Þjóðviljinn - 03.07.1964, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 03.07.1964, Qupperneq 12
Byrjað að rífa ofan af okkur tíl að byggja síðan nýja hæð ■ Hér á myndinni sjáum við smiðina sem eru að byrja að rífa rishæðina ofan af Þjóðviljahúsinu til að byggja þar aðra nýja. Þeir heita, talið frá vinstri: Sigurður Jóns- son, Sigurður Bjömsson og Steingrímur Kári Pálsson. Við báðum Steingrím Kára, sem er yfirsmiður við þessar fram- kvæmdir, að segja frá því helzta sem fyrirhugað er að vinna að í sumar til að lesendur Þjóðviljans geti fylgzt með hvernig gengur með endurbyggingu hússins. Undanfarin ár hefur verið unnið að því í áföngum, segir Steingrímur. að endurbyggja þetta gamla hús. Lokið er við að ganga frá annarri hæðinni eins og hún á að vera og götu- hæðinni að mestu, en í sumar ætlum við að byggja inndregna hæð ofan á húsið. Við rífum gömlu rishæðina alveg ofan af feúsinu- og erum þegar byrjaðir á því, fyrst rífum við allt inn- an úr, reynum síðan að þétta • gólfið hér undir og styrkja það. og þá er komið að því að rífa þakið ofan af. Þetta er mikið verk og sein- unnið, en við leggjum áherzlu á að þetta geti gengið fljótt og engar tafir mega verða á þessu I verki eftir að byrjað er, því að 1 húsið verður alveg óvarið^fyrir I regni og vindum þegar búið er | að rífa þakið af. Það ríður á að okkur takist að byggja upp nýja þakhæð fyrir haustið. Þeg- ar öllum þessum framkvæmd- um er lokið hefur húsið tekið algjörum stakkaskiptum og verð- ur sem nýtt og vinnuaðstæður í húsinu allt aðrar og betri en áður. Þessar framkvæmdir sem Steingrímur var að lýsa fyrir okkur kosta að sjálfsögðu mikið fé, miklu meira en blaðið getur sjálft staðið undir, en allur á- góði af Happdrætti Þjóðviljans fer til að kosta þessar fram- kvæmdir við endurbyggingu húsins. Ef takast á að ljúka þeim áfanga í sumar sem nú er byrjað á, verða allir stuðnings- menn Þjóðviljans að nota vel þá daga sem eftir eru þangað til dregið verður í happdrætt- inu. Það eru miklir möguleikar að selja miðana hverjum sem er, því að góðir vinningar eru í boði. Lítið á vöru- merkin! Kaup- ið ekki vörur frá S-Afríku ■ Þjóðviljinn birti i gær nöfn á nokkrum þekktum vöru- merkjum frá S-Afríku til þess að auðvelda fólki að snið- ganga þessar vörur, þar sem þær fást í verzlunum. Þessi vörumerki áttu við nýja á- vexti svo sem epli, appel- sínur, perur o.fl. og voru OUTSPAN, GOLDEN JUB- ILEE og CAPE FRUIT. ■ í dag kemur svo ný skrá yfir vörumerki frá S-Afríku, og er þar um að ræða niður- suðuvörur eins og ávaxta. mauk ýmiskonar og sultur. Þessi vörumerki eru: ■ Avalon, Cape Hill, Dwars River, Elmo, Fairest Cape, Golden Hawk, Gold Reef, Hugo, Honeysuckle, Hardings D?light, Ixl, Imco, Jax, Koo, ravers Arcadia, Mountain View, Rockhill, Raya, RFF, Simba, Summerglow, South- ern Pride, Summit. Föstudagur 3. júlí 1964 — 29. árgangur — 146. tölublað. Helgarferð ÆFR / Hitarda! Norski fáninn við hún á snekkjunni Það vakti athygli manna hér í Reykjavík í gær er þeir litu út á ytri höfnina þar sem konungs- snekkjan lá, að íslenzki fáninn var hvergi hafður þar uppi en hins vegar sáu menn að norski fáninn blakti þar við hún. — Margir hringdu til Þjóðviljans til að forvitnast um hverju þetta sætti. Við höfðum sam- band við brezka sendiráðið og sögðu þeir okkur að Ólafur Nor- egskonungur ætti afmæli einmitt þennan dag og í tilefni þess væri flaggað norska fánanum á snekkjunni. Myndin er frá Hítardal og sýnir tröllskcssuna Hít, cn ÆFR efnir til helgarferðar í Hítardal og Gullborgarhelli á morgun kl. 14 frá Tjarnargötu 20. Staðirnir verða skoðaðir undir leiðsögn kunnugra. I Hítardal kcmur hin nýstofnaða Æskulýðsfylking í Grundarfirði til móts við ferðahópinn. Allir velkomnir, fylkingarmenn og aðr- ir. Látið skrá ykkur í tíma. Sími 17513 — Æskulýðsfylkingin í Reykjavík. fílipus við Mývatn i fegursta veðrí í gær Borgarrái getur heimilað verzlun- um að hafa opið til klukkan 10? ■ Er Þjóðviljinn fór í prentun á miðnætti sl. nótt voru allar horfur á því að borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti nýjar reglur um lokun sölubúða. Eins og áður hefur verið skýrt frá voru afgreiðslutímamálin rétt einu sinni til umræðu á borgarstjórnarfundi fyrir einum mánuði. Þá kom til fyrri um- ræðu eftirfarandi tillaga um við- auka við lokunartímasamþykkt þá sem borgarstjórain gerði f íok síðasta árs. Tillagan er um að aftan við samþykktina komi: ,,Ákvæði til bráðabirgða Borgarráð getur heimilað verzlunum, sem hafa til sölu sæmilegt úrval helztu nauð- synjavara, að hafa opið með þeim hætti sem um ræðir í 1. mgr., 3. gr. (þ.e. til kl. 22 að kvöldi — ath. Þjóðv.). Áður en leyfi, skv. 1. mgr. verður veitt, skal leita umsagn- ar heilbrigðisnefndar og lög- reglustjóra, og má ekki veita leyfi, nema meðmæli þeirra komi til. Um framkvæmd að öðru leyti Hlíf samþykkti nýju samningana ■ Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði hélt al- mennan félagsfund í fyrrakvöld til að ræða hina nýju samninga sem stjórn félagsins hafði gert við atvinnurekendur kvöldið áður. ■ Samningamir eru í öllum meginatriðum eins og félögin fyrir norðan og Dagsbrún í Reykjavjk hafa nýlega gert og Þjóðviljinn hefur rækilega skvrt frá. Fundurinn var fjölmennur og voru samninsTimir sambykktir einróma skal fara eftir ákvæðum sam- þykktarinnar eftir því, sem við getur átt. Borgarráð getur áskilið greiðslu gjalds, skv. 11. gr.. fyr- ir hvert leyfi, sem veitt verð- ur. skv. þessari grein.” Þetta var tillaga meirihluta borgarstjórnar á fundinum í gærkvöld sem fyrr segir og jafn- framt fluttu b^vgarfulltrúar Al- þýðubandalagsins tillögu um að aftan við 1. mgr. till. kæmi ,,gegn því að lokað verði jafn- langan tíma að degi til”. Var þessi viðaukatillaga flutt til þess að fram kæmi í samþykkt borg- arstjómar beinlínis ákvæði er gerði ráð fyrir að vinnutími verzlunarfólks lengizt ekki við framkvæmd samþykktarinnar. Eins og frá var skýrt hér í blað- inu í gær fór hertoginn af Edin- borg frá Þingvöllum upp í Borg- arfjörð þar sem hann renndi fyrir lax í Norðurá. Gekk veið- in ágætlega og fékk prinsinn þrjá Iaxa. Vegna veðurs reyndist ekki unnt að halda fyrirhugaða ferða- áætlun. Varð að hverfa frá því að fljúga til Akureyrar með flug- vélum Bjöms Pálssonar og var í þess stað ferigin vél hjá Flug- félagi Islands. Seinkaði komunni til Akureyrar um klukkustund af þeim sökum. Á Akureyrarflugvelli tóku for- svarsmenn bæjarins, Magnús Guðjónsson bæjarstjóri, Jón Sól- nes forseti bæjarstjómar og Friðjón Skarphéðinsson bæjar- fógeti á móti hertoganum og fylgdarliði hans en síðan var ek- ið upp í Lystigarð þar sem opin- ber móttaka fór fram. Var þar margt manna er fagnaði hertoganum vel. Síðan var snæddur kvöldverður í Sjálf- stæðishúsinu. Vegna veðurs varð að hætta við að fljúga til Mývatns og lagði hertoginn og fylgdarlið hans af stað frá Akureyri í bif- reiðum laust fyrir miðnætti í fyrrakvöld og var komið í Reykjahlíð um kl. 2 urn nóttina. Þar tók sýslumaður Þingeyinga. Jóhann Skaptason, á móti her- toganum og bauð hann velkom- inn. Þáðu gestirnir síðan veit- ingar á hótelinu áður en gengið var til hvílu. Morguninn eftir var komið bezta veður og hélzt það allan daginn. Klukkan níu var lagt af stað í ökuferð kringum Mý- vatn og stanzað þar sem fugl- ar voru á vatninu næst landi, þvi að hertoginn hafði á því Jafntefli hiá Fram og Keflavík I gærkvöldi kepptu Keflvík- ingar og Fram f 1. deild Is- landsmótsins. Jafntefli varð og skoraði hvorugt liðið mark. Næsta verkefni hernáms- andstæðinga FUNDAHÖLD LANDSFUNDUR HAPPDRÆTTI Tvær brotnar rúður í skrifstofu Hemámsandstæð- inga Mjóstræti 3 bera vitni um þau fíflalæti, sem hófust strax að loknum útifundi samtakanna á dögunum, og urðu stöðugt ámátlega bjálfa- legri eftir því sem fleiri leið- arar voru skrifaöir um þessi mál í helztu blöðum her- námssinna* Við erum stóránægðir, sögðu þeir Ragnar Arnalds og Einar Laxness er frétta- maður blaðsins leit við hjá þeim á skrifstofunni í gagf, við erum ánægðir með árang- ur af þessari ágætu göngu, því vissulega náði hún til- gangi sínum. Keflavíkur- ganga er engin atkvæða- greiðsla og fjöldi göngumanna Einar Laxness skiptir engu höfuðmáli. Að- alatriðið er að gangan vekji athygli, umræður og deilur um þau örlagaríku hernáms- mál. Fátt sannar betur að þessum tilgangi var náð, en einmitt viðbrögð andstæðinga okkar, sem skrifuðu hvern leiðarann af öðrum með dæmafáu ofstæki, og aug- Ijóst er af málflutningi þeirra útúrsnúningum og fréttaföls- unum, að þeir hafa hrokkið illa við þegar Samtökip hófu aftur starfsemi sína eftir nokkurt hlé. Mannaskipti verða nú á skrifstofunni, þar sem Ragn- ar Amalds er á förum norð- ur í land, en Einar Laxness tekur við störfum hans og verður skrifstofan opin mánu- daga — föstudaga frá kl. 2 — 6,30. Fyrsta verk Einars er að ljúka dreifingu á 8 síðna dreifiblaði. Dagfara, sem Samtökm gáfu út i sam- bandi við Keflavíkurgönguna í ár, en því verki er nú senn lokið. Næstu viðfangsefni eru að skipuleggja fundi út um land til undirbúnings Landsfundar Samtaka Hemámsandstæð- inga, sem haldinn verður við Mývatn dagana 5.—6. sept- ember Fundir þessir verða væntanlega haldnir í seinni- hluta ágúst. Að sjálfsögðu er undirbúningsvinna i sam- bandi við Landsfundinn mik- Framhald á 3. síðu. / *

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.