Hækkun
orlofsfjár og lenging orlofstímans um 3 daga er
einnig mikilvægt spor í réttindabaráttu vinnandi
fólks, og umbæturnar í húsnæðismálunum koma
líka til með að gilda sem raunverulegar kjara-
bætur fyrir mikinn fjölda þjóðfélagsþegnanna.
Stytting eftirvinnutímans og tilfærslan á and-
virði þeirrar styttingar yfir á dagvinnukaupið er
einnig spor í rétta átt, þótt þar sé eng’an veginn
tekið nógu föstum tökum á vandamáli vinnuþræl-
dómsins hér á landi.
pieiri atriði mætti nefna, sem sýna þann jákvæða
og mikilsverða árangur, sem verkalýðssamtök-
in hafa knúið fram í samningunum við ríkisstjórn
og atvinnurekendur. Atvinnurekendum er með
þessum nýju samningum gefinn dýrmætur frest-
ur til þess að taka upp skynsamlegri vinnubrögð
í rekstri sínum og skapa þannig hvortveggja í senn
aukið afkomuöryggi fyrirtækja sinna og grund-
völl fyrir óhjákvæmilegum kjarabótum til handa
vinnandi fólki, þegar þetta samningstímabil renn-
ur út. Og ríkisstjórninni gefst kostur á að endur-
skoða sfefnu sína enn frekar og létta af atvinnu-
vegunum byrðum okurvaxta og óhóflegra tolla,
svo að þeir verði betur færir um að standa undir
sómasamlegu kaupi, Færi vel á að samtímis því
sem ríkisstjórnin innsiglar skipbrot viðreisnar-
stefnunnar gagnvart verkalýðssamtökunum með
afnámi laganna um bann við vísitöluuppbótum á
kaup, gerði hún sér endanlega ljóst, að það er
vonlaust verk fyrir íslenzka ríkisstjórn að ætla
sér að stjórna landinu í andstöðu við hagsmuna-
samtök alls vinnandi fólks.
gamningarnir. sem verkalýðsfélögin eru nú að
ganga frá eitt af öðru, eru m.a. árangur þeirr-
ar víðtæku samstöðu, sem náðist í kjarabarátt-
unni í lok síðasta árs og hélt áfram með eining-
unni 1. maí s.l. Þessi sigur samstöðunnar er jafn-
framt mikilvægasta sönnunin fyrir því, hvers
verkalýðshreyfingin er megnug, ef hún beitir
kröftum sínum sameiginlega. Þann lærdóm þarf
vissulega að hafa í huga. begar hafizt verður
handa um næsta áfanga. — b.
Fyrirhyggjuleysi dreg-
ur úr framleiðslunni
voru seinar og tregar til fram-
kvæmda á Austurlandi, þó að
hér úti íyrir væri sildveiðin
mest.
Loksins þegar ríkið hugði til
framkvæmda í verksmiðjumál-
um á Austurlandi, þá var risið
ekki hærra en svo, að það lagði
undir sig gamla og vanbúna
verksmiðju á Seyðisfirði j stað
þess að byggja nýja. Sú verk-
smiðja hefur auðvitað verið
endurbætt, en allar hafa þær
endurbætur komið seint og
verið of smátækar, miðað við
aðstæður.
Fyrsta ákvörðun núverandi
ríkisstjórnar um síldarverk-
smiðju á Reyðarfirði var um
að þar' skyldi byggð 5—600
mála verksmiðja. Þannig var
smásálarskapurinn og skiln-
ingsleysið. Siðan var ákveðið
að hafa verksmiðjutia 1200
mála verksmiðiu, en auðvitað
var það allt of lítið.
hreinsunarstöð, sem augljós-
lega mundi verða til þess að
torvelda stórkostlega mögu-
leika þjóðarinnar á að selja
síldar- og þorskframleiðsluna.
Það þarf fyrirhyggju j at-
vinnumálum landsins, ef vel á
að fara. Sú endurnýjun og
stækkun fiskibátaflotans sem
gfundvölur var lagður að á
timum vinstri stjórnarinnar,
hefur reynzt happadrjúgur.
Hið sama er að segja um
þann grundvöll, sem þá var
lagður að síldarverksmiðjuiðn-
aði hér á Austurlandi.
Mennimir sem þá andæfðu
á móti þessum ráðstöfunum,
eru nú mestir ráðamenn í
landinu. Þeir hafa að vísu tog-
azt áfram með straumnum.
Fleiri o:g fleiri nýir bátar héldu
áfram að koma, þegar þeir
fyrstu höfðu sýnt notagildi sitt.
Og hinn mikli afli hefur rekið
stjórnarvöldin áfram til þess
að byggja upp vinnslustöðvar
fyrir aflann. En augljóst er á
öllum vinnubrögðum, að fyrir-
hyggjan er ekki mikil og skiln-
ingurinn á því hvað hægt er
að gera í framleiðslumálum
þjóðarinnar harla lítill.
— Framanrituð grein birtist
f Auaturlandi, málgagni sósíal-
ista á Austurlandi, fyrir helg-
ina.
Áskorun á bœfaryfirvöld
Hafnarfjarðar
Síldveiðin gengur vel. Afli
er mikill á miðunum og þegar
hefur borizt á land allmikill
afli En vinnslan í landi geng-
ur ekki að sama skapi vel.
Ríkisverksmiðjurnar tvær hér
eystra, á Seyðisfirði og Reyð-
arfirði hafa haria lítið unnið,
það sem komið er. Verksmiðj-
an á Seyðisfirði má heita al-
gjörlega stopp ennþá og verk-
smiðjan á Reyðarfirði vinnur
aðeins helming þess, sem hún
ætti að geta gert.
Verksmiðjurnar í Neskaup-
stað og Vopnafirði hafa hins
vegar unnið vel og þegar tekið
á móti miklum afla. í þeim
verksmiðjum virðist allt í
bezta lagi.
Menn standa undrandi yfir
því að svona skuli hafa tekizt
til með ríkisverksmiðjumar
hér eystra. Hver er ástæðan
til þess að svo að segja ekkert
hefur enn verið brætt á Seyð-
isfirði? Þar átti þó að vera
stærsta og afkastamesta verk-
smiðjan á Austurlandi. Timi
til undirbúnings í verksmiðj-
unni var nægur og ótrúlegt er
að fyrirtæki á vegum ríkisins
hafi ekki getað fengið nauð-
synlega fjárhagslega fyrir-
greiðslu En hvaða ástæður
liggja þá til þess, að verksmiðj-
ur ríkisins skuli vera verr á
sig . komnar en aðrar verk-
smiðjur hér eystra og 5áta
þannig á sér standa eins og
dæmin sýna?
Síldarverksmiðjurar í Nes-
kaupstað og á Vopnafirði hafa
ekki verið byggðar upp með
fjárhagslegri fyrirgreiðslu nú-
verandi stjórnarvalda í land-
inu. Þessar verksmiðjur hafa
að vísu verið stækkaðar og
endurbættar mikið á síðustu
árum. En þær hafa ekki get-
að fengið lán til þeirra hluta
úr þeim lánasjóðum sem rík-
isvaldið hefur sérstaklega haft
með að gera.
Síldarverksmiðjur ríkisins
Uppbygging at-
vinnuveganna
Stjórnarblöðunum hefur á
undanförnum árum orðið tíð-
rætt um nauðsyn þess að koma
upp stóriðju á fslandi til þess
að auka f jölbreytnina i at-
vinnulífi landsmanna og skapa
meira öryggi í framleiðslu
háttum þjóðarinnar, eins og það
er orðað. Svo mikið kapp virð-
ist hafa verið lagt á þetta,
að athuganir á því sviði hafa
verið látnar ganga fyrir öllu
öði n og eru þó vissulega mörg
verkefni nærtækari í íslenzku
atvinnulífi, sem íslendingar
geta sjálfir ráðið fram úr með
skynsamlegri skipulagningu og
uppbyggingu eigin atvinnu-
vega En það er bæði vitað og
viðurkennt af stjórnarflokkun-
um að stóriðjuframkvæmdir á
íslandi eru sem stendur óhugs
andi nema með meiri eða
minni beinni þátttöku og yfir-
ráðum erlendra aðila í henni.
Og stóriðja gæti einnig á
skömmum tíma sogað til sín
verulegt vinnuafi frá núver-
andi undirstöðuatvinnuvegurr
bjóðarinnar Þannie gæti svr
farið á skömmum tima.
þjóðin yrði bundin á klafa er
Síðan átti að stækka verk-
smiðjuna í vetur upp i 2500
mál, en sú stækun er ekki enn
komin í gagnið.
Þannig liggja fyrir augljós
dæmi um það, að ríkisstjóm-
in, eða ráðherra sjávarútvegs-
mála, hefur enga framsýni haft
í síldarverksmiðjumálunum
hér eystra.
f vinstri stjórninni, á árun-
um 1957—’58, var grundvöllur-
inn lagður að uppbyggingu
síldarverksmiðja hér eystra.
Þá var vegurinn ruddur í
þessum efnum þrátt fyrir
skilningsleysi og tregðu stjórn-
ar jsíldarverksmiðja ríkisins
sem átti að hafa forustuna.
Sömu ráðherrarnir, sem nú
sýna skilningsleysi og úrræða-
leysi í sildarvinnslumálunum á
Austurlandi, tala þessa dag-
ana sem hæst um það, að
nauðsynlegt sé fyrir fslendinga
að ráðstafa f.iármunum sínum
í stóriðju með útlendingum og
m.a. til þess að koma upp oliu-
lendra auðhringa í efnahags-
legu tilliti.
■ Kynleg röksemd
Ein röksemd stjórnarflokk-
fyrir því, að hraða beri und-
irbúningi stóriðjuframkvæmda
á íslandi er sú, að svo kunni
að fara að innan fárra ára
yrði sá iðnaður, sem stóriðja
gæti staðið undir hér á landi
e.t.v. orðinn úreltur vegna
framfara í efnaiðnaðinum. Þvi
sé um að gera að komast sem
fyrst af stað oig tryggja sér
þátttöku erlendra aðila, meðan
þeir enn hafi áhuga á Því.
Flestum ætti þó að vera ljóst,
að þessar ástæður gefa okkur
einmitt tilefni til þess að fara
okkur að engu óðslega í þess-
um efnum. Við okkur blasa
verkefnl, sem eru miklu nær-
tækari og . nauðsynlegri. ís-
lendingar hafa til þessa verið
að mestu leyti hráefnafram-
leiðendur. Við höfum flutt út
mikið magn af matvöru, sem
unnt er að fullvinna áður en
hún er flutt úr landi Heildar-
verðmæti útfluttra vara er nú
orðið um 4000 miljónir króna
á ári; og eru upi 90% af því
sjávarafurðir en um 10% land-
búnaðarvörur. Flestar þessar
vörur eru fluttar út aðeins
hálfunnar eða með öllu óunn-
ar.
" Matvælaiðnaður
Með fullvinnslu vörunnar
hér heíma væri unnt að marg-
falda útflutningsverðmæt'
hennar En til þess þurfum við
f gær kom Hafnfirðingur
einn að máli við Þjóðviljann
og sagði frá því að hann Qg
nágrannar hans nokkrir standi
í stríði við bæjaryfirvöldin um
svo sjálfsagðan hlut að fá leitt
vatn að húsum sínum. Fólk
þetta á heima í hrauninu vest-
ast í bænum, vestan við Malir
sem kallað er. Þarna er um
að ræða um 15 hús, og að
sjálfsögðu hefur verið gerður
lóðasamningur milli eigenda
húsanna og bæjaryfirvalda á
venjulegan hátt og hefur bær-
inn þar með undirgengizt þá
skyldu að leiða vatn að þess-
um húsum sem öðrum í bæn-
um. En enn hafa engar efndir
orðið á þessu þrátt fyrir
margra ára stríð íbúanna og
munnleg loforð forráðamanna
bæjarins, og í fyrra sendu í-
búamir í annað sinn skriflega
áskorun um að úr þessu yrði
bætt.
Bærinn hefur að visu veitt
þá úrlausn að keyra vatn að
að koma okkur upp fullkomn-
um matvælaiðnaði. Með upp-
byggingu matvælaiðnaðar væri
unnt að skipuleggja það vinnu-
afl, sem að framleiðslustörfun-
um vinnur mun betur en nú er
gert. Og slíkur iðnaður gæti
einnig skapað meiri festu og
öryggi í atvinnulífið, sem svo
oft er talað um að vanti hjá
okkur, Og síðast en ekki sizt
væri á þennan hátt unnt að
skapa næga atvinnu á þeim
stöðum i landinu, þar sem árs-
tíðabundið atvinnuleysi hefur
verið tilfinnanlegt, eins og t.d.
allviða á Norðurlandi. Og þær
stórauknu tekjur, sem full-
kominn matvælaiðnaður myndi
flytja í þjóðarbúið, gætu gert
íslendingum kleift að undir-
búa að verulegu leyti af eigin
rammleik iðnaðarframkvæmd-
ir á öðrúm sviðum.
■ Betri aðstaða en
hjá flestum öðrum
Á þetta bentu þingmenn Al-
þýðubandalagsins m.a. ræki-
lega á síðasta þingi, en þar
fluttu þeir þingsályktunartil-
lögu um athugun á uppbygg-
ingu nýrra framleiðslugreina
og eflingu útflutningsiðnaðar.
sem þegar er fyrir hendi. í
greinargerð fyrir tillögu þing-
manna Alþýðubandalagsins um
betta efni segir m.a.;
„Þjóð, sem framleiðir jafn-
mikið af fyrsta flokks matvöru
og fslendingar gera nú og á
slíka möguleika t.ii aukinna’-
verðmætasköpunar með ful'
komnara vinnslustisi. ætti ek'-
að hugsa um fjarskyld og vafa
húsunum einu sinni í viku, en
það er á engan hátt fullnægj-
andi og þarf ekki að lýsa þeim
erfiðleikum sem því fylgir að
hafa ekki nægilegt rennandi
vatn, að ekki sé talað um ó-
hollustuna, því að fólk verður
að notast við útikamra og er
furðulegt sinnuleysi heilbrigð-
isnefndar bæjarins að láta
þetta viðgangast Oft á tíðum,
sérstaklega í frostum á vetr-
um, er ekki hægt að keyra
vatn á tankbílum og má þá sjá
fólk labbandi langar leiðir með
fötu i hendj til að fá vatn til
matseldar og nauðsynlegasta
hreinlætis.
fbúar þessara húsa eru nú
orðnir langþreyttir að búa við
þetta ástand og vilja láta yfir-
völd bæjarins vita það, að því
er full alvara að hefja róttæk-
ar aðgerðir í þessu máli ef
ekki verður úr bætt. Þeir borga
sín gjöld til bæjarins eins og
aðrir og eru aðeins að krefjast
réttar síns.
söm verkefni eins og stóriðju-
rekstur á vegum útlendra auð-
hringa, en snúa sér þess í stað
með einbeitni og áhuga að því
verkefni að margfalda verð-
mæti þeirrar framleiðslu, sem
hún hefur þegar aflað og hef-
ur betri aðstöðu til að full-
vinna en flestar eða allar aðr-
ar þjóðir.
* Öruggari mark-
aðir
Mikill meiri hluti útflutn-
ingsvöru landsins nú eru mat-
vörur. Reynslan hefur sýnt, að
matvörur eru með beztu og
öruggustu markaðsvörum. Allt
bendir til þess, að á komandi
árum verði fremur um skort á
matvörum að ræða í heimin-
um en hið gagnstæða.
Framleiðsla og sala á ýms-
um efnavörum er hins vegar
miklu ótryggari. Örar fram-
farir j efnaframleiðslu hafa
leitt til tíðra breytinga og ó-
vissu um framtíðargildi ýmiss
konar efnaframleiðslu. Það
verður t.d. að teljast allsend-
is óvíst, að alúmíníum hafi eft-
ir einn eða tvo áratugi það
notagildi og verðgildi sem það
hefur nú Þannig er um fleiri
efni. Stóriðnaður á sviði alúm-
íníums eða í öðrum hliðstæð-
um greinum í jafnlitlu efna-
hagskerfi og er hér á landi
gæti því leitt til örýggisleysis
og hættu. Aukin efling mat-
''ælaframleiðslu til útflutnings,
c,'amleiðslu. sem komin væri
■ hátt og fullkomið vinnslu-
„oo-i hins vePar hið ör-
- ‘ - fvrir framtíðina".