Þjóðviljinn - 14.08.1964, Síða 10
LITIl „TEKJUAUKNINC"
EIGENDA FYMRTÆKJA
□ — „Meinirnir, sem eiga heildsöluhallir
°g byggja skrifstofuhallir, greiða álíka
mikið af sameiginlegum kostnaði borgar
og ríkis og skrifstofumenn, verkstjórar og
iðnaðarmenn“. (Alþýðublaðið, leiðari 5.
ágúst sl.l.).
jc Morgunblaðið segir í gaer
að Þjóffviljinn sleppi því sem
mestu máli skiptir í saman-
burði sínum á opinberum
gjöldum manna, en það séu
upplýsingar um tekjuaukn-
ingu þessara manna á árinu,
fjölskyldustærð þeirra, um
það, hvort þeir hafi síðast
greitt útsvar að fullu fyrir
áramót og þannig fengið frá-
drátt o.m.fl.“ — Morgunblað-
inu er vafalaust fullkunnugt
um þaff, að slíkar upplýsing-
ar liggja ekki fyrir í skatt-
skránni; þar eru einungis
birtar tölur yfir opinber gjöld.
Þeir liðir skattskrárinnar sem
gefa nokkra vísbendingu t. d.
um tekjur manna — og tekju-
aukningu frá árl til árs, eru
tekjuskattur og tekjuútsvar.
Og hafi þaff farjff fram hjá
Morgunblaðinu, að Þjóðvilj-
inn vakti athygli á því strax
í upphafi þessa samanburðar,
að svo virtist sem kaupmenn
og yfirleitt flestir þeir, sem
hafa einhvers konar rekstur
á sínum snærum, eru yfirleitt
með sáralitinn og margir eng-
an TEKJUSKATT og vitan-
Iega að sama skapi lágt
TEKJUÚTSVAR, þá skal sú
vísbending fúslega endurtek-
in. En skoðanir manna á þvt,
hvort þetta sé í raun og veru
svona nema rétt á skattafram-
tölunum eru kannski eitthvað
skiptar. — En þaff skal svo
ekki dregið í efa, aff kaup-
mennirnir hafi haft tök á því
aff greiða útsvör sín fyrir ára-
mót „og þannig fengið frá-
drátt“ eins og Morgunblaðið
leggur þunga áherzlu á. Og
stað, að samanburður Þjóð-
viljans sé ekki raunhaefur,
með því að birta upplýsingar
um „tekjuaukningu‘“, „fjöl-
skyldustærð" o.fl. þess háttar,
þá er Þjóðviljinn fús ti'l að
stuðla að því að Morgunblað-
ið geti orðið sér úti um þess-
ar upplýsingar. Við skulum
mjög fúslega láta Morgun-
blaðinu í té fullt nafn og
heimilisfang þeirra manna,
sem við höfum tekið til sam-
anburðar. Og hér koma svo
samanburðartölurnar í dag:
Halldór verkamaður fœr
svo til sömu hækkun á op-
inberum gjöldum og Halldór
kaupmaður, — þó er hækk-
unin 426 krónum hærri á
verkamanninum. Halldór sjó-
maður fær aftur á móti 19.
Halldór verkamaður
Halldór sjómaður
Halldór kennari
Halldór fulltrúi
Halldór jámsmiður
Halldór kaupmaður
Ingólfur sjómaður
Ingólfur verkamaður
Ingólfur kennari
Ingólfur loftskeytam.
Ingólfur kaupmaður
13.625,00
14.319,00
11.535,00
15.107,00
13.528,00
28.186,00
15.953,00
14.284,00
13.042,00
18.729,00
20.061,00
33.612,00
19.956,00
25.510,00
24.219,00
34.196,00
21.072,00
18.652,00
21.265,00
44.401,00
54.675,00 69.281,00
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
hækkun
6.436,00
19.293,00
2.421,00
10.403,00
10.691,00
6.010,00
5.119,00
4.368,00
8.223,00
25.672,00
14.606,00
Ingólfur framkvæmdastj. 13.565,00 12.272,00 LÆKKUN 1.293,00
þetta verður áreiðanlega enn-
þá léttbærara fyrir þá í ár.
■jc Ef Morgunblaðið hefur á-
huga á því að reyna að finna
þeim orðum sínum einhvern
293 króna hækkun — þrefait
á við kaupmanninn.
Ingólfur kaupmaður fær
14.606.oo króna hækkun,
Hann er ein af undantekn-
ingunum sem sanna regluna.
Hækkunin á Ingólfi loft-
skeytamanni er þó drjúgum
meiri og nemur 25.672,00 kr.;
aftur á móti er þessu þannig
háttað með „tekjuaukningu o.
fl.“ hjá Ingólfi framkvæmda-
stjóra á síðasta ári, að hann
fær nú 1.293,oo króna lækkun.
Og svo viljum við benda
Morgunblaðinu á það, ’ að Al-
þýðublaðið hefur undanfarið
verið með ákveðnar skoðanir
um það, hvers konar aðstæð-
ur skiptu mestu máli í sam-
bandi við hækkanir og lækk-
anir opinberra gjalda á mönn-
um. Hannes á Horninu segir
um það efni 5. , ágúst s.l.;
„Það er staðreynd, að fátækt
fólk greiðir skatta og skyldur
fyrir ríkt fólk, að mjög marg-
ir einstaklingar, sem „eiga“
fyrirtæki og 'geta sjálfir
skammtað sér kaup og sent
síðan skattstofunni skýrslu
um það, svíkja og stela. Þeir
eru verstu skattsvikararnir.
Ég hef gert úftök. Menn
með milljónaeighir borga
minna en menn, sem ,,eiga“
nýja íbúð, en skulda megin-
hlutann í henni. Menn, sem
reka margföld milljónafyrir-
tæki og eiga margs konar
fasteignir, greiða margfalt
minna en verkamaður með
sæmilegar tekjur, en litlar
eignir, nema kannski litla í-
búð.“
Kannski gæti Morgunblaðið
gefið einhverjar skýringar á
svona fyrirbærum sem sam-
herjar þeirra í ríkisstjórninni
lýsa á þennan hátt. Við bíð-
um og sjáum hvað setur.
Tvö innbrot framin
í verdanir í Rvík
í fyrrinót var framið innbrot
í verzlunina Aðalkjör við Grens-
ásveg og stolið þaðan mörgum
pökkum af sigarettum og einn-
ig var eyðilagður borðstimpil-
kassi. Þarna voru að verki tveir
menn og tókst lögreglunni að
hafa hendur í hári þeirra eftir
ábendingu frá manni i nágrenn-
inu sem sá til ferða þeirra.
Þjófarnir brutu rúðu í af-
areiðslulúsu verzlunarinnar og
krældu sér í sígaretturnar í
gegnum opið. Einnig seildust
þeir til peningakassans er stóð
á borðinu en við það valt hann
niður á gólf og er talinn ónýt-
ur.
Maður í næsta húsi sá til
ferða tveggja manna er hlupu
frá búðinni um nóttina og fóru
inn í bíl og óku burt. Gat hann
gefið lögreglunni það greinar-
góða lýsingu á bílnum að hún
fann hann síðar um nóttina og
tókst þannig að hafa hendur í
hári þjófanna.
Aðfaranótt miðvikudags var
einnig brotizt inn í verzlun við
Laugaveg og stolið þaðan um 13
þúsund krónum. Var brotin rúða
i húsinu og járnrimlar er voru
innan við hana rifnir frá þann-
ig að hægt var að komast inn
um hana.
Framkvæmdum míðar
hægt I Laugardal
9 Talsverð forvitni er ríkjandi meðal almennings um
gang mála við sundlaugarbygginguna í Laugardal og í-
þróttahöllina við Suðurlandsbraut. Þjóðviljinn leitaði
frétta um framkvaemdir hjá viðkomandi aðilum og kom
í Ijós að sundlaugin verður líklega tekin í notkun á
næsta ár en íþróttahöllin verður ekki tilbúin til íþrótta-
kappleikja á næsta vetri eins og lofað hafði verið, held-
ur er í hæsta lagi unnt að gera sér vonir um að henni
verði lokið á árinu 1966.
Þióðviljinn ræddi við Óskar
"'órðarson hjá Byggingarrleild
Seykjavíkurborgar vegna fram-
kvæmda við sundlaugina í Laug-
’rdalnum Sagði hann að unnið
'°fði verið við bygginguna stöð.
'gt i sumar og síðastliðinn vet-
'r og væri von t.il að unnt væri
að byrja að steypa hana upp
með haustinu Skortur á iðnað-
armönnum hefði reyndar nokk-
uð háð framkvæmdum | sumar
en búizt væri við að úr því
rættist er sumarfríum lyki með
haustinu. Þess má vænta, að
sögn Óskars, að sundlaugin verði
tekin í notkun með næsta vori.
Á þessu ári hefur verið eytt
alls liðlega þremur miljónum í
laug'na, en heildarkostnaður
Framhald á 7. síðu.
gjHl
Frá Jalta.
ÓDÝR FERD TIL
SOVÉTRÍKJANNA
■ í byrjun september býður ferðaskrifstofan Landsýn
upp á þægilegt 16 daga ferðalag til Sovétríkjanna fyrir
17500 krónur. Fararstjóri verður Ámí Bergmann.
Lagt verður af stað fjórða
september og flogið til Kaup-
mannahafnar og þaðan daginn
eftir til Moskvu — og strax um
kvöldið til Leningrad. Þar hafa
ferðalangar tvo daga til að virða
fyrir sér þá borg sem státar af
meiri dýrð í byggingum og lista-
söfnum en aðrar borgir um aust-
anverða álfuna. . Þaðan er flog-
ið 10. september til höfuðborga
Úkraínu, Kíef, sem er vissulega
nýlegur bær, en geymir um leið
margar minjar frá þeim tíma
er kristni nam land í Rússlandi
að sunnan og Skandinavar sóttu
að norðan eftir frama og fé.
Frá 10. til 16. sept. er svo dval-
ið í Jalta á Krímskaga, en þar
geta menn haft meiri blíðu af
náttúrunni en á flestum stöðum
öðrum: sagt er að sólskinsdagar
séu þar jafnmargir og á Mið-
jarðarhafsströnd Frakklands,
enda er þarna mikill mannfagn-
aður á sumrin. Og hitastigið er
í september einmitt ágætlega við
hæfi íslendinga. Þarna er og
skammt í gömul og ný skraut-
Föstudagur 14 ágúst 1964 — 29. árgangur — 181. tölublað
Forsætisráðherra heim»
sæklr Johnson 18. þ.m.
Eins og kunnugt er liefur for-
sætisráðherra, Bjarni Benedikts-
son, að undanförnu ferðazt um
íslendingabyggðir í Kanada. Að
þeirri heimsókn lokinni mun
hann halda til Washington.
1 frétt frá forsætisráðuneytinu
í gær segir að Bjami Benedikts-
son muni koma til Washington
þriðjudaginn 18. ágúst. Þar tek-
ur Thor Thors sendiherra á móti
honum á flugvellinum, en síðan
verður ekið til Hvíta Hússins og
mun Lyndon Johnson forseti
taka þar á móti forsætisráðherr-
anum. Frá Hvíta húsinu verður
haldið til islenzka sendiráðsins í
borginni og því næst snæddur
hádegisverður t hjá Dean Rusk
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Að loknum hádegisverði mun
Bjami Benediktsson leggja blóm-
Bjarni Benediksson.
sveig á leiði Kennedys fyrrum
Bandarí k j aforseta.
Síðdegis á þriðjudag heldur
forsætisráðherra með flugvél til
New York.
íslenzkir ungtemplarar
efna til móts um helgina
Bindindissamtökin hafa ekki
látið staðar numið með að gefa
fólki (sérstaklega unga fólkinu)
kost á, að taka þátt í skipulögðu
r
hýsi, fjöll og blómagarða. Frá
16 til 19. september er svo dval-
ið í Moskvu.
Annatími leikhúsa þar í landi
hefst einmitt í byrjun septem-
ber, og gefst kostur á því að
bregða sér á ballettsýningu eða
á óperu fyrir aukagjald sem
mjmdi nema um 189 kr. miðinn.
Af þessari upptalningu má
sjá, að vegalengdir eru miklar
á þessu ferðalagi, en hins veg-
ar eyða menn litlum tíma í
meiningarlausan hristing í járn-
brautum og bifreiðum, því flog-
ið er á milli allra þessara staða.
Auk þess er ferðin mjög ódýr
— þess má geta til saman-
burðar, að flugfar fyrir ein-
stakling til Moskvu og heim
aftur kostar t.æpar 19 þúsund
krónur. /
Fararstjóri verður Árni Berg-
mann, en hann þekkir Sovétrík-
in af margra ára dvöl.
Frestur til að tilkynna þátt-
töku í ferðina er útrunninn á
þriðjudag.
Bermuda
sigraði
Akureyri
í gærkvöld fór fram á
Akureyri Ieikur milli Ber-
muda og Akureyringa.
Leiknum lauk með sigri
Bermudamanna 2 mörk
gegn 1.
Akureyringar skoruðu
fyrsta markið þcgar á
fyrstu mínútu Ieiksins og
áttu þeir betri leik allan
fyrri hálfleik. En á síð-
ustu mínútum fyrri hálf-
leiks tókst Bermudamönn-
um að jafna svo að í lok
hans stóðu ieikar 1:1.
f síðari hálfleik byrjuðu
Akureyringar afar vel, en
þeir höfðu ekki nægjan-
legt úthald og náðu Ber-
múdamanna nú undirtök-
unum og áttu mörg góð
tækifæri en markmaður
Akureyringanna, . Samúel
Jóhannsson, stóð sig mjög
vel og tókst Bermudamönn-
um ekki að skora annað
markið fyrr en í lok síð-
ari hálfleiks.
Um þrjú þúsund manns
horfðu á leikinn alls staðar
að bæði úr Reykjavík og
eins úr sýslunum í kring....
...Veður var mjög gott á
Akureyri í gær.
Engin síld
i gœr
Sildveiði á fyrra sólarhr. nam
29 þúsund málum, en hinsvegar
fréttist ekkert af veiði í gær-
dag. Flotinn hélt sig að mestu
í Reyðarfjarðardjúpi, en þar
hafði ofangreindur afli fengizt.
Ágætt veður var á miðunum í
gær.
Síldarverksmiðjan á Norðfirði
hefur nú tekið við um 200 þús.
málum síldar, en síldarverk-
smiðjan á Reyðarfirði um 78
þús. málum, Saltað var á báð-
um stöðum í gær.
bindindismóti á fögrum staff.
Um verzlunarmannahclgina var
sem kunnugt er mót í Húsafells-
skógi og um næstu helgi efna
íslenzkir ungtemplarar til síns
árlega Jaðarsmóts. Þá hefst árs-
þing samtakanna að Jaffri á
föstudagskvöld. Þar mun m.a.
séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son f lytja erindi.
Jaðarsmótið hefst á laugardag
og því lýkur á sunnudagskvöld.
Verður skipulagt tjaldbúðasvæði
að Jaðri, er verður flóðlýst. Efnt
verður til íþróttakeppni. Guðs-
þjónusta verður á sunnudag kl.
15.30 og mun séra Árelíus Níels-
son, formaður ÍÚT prédika. Síð-
gr um daginn verður útiskemmt-
un. Meðal atriða þar verður Óm-
ar Ragnarsson með skemmtiþátt.
Dansað verður bæði á laugar-
dagskvöld og sunnudagskvöld að
Jaðri og mun vinsæl hljómsveit
leika fyrir dansinum. Þetta er
í sjöunda skipti sem að íslenzk-
ir ungtemplarar efna til slíks
móts að Jaðri og hafa fyrri mót
ávallt verið f jölsótt og tekizt vel.
Ferðir verða að Jaðri frá Góð-
templarahúsinu báða dagana.
Ný Evrópu-
frímerki gefin út
14. september
14. september næst komandi
verða gefin út ný Evrópufrí-
Verðgildi merkjanna eru kr 4.50
og_ kr. 9.00. Verður það fyrra
brúnt og grænt að lit en hið
síðartalda blátt og brúnt. Merk-
in eru teiknuð af Georges Bét-
emps og prentuð hjá Gourvoisier
A/S, La Chaux-de-Fonds. Frí-
merkjasalan tekur á móti pönt-
unum og veitir frekari upplýs-
ingar um merkin.
v