Þjóðviljinn - 08.08.1965, Side 8

Þjóðviljinn - 08.08.1965, Side 8
8 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 8. ágúst 1965 • Skiljið ekki Dóra eftir í skurðinum Ég las í Þjóðviljanum á laug- ardaginn að þú baðst lesendur um að senda þér línu og er ég hlustaði á þáttinn „Á sumar- kvöldi“ gat ég ekki orða bund- izt. þar sem mér finnst þessi þáttur sá bezti sem útvarpíð hefur flutt undanfarin ár. Viðræðurnar við knattspyrnu- frömuðina voru mjög fróðlegar og skemmtilegar. sérstaklega fannst mér gaman að heyra Ríkharð ræða málin, en í he'ld kom fram að vinnutími væri allt of langur, þannig að menn yrðu að vinna allt að tvöföld- um vinnutíma ef þeir ættu að hafa ofan í sig. Væri ekki at- hugandi fyrir ríkisstjórnina að hlusta á þessar umræður áðv.r en hún neitar launþegum um kjarabætur næst. Ég held að allir þeir menn er fram komu hafi verið annaðhvort Sjálf- stæðismenn eða kratar svo rík- isstjómin ætti að geta tekið mark á þeim. Samtalið við spá- konuna var mjög smellið, og stjórnandinn stillti sig um að hæðast að henni, og það gerði allt viðtalið svo eðlilegt og hlý- legt. að ég held að Tage láti samtalsformið mjög vel, hann leyfir fólkinu að tala óhindrað og er svo hlýr og skilningsgóð- ur að samtölin verða öll svo óþvinguð. Leikþættimir eru kapítuli fyrir sig. Þeir voru allir mjög vel samdir. léttir og leikandi. sérstaklega fannst mér að þátturinn ,.Ást og '•óm- antík“ væri vel skrifaður og eins viðtaiið við fegurðar- dísina frá Ólafsvík, sem var bæði smellið og meinhæðið. Getur ekki útvarpið fengið höf- mmamammammmmmm und þessara þátta til að semja fleiri slíka, jafnvel lengri þæth, eða hefur Tage einkarétt á þeim? Mér finnst t.d. að Fyrsta bamið“ sem var flutt í fymi þáttum Tage í vetur. ætti að flytja aftur t.d. eitthvert laug- ardagskvöld f heilu lagi. Við söknum öll Dóra og Lilju og okkur finnst ófært að skilja aumingja Dóra eftir niðri í skurði í allt sumar og við skor um því á ríkisútvarpið að bjarga honum hið allra fyrsta. Ég vona að þú ýtir eftir beim þama niðri á útvarpi Beztu kveðjur. Sumargestur. # Bjartsýni og svartsýni • Það er það góða við þelfa slæma sumar, að það getur orðið síðar meir afsökun fyrir allri eymd, svo sem sjúkdóm- um, ástarsorgum, gjaldþrotum, og öllu menningarástandinu. Það illa við þetta slæma sum- ar að það mun vera notuð sem léleg afsökun síðar meir fyrir allri eymd svo sem o.s.frv. ^ < r — Þetta er síðasta aðvörunin — ef þú hættir ekki að elta konuna mína á röndum, þá læt ég þig hafa hana. (Salon Gahlin). • Dagur og vegur • Stefán Jónsson kemur „sitt úr hverri áttinni" á sunnudags- kvöld og sjálfsagt mun það ferðalag ganga ágætlega. Þá eru við einnig minntir á til- veru Donkósakkakórsins: það væri gaman að vita hvort nokkrir Rússar eru enn á lífi í þeim ágæta söngflokki. Á mánudag talar Þorsteinn Ó. Thorarensen um daginn og veginn. Þorsteinn er merkileg- ur maður og sjaldgæfur: í hon- um eigum við Islendingar á- stríðufyllsta vin Bandaríkjanna sem uppi er meðal þeirra manna sem leyft er að krota eitthvað í dagblöð heimsins. Vonandúmun hann í ræðu sinni útlista það fyrir Bandaríkia- mönnum hverjum þeir megi helzt treysta í Vietnammálum og vonamdi verður hann ekki fyrir eins miklum vonbrigðum með áiangur skrifa sinna og í fyrra þegar dýrðlingurinn de Gaulle tók upp á þeim fjanda að viðurkeima stjóm Maós. ★ 8.30 Konunglega fílharmóníu- sveitin í Lundúnum leikur þætti úr þekktum balletttón- verkum. 9.10 Morguntónleikar. a) Messa í Es-dúr eftir Schubert. Ein- söngvararnir Rathauscher. Planyavsky, Equilus, Hof- statter og Berry syngja með kammerkór Akademíunnar og sinfóníuhljómsveitinni í Vín- arborg; R. Moralt stj. b) Sin- fónía Antarcica. Suðurskauts- hljómkviðan, eftir Vaugnan Williams. Hallé-hljómsveitin og kórinn flytja ásamt M. Ritchie sópransöngkona; Sir Barbirolli stj. 11.00 Messa í Laugarneskirkju. (Séra Grímur Grímsson). 14.00 Miðdegistónleikar; Frá sænska útvarpinu. a) Gæsa- • Búskapur í Reykjavík • Ekki hefur búskapur mcð öllu lagzt niður í henni Reykjavík. I Laugardalnum standa enn nokkrir bæir, þar sem stundaður «r búskapur. Þangað Ieggja feður með börn sin oft leið á sunnu- dagsmorgnum til þess að sýna þeim hvernig kýr, hestar og hundar líta út. Þessa mynd tókum við inn í Laugardal um dag- inn. Því miður vitum við ekki hverjum þessar miklu mjólkur- kýr tilheyra. (Ljósm Þjóðv sv.g.) mamma, ballettmúsik eftir Ravel. b) Tónlist fyrír strengjasveit eftir Ingvar Lindholm. c) Sinfónía nr. 6 op. 74 eftir Tjaikovský. Hljómsveit sænska útvarpsins leikur. Stjórnandi: Sergiu Ge- libidache. 15.30 Kaffitíminn. 16.00 Troels Bentsen kynnir þjóðlög frá ýmsum löndum. 16.30 Sunnudagslögin. 17.30 Barnatími: Anna Snorra- dóttir stjórnar. 18.30 Frægir söngvarar syngja: Gérard Souzay. 20.00 Fantasía fyrir strengja- sveit eftir Hallgrím Helgason. Hljómsveit Rikisútvarpsins leikur; Wodiczko stj. 20.10 Árnar okkar. Tómas Tryggvason jarðfræðingur flytur erindi um Skjálfanda- fljót. 20.35 Don-kósakkakórinn syng- ur þjóðlög frá ættlandi sínu. Söngstjóri: Sergej Jaroff. 20.55 Sitt úr hverri áttinni. Dagskrárliðnum stjórnar Stef- án Jónsson 22.10 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Ctvarpið á mánudag: 13.00 Við vinnuna. 15.00 Miðdegisútvarp; Sinfón- íuhljómsveit Islands leikur lagasyrpu eftir Bjama Þor- steinsson í hljómsveitarbún- ingi Jóns Þórarinssonar; Pál! Papmichler Pálsson stjórnar. F. Andersson, K. Schultz o.fl. danskir söngvarar syngia lög eftir Weyse. Sinfóniu- hljómsveitin í Minneapoiis leikúr sjö rúmenska þjóð- dansa; Dorati stj. Victoria de los Angeles syngur negralög. Rikhter leikur Skógarmynd’r, op. 82 eftir Schumann. Sven Bertil Taube syngur. 16.30 Síðdegisútvarp. Meðal tónsmiða: Joh. Strauss. F. Lehár. C. Porter, N. Hefti, A Khatsjatúrian og Duke E'l- ington. Meðal flytjenda: Skemmtihljómsveit danska útvarpsins, Borgarhl jómsvei t- in í Árósum, Keisaralega skemmtihljómsveitin f Aust- urríki, Hollywood Bowl hljómsveitin, Harry Bela- fonte, systir Sourire, arm- enskir hljómlistarmenn, tríó Oscars Petersons. Duke' EH- ington, Woody Herman. 18.30 Þjóðlög frá ýmsum lönd- um. 20.00 Um daginn og veginn. Þorsteinn Ó. Thórarensen fréttastjóri talar. 20.20 Sex fslenzk þjóðlög útsett fyrir fiðlu og píanó af Heiga Pálssyni. Bjöm Ólafsson og Árni Kristjánsson leika. 20.30 Pósthólf 120. Lárus HaTl- dórsson brýtur upp bréf frá hlustendum. 20:50 Landsleikur í fenaft- spymu: Island-lrland. Sig- urður Sigurðsson lýsir sið- ari hálfleik frá íþróttavellin- um í Laugardal. 21.45 Elisabeth Schumann syngur nokkur lög eftir Hugo Wolf^ 22.10 Útvarpssagan; ,.fvalú“. 22.40 Kammertónleikar: Frá Sibeliusar-hátíðinni f Hels- inki í vor. Klarínettu-kvín‘> ett nr. 1 op. 2 eftir Bemhard Henrik Crusell. P. Lampin- en, J Ylönen, A. Pilvi og E. Valsta leika. ' 23.05 Lesin síldveiðiskýrsla Fiskifélags íslands. 23.25 Dagskrárlok. á kvöldin á matstofuna þar sém málarar fengu sér kvöld- skatt; þá sat hann á stigaþrepi stundum las hann úr Dan e. stundum talaði hann um strið- ið, um ragnarök menningar- innar, um skáldskap, um allt néma myndlist. Um tíma hafði hann miklar mætur á spádóm- um fransks sextánualdarlæk-i- is, Nostradamusar. Hann full- vissaði mig um það. að Nos+ra- damus hefði séð nákvæmlega fyrir frönsku byltinguna, sigra og fall Napóleons, endalok Páfaríkis, sameiningu Italíu; tilfærði spádóma, sem enn höfðu ekki rætzt: ,,Hér er smá- atriói — lýðveldi á Italíu . En hér koma stærri hlutir — menn verða sendir í útlegð út á eyjar, til valda kemurgrimm- ur harðstjóri, allir verða fang- elsaðir, sem ekki læra að þegja? og farið verður að útrýma fólki . . . “ Hann dró upp úr vasa sínum þvælda bók og hrópaði: „Nostradamus sá her- flugvélar fyrir. Bráðum verða allir sem dirfast að brosa eða gráta, þegar ekki á við, sendir til heimskautanna — sumir á Norðurskautið, aðrir á Suður- skautið.“ Þegar fyrstu fregnirnar hár- ust af byltingunni í Rúss landi kom Modi hlaupandi tH mín, faðmaði mig og æpti eitt- hvað fullur hrifningar. (Stund- um gat ég ekki skilið, hvað hánn var að segja). Ung stúlka, Jeanne að nafni, tók að venja komur sínar á Rotondu; hún líktist skóla- stúlku, var bjarteygð og Ijós- hærð. Sagt var, að hún væri að læra að mála Skömmu áður en ég fór til Rússlands sá ég Je- anne og Modigliani á Boule- vard Vaugirard. Þau leiddust brosandi. Ég hugsaði: loksins hefur Modi fundið gæfu sína. Ég kom aftur til Parísar í maí 1921. Menn sögðu mér f snatri helztu fréttir. „Hvað, veiztu ekki, að Modigliani er dáinn?“ Ég hafði engar spurnir haft af vinum mfnum frá Rot- ondu. Modi hóstaði stöðugt.- honum var síkalt, lungun fóru hríðversnandi, líkaminn var þrotinn að kröftum. Hann dð f sjúkrahúsi í ársbyrjun 1926 Jeanne var ekki í kirkjugarð- inum. Þegar vinir hans komu f Rotondu eftir jarðarförina fréttu þeir. að fyrir stundu hefði hún hent sér út um glugga. Eftir lifði lítil dóttir Modi — líka Jeanne. Það er allt og sumt. Það var skotið saman til að jarða Modi- gliani. Ári síðar var opnuð sýning á verkum hans í París. Um hann voru skrifaðar bæk- ur, menn græddu fé á myndum hans. Þetta er annars svo a’- geng saga, að ekki tekur þvf að fjölyrða um hana. f ýmsum söfnum heimsins — New York, í Stokkhólmi, í Par- ís, í London hef ég átt endur- fundi við Modigliani. Hann málaði stundum naktar konur, en oftast andlitsmyndir. Hann skapaði margt. fólk; sorg bess- ofsótt blíða þess og umkomu- leysi verða safngesti minnis- st.æð. Má vera að einhver postu'i raunsæisstefnunnar segi, að Modigliani hafi vanvirt náttúr- una, að konurnar á myndum hans hafi alltof langa hálsa og hendur. Rétt eins og mynd sé líffræðikort! Eins og hugsan;r, tilfinningar, ástríður raski ekki hlutföllum? Modigliani var ekki kaldur áhorfandi, hann horfði ekki á fólk úr fjarlægð, hann lifði með því. Þetta eru mynd- ir af fólki, sem elskaði og þjáðist. og dagsetningamar eru ekki aðeins vörður á vegi lista- mannsins, þær eru vörður ald- arinnar: 1910—1920. Það er hlægilegt að halda því fram, að Modigiani hafi ekki vitað hve margir hryggjarliðir eru í háls- inum — það lærði hann mörg ár í listaskólum Livomo, Flórens, Feneyja. Hann vissi líka annað: hve mörg ár em f einu ári sem 1914. Og ef svo virtist sem aldagamalt mat á mannlegum verðmætum væri allt annað orðið, hvernig gat þá listamaðurinn annað en séð að andlit fyrirsætunnar hafði breytzt? Myndir Modigliani segja næstu kynslóðum frá mörgu. En ég horfi á þær, og fvrir mér er gamall æskuvinur. Ástin ti! mannanna var rík i honum, og hann hafði þungar áhyggjur þeirra vegna. Menn skriía: • hann drakk. það greip hann æði, hann dó“. Það er ekki þetta sem máli skint.ir. Jafn- vel örlög hans skipta ekki máli, þótt lærdómsrík séu: ef einhver vill skilja harmleik Modigliani, þá skyldi sá mað- ur ekki minnast hasjísiins held- ur eiturgassins, þá skyldi sá maður hugsa um hina ráðvúltu og stjörfu Evrópu. um örlög hverrar fyrirmyndar Modigúan- is, sem járnhringurinn var bá þegar farinn að þrengja að. TUTTTIGASTI og fyrsti KAFLI. Sumarið 1914 byrjaði vel fvr- ir mér. Ég skrifaði nokkur kvæði sem mér fannst, sjálf- stæðari en fyrri ljóð mín. Sumarið var heitt og sólrfki og gróður f miklum blóma. Ég fékk óvænt peninga frá tveim ritstjórum og ákvað að fara til Hollands — ekki gat ég veríð bekktur fyrir að kaupa mý vetrarfrakka. List Rembrandts freistaði mín og svo lýsingar á sérkennilegu lífi þessa lands og vingjarnlegum hollenzkum stúlkum með hvftan höfuðbún- að sem hengu uppi á veggjum ferðaskrifstofunnar. Mér fannst Holland kyrrlátt land og fallegt. Húfur stúlkn- anna voru í raun og veru hvft- ar; vindmylluvængimir snerust og bændur reyktu langar píp- ur, velhirtar kýr jórtruðu ang- urværar og til morgunverðar fékk ég alltaf ost. Leiðarvísir- inn frá París Iaug ekki. Allsstaðar voru söfn, og á morgnana gleypti ég í mig sem mest af brauði og osti til að sleppa hádegisverði og fór á safn. Venjulega kalla menn hollenzka myndlist fulkomlega raunsæja, segja að hún sé inn- blásin af daglegu Iffi. Efnisval listamannanna virðist styðja þá skoðun. En á ítalfu er safnið og gatan, sem það stendur við, ekki aðskilin, þar rennur listin saman við líf umhverfisins 1 Hollandi furðaði mig á bvf djúpi sem staðfest var milli veruleikans og listar fortfðar- innar. Bændumir voru ágæt- lega atorkusamir, á virkum dögum lásu allir kauphallar- tíðindi en bænabækur á sunnu- dögum, á baðströndinni við Haag var fúllt af þriflegum dömum. Innan um allt bet+a stóðu safnhús og bar hengu myndir Rembrandts eins og bær hengu í Louvre og Her- emitage Ég spurði sjálfan mig hvernig bæri að skýra þett.a. Svo virð'st sem hollenzkir málarar hafi fyrir þrem öldum lifað f méiri innrj einveru en ítalskir; þeir uppfylltu pantanir. máluðu senur sem allir skildu- en anda- gift sína sóttu beir f vald sitt á myndlist.inni. Mér fannst þeir formalistar. svo notað sé algengt nútfmaorð. Ég dáðist að þeim. en ég hugsaði um annað þegar ég gekk út úr safninu. < ( t i l I I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.