Þjóðviljinn - 20.12.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 20. desember 1964
ÞIOÐVIUINN
SlÐA g
íslandsmótið í handknattleik hófst sl. föstudag:
Hvorki íslands- né Reykjavíkur-
meistararnir sigruiu 1. kvöSdið
Meistaramót íslánds í handknattleik inn-
anhúss, hið tuttugasta og sjötta í röðinni, hófst
sl. föstudagskvöld í íþróttahúsinu að Hálogalandi
með tveim hörkuspennandi leikjum.
ÁAur en leikirnir hófust
flutti Ásbjörn Sigurjónsson,
formadur Handknattleikssam-
bandsins, stutta setr\ingárræöu.
Sagði Ásbjöm að margar von-
ir væru bundnar við gang
þessa móts. I fyrsta lagi að
nú væru tveir nýir aðilar með
í fyrsta skipti, en það eru
Aðalfundi Ár-
manns frestað
-fc Aðalfundi Glímufélagsins
Armanns, sem halda átti mánu-
daginn 21. þ.m. verður frestað
til mánudagsins 28. þ.m.
íþróttabandalag Akureyrar og
Iþróttafélagið Stjarnan. I öðru
lagi eru vonir tengdar við það
að þrátt fyrir hina lélegu að-
stöðu okkar hér í Hálogalandi,
takist okkur að halda okkar
íþrótt uppúr því að fhlla í
öldudal, í þeirri vissu að þetta
verði öruggléga í síðásta skipt-
ið sem við þurfum að hefja
íslandsmót í þesyu húsi.
Handknattleiksmenn og kon-
ur Islands hafa á síðastliðnu
keppnisári sýnt þann dugn-
að, íandi og þjóð til sóma,
að ekki er viðunandi að láta
íþróttahöllina bíða lengur gláp-
andi svörtum gluggatóftum
myrkurs og kulda á bjartsýna
æskuna, sem bíður þess ' að
fá fullkomnar aðstæður til að
sýna hvað í henni býr.
Við skorum á viðkomandi
aðila að ljúka húsbyggingunni
fyrir 1. okt. næstkomandi. —
Standist þessar óskir okkar.
þá verður enn von á fram-
för íslenzks handknattleiks, og
er mér þá sönn ánægja að
hvetja alla til drengilegrar
keppni og segja þetta mót
sett. —
Var gerður góður rómur að
máli Ásbjörns. Gaman hefði
þó verið að heyra áætlamr
um breytingu á íslandsmótinu
í handknattleik, þannig að því
verði gefin eðlilegri tími en
verið hefur, en formaðurinn
gat ekkert um það, og er þó
annar aldarfjórðungurinn að
byrja frá því fyrsta mótið fór
fram. Það er þó mál sem ekki
þolir lengri bið.
Byrjaði glæsilega:
Það verður ekki annað sagt
en að fyrsta keppniskvöldið,
en þau verða 41, hafi verið
mjög skemmtilegt og synd að
ekki skyldu fleiri vera við- ]
staddir til að horfa á leiki
kvöldsins, sem ef til vill und-
irstrika þá „breidd“ sem hér
er um að ræða.
Þetta byrjaði þegar í fyrri
leiknum, en þá áttust við himr
nýbökuðu Keykjavíkurmeistar-
ar KR og liðið sem ekkert
stig fékk í nýloknu Reykjavíkur-
móti, Víkings. Munu flestir
hafa verið vissir um öruggan
sigur KR, en það varð ekki
svona auðvelt. KR-ingar byrj-
uðu vel og komust uppí 6:2,
en hvað skeður? Víkingar
komast í 8:6! og e|tir það var
þetta hörð barátta, þar sem
á köflum Var sýndur góður
handknattleikur; sýndu bæði
liðin sínar beztu hliðar.
Leikur Víkings var í öllu betr'
en liðið hefur sýnt í haust
enda munu lengri leikir henta
liðinu betur.
Víkingar reyndu við og við
Framhald á 13. síðu.
Framarar geta verið ánægðir með
frammistöðuna gegn Redbergslid
' \
1
Yfirleitt hefur verið heldur
hljótt um leik Fram við Red-
bergslid í Messehallen í
Gautaborg um daginn, og
má vera að það hafi hálf-
drukknað í öllum jólaönnun-
um og því sem þéim fylgir.
Eigi að síður verður að telja
að leikúrinn hafi verið at-
hyglisverður fyrir handknatt-
leikinn hér þegar það er haft
í huga að Fram átti í höggi
við meistara Svíþjóðar í
handknattleik, marg- og lang-
reynt lið í hörðum leikjum
við fullkomnustu skilyrði.
Aðeins 5 marka munur og
það í heimaborg andstæðing-
anna er ekki svo alvarlegt.
En það er svipað með hand-
knattleikslið og keðju. Styrk-
leilíi keðjunnar markast af
veikasta hlekknum, en Fram
á sinn veika hlekk, og það
kom fram í þessum leik, en
það eru markmennirnir, sem
þó stundum geta átt mjög
góða leiki, en það er svo ó-
öruggt að aldrei verður vitað
fyrr en að leik loknum hvern-
ig sá hlekkur þolir. Þetta
skeði í Gautaborg, og með
öruggari markmönnum hefði
leikurinn-. getað snúizt allt
öðruvísi og ekki ósennilegt
ef liðin hefðu haft/ mark-
mannaékipti, eins og Sigurð-
ur Sigurðsson sagði í lýsing-
unni að Fram hefði unnið
leikinn.
Þessi frammistaða Fram
undirstrikar enn einu sinni,
á hvaða leið handknattleiks-
menn okkar eru, og hvar
þeir standa f samanburðinum
við beztu, lið annarra landa.
Þgð er kvolítið athyglisvert,
en þó ekkert leyndarmál fyr-
ir handkqattleiksmenn hér, að
blaðadómtim í Gautaborg ber
saman ufn það að leikur
Fram hafi- einkennzt af leik
á litlu gólíi og þeir hafi ekki
kunnað að notfæra sér hið
stóra gólf, sem þeir léku á.
Það er þvf! leiðinlegt að þurfa
stöðugt að..,afsaka sig með því
að þessari íþrótt. sem mun
lengst komin allra íþrótta á
tslandi, skuli ekki vera búin
þau skilyrði sem hún á skil-
ið, einmitt fvri- bá eliu sem
handknattleiksmenn hafa
sýnt þann árangur sem
þeir hafa náð.
Iþróttasíðan hefur fengið
blaðaúrkliþpur úr blöðum í
Gautaborg, þar sem segir frá
leiknum, og verður gripið nið-
ur í þeim hér og þar. Fer
þaðtiáiérvsá- eftir: ■•*-*/ f 1
Einfaldur leikur
Islendingamir dugðu aðeins
í fyrri hálfleik. — Þetta var
góð skemmtun í „Mássan” án
þesí þó að vera toppleikur.
Bæði liðiri gerðu sitt til að
sýna góðan handknattleik,
svo að það var ekki aðekis
auðVelt fyrir dómarann, en
einnig skemmtilegt fyrir á-
horfendur. ^
Islendingamir léku eigin- *!■>
lega mjög einfaldlega, og áttu
í erfiðleikum með að halda ”
breiddinni í sókninni; hægra
megin var tómt og autt, en
þeir voru nokkuð hættulegir
meðan þrekið dugði, og kom
þar til góður samleikur og \
nokkrir góðir einstaklingar.
Af þeim var Gunnlaugur
Hjálmarsson í aðeins hærri
flokki með leikni sína, hrfeyf-
anleik, fjaðurmagn og skot-
hörku. Er hann I flokki beztu
handknattleiksmanna á Norð-
urlöndum. Ágætan leik sýndu
og Halldór Sigurðsson, hinn
öruggi bakvörðijr, Gylfi Jó-
hannsson og hinn síyinnandi
Guðjón Jónsson.
íslendingamir byrjuðu vel
með því að taka forystu
tvisvar en eftir 2:2 hafði RIK
forustu allan tímann. Þrátt
fyrir þrjú mörk yfir komust
gestimir uppí 6:7 og 7:8 og
9:10. Gautaborgarliðið gerði
út um leikinn í byrjun síðari
hálfleiks með því að skora
þrjú mörk á 8 mínútum.
Fram Iék samt af krafti og
bjartsýni, en náði ekki tök-
um á hinum hröðu sending-
um og leik RIK. Undir lokin
tókst þejm þó að rétta nokk-
uð hlut sinn. —
Góður heímaleikur
Ágætur heimaleikur mótj5
.................1 ■
Fram. — Af Fram hafði farið
gott orð fyrir góðan hand-
knattleik. Við viljum ekki
segja að gestimir hafi ekki
uppíyllt það sem búizt var
við, en þeir voru ekki sér-
stakir. Við mundum segja að
liðið væri af venjulegum
Allsvenskum flokki. Stóra
stjama liðsins var Gunnlaug-
ur, frábær leikmaður, með
hið rétta auga fyrir mark-
ógnandiv augnablikum, og
Gýlfi Hjálmarsson var hættu-
legur fyrir framan RIK-
markið. Það voru þessir tveir
sem mest bar á í leik gest-
anna. Liðið hafði tvo góða
markmenn, þar sem Halldór
var betri.
Sem heild sýndi Fram góð-
an leik með tilliti til þess að
þeir léku í húsi sem er stærra
en þeir eru vanir, en höllin
sem þeir nota í heimalandi
sínu er mikið minni.
Síðari hálfleikur RIK var
góður þegar RIK-piltarnir
tóku fram einskonar sýning-
arleik, þar sem þeir voru
löngum stundum alls ráðandi,
og var leikur þeirra þá mjög
skemmtilegur. En það tók þá
hálftíma að hita sig upp. —
Það kom á óvart að gestirnir
skyldu eftir eina nunútu taka
forustuna með hörkuskoti
framhjá Donald Lindblad. —
Þegar 15 mínútur voru af leik
stóðu leikar 7:6 fyrir RIK.
Gestimir fylgdu mótherjum
sínum fast eftir og héldu
stöðunni nokkuð jafnri fram
undir lokin. 1 síðari' hálfleik
kom svo RIK með sinn góða
leik og tryggði sér sigurinn.
„Fallbyssur” Svía
Markverðir Fram fundu
fyrir fallbyssum RIK. —
Hressilegt en nokkuð einhliða
Fram-lið frá Islandi olli ekki
RIK sérstökum erfiðleikum,
eftir að Gautaborgarpiltarnir
höfðu áttað sig á leikaðferð-
um gestanna. — Það virtist
sem Fram-piltarnir séu vanir
við lítinn sal heima í Rvík.
Litlar tilraunir til leiks á
„köntum”, en mest reynt að
brjótast í gegn á miðjunni.
Til að byrja með heppnaðist
sérstaklega „stjömu’-’ liðsins,
Gunnlaugi, margt, en eftir að
Gösta Carlson og Co. fóru að
hafa áhuga fyrir því sem
hann aðhafðist, var það erf-
iðara fyrir Gunnlaug að kom-
ast í gegn. —
Markmenn Fram áttu ekki
góðan dag, og þeir urðu í
rauninni „skothræddir”
Þetta blað á stutt samtal
við Gunnlaug Hjálmarsson á
þessa leið:
— RIK lék svipað og bú-
izt var við, og á jafnt og gott
lið. En þvílík skot!
Aftur á móti held ég að
markmaðunnn Donald Lind-
blom, hafi ekki verið eins
góður og í Tékkóslóvakíu í
fyrravetur.
Við lékum mun lakar í
vöm en við emm vanir og
sérstaklega markmennimir.
Þmmuskot RIK komu mark-
mönnunum f slæmt skap.
— Við vomm ekki vanir
leikaðferð Fram, sagði flokk-
stjóri RIK-liðsins, Janne Stil-
berg, en þegar við höfðum
áttað okkur á þeim, var það
ekki erfitt lengur. Við vor-
um ef til vill dálítið „spennt-
’r” fyrir leikinn, sem við
böfðum beðið eftir í um það
bil tvö ár. (SVO! Hvenær
var dregið’ Ath. Iþróttasíð-
unnar.)
Frímann.
KR-ingar hef ja
smíðí nýs íþrótta-
húss næsta vor
KR-ingar urðu að sjá á bak lslandsbikarnum i knattspyrnu til
Keflvíkinga á sl. sumri, en þeir unnu bikarkeppni KSl í fimntta
skipti í röð. Myndin er frá leik KR og Keflvíkinga í fslandsmótinu.
□ Á aðalfundi Knattspyrnufélags Reykjavík“v
ur, sem haldinn var fyrir nokkrum dögum, var
einróma samþykkt tillaga frá hússtjórn félags^
ins þess efnis, að hafizt verði handa um byggingu
nýs íþróttahúss á félagssvaeðinu næsta vor. Var
stjórninni heimilað að selja íbúð í eigu félagsins,
enda renni andvirði hennar til fyrirhugaðra
framkvæmda. íþróttahús þetta mun verða mikið
mannvirki, sem gert er ráð fyrir að reisa í á-
Föngum á nokkrum árum.
&
Aðalfundurinn var haldinn í
KR-húsinu þrið.iudaginn 8.
des. s.I. Formaður KR, Einar
Sæmundsson, setti fundinn og
minntist í upphafi Magnúsar
Guðbjörnssonar, hins mikla
langhláupara, sem lézt á starfs-
árinu. Heiðruðu fundarmenn
minningu hins látna félaga
með því að rísa úr sætum.
öflugt félagslíf
Gunnar Sigurðsson flutti
skýrslu stjómar og verður
hér drepið á nokkur atriði
h/snnar:
KR varð 65 ára á árinu, og
var þess minnzt á margan
hátt. Efnt var til keppni og
sýninga á vegum deildanna, og
veglegt afmælishóf var haldið
að Hótel Borg. Ennfremur var
gefið út vandað afmælisrit i
Í200 eintö'kum.
Tvær hópferðir voru famar
utan á árinu, til London í maí
og Liverpool í september, i
sambandi við leiki KR þar í
borg.
Eins og undanfarin ár, rak
ÁR sumarbúðir í skíðaskálan-
um í Skálafelli. Haldin voru 2
þriggja vikna námskeið, sem
tókust með ágætum. Hafa fjöl-
margir foreldrar látið í ljós á-
nægju sína með dvöl barna
sinna þar.
I fyrravetúr varð kunnugt,
að Guðmundur heitinn Ólafs-
son hafði arfleitt KR að hús-
eign sinni við Garðastrætf I3a.
Guðmundur var mikill KR-
ingur og starfaði af heilshugar
fórnfýsi fyrir félag sitt um
langt árabil. Hann sagði m. a.
í eríðaskrá sinni, að sér hefði
alltaf fundizt KR vera hluti
af sjálfum sér og vildi hann
með þessari ráðstöfun efla og
styrkja íþróttastarfsemi félags-
ins. KR-ingar taka við eign-
Einar Sæmundsson
inni þakklátum huga og munu
eftir beztu getu efla íþrótta-
starfsemi félagsins, þannig að
minningu þessa horfna KR-
ings verði sómi að.
I haust var ákveðið að hafa
félagsheimilið opið 4 kvöld f
viku kl. 8—11,30. Yrði þessl,
starfsemi fyrst til reynslu t.il
ianúarloka. Þá verður tekin á-
Framhald á 13. sídu.
I