Þjóðviljinn - 24.04.1965, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.04.1965, Blaðsíða 2
2 SfÐA ÞJÓÐVXLJINN Laugardagur 24. aprfl,- 1965 Dönsk útflutningsvara Þórarinn Þórarinsson skóla- stjóri og kirkjuráðsmaður Þjóðkirkjunnar greindi fyrir nokkrum dögum í útvarpinu frá bollaleggingum sínum um framkvæmdir £ Skálholti i sambandi við þá allsherjar fjársöfnun sem nú er hafin. Voru áform þau er hann lýsti hin umfangsmestu, og þótt hann viki ekki aS fjárhags- lið málsins var Ijóst að stefnt er að framkvæmdum sem kosta munu ekki tugi heldur hundruð miljóna króna. Hins vegar eru framkvæmdir þess- ar enn sem komið er loftkast- alar, og aukinn byggingar- kostnaður af völdum óðaverð- bólgu hefur sem betur fer ekki bitnað á þeim. Sagt er að endurreisn Skál- holts eigi að vera til marks um þjóðlegan metnað Islend- inga. Samt er það svo að sú Skálholtsframkvæmd sem helzt er komin eitthvað áleið- is, undirbúningur kristilegs lýðháskóla, er enn sem komið er erlent fyrirtæki. Tekizt hefur að öngla saman 2,2 miljónum króna í almennum samskotum annarstaðar á Norðurlöndum og einkanlega í Danmörku til þvíiikrar skólastofnunar, hvort sem á- stæðan er frekar sú aðfrænd- tir okkar telji nauðsynlegt að kristna Islendinga eða fnennta. Einnig skýrði Þór- arinn Þórarinsson svo frá að' það þjóðlega metnaðarhús sem á að geyma skólann sé rjú í teikningú hjá dönskum arkítekti, pg annar danskur arkítekt sé að leggja á ráð-. in um heildarskipulag Skál- holts. Þannig er íslenzkum sérfræðingum á sviði húsá- gerðarlistar ekki treyst til þess að finna þjóðlegum metnaði hæfilegan búning; hin mikla sögulega reisn Is- lendinga er orðin dönsk út- flutningsvara. Hjálp- arbeiðni Einar Sigurðsson útgerðar- maður, sem eitt sinn var kallaðúr hinn ríki virðist nú vera orðinn auralaus, því hann hefur beitt sér fyrir al- mennum samskotum í því skyni að hann geti keypt sér mótorbát. Hefur hjálparbeiðni Einars verið auglýst mjög í Morgunblaðinu í viðtölum og fonjstugreinum, og á sjálfri upprisxjhátíðinni tilkynnti Ragnar í Smára að hann ætl- aði ásamt syni sínum að að- stoða Einar við þetta verk og birti þá ákvörðun á prenti eins og nú tíðkast ef menn vinna góðverk. Kvaðst Ragn- ar vona að á bak við Einar og bátinn stæði „sú lífræna trygging, sem er ofar góð- málmum og dollurum, ein- huga þjóð, æskufólk sem trú- ir á land sitt og framtíð, og kýs að vera sjálfstætt og veitandi í samfélagi góðra manna . . . umfram allt að unga fólkið slái skjaldborg um þetta nýja félag, sem mikils góðs má vænta af fyr- ir land og lýð. Ég óska hinu nýja félagi Einars Sigurðsson- ar, fyrsta almenningshlutafé- laginu á Islandi um útgerð, allrar blessunar." Vafalaust verður Einari Sigurðssyni ekki skotaskuld úr því með þvflikan bakhjarl að komast yfir bátinn, og vonandi stuðlar sá farkostur síðan að því að Einar geti á nýjan leik borið viðumefni sitt með rentu. Til- gangslaust Miðvikudaginn í dymbil- viku skýrðu Framsóknarmenn í Edduhúsinu svo frá að viku- ritið Frjpls þjóð, sem prentað er í þyí húsi, hefði verið stöðvað, fullbúið til prentun- ar. Væri ástæðan sú að í blaðinu hefðu átt að biriast fólskulegar árásargreinar á Sósíalistaflokkinn ásamt þeim yfirlýsingum að þar sem sós- íalistar í Reykjavík hefðu neitað að standa að stofnun Alþýðubandalagsfélags myndi Bergur Sigurbjömsson stofna félagið sjálfur. Ekki vakti frásögnin um stöðvun Frjálsr- ar þjóðar neina athygli frek- ar en annað í fari þessa skringilega blaðs, þótt mönn- um þætti að vísu næsta tor- skilið hvers vegna nokkur gæti orðið uppnæmur út af ósannindum um Sósíalista- flokkinn og Alþýðubandalag- ið í þvx' blaði — það hefur naumast flutt annað efni ár- um saman. Enda kom í ljós að afstaðinni páskahelgi að náttúran var náminu ríkari, og; Frjáls þjóð barst úr Skuggasundi með níðgreinun- um óskertum. Ósannindin um Sósíalista- flokkinn voru mjög hvers- dagslegt efni, en hitt var öllu nýstárlegra að á forsíðu Frjálsrar þjóðar var birt mynd af hinu reisulega verzl- unarhúsi Ásbjamar Ólafsson- ar við Skólavörðustíg, enn- fremur bxlæti af Jóni Bald- vini Hannibalssyni hagfræð- ingi. Við frekari athugun kom í ljós að Jón var að auglýsa að hann hefði tekið upp ný viðskipti í verzlunarhúsi Ás- bjarnar; kvaðst Jón hafa prókúruumboð fyrir Alþýðu- bandalagsfélag f Reykjavík og myndi hann „taka við um- sóknum þeirra er gerast vil.ia stofnfélagar”. Þar eð Jón hefur sýnt í fjölmörgum skrifum sínum að hann er mjög eindreginn andstæðing- ur Alþýðubandalagsins, virð- ist þetta háttarlag vera hugsað líkt og þegar Oddur Sigur- geirsson hinn sterki af Skag- anum var klæddur f litklæði til þess að kveða niður hug- myndina um að íslendingar tækju upp forna þióðbúninga. En þótt einn afreksmaður geti kveðið lélega hugmynd niður, verður raunin önnur þegar aðstæður em þveröfug- ar. — Austri. Berklavörn í Reykjavík heldur FÉLAGSVIST í Skátaheimilinu við Snorrabraut laugardaginn 24- apríl kl. 8.30. — Heildarverðlaun vetrarins veitt. Guðmundur Guðjónsson og Ómar Ragnarsson skemmta. — Mætið vel og stundvíslega. Torginolefni fram- leidd á fsafiröi Árið 1962 var stofnað nýtt Sú rejmsla, sem fengizt hefur iðnfyrirtæki á Isafirði, Torgin- af Torginol-efnum sýnir, gð á- ol h/f. Það tryggði sér einkaleyfi lögð eru þau slitsterk og högg- til framleiðslu á Torginol-efnum þolin svo af ber. Þau festast hér á landi hjá Torginol-Gesell- við langflesta fleti, sem finn- schaft m.b.H. í Vestur-Berlin, ast í byggingum, og taka vel en það fyrirtæki er einkafram- við málningu. Notagildi þeirra leiðandi þessara efna í Þýzka- í byggingariðnaðinum segja landi og hefur selt einkaleyfis- framleiðendur að sé ótvírætt og réttindi til rúmlega 100 landa verði er stillt í hóf. víðsvegar um heim. Vélar keypti Torginol-efni hafa þegar ver- félagið einnig í Vestur-Þýzka- ið notuð víða um land með góð- lanúi- um árangri. I því sambandi má Félagið réði þegar efnafræðing nefna Systrasel á Akureyri, í þjónustu sína og hefur á þeim barnaskóla á Raufarhöfn, sam- tíma, sem liðinn er frá stofnun býlisblokkir í Reykjavík, sfld- þess, unnið að því að reyna og ar- og fiskimjölsverksmiðjuna £ sannprófa gildi Torginol-efna Bolungavík og auk þess margar með tilliti til íslenzkra bygg- einstakar íbúðir víða um land. ingahátta og aðstæðna, þar sem TORGINOL h'/f hefur nú um- notkun þeirra er að ýmsu leyti boðsmenn á eftirtöldum stöðum: nýstárleg og sum efnaima algjör Reykjavík, Keflavík, Akranes, nýjung hér á landi. Búðardal, Patreksfirði, Bolungar- Samkvæmt upplýsingum, sem vík, Sauöárkróki, Akureyri, Dal- fréttamaður Þjóðviljans hefur vík, Húsavík og Vopnafirði. fengið hjá forstjóra Torginol h/f, Félagið hefur nú í hyggju að Jóni B. Þórðarsyhi, múrara- auka framleiðslu sína eftir því meistara, framleiðir það eftir- sem aðstæður leyfa. Það hefur taldar vörur: gefið út prentaðar leiðbeiningar TORGAPINT plastmálningu, um meðferð og notkun þeirra sem nota má á flesta fleti, nýja efna, sem það framleiðir. Al- og gamla, úti og inni. menningur getur þvf notfært sér TORGINOL-lím, ýmsar teg- þessa nýjung, án þess að þurfa í undir, svosesm trélím og gólf- öllum tiifellum að leita til fag- dúkalím. manna. Til sérstakra nýjunga hér á 1 stjóm Torginol h7f eiga landi má telja eftirtalin TORG- sæti: Jón B. Þórðarson, Isafirði, INOL-efni: Finnur Th. Jónsson, Bolungavík TORGINOL-grunnplast I. og og Baldur Jónsson, Isafirði. II., sem kemur í staðinn fyrir^______ fx'npússningu og sparar eina tilv tvær yfirferðir af málningu. Efni þetta má einnig notasem fylliefni á allskonar þilplötur. TORGINOL-sprunguplast, sem notað er til viðgerðar á múr og tii fyllingar á sprungum og þil- plötumætum, holum og rispum. TORGINOL-steinplast. Þetta efni er sérstaklega hentugt til að lagfæra síitna gólffleti, hvort heldur er um að ræða steypu- gólf eða trégólf, en sérstaka nýj- ung má telja, að þetta efni-hef- ur verið notað með góðum á- rangri til að jafna veggi steypta upp í stálmótum. Hefur þannig reynzt mögulegt að búa stál- mótsveggi undir málningu með notkun þessa efnis á tiltölulega auðveldan hátt og á samkeppn- isfæm verði. TORGINOL-veggplast. Það er notað til munstrunar á veggiog í flísastað, sérstaklega í stiga- ganga, anddyri, í vinnusali o.fl. Lemass aftur forsætisráöherra DUBLIN 21/4 — Irska þjóðþing- ið endurkaus í dag Sean Lemass £ embætti forsætisráðherra á fyrsta fundi sínum eftir kosning- arnar fyrir páska. Kosningunum Iguk með mjög naumum sigri flokks Lemass, Piaima Fail, sem fékk 72 af 144 þingmönnum, en hefur þó meirihluta þar sem stjómarandstaðan verður að leggja til þingforsetann sem hefur ekki atkvæðisrétt. Landsfíokka- gliman háð 26. apr/l Landsflokkaglíma Islands fer fram mánudaginn 26. aprfl £ í- þróttahúsinu að Hálogalandi og hefst kl. 8,30 s.d. Keppt verður i þremur þyngdarflokkum og tveimur drengjafjokkum. Ennfremur! verður glímt í flokki drengja 13 ára og yngri þriðjudaginn 1 27. apríl £ fimleikasal Miðbæj- arbarnaskólans og hefst sú glíma kl. 8 s.d. í yðar þjónustu ailu daga Hjólbarðaverkstæðið HRAUNHOLT fyrir neðan Miklatorg (gegnt Nýjti sendibílastöðinni). fr Eigum-ávalit fyririiggjandi ☆ flestar stærðir af hjólbörðum ☆ og felgum. Opið alla daga frá kl. 8 til 23. — Sími 10-300. VÖRUR Kartöfiumás * Kókómatt * Ksrfíi * Kakó. BLADADREIFING Þjóðviljann vantar nú þegar blaðbera í Kvisthaga. Tjamargötu. ÞJÓÐVILJINN — Sími 17-500. ; *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.