Þjóðviljinn - 08.08.1965, Qupperneq 2
2 SlÐA — ÞJÓBVIUINN — Sunnudagur 8. ágóst 1965
'""SON
III
SÆNSKAR
NYLON-
SKYRTUR
fyrir
karlmenn
og
drengi.
Hvítar
og
mislitar.
Bygginga/ánasjóður
Kópavogskaupstaðar
Hér með er auglýst eftir umsóknum um lán úr
Byggingalánasjóði Kópavogskaupstaðar. — Um-
sóknareyðublöð ásamt reglugerð s'jóðsins fást á
skrifstofu bæjarins. Umsóknarfrestur er til 25. þ.m.
8- ágúst 1965>
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Skop-
blaðamaður
Fyrir nokkrum áratugum
naut bandarískur gamanleik-
ari, Buster Keaton að nafni,
mikilla vinsælda í kvikmynd-
um. Hann lék í fráleitum
skopleikjum með fáráanlegri
atburðarás, en sjálfum stökk
honum aldrei bros; þegar á-
horfendur hlógu hvað mest
var eins og allur harmur
mannkynsins skini úr augum
hans. Þorsteinn Thorarensen,
fréttaritstjóri Vísis, minnir
mig alltaf á Buster Keaton.
Aldrei skal það bregðast að
hann vekur manni hlátur og
hann mestan þegar fréttarit-
stjórinn er hvað alvarlegast-
ur. Sá er þó munurinn á
Buster Keaton og Þorsteini
Thorarensen, að hinn fyrr-
nefndi hagnýtti sér vitandi
vits hið sálfræðilega sam-
hengi milli hláturs og gráts,
en Þorsteinn ætlar sér sann-
arlega að vekja allt önnur
viðbrögð en skopskyn les-
enda sinna; kímnigáfa hans
er ómeðvituð með öllu. Og
einatt finnst manni það óvið-
felldið eftir á þegar Þorsteinn
hefur komið manni til að
hlæja að tilefnum sem ættu
að vekja allt önnur áhrif.
Tökum til að mynda nýj-
ustu föstudagsgrein Þorsteins;
hún hefst á þessa leið: „John-
son forseti tók mikilvægar á-
kvarðanir varðandi Vietnam
styrjöldina í síðustu viku. Á-
kvörðun hans mætti lýsa með
kunnum vísuorðum Hannes-
ar Hafstein; — Fram skal
stauta blautar brautir, buga
þraut, unz fjörið deyr. Braut-
ir þandarískra hermanna í
Vietnam eru sannarlega vot-
Eina sérverzlunin á íslandi með sportveiðarfæri
varð 25 ára um áramótin 1964—1965.
fi
Höfum ávallt lagt aðaláherzlu á að fylgjast með öllum nýjungum
og útvega og flytja inn það sem bezt reynist á hverjum tíma af
sportveiðarfærum um allan heim.
Eigandi verzlunarinnar er eini íslendinigurinn sem lært hefur er-
lendis og hefur kennslupróf í kasttækni og allri meðferð sportveið-
arfæra og kennt hér um 18 ára skeið hundruðum veiðimanna. Vöru-
þekking seljanda er bezta tryggingin fyrir góðum kaupum.
Höfum einungis umboð fyrir heimsþekkt firmu svo sem;
A/B URFABRIKEN, Svíþjóð, ABU-Record. — Leiðandi firma um
allan heim í Kast- og Spinnhjólum, Glasfiberstöngum og
Gerfibeitum.
HARDY BROTHERS, Englandi. — Frægir fyrir sínar Splitcane-
stengur og ýms önnur luxus Sportveiðarfæri.
PEZON & MICHEL, Frakklandi. Framleiða hið þekkta Luxor
Gimi og Línur, Parabolic Stengur o.fl.
SCIENTIFIC ANGLERS INC. U.S.A. — Þeir urðu heimsþekktir
fyrir Flugulínur sínar WET og AIR CEL sem er algjör bylting í
gérð á Flugulínum.
MY BUDDV, U.S.A. Þekkt um allan (veiðimanna-) heim fyrir
allskonar Veiðafærakassa og Beitubox. Voru þeir fyrstu sem fram-
leiddu marghæða box á hjörum.
SUNSET, U.S.A. — Framleiðendur á ofnum Kastlínum, sem bera
af öllum öðrum hvað snertir þol og endingu.
Að sjálfsögðu er svo að allar smávörur til veiðiskapar eru einn-
ig í mjög fjölbreyttu úrvali hjá okkur.
ir um þessar mundir, þegar
monsúnstormarnir fara þar
hamförum og lemja regn-
skýjaþykknum yfir frum-
skógaklædd fjöll, svo allt
landið breytist í fljótandi
víti. Er mesta synd að þess-
ir hermenn, sem nú verða að
þola miklar mannraunir, skuli
ekki hafa tækifæri til að læra
karlmennskulegan brag hins
íslenzka skálds til að stæla
og herða upp hugann.“
Þannig fela ljóðlínur Hann-
esar Hafsteins jafnt í sér
stefnu Johnsons forseta sem
þann leyndardóm sem dugað
gæti þandaríska innrásar-
hernum til aukinna afreka.
Er þess að vænta að banda-
ríska sendiráðið veiti þessum
heilræðum athygli og láti
sem fyrst gera ráðstafanir
til þess að Þorsteinn verði
sendur gagngert til Vietnam
og látinn kenna hermönnun-
um kveðskapinn, stæla þann-
ig og herða huga þeirra og
firra þá þeirri „mestu synd“
að fáfræði um íslenzkan karl-
mennskukveðskap verði þeim
að fjörtjóni. Myndi Þorsteinn
eflaust ekki telja eftir sér
að taka þátt í öðrum raun-
um innrásarhersins, en þeim
lýsir hann m.a. á þennan
hátt; „Tveir mánuðir eru
liðnir af regntímanum, þriðji
mánuðurinn, ágúst, er eftir.
Þetta er sem sagt engin stór
byrði fyrir Bandaríkin, en
hún sígur í. Byrðin líkist
poka fullum af þvottasvampi
og í úrhellisrigningunni tek-
ur hann í sig vatnið og þyng-
ist til muna.“
<*>
Árás
á Jóhann
Morgunblaðið heldur nú á-
fram dag eftir dag að vekja
athygli á fjárþörfum Þjóð-
viljans og er það í sjálfu sér
þakkarvert. Málflutningur
blaðsins er hins vegar næsta
kynlegur; í gær kemst það
m.a. svo að orði: „Til kaupa
á þeirri prentvél, sem nú
þrykkir Þjóðviljann, fengú
kommúnistar lán til 99 ára í
Sovétríkjunum. Vafalaust eru
raunverulegir vextir og af-
borganir af þessu láni mjög
háir og ætlazt til, að endur-
greitt verði f margvíslegri
mynt“. Þetta eru næsta
fróðlegar upplýsingar. Þjóð-
viljinn fékk lán til prent-
vélakaupa sinna í sænskum
banka fyrir milligöngu Út-
vegsbanka íslands, en hann
gerðist ábyrgur fyrir láninu;
naut Þjóðviljinn í því efni
mjög góðrar aðstoðar Jó-
hanns Hafsteins þáverandi
bankastjóra og núverandi
dómsmálaráðherra. Er sann-
arlega leitt til þess að vita
ef Jóhann hefur svo sjálfur
orðið að taka lán í Sovét-
ríkjunum til þess að tryggja
þessi fjárhagsviðskipti, ekki
sízt ef hann verður að standa
skil á því „í margvíslegri
mynt“ lengur en ævin endist.
Annars hlýtur Jóhann Haf-
stein að líta þessi skrif Morg-
unblaðsins alvarlegum aug-
um af fleiri tilefnufn. Sjálf-
ur dómsmálaráðherrann get-
ur ekki setið aðgerðalaus þeg.
ar málgagn hans heldur því
fram að Þjóðviljinn „njóti nú
víðtæks fjárstuðnings“ frá
Rússum. Að sjálfsögðu ber
ráðherranum á svipstundu að
hefja réttarrannsókn þegar
þvílíkur áburður er birtur;
að öðrum kosti hljóta sann-
trúaðir lesendur Morgun-
blaðsins að líta svo á að
sjálfur dómsmálaráðherrann
sé hjálparhella og verndari
bins alþjóðlega kommúnisma
! bessum viðskiptum.—
Austri.
FULLKOMIN >
.VARAHLUTAÞJONUSTA
* BILLINN
Rent an Icecar
Sími 1 8 8 3 3
^ Danmörk - Búlgaría
^ 14.8.-2.9. 20 daga ferð
&TSSS/. Fararstjóri: Gestur Þorgrfmsson. „
14. Sgúst: Flogið til Kaupmannahafnar og dyalist
þar f 3 daga.
17. ágúst: Flogið til Sofia, en þaðan farið til
Sólarstrandarinnar við Svartahaf. Nessebur og
dvalist þar f hálfan mánuð. Farið þaðan aftur til
Sofia og flogið 30. ágúst til Kaupmannahafnar
og dvalist þar í 3 daga.
2. september: Flogið til Keflavíkur
Búlgaría er eitt þeirra landa sem ferðamanna-
straumurinn á síðastliðum árum hefur aúkist til
í ríku mæli enda eru baðstrendur þar síst lalcari
ea f Rúmenlu og náttúrufegurð mikil. Búlgarar
hafa byggt fjöldann allan af nýtízku hótelúm-
undanfarin ár og verðlag er þar mjög gott. Búlg
arar skipuleggja ferðir til nágrannalandanna eins
og Rúmenar t.d. til Istanbul með skipi og er verð
þar mjög gott. Sömuleiðis er um fjölda ferða að
ræða ínnanlands á mjög hagkvæmu verði.
Enginn vafi er á að íslendingar eiga eftir. að auka
komur sfnar til Búlgaríu á næstu árum enda eru
viðskipti landanna í örum vexti.
Hafið samband við okkur sem fyrst.
LANDSBN
1
I
¥
10