Þjóðviljinn - 24.04.1965, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.04.1965, Blaðsíða 12
Sovézkur skut- togari kynntur Sumir sátu yfir skák í klefum sínum. Einn jafnhattaði afl- : raunastöng á þilfarinu. Sovézkur verksmiðjutogari, Zigmas Angarekis frá Klaip- eda í Litháen, gistir Reykja- víkurhöfn um þessar mundir og gafst fréttamönnum í gær tækifæri til að ræða við skip- stjóra og sovézka verzlunar- fulltrúann, en að tilhlutan hans og nýstofnaðs fyrirtæk- is, Borgarey h/f er togarinn hingað kominn. Zigmas Angarekis er á leið i veiðiför, en tilgangurinn með hingaðkomu hans er sá, að kynna íslenzkum áhuga- Júrí Verkhotúrof skipstjóri. mönnum um útgerð sovézka skuttogara með viðskipti fyr- ir augum. Skuttogari þessi er smiðað- ur í borginni Nikolaéf við Svartahaf árið 1960, en þar hafa þegar verið smíðuð 200 skip af þessari gerð. Hann er 3170 tonn að stærð, 1225 t. Deadweight. Aðalafl- vél er 2000 hestöfl en þar að auki er togarinn búinn fjór- um hjálparvélum, sem hver er 300 hestöfl og sjá þær fiskiðju um borð fyrir orku. Vinnslustöð skipsips, sem er staðsett undir afturþilfari getur unnið úr um það bil 60 tonnum hráefnis á sólar- hring. Hún skilar á sólar- hring 30 tonnum af heilfryst- um fiski, sex tonnum af fiskimjöli og þar að auki pr hægt að sjóða niður fisk í skipinu. Skipstjórinn sagði, að þótt togarinn væri ágæt- lega búinn siglingartækjum fiskileitartækjum og öðrum útbúnaði, þá væru þeir sov- ézkir verksmiðjutogarar sem nú væru smíðaðir öllu glæsi- legri — öll vinnsla fullkom- lega vélunnin, og þá fram- leidd flök, en ekki heilfryst- ar blokkir. Skipstjórinn lét mjög vel af siglingarhæfni skipsins. Það er búið skiptiskrúfu, get- ur snúizt á svæði, sem er 3 skipslengdir í þvermál og rennur aðeins þrjár og hálfa skipslengd frá því skipt er úr fullri ferð áfram í aftur á bak, ganghraði þess er 13 hnútar. Trollið er venjulega haft úti IV2 — 2 tíma og í hali fást allt að 25 tonn. Togarinn hefur einkum veitt við strendur Kanada og við Vestur-Afríku og er á- höfnin að meðaltali 135—140 daga í útlegð. Aðspurður hvort það væri ekki erfitt að manna skip til svo langra leiðangra, sagði skipstjórinn, að yfirleitt væri það ekki og sæktust ungir menn margir eftir því að komast á fiski- skipaflotann. Og yfirmenn togaraflotans hefðu yfirleitt byrjað á honum sem hásetar — sjálfur hefði hann verið tvö ár háseti áður en hann gerðist stýrimaður. Zigmas Angarekis er gerð- ur út frá Klaipeda í Litháen, og ber reyndar nafn klassísks litháisks rithöfundar. Áhöfn- in er 98 manns, þar af að- eins sex konur, því miður. Þriðjungur áhafnarinnar hef- ur lokið einhverskonar æðri menntun. Laun fara eftir afla, en óbreyttur háseti má búast við 250 — 300 rúblum mánaðarlega að meðaltali, og þættu það allt að því for- stjóralaun á þurru landi í Sovét. Unnið er á þrem átta tíma vöktum, og fær enginn að erfiða meir en átta stund- ir á sólarhring. Sér til yndis- auka hefur áhöfnin útvarps- kerfi og sjónvarp, kvikmynda- vél og bókasafn. Á stuttri göngu um togar- ann komust menn líklega helzt að þeirri niðurstöðu að þetta sé gott skip og traust- vekjandi en ekki beinlínis glæsdlegt — enda hefur það innbyrt fisk um fimm ára gkeið. Vistarverur skipverja voru þokkalegar — óbreyttir búa í fjögurra manna klef- um en rýmra er um yfir- menn eins og gengur. Það mætti ætla að skipverjar séu sportlega þenkjandi — í tveim klefum sáust menn sitja að skák, o'g uppi á aftur dekki stóð vasklegur náungi, um- kringdur voldugu trolli og jafnhattaði aflraunaslá. Sem fyrr segir er verk- smiðjutogari þessi hingað kominn að tilhlutun sovézka verzlunarfulltrúans og Borgar- eyjar h/f (forstjóri Eggert Þorbjarnarson). Og er ætlun- in að togarinn skreppi út fyrir landhelgi með íslenzka útgerðarmenn og áhugamenn aðra og sýni útbúnað sinn í gangi. Sovézkir hafa þegar framleitt allmikið af slíkum togurum, og útflutningsfyrir- tæki þeirra, Sudoimport, er nýlega farið að bjóða þá á erlendum markaði — fyrir tveim vikum var einn slíkur seldur til Grikklands. Gratsjof, verztunarfulltrúi sagði, að Súdoimport væri reiðubúið að taka fullt tillit til íslenzkra reglna um skipasmíði ef af viðskiptum yrði svo og að sjá um nærveru íslenzks sér- fræðings við smíðamar ef þurfa þætti. Hann bjóst við bví að skuttogari myndi kosta um 750 þúsund sterlingspund. Féstrur endnrtaka ^rnaskemmtun Stéttarfél. Fóstra og nemendur Fóstruskólans héldu skemmtun á sumardaginn fyrsta i Austurbæj- arbíói fyrir böm innan skóla- skyldualdurs. Var þar margt til skemmtunar svo sem dansar, söngvar, leikrit og leikþættir við hæfi barna á þessum aldri. Þar sem færri komus-t ag en vildu á skemmtun þessa verður hún endurtekin á morgun, sunnudag, í Austurbæjarbíói kl. 1.30. Erindi Hauks Heigasonar Haukur Helgason ANNAÐ ERINDIÐ í erinda- flokknum um íslenzk þjóð- félagsmál verður haldið á sunnudaginn í Tjarnargötu 20, salnum uppi, kl. 2. ÞÁ FLYTUR Haukur Helgason hagfræðingur erindi um auð- valdsþjóðféiagið á fslandi, efnahagslega og félagslega gerð þess. Af/i Ólafsvíkurbáta er minni en í fyrra ÓLAFSVlK 21/4 — Fyrri hluti þessa mánaðar frá 1. — 15. apríl öfluðu 18 bátar héðan 1.889 tonn í 212 róðrum. Heild- arafli þessara 18 báta í 715 róðrum frá áramótum er alls 7065 tonn. Um sama leyti í fyrra höfðu 13 bátar fengið 6.448 tonn í 609 sjóferðum. Þrír hæstu bátar fyrra hluta aprílmánaðar í ár eru Valafell- ið með 249 tonn í 15 róðrum, en skipstjóri á honum er Jónas Guðmundsson, þá Stapa- fellið með 244 tonn í 15 róðrum og Sveinbjörn Jakobsson þriðji með 223 tonn. Hæstu bátar frá áramótum eru: Stapafellið með 887 tonn i 53 sjóferðum, Steinunn með 790 tonn f 61 róðri og Jón Jónsson með . 788 tonn í 61 sjóferð. Stapafellið var líka hæst um þetta leyti í fyrra, hafði fengið 1.104 tonn hinn 15. apríl í 76 róðrum. Mestur afli í róðri á þessari vertíð er hjá Stapafellinu 42 t., er það fékk hinn '7. .•■príl. Nemendatónl. Tónlistarskólans Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur nemendatónleika í Há- skólabíói í dag kl. 3. Nemenda- kór og Hljómsveit Tónlistar- skólans flytja verk eftir Corelli, J. S. Bach, Mozart, Paul Hinde- mith og Benjamin Britten. Stjómendur verða Björn Ölafs- son og þrír nemendur út söng- kennaradeild, Jón Stéfánsson, Þorgerður Ingólfsdóttir og Þórir Baldursson. Einsöngvarar með kórnum verða Ásgeir Guðjóns- son og Guðfinna Dóra Ölafsdótt- ir. Auk þess leikur Jón H. Sig- urbjörnsson einleik á flautu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill á með- an húsrúm leyfir. Myndin er tekin á æfingu og það er Þorgerður Ingólfsdóttir sem stjómar. DMlliNN Laugardagur 24. apríl 1965 — 30. árgangur — 91. tölublað. Frægir bridgespil- arar í heimsókn 1 dag hefja spilamennsku hér enskir bridgespilarar í boði bridgefélaganna í Reykjavik, Bridgefélags Reykjavíkur, Tafl- og bridgeklúbbs Reykjavíkur, Bridgefélags kvenna og Bridge- deildar Breiðfirðingafélagsins. Bridgemeistarar þessir eru Ge- orge Lengyel, Anthony Priday, Jane Pedro Juan og Joan Durr- an. Lengyel er fyrirliði sveitarinn- ar og íslenzkum bridgemönnum að góðu kunnur síðan hann spil- aði hér í hollenzkri sveit fyrir þremur árum undir stjóm hins kunna bridgemanns Herman Filarski. Priday er fyrrverandi Evrópu- meistari og kunnur bridgefrétta- ritari. Skrifar hann m.a. í enska stórblaðið Sunday Telegraph vikulega bridgeþætti Hann hef- ur einnig spilað fyrir hönd Eng- lands í heimsmeistarakeppninni i bridge. Frú Jane Juan er núverandi heimsmeistari kvenna í bridge og titlinum náði hún á Olymp- íumótinu í New York í fyrra. Hún hefur einnig orðið Evrópu- meistari, þótt hún sé ennþá und- ir þrítugu. Frú Joan Durran er fyrrver- andi Evrópumeistari, titilinn vann hún í Torquay 1961. Hún hefur margoft spilað í enska landsliðinu og keppti fyrir Eng- land í tvímenningskeppni heims- meistaramótsins í Gannes. Fyrsta keppni Englendinganna verður tvímenningskeppni, sem hefst I dag í Sjómannaskólanum. Lýkur þeirri keppni á sunnudag en strax eftir helgina flytzt mótið í hina glæsilegu sali Hót- el Sögu. A mánudagskvöldið verður einvígi við sveit Islands- meistaranna, sveit Gunnars Guð- mundssonar, og verður sá leikur sýndur á sýningartöflunni. Á þriðjudagskvöldið hefst átta sveita keppni í Tjamarbúð og verður hún einnig spiluð á Anthony Priday, sem er fræg- astur hinna ensku bridgespilara. fimmtudagskvöld og laugardags- eftirmiðdag á sama stað. Á mið- vikudagskvöld spilar enska sveit- in við Reyk j avikurmeistara n a, sveit Halls Símonarsonar og verður sá leikur einnig sýndur á sýningartöflunni á Hótel Sögu. Orðsending frá Kvenfélagi sésíalista Eins og undanfarin ár verða kaffiveitingar á boð- stólum í Tjarnargötu 20 hinn 1. maí til ágóða fyrir Carolínu-sjóð. Er heitið á félagskonur og aðra, sem vilja styrkja sjóðinn, að gefa sig fram við eftirtaldar kon- ur: Margrét Sigurðardóttír sími 35501, Elín Guðnmnds- dóttir, sími 15259, Sigríður Þóroddsdóttir sími 36518, Sig- ríður Ölafsdóttir sími 40799, Halldóra Kristjánsdóttir sími 33586, Agnes Magnúsdóttir sími 32274, Margrét Ottós- dóttir sími 17809. Velheppnaður starfsfræðs/u- dagur haldinn ó Sauðárkróki Starfsfræðsludagur var hald- inn á Sauðárkróki á annan í páskum að frumkvæði Rotary- klúbhsins í kaupstaðnum. Alls notfærðu sér 263 unglingar starfsfræðsluna, 39 fleiri en þátt tóku í starfsfræðsludeginum þegar efnt var til hans í fyrsta sinn á Sauðárkróki fyrir 2 ár- um. Ólafur Gunnarsson sálfræð- ingur sá um skipulagningu starfsfræðslunnar og að hans sögn var það áberandi á Sauðár- króki annan páskadag hversu tækninám og tæknistörf hafa enn ekki vakið áhuga ungling- anna þar jafnalmennt og víðast hvar annarc staðar þar sem efnt hefur verið til starfsfræðslu- daga. Mikill áhugi var þarna á flugmálum (75), um flugfreyju- störf spurðu 63 stúlkur, um fóstrustörf 59, hárgreiðslu 57, hjúkrun 39, ljósmóðurstörf 27, sjávarútveg 41 en aðeins 3 um landbúnað, 11 um kjötiðnað, 16 um póst og síma, 11 um toll- gæzlu, 5 um löggæzlu og um- ferðarstjóm, 38 um handavinnu- kennslu, 36 um leiklist, 27 um tónlist, 17 um tæknifræði, 8 um guðfræði, 7 um læknisfræði, 8 um nám i Kennaraskólanum, 14 um menntaskólanám, 35 um nám í Bréfaskóla SÍS, 19 um Sam- vinnuskólann, 20 um Handíða- og myndlistarskólann. Mikil aðsókn var ag kvik- myndasýningu í sambandi við starfsfræðsluna og fjölmargir unglingar heimsóttu vinnustaði sem sýndir voru, m.a. sjúkra- húsið, trésmiðju og plastiðju. Starfsfræðsluna notfærðu sér ekki einungis unglingar í Sauð- árkrókskaupstað, heldur og all- margir frá Ólafsfirði, Blönduósi, Hofsósi og fleiri stöðum, svo og úr nálægum sveitum. Bruni í Kópavogi Um fjögurleytið í gærdag kom upp éldur £ húsi númer 52 við Nýbýlaveg í Kópavogi. Þetta er timburhús og kviknaði eldurinn í risi hússins. Eldurinn varð mjög magnaður og urðu miklar skemmdir. Húsráðandi er Þórður Ámundason. „Köld eru kvenna- ráð“ í Ólafsvík Ólafsvík 21. apríl — Leikfélag Ólafsvíkur hefur nú sýnt leikrit- ið Köld eru kvennaráð níu sinn- um hér í staðnum og í nágrenn- inu, Hellisandi, Stykkishólmi og Grundarfirði. Leikstjóri er Sæ- var Helgason. Ætlunin er að fara f leikferða- lag í Borgarfjörð um þessa hélgi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.