Þjóðviljinn - 16.08.1964, Side 3
/
Sunnudagur 16. ágúst 1964
HðÐvmnni
SÍÐA 3
HVERJU NEMA SKATTSVIKIN?
Á
HVÍLDAR-
DACINN
„Glæpir eru
verndaðir'
5. ágiíst síðastliðmn birti Al-
þýðublaðið forustugrein sem
bar fyrirsögnina: „Launþegar
mótmæla“ og komst m. a. svo
að orði: „Fjöldi hinna sönnu
auðmanna þjóðfélagsins greiðir
ekki meiri útsvör eða skatta
en miðlungs fastlaunamenn,
þótt þeir hljóti að hafa marg-
falt meiri tekjur — eða hlunn-
indi í þeirra stað .... Það er
haegt að segja íslendíngum að
þeir verði að greiða háa skatta
— ef byrðamar leggjast jafnt
á alla. Þegar jafn stórkostleg
svik eiga sér stað og nú ger-
ast fyrir allra augum, mót-
mæla fastlaunamenn og munu
halda áfram að mótmasla. þar
til úr er bætt“. Sama dag
komst aðalsérfræðingur Al-
þýðublaðsins í skattamálum,
Hannes á hominu, svo að orði:
,JÉg hef nú haft tækifæri til
að skoða skattskrána og gera
samanburð. Ég hef komizt að
raun um að ef svonalagað er
látið viðgangast, þá er engum
blöðum um það að fletta að
glæpir eru vemdaðir. Dæmin
sýna og sanna, að við lifum
i siðlausu þjóðfélagi. Það er
etaðreynd að fátækt fólk greið-
ir skatta og skyldur fyrir ríkt
fólk, að mjög margir einstak-
lingar sem ,,eiga“ fyrirætki og
geta sjálfir skammtað sér
kaup og sent síðan skattstof-
unni skýrálu um það, svíkja
og stela. Þeir eru verstu skatt-
svikaramir. Ég hef gert úrtök.
Menn með miljónaeignir borga
minna en menn, sem „eiga“
nýja íbúð. en skulda enn meg-
inhlutann i henni. Menn sem
reka margföld miljónafyrir-
tæki og eiga margskonar fast-
eignir greiða margfalt minna
en verkamaður með sæmilegar
tekjur en litlar eignir nema
kannski litla fbúð .... Ég full-
vissa stjómarvöldin um það,
að þetta getur ekki gengið.
Það er alveg augljóst að skatt-
skráin nú, hin augsjáanlegu
skattsvik, stórþjófnaðir - ein-
staklinga og fyrirtækja, hlýtur
að hafa varanleg áhrif í stjóm-
málalífinu. Það liggur i aug-
um uppi að þjóðfélagið verður
að snúast til vamar“.
,Grimm villidýr”
V. ágúst sagði Alþýðublaðið
í forustugrein: „Það er hægt
að leggja þunga skatta á Is-
lendinga, ef þjóðin er sann-
færð um, að þeir leggist jafnt
á alla og séu nauðsynlegir. En
það er ekki hægt að hækka
opinber gjöld um 50-100% á
öllum þorra heiðarlegra Is-
lendinga á sama tíma sem
fjöldi þeirra auðmanna. sem
sjálfir geta ráðið framtölum
sínum, sleppur að mestu leyti“.
Og sama dag sagði skattasér-
fræðingur Alþýðublaðsins: —
„Skatta- og útsvarsbyrðin er
orðin óbærileg fyrir verka-
menn og millistéttarfólk, það ,
er að segja alla þá sem taka ”ÞeSar jafn storkostíeg svik
laun sin beint frá öðrum. Allir e,Sa ser stað °S nu Serast ***•
sem eiga fyrirtæki sleppa ir allra auSum mótmæla fast-
miklu betur - og það bygg- >aunamenn og munu halda a-
ist fyrst og fremst á skatt- fram að mótmæla þar til ur
svikum .... Það er furðulegt er 1,3011 •
hvað menn geta orðið grimmir.
Beztu menn, gæðablóð, góðir
borgarar, að því er virðist,
verða eins og grimm villidýr
þegar þeir komast yfir pen-
inga. Menn sem engan vildu
svikja og töldu ekki eftir sér
fyrrum að bera byrðar eins
og hinir verða eins og grjmmir
hundar þegar þeir eignast
mikið. Þá eyða þeir mörgum
nóttum andvaka í það að stúd-
éra svik og leita aðstoðar sér-
fræðinga í lagakrókum. Síðan
senda þeir þlaggið til skatt-
stofunnar. Og það virðist sem
þá klígi ekki við því að stíga ||||
fram fyrir alþjóð með brenni- SÍ!S:*
markið á enninu. Vegna mis-
réttis í álögum, vegna hróp-
andi ranglætis. vegna gífur-
legra skattsvika. á íslenzk , .
þjóðfélagsskipun í vök að verj- -’glæi,,r eru verndaðir ._. við
ast. Þegnarnir eru að missa hfum 1 slðlausu lwðfelagi •
alla trú á vemd þjóðfélags- Þetta astand er gersamlega o-
ins« þolandi . . . hropandi rang-
Iæti . . . efast um það að hér
sé orðið réttarríki“.
Löðurmannleg
svik í
allsnægtum"
. ★ 6. ágúst .sagði skattasérfræð-
ingur Alþýðublaðsins: „Af-
koma manna veltur á skatt-
svikum. Þetta komast menn að
raun um með því að fletta
skattskránni. Að vísu kemur
í ljós um leið og menn kynna
sér málin, að skattsvikarana.
marga hverja. munar ekkert
um að borga helmingi meira
en þeim er gert að greiða, og
i raun og veru furða. að þeir
skuli leggja sig niður við þessi
löðurmannlegu svik í alls-
nægtum. Hins vegar koma
, svikin niður á öðmm. sá sem
ekki getur svikið eða svíkur
ekki verður að borga meira
vegna svika hins. Þannig
borgar fátspki maðurinn fyrir
þann ríka .... Gunnar Thor-
oddsen fjátknálaráðherra! Geir
Hallgrímssoh borgarstjóri! Nú
kemur fyrst og fremst til ykk-
ar kasta. Hér er manndóms-
verk að vinna. Þetta ástand
er gerShmlega óboiandi. Ein-
staklingarnir bola það ekki.
þióðfélagið, í heild þolir það
ekki“.
Hækkunin of
mikil
8. ágúst segir skattasérfræð-
ingur Alþýðublaðsins enn:
„Það er sannarlega rétt að af-
koma manna veltur að vera-
legu leyti á þvi hvemig að-
staða þeirra er til að koma við
skattsvikum. En undarleg þyk-
ir mér sú stjórnmálastefna.
sem miðar fylgi sitt við það
að hvetja menn til þess að
varpa frá sér hakanum og
skóflunni og stofna í þess stað
fyrirtæki! Hver vill kannast
við þá stefnu opinberlega?
Hún kemur í ljós hvort sem
menn viðurkenna hana eða
ekki opinberlega. Hún kemur
fram í staðreyndunum“. Sama
daginn játar sjálfur viðskipta-
málaráðherra Alþýðuflokksins,
Gylfi Þ. Gíslason. í Alþýðu-
blaðinu: „En hækkun opin-
beru gjaldanna nú er að vísu
meiri en hækkun framtalinna
tekna einna gefur tilefni til.
Þegar núgildandi tekjuskatts-
og útsvarsstigar voru sam-
þykktir á siðasta Alþingi. lágu
ekki fyrir upplýsingar um
tekjur á árinu 1963. Þær hafa
nú reynzt meiri en gert var
ráð fyrir, og útsvars- og
tek.iuskattstigamir hafa bví
ekki verið lækkaðir eins mikið
og nauðsynleg hefði verið.“
„Ekki harma ég
það!'
9. ágúst var enn komizt svo
að orði í forustugrein Alþýðu-
blaðsins: „Skattsvik hafa aldrei
veyið eins áberandi og nú.
Þjóðin krefst þess að þau
verði stöðvuð“.
11. ágúst sagði skattasérfræð-
ingur Alþýðublaðsins: „Ég sé
að þvf er haldið fram af ýms-
um. að ranglætið stafi af sjálf-
um lögunum að öliu leyti.
Þetta er áreiðanlega rangt.
Ranglætið stafar fyrst og
„Ráðstafanir til almennrar end-
urskoðunar eða endunnats
gjaldanna virðast tilefnislaus-
ar“.
1/4
telji það ekki einstaklings-
framtak að vinna baki brotnu
til þess að búa í haginn fyrir
heimili sitt. Þessi og þvílíkur
hugsunarháttur er furðulegur.
Ég hef orðið áþreifanlega var
við það, að skattsvikaramir
eru orðnir smeykir. Þeir sem
níðzt er á eru réjðir. Stjóm-
málamenn eru bæði reiðir og
hræddir. Ekki harma ég það!“
„Hreint neyðar-
ástand"
■ //
12. ágúst sagði skattasér-
fræðingtir Alþýðublaðsins enn:
„Fyrrum var það talinn vott-
ur um góðar tekjur og ágæta
afkomu að borga háar upphæð-
ir til rikis og bæjar. Nú er
þessu alls ekki til að dreifa. Ég
veit fjölda mörg dæmi þess,
að fátækir menn bera marg-
falt meiri byrðar en aðrir sem
eiga mikið, eyða miklu og ber-
ast mikið á. Þetta vekur óneit-
anlega grun um það að hér
sé réttur þegnanna fyrir borð
borinn, að maður fari að ef-
ast um það að hér sé orðið
réttarriki. Það er augljóst af
skattskránni, að án þess að um
skattsvik sé að ræða sé ein-
um sleppt en hinn höggv-
inn . . . Ég fullvissa forráða-
menn rikis- og bæjarfélags um
það. að mjög víða ríkir hreint
neyðarástand. sítundum heyrir
maður í fréttum að grioið sé
til neyðarráðstafana. Það er
sannarlega börf á neyðarráð-
stöfunum í Reykjavík nú“.
„Ráðstafanir
tilefnislausar
//,
„Frestun á innhcimtu gjald-
anna almennit er óframkvæm-
anleg“.
fremst af því, að fjöldi fyrir-
tækja og enn stærri fjöldi
einstaklinga falsa framtöl sín
— og það er enn látið við-
gangast. Þama liggur hundur-
inn grafinn. Þama er meiuið.
Geypari sagði að hann vildi
hafa þetta svona. Það bæri að
styðja . einstaklingsframtakið.
Það er eins og þessir menn
Hér hefur verið rifjuð upp
barátta Alþýðublaðsins á degi
hverjum í rúma yiku fyrir taf-
arlausri og gagngerri ertdur-
skoðun á sköttum og útsvörum
á þessu ári, en jafn afdráttar-
lausa og beinskeytta baráttu
hefur Alþýðublaðið ekki háð
fyrir nokkru máli i eina tvo
áratugi. Blaðið átti auðsjáan-
lega von á því að barátta þess
bæri árangur, enda ekki að
furða þótt það liti stórt á sig
sem annað aðalmálgagn þeirr-
ar ríkisstjórnar sem hafði á-
kveðið álögurnar; það boðaði
það með feitletruðum fagnandi
ramma á forsíðu 12. ágúst að
ráðherrafundur yrði haldinn
um málið þann dag. En ráð-
herramir. þar á meðal Emil
Jónsson formaður Alþýðu-<
flokksins og Gylfi Þ. Gíslason
ritari hans, létu eins og Al-
þýðublaðið væri ekki umtals-
vert og barátta þess fánýt ó-
magaorð. Þeir sögðu á kald-
ranalegan og ósvífinn hátt:
„Ekkert hefur komið fram,
sem bendir til þess, að álagn-
ing opinberra gjalda á þessu
ári hafi ekki farið fram lögum
samkvæmt. Ráðstafanir til al-
mennrar endurskoðunar eða
endurmats gjaldanna virðast
því tilefnislausar. . . Frestun
á innheimtu gjaidanna almennt
er óframkvæmanleg“. Það eina
sem ráðherramir ljá máls á er
að athafnir þær sem Alþýðu-
blaðið hefur kallað stórkost-
leg svik, verndaða glæpi, sið-
leysi, stórþjófnað, óþolandi á-
stand, hrópaiidi ranglæti og
neyðarástand sem valdi því að
hér sé ekki réttarríki, megi
dreifast á sex mánuði í stað-
inn fyrir fjóra!
Tölur
hagstofunnar
Það er mikið blygðunarleysi
þegar ríkistjómin heldur því
fram að. ekkert sé við álögurn-
ar að athuga annað en venju-
leg mistök sem alltaf geti kom-
ið fyrir. Hin umfangsmiklu
skattsvik hafa verið augljóst
og sívaxandi vandamál áram
saman, og um þau er fleira til
marks en almennt umtal Al-
þýðublaðsins og mælskulistir
Hannesar á horninu. f janúar-
hefti Hagtíðinda í ár greindi
Hagstofa fslands frá rannsókn
sem hún hafði framkvæmt á
tekjum einstakra starfsstétta á
árinu 1962, samkvæmt fram-
tölum einstaklinga og félaga,
en eftir þeim framtölum voru
skattar og útsvör reiknuð í
fyrra. Hagstofan skýrði frá því
að á framtalsskýrslunum hefðu
atvinnurekendur og forstjórar
gefið upp að þeir væru býsna
tekjulágir. Meðaltekjur kvænts
framteljanda úr atvinnurek-
endastétt reyndust veta 154
þúsundir króna á ári, eða rétt
rúmlega 12.000 krónur á mán-
uði. Atvinnurekendur gáfu upp
að þeir hefðu mun lægri tekj-
ur en allir sjómenn, jafnt yf-
irmenn sem hásetar; þeir hefðu
talsvert minni laun en læknar
og tannlæknar; sérfræðingar
hverskonar kæmust mun bet-
ur af; og meira að segja
væru kennarar og skóla-
stjórar settir skör hærra í þjóð-
félaginu en sjálf atvinnurek-
endastéttin. Hinir bljúgu vinnu-
veitendur töldu kjör sín helzt
sambærileg við afkomu verk-
stjóra, opinberra starfsmanna
og bankafólks og raunar ekki
ýkja miklu betri en hafnar-
verkamanna. Þeir sem einkum
höfðu ellilífeyri til að lifa af
voru allt að því hálfdrætting-
ar á við atvinnurekendur!
Þannig töldu atvinnurekendur,
heildsalar og aðrir fjárplógs-
menn fram á síðasta ári, og
framtöl þeir-ra voru tekin gild;
það er þvi ekki að undra þótt
í ár sé stigið mörgum fetum
framar á þeirri braut.
Ótal gáttir
Samkvæmt lögum spm við-
reisnarstjómin setti fyrÍT
nokkrum árum með atkvæðum
Alþýðuflokksins voru atvinnu-
rekendum opnaðar ótal gátt-
ir til þess að fela tekjur sín-
aT. Þeir láta fyrirtæki sín
byggja lúxusvillur fyrir sig,
koma upp veglegum laxveiði-
skálum úti um allt land og
greiða veiðileyfi; fyrirtækin
eiga að greiða lúxusbílana,
standa undir veizlunum og ut-
anlandsferðunum. Ekkert af
þessum tilkostnaði og öðrum
slíkum telst til tekna atvinnu-
rekenda, heldur kemur aðeins
tii frádráttar hjá fyrirtækinu
og lækkar óhjákvæmileg gjöld
þess. f viðbót við þessi löglegu
skattsvik koma svo þau ólög-
legu, byggð á tvöföldu bók-
haldi, en með þeim geta at-
vinnurekendur ekki aðeins
dregið úr gjöldum sínum, held-
ur og stungið í eigin vasa
drjúgum hluta af söluskatti og
aðstöðugjaldi sem þeim er fal-
ið að innheimta af almenn-
ingi. Skattar þeir sem nú
hvíla af ofurþunga á launþeg-
um eru þannig tekjulind fyr-
ir þá fésýslumenn sem kunna
nægilega vel til veika í við-
reisnarþjóðfélaginu.
Hversu miklu er
stolið undan?
En skipta þessi skattsvik þá
jafn miklu máli og af er látið?
Fróðustu menn telja að um
það bil 20% af skattskyldum
tekjum einstaklinga og fjrrir-
tækja komi ekki fram og
sleppi við skattheimtu. Sam-
kvæmt frásögn Gylfa Þ. Gísla-
sonar töldu einstaklingar og fé-
lög i Reykjavík fram á þessu
ári nettótekjur sem námu nam-
tals 3.150 miljónum króna;
20% af þeirri upphæð er
hvorki meira né minna en.
630 miljónir króna, en það er
sú upphæð sem líklegt er talið
að stolið sé undan skatti. Meg-
inhlutinn af þessari upphæð
er kúfur ofan á háum tekjum,
og myndi því samkvæmt regl-
unum renna að 6o hundraðs-
hlutum til ríkis og bæjar ef
rétt væri talið fram. En þótt
við séum svo varkár að reikna
aðeins með 40% ættu skatt-
amir af hinum vantöldu tek>-
um að nema um 250 miljónum
króna, eða svo sem tveimur
fimmtu af öllum þeim gjöldum
sem nú eru lögð á einstaklinga
og félög í Reykjavík. Sé allt
lándið tekið í þennan útreikn-
ing verða tölumar meira en
tvöfalt hærri. Þessar niðurstöð-
ur sýna hversu stórlega væri
hægt að lækka gjöldin á öll-
um almenningi ef forréttinda-
mennimir væru látnir bera
þann hlut sem þeim er ætlað-
ur. En þær sýna einnig að b®g-
ar ráðherramir neita að endur-
skoða rangiætið eru þeir ekki
að hilma yfir neina smápretti
stéttarbræðra sinna og skjól-
stæðinga, heldur eru þeir að
gegna þvi hlutverki sínu að
vemda sjálft þjóðskinulag við-
reisnarinnar. — Austri.
Lokað
vegna sumarleyfa til 12. september n.k.
Þorvaldur Þórarinsson
Hæstaréttarlögmaður.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun fyrir skólaárið 1064 — 1965 og námskeið
í september, fer fram í skrifstofu skólans dagana
20. til 27. ágúst kl. 10 — 12 og 14 — 19, nema laug-
ardaginn 22. ágúst.
Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og
öðrum haustprófum hefjast þriðjudaginn 1. sept-
ember.
Við innritun skal greiða skólagjald kr. 400,00 og
námskeiðsg'jöld kr. 200,00 fyrir hverja námsgrein.
Nýir umsækjer.dur um skólavist skulu leggja fram
prófvottorð frá fyrri skóla og námssamning.
Skólastjóri.
j
t