Þjóðviljinn - 24.04.1965, Side 4
HöÐViunm
Laugardagur 24. april 196S
Otgefandi: Sameinlngarfloklcur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19.
'Simi 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
Oþurftarverk
J síðasta tölublaði Frjálsrar þjóðar eru birtar til-
hæfulausar lygar um Sósíalistaflokkinn og Al-
þýðubandalagið, og voru þær endursagðar í sein-
asta Morgunblaði, enda hefur Frjáls þjóð um langt
skeið litið á það sem verkefni sitt að sjá andstæð-
ingum Alþýðubandalagsins fyrir óhróðursefni.
Ségir í frásögn blaðsins að á síðasta fundi í Sós-
íalistafélagi Reykjavíkur hafi verið samþykkt neit-
un við því að skipuleggja Alþýðubandalagið í
Reykjavík sem samfylkingarsamtök, en síðan hafi
miðstjórn Sósíalistaflokksins tekið fram fyrir
hendur Sósíalistafélagsins og fallizt á að Alþýðu-
bandalag yrði stofnað,
^llt eru þetta vísvitandi og blygðunarlaus ósann-
indi. Tillagan um stofnun Alþýðubandalags í
Reykjavík og fyrirkomulag þess er komin frá Sós-
íalistaflokknum fyrir meira en ári. Innan Sósíal-
istaflokksins er ekki neinn ágreiningur um þá
hugmynd, og á seinasta fundi Sósíalistafélags
Reykjavíkur var einmitt samþykkt að félagið
gerðist fyrir sitt leyti aðili að stofnun Alþýðu-
bandalags í Reykjavík. Eins og eðlilegt er í lýð-
ftBSHátshmtökum hafa verið uppi mismunánái til-
lögur um ýms framkvæmdaatriði, m.a. á síðasta
fundi Sósíalistafélags Reykjavíkur, en einnig um
þau atriði er nú fengin sameiginleg niðurstaða.
Miðstjórn Sósíalistaflokksins hefur ekki sent Mál-
fundafélagi jafnaðarmanna neitt bréf, heldur hafa
hugmyndir Sósíalistaflokksins verið ítrekaðar af
samninganefnd sem starfað hefur á vegum flokks-
ins nú um skeið. Það bréf er í fullu samræmi við
ályktun þá sem samþykkt var á seinasta fundi
Sósíalistafélags Reykjavíkur, enda er formaður
félagsins meðal nefndarmanna.
prjáls þjóð snýr þannig staðreyndum gersamlega
við, og er sá málflutningur í samræmi við iðju
blaðsins um langt skeið að undanförnu. Tilgang-
urinn með þessum nýjustu ósannindum er greini-
lega sá að reyna að koma í veg fyrir að Al-
þýðubandalagsmenn í Reykjavík gangi frá skipu-
lagsmálum sínum í vor, eins og óhjákvæmilegt er
bæði vegna þeirrar hagsmunabaráttu sem nú er
framundan og vegna stjómmálaástandsins í land-
inu. Þeir menn sem ráða skrifum Frjálsrar þjóð-
ar hafa lengi verið sundrungarmenn í íslenzkri
vinstrihreyfingu, og nú þurfa stjórnmálasamtök
íslenzkrar alþýðu á öllu öðru að halda en óþurft-
ariðju þvílíkra manna. Framundan er hin um-
fangsmesta kjarabarátta sem þarf að tryggja verk-
lýðssamtökunum mjög verulegar kauphækkanir,
styttingu vinnutímans og aukin félagsleg réttindi,
og þeim sigrum þarf að fylgja eftir með víðtækri
pólitískri sókn Alþýðubandalagsins. Ef stjórnmála-
samtök verkafólks og starfsmanna einbeita sér að
verkefnum sínum og láta hvorki opinbera né dul-
búna andstæðinga torvelda baráttu sína, eru betri
horfur á því en verið hefur um langt skeið að ná
mjög veigamiklum árangri á sviði hagsmunamála
og þjóðmála. — m.
Minningarorð
Ingibjörg Steinsdóttir leikkona
f. 26. júlí 1903 — d. 14. apríl 1965.
Það er von mín að einhver
sá úr stétt leikara sem átti
verulegt samstarf við Ingi-
björgu Steinsdóttur sem leik-
konu eigi eftir að segja okkur
eitthvað frá þeim þætti í ævi-
starfi hennar, því ég minnist
þess ekki að það hafi nokkum-
tíma verið gert að gagni. En
ég hef alltaf haft hugboð um
að framlag hennar á þeim
árum sem hún starfaði mest
að leiklist í landinu hafi ver-
ið þess virði að einhversstað-
ar væri til um það greinagóð
frásögn.
Um nokkurt skeið ævinnar
var hún talsvert virkur "kraft-
ur sem leikari og leikstjóri,
einkum úti á landi. Ég veit
ekki hve starf hennar þar var
mikið að vöxtum en hitt kæmi
mér á óvart ef hún hefði ekki
tendrað þar í umhverfi sinu glóð
athafna og áhuga, slíkur eld-
ur sem ávallt brann í henni
sjálfri fyrir þessu málefni.
Við Ingibjörg fórumst jafn-
an á mis í þessu starfi. Henn-
ar leið lá mest um „óbyggðir”,
mín ekki heldur um alveg venju
legar slóðir. Allt um það hafði
ég af henni nokkur kynni, og
sem kveðju og þakklæti fyr-
ir þau kynni, set ég þessi fáu
orð á blað.
Ingibjörg var að heiman bú-
in mörgum góðum gáfum, en
sterkt og ólgandi tilfinninga-
líf sat þar í fyrirrúmi. Þeir
eiginleikar ættu að vera góður
efniviður hverjum leikara, en
þá er mikils vert að skilyrði
séu til góðrar menntunar og
tamningar þessara krafta. Á
þessu var mikill misbrestur á
þeim árum þegar Ingibjörg hóf
göngu sína sem leikkona, og
held ég að margur áfangi hafi
orðið henni erfiður bæði í list
hennar og í lífinu sjálfu, vegna
þess, að samtíð hennar, þar
sem hún var í svéíf set't",' "hafði
ekki skilning og þroska til að
leiðbeina henni og hjálpa henni
til að koma böndum á ýmsar
ótemjur sem hún átti við að
glíma í brjósti sér. Því það er
sannfæring mín eftir þau kynni<S>
sem ég þafði af Ingibjörgu að
engin ill öfl hafi búið með
henni, engar tilfinningar af
vondum toga, ekkert það sem
ekki hefði mátt breyta í skíran
málm. Mér fannst hún ailtaf
drengileg og góð kona, og hún
kom til dyranna eins og hún
var klædd.
Hún hefur nú lagt hraunið
að baki með öllum þess mosa-
þembum. Kannski hafa verið
þar fleiri gróðurblettir með
uppsprettu og grænu grasi en
mig grunar. (Líklega set ég
þessa líkingu á blaðið vegna
þess hve ég hef alltaf haldið
að Ingibjörg hefði orðið — við
réttar aðstæður — góð Halla).
Og nú við ferðalok kveðjum
við hana, islenzkir leikarar,
með þökk og hlýjum hug.
Næst þegar kona fæðist á ís-
landi með hæfileikum áþekk-
um Ingibjargar verður hinni
löngu bemsku íslenzkrar leik-
listar vonandi lokið.
Þ. ö. St.
Margir vinir Ingibjargar
Steinsdóttur komu í Fossvogs-
kapellu í dag þar sem bálför
hennar var gerð, en hún lézt
hér í borg 14. þ.m. eftir langa
sjúkdómslegu.
Mig langar til að kveðja
hana nokkrum orðum, þó ekki
yæri nema til þess að þakka
gott og ánægjulegt samstarf á
fyrstu árum Kommúnista-
fiokksins og síðari kynni, sem
oft voru nokkyð slitrótt, þar
eð hún dvaldist síðar langdvöl-
um utan Reykjavíkur; um
skeið sem húsmóðir norður í
landi eða sem ráðskona og
forstöðukona á ýmsum stöðum,
en síðast en ekki sízt sem
Ingibjörg Steinsdóttir.
leikstjóri og leiðbeinandi fjöl-
margra leikfélaga og leikflokka
víðsvegar um landið. Og þó
að ótrúlegt megi nú virðast,
var það einmitt á sviði leik-
listar og félagsmála sem kynni
okkar Ingibjargar urðu nán-
ust.
Eftir nám sitt í hinum fræga
leikskóla Max Reinhardt í
Berlín settist Ingibjörg að í
Reykjavík. Hún varð þá sjálf-
kjörin til þess að stjórna leik-
hópum þeim sem voru að
sumu leyti uppistaðan. í
skemmtunum og áróðri Komm-
únistaflokksins. Allir sem til
þekkja vissu að hún náði þar
beinlínis ótrúlegum árangri.
Þama voru allir byrjendur og
viðvaningar nema hún, en
henni tókst að láta hvem mann
skila sínu verki með undraverð-
um hætti. „Leikritin“ voru
ekki eftir þá Shakespeare eða
Moliére, en af sama toga,
þó að handbragðið væri stund-
um eitthvað hrjúfara: boðskap-
ur um dægurmál, ádeilur, níð,
fagrar fyrirmyndir. Að þessu
voru margir höfundar og all-
ir nafnlausir eins og verið hef-
ur siður hér á landi frameftir
öllum öldum. Þarafieiðandi
voru engin höfundarlaun og
ekkert STEF. Textinn var allt-
af nýr. Stundum einskonar
ópera búffa. Betri í dag en í
gær og beztur á morgun.
Ingibjörg var óvenjulega
bráðþroska. Komung að aldri
hóf hún leikstarf á Akureyri.
Og þar giftist hún tæplega 19
ára mínum ágæta vini og stétt-
arbróður, Ingólfi Jónssyni,
hæstaréttarlögmanni. Eftir að
Ingólfur gerðist bæjarráðs-
maður og bæjarstjóri á ísa-
firði á árunum 1926 til 1934,
tók Ingibjörg mikinn þátt í
leiklistarstarfi á ísafirði . á
meðan hún dvaldist þar. Hæfi-
leikar hennar þóttu svo ótví-
ræðir, að Alþingi veitti henni
érið 1929 styrk til leiklistar-
náms- erlendis. Kaus hún að
læra hjá- Max Reinhardt, eins
og áður segir, árin 1929—1930.
Þar átti hún þess m.a. kost
að starfa í hinu heimsfræga
kvikmyndaveri UFA og sjá að
verki ýmsa af mestu leikurum
allra tíma. Síðar heimsótti hún
Ráðstjórnarríkin og kynnti sér
leiklist þar. Ailt þetta varð
henni góður skóli, því að árin
1951—1960 má segja að hún
hafi helgað sig uppeldi leik-
ara í hinum dreifðu byggðum
landsins. Mér er kunnugt að
margir minnast með þakklæti
þeirra örfandi áhrifa er hún
hafði á þessum vettvangi.
Áður hefur verið á það
minnzt, að Ingibjörg var mjög
virkur félagsmaður í Komm-
únistaflokki Islands. Einnig
var hún í miðstjóm félagsins
A.S.V. ásamt Halldóri Kiljan
.Lajcness,
Þetta .félag vann mikið og ó-
eigingjarnt starf á dögum
kreppu atvinnuleysis hér á
landi eftir 1930. Að öllum öðr-
um ólöstuðum hygg ég að fáir
hafi reynzt þar drýgri en Ingi-
björg og Ingólfur. En áhugi
Ingibjargar var slíkur að um
hana mynduðust þjóðsögur í
lifanda lífi:
Sumarið 1930 var ákveðið að
safna fé hér á landi til að
kaupa dráttarvél handa sov-
ézkum samyrkjubændum. Þetta
var hugsað sem táknræn at-
höfn. Með þessu vildum vid
sýna, að við kynnum að meta
viðleitni þeirra til samvinnu
á sviði ræktunar og framleiðslu.
Fæstir okkar vissu nokkuð um
þetta mál nema af bókum. Og
ég hugsa að enginn okkar hafi
nokkru sinni séð dráttarvél þá.
Og eitt er alveg víst, að eng-
an „heilvita“ mann dreymdi
þá um að íslenzkir bændur
myndu nokkurn tíma eignast
slíkt tæki, a.m.k. ekki fyrr en
kommúnisminn væri kominn á.
Og engum datt í hug þá, að 3
eða 4 dráttarvélar stæðu 6-
virkar á sama hlaði. En hvað
sem því líður, kom upp sú
þjóðsaga að Ingibjörg og fleiri
hefðu gefið giftingarhringana
sína í „Traktorsjóðinn“. Ég sé
í Verkalýðsblaðinu 7. okt. 1930
að traktorssjóðurinn nam þá
samtals kr. 2.159,60 fyrir ut-
an ógreidd loforð, kr. 480,00.
Heimildin ber því miður ekki
með sér, hvað innt var af
hendi í gullhringum. Hitt er
víst, að vorir forfeður guldu
í baugum hvaðeina er þeim
þótti launa vert.
Tel ég það vel viðeigandi
að mega hugsa til þess, að
dráttarvél sú er nokkrir Is-
lendingar sendu Sovétbændum
haustið 1930, hafi e.t.v. orðið
til þess að kenna þeim hetj-
um er unnu sigurinn við hina
ódauðlegu borg, Stalíngrad,
fyrstu handtökin í meðferð
þeirra véla er lögðu hina þýzku
fasista að velli. Það er a.m.k.
óumdeild söguleg staðreynd,
að dráttarvélavei:fesm,iðjgp, , I
.Stalíngrad hélt áfram að. fram-
leiða þá skriðdreka sem nægðu
til sigurs, þrátt fyrir hina
löngu umsát. Ég veit fyrir víst,
að hugur margra stóð þá
með verjendum Stalíngrad-
borgar. Ein í þeim fjölmenna
hópi var Ingibjörg Steinsdóttir.
Sagt hefur verið, að hring-
Framhald á 9. síðu.
TOLF RETTIR
Hver hreppir hin glæsilegu verðlaun í getraun
Þjóðviljans: Ferð til Rúmeníu og 12 daga dvöl þar!
★ Þeir sem komnir eru til
Mamaia eiga margTa kosta
völ í sambandi við ferðir til
sérkennilegra og víáfrægra
staða í Rúmeníu og næstu
nágrannalöndum.
★ Það er til daemis hægt
að bregða sér til Búkarest
með Iest eða flugvél, og þar
er sitthvað markvert að sjá,
bæði í borginni og á Ieiðinni.
★ Fornar byggingar eru
margar á nálægum slóðum
fyrir þá sem gaman hafa að
skoða kastala og kirkjur, og
frægar eru rústirnar í Hist-
ríu, þar sem Grikkir reistu
borg sjö öldum fyrir upphaf
timatals vors,
★ Og Dóná svo blá —
ekki má gleyma henni né
næstu landsvæðum, þar sem
sitthvað er að sjá fyrir nátt-
úruskoðara.
★ Tíðar, reglubundnar
ferðir eru með fyrsta flokks
farþegaskipi milli Constanza,
hafnarborgarinnar í nágrenni
Mamaia, og Istambul í Tyrk-
landi. Ævintýri hlýtur það a3
vera fyrir íslending að kom-
ast þangað austur og fá svo-
litla nasasjón af Austurlönd-
um.
★ Einnig er auðvelt að
komast í tiltölulega ódýrar
ferðir til Odessa í Sovétríkj-
unum.
★ Sá sem heppnina hefur
með sér í hópi þeirra er senda
rétta lausn á verðlaunaget-
raun Þjóðviljans eiga kost á
þessum ferðum. Þær eru að
vísu ekki innifaldar í sjálf-
um verðlaununum, en sá sem
kominn er á annað borð suð-
ur að Svartahafi mun varla
láta tækifærið ónotað þó að
nokkurn aukakostnað hafi í
för með sér.
★ Vi3 minnum á að 12. og
síðasta spurningln í get-
rauninni birtist í blaðinu á
morgun. Munið að halda get-
raunaseðlunum saman og hafa
þá við höndina þegar þið út-
fyllið Iausnarseðilinn sem
birtur verður eftir helgina.
★ Þátttakendur geta orðið
allir skuldlausir áskrifendur
Þjóðviljans og nýir áskrif-
endur sem greiða tvcggja
mánaða áskriftargjald fyrir-
fram.
Getraunaseðill OO
Hvað heitir forsætisráðherra Rúmena?
Svar:
Nicolas Ceausescu 1
Gheorghe Maurer X
Chiru Stoica 2
(Viðeigandi merki II x eða 2) á að skrifa fremst í dálkinn)
l