Þjóðviljinn - 24.04.1965, Side 5
Fimmtudagur 22. apríl 1965
ÞIÓÐVILJINN
SIÐA ^
Kristleifur Guðbjörnss. KR kemur í mark ad loknu Víðavangshlaupinu. Agnar Levi er ekki langt að baki sigurvegaranum. (Ljósm. B.B.)
Myndarbragur á 50. Víðavangs-
hiaupi ÍR á sumardaginn fyrsta
Kristleifur Guðbjörnsson varð sigurvegari—KR vann keppni 3ja manna
sveita, Héraðssambandið Skarphéðinn keppni 5 og 10 manna sveita
Þá var að vanda keppt um
verðlaunagripi 3ja og 5 manna
sveita, en einnig kepptu 10
manna sveitir um bikar sem
vannst nú til eignar.
KR-ingar unnu keppni
þriggja manna sveita með
miklum yfirburðum, en sveitir
Héraðssambandsins Skarphéð-
ins urðu hinsvegar hlutskarp-
astar í keppni 5 og 10 manna
sveita. I síðarnefndu keppninni
voru aðeins Keflvíkingar á-
samt Skarphéðinsmönnum með
fullskipaða sveit. Hlaut HSS
101,5 stig í keppninni cn Kefl-
víkingar 108,5, svo að mjótt
var á mununum. Þrír aðilar
voru með fullskipaðar 5 manna
sveitir og bar Skarphéðinn þar
sigur úr býtum eins og áður
var sagt, í öðru sæti var Ung-
mennafélagið Breiðablik í
Kópavogi og þriðja sveit
Iþróttabandalags Keflavíkur.
Þess má geta að yngsti mað-
ur í hinni sigursælu 10 manna
sveit Skarphéðins var 14 ára
gamall, en sá elzti á fimmtugs-
aldri, Njáll Þórioddsson, én
hann var áður fyrri kunhur
langhlaupari sem lét að sér
kveða á hlaupabrautinni.
Framhald á 9. síðu.
□ Meiri reisn var yfir Víðavangshlaupi ÍR nú
á sumardaginn fyrsta en verið hefur um langt
árabil; auðséð var að forráðamenn félagsins höfðu
reynt að vanda til þessa afmælishlaups, hins
fimmtugasta í röðinni, þátttakan hefur sjaldan
eða aldrei verið meiri og áhorfendur til mikilla
muna fleiri en mörg undanfarin ár.
tírslitin komu nijög á óvart.
KR-ingarnir þrír, sem þátt
tóku í hiaupinu, röðuðu sér í
fremstu sætin, en þeirra hlut-
skarpastur var Kristleifur Guð-
björnsson, hinn góðkunni
hlaupari.
Ungur maður úr Kópavogi,
Þórður Guðmundsson, varð ó-
vænt fjórði maður að marki.
33 þátttakendur
Vegalengdin, sem hlaupin
var, mun hafa verið um hálf-
ur þriðji kílómetri. Hlaupið
hófst í Hljómskálagarðinum
vestanverðum og lá leiðin það-
an út í Norðurmýrina sunnan
háskólahverfisins, en endamark
var í Lækjargötunni, á móts
við Menntaskólann. Þar sem
hlaupið hófst um líkt leyti og
útihátíð Sumargjafar lauk í
Lækjargötunni var mikill
mannfjöldi þar fyrir og fylgd-
ist af áhuga með lokaspretti
hlauparanna.
Þeir tóku forystuna s,trax í
Körfuknattleikur:
SEX ÁRA SKURGANCA
jr • •
■ Síðasta leikkvöld íslandsmótsins í körfuknattleik
fór fram að Hálogalandi að kvöldi sumardagsins fyrsta.
Þá voru leiknir 2 leikir í 1. déild, annars vegar leikur
KFR og ÍS um fallsætið, og hinsvegar leikur ÍR og KR
um efsta sætið í mótinu.
Fyrsti leikur kvöldsins var i
I. flokki, þar áttust við fS og
KR. KR-ingar höfðu unnið alla
sína leiki í mótinu til þessa
og var almennt spáð sigri, en
það fór á annan veg, stúdent-
ar gengu með sigur af hólmi
39:37. Eftir þessi úrslit eru 3
lið iöfn og efst í I. flokki og
verður að leika aukaleiki um
titilinn. Þessi félög eru KR.
Ármann og ÍS.
KFR hafði algjöra yfirburði
( leiknum um fallsætið gegn
ÍS en úrslii leiksins urðu 72:33:
Fellur bví TS niður í II. deild,
en fKF leikur í 1. deild næsta
ár.
Leiks KR og fR í I. deild var
beðið með mikilli eftirvænt-
ingu af hinum fiölmörgu á-
horfendum, sem sóttu Háloga-
land þetta kvöld. Hér var samt
ekki um hreinan úrslitaleik að
ræ'a. bví að sigraði KR þvrfti
aukaleikur að fara fram um
IsJandsmeistaratitilinn.
Leikurinn var miög iafn og
spennandi begar frá upphafi
og skildi síaidnast meira en
1—2 stig liðln að út fyrri hálf-
ieikinn. Áhorfendur fylgdust
spenntir með leiknum, og voru
fagnaðarlætin gífurleg í hvert
sinn, sem karfa var skoruð,
einkum virtust KR-ingar eiga
marga áhangendur í salnum.
f síðari hálfleik hafði KR for-
ustu, 27:26.
Síðari hálfleikur var ekki
síður spennandi, en sá fyrri,
bótt aldrei tækist ÍR-ingum að
jafna metin. En er 4 mín.
voru til leiksloka var staðan
49:43 KR í hag, og þá var
Þorsteini, bezta manni ÍR.
vikið af leikvelli eftir að hafa
fengið á sig 5. villuna. Eftir
bað var lið ÍR sem höfuðlaus
her og ekki til glóra í leik
beirra. og veittist KR-ingum
aoðfelt að tryggja yfirburða-
s;sur 61:48.
Lið KR hefur aldrei leikið
betur en þetta kvöld. Körfum-
ar. sem liðið skoraði voru oft
mjög skemmtilega undirbúnar.
með leikandi og hugkvæmu
spili. Liðið lék maður gegn
manni með mjög góðum ár-
angri, eins og úrslitin sýna.
en 48 stig er eitthvað það
minnsta, sem fR-liðið hefur
skorað um iangan tíma. Beztu
menn liðsins voru Einar Boila-
son og Kolbeinn Pálsson, en
Iiðið í heild átti mjög góðan
leik eins og fyrr segir.
Lið ÍR þarf ekki að skamm-
ast sín fyrir að tapa þessum
leik, því það var mál manna,
að betra liðið hafi sigrað í
þessum leik og úrslitin sann-
gjörn. Áberandi var að lið IR
þolir illa að vera undir, og |
einkenndist leikur þeirra mjög |
oft af taugaóstyrk, einkum
mátti sjá þetta eftir að Þor-
steinn, fyrirliði þeirra og skipu- !
leggjari liðsins varð að víkja j
af velli. Gerðu leikmenn liðsins :
þá hverja vitieysuna af ann-
arri, sem KR-ingar notfærðu
sér óspart. Beztu menn ÍR í
leiknum voru Þorsteinn og
Hólmsteinn Sigurðsson, en
Birgir Jakobsson átti einnig
sæmilegan leik. Dómarar voru
Guðjón Magnússon og Ölafur
Thorlacius.
Eftir þennan leik urðu KR
og fR efst og jöfn í mótin”
rpeð 14 stig hvort af 16 mögu
legum og verða því að leik'
aukaleik um titilinn. Leikda"
ur hefur ekki verið endanle"
ákveðinn, en verður að ö11”’
iíkindum í næstu viku. á
mann hreppti 3. sætið á m'
inu, hlaut 8 stig, KFR var
4. s.æti með 4 stig og ÍS r-
iestina með ekkert stig, en f5”-
seðil í II. deild. — G.Ó.
byrjun hlaupsins KR-ingarnir
Kristleifur Guðbjörnsson og
Agnar Leví, og héldu henni til
loka, en Halldór, bróðir Krist-
leifs, fylgdi þeim fast eftir.^
Baráttan um fjórða sætið varð
allhörð og ekki sýnt hvernig
hún færi fyrr en á lokasprett-
inum í Lækjargötunni.
37 voru skráðir til þátttöku
í víðavangshlaupinu og mættu
33 til leiks. Luku þeir allir
hlaupinu, en sex fyrstu menn
að marki voru þessir:
1. Kristieifur Guðbjörnsson KR
8.38,7 mín.
2. Agnar Leví KR 8.41,7 mín.
3. Halldór Guðbjörnson KR
9.01,2 mín.
4. Þórður Guðmundsson,
Breiðabliki, 9.13,2.
5. Þórarinn Arnórsson, Í.R.
9.14.2 mín.
6. Hafsteinn Sveinsson Skarp-
héðni 9.14,4 mín.
Vandað tii verðlauna
Sem fyrr var sagt var Víða-
vangshlaup ÍR nú háð í 50.
skipti. Af því tilefni var vand-
að sérstaklega til verðlauna.
Allir þátttakendurnir hlutu
minnispeninga og sigurvegar-
inn verðlaunabikar til eignar.
KR-ingarnir þrír sem komu fyrstir að marki í Víðavangshlaupi
IR: Halldór Guðbjörnsson, Agnar Leví og Kristleifur Guðbjörns-
son. Við þá ræðir Þórarinn Magnússon, mikill áhugamaður um
frjálsar íþróttir og ötuil starfsmaður á mótum. — (Ljósm. Bj. Bj.)
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar:
25 stúlkur í hópi
um 70 þátttukendu
□ Um 70 tóku þátt í Víðavangshlaupi Háfrí-
arfjarðar á sumardaginn fyrsta, þar af 25 stúlkur.
Hlaupið hófst kl. 4 síðdegis
við barnaskólann, en á undan
léku lúðrasveitir nokkur lög.
Leikstjóri vár Eiríkur Pálsson.
Keppt var í fjórum flokkum,
þar á meðal kvennaflokki.
Vegalengdin sem fullorðnir
hlupu, var 3 km„ en yngri
flokkarnir og stúlkurnar hlupu
2 km.
Helztu úrslit urðu þessi:
f flokki 17 ára og eldri
sigraði Trausti Sveinbjömsson
í annað skipti.
f flokki pilta 14—16 ára bar
Kristinn H. Benediktsson sigur
úr býtum í þriðja skipti.
I flokki pilta 13 ára og
yngri sigraði Viðar Halldórs-
son.
Hlutskörpust í hópi stúlkn-
anna varð Oddný Steinunn
Sigurðardóttir.
NÝ BÓK
HVERNIG VERÐA MENN
GÓÐIR K0MMÚNISTAR?
eftir Líú Sjaó-Sí, forseta Kínverska alþýðu-
ýðveldisins. — Ræða flutt í Jénan 1939.
1 /ðingin er gerð af Brynjólfi Bjamasyni éft-
enskri útgáfu, er út kom í Peking 1964.
>kin sýnir þann anda sem leiddi til sigurs
nversku byltingarinnar, og er því fróðlegt
rrir menn að kynna sér hana.
Heimskringla