Þjóðviljinn - 28.10.1965, Qupperneq 6
g SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 28. október 1965
Er tíl lýðræðisleið
í Rómönsku Ameríku
* Jan Stage er fréttamaður danska blaðs-
ins „Land og Folk“ á Kúbu og gjörkunnug-
ur málefnum Rómönsku Ameríku. Hann
ræðir í þessari grein baráttu lýðræðisafl-
anna á meginlandinu fyrir frelsi og sjálf-
stæði og ræðir það, hverjar myndir sú bar-
átta taki á sig.
EFTIR JAN STACE
A lltaf öðru hverju rekur
maður sig á það, að vanda-
mál Rómönsku Ameríku eru
tekin full fræðilegum tökum,
þegar vissir vesturevrópsk’r
„sérfræðingar" eiga í hlut.
Vandamálunum er þá raðað
upp eftir formúlu, sem samin
er í Evrópu og hefur verið
notuð í Evrópu, og mun geym-
ast í henni Evrópu án þess
að hafa haft teljandi áhrif á
gang heimsmálanna.
Tekin eru „fræðflegum“
tökum vandamál eins og arð-
rán, sultur, eymd, hemaðar-
uppreisnir, stjómarskrárbrot
og kúgun. Talað er um van-
þróuð lönd og þessi vanþróun
er kennd þeirri leiðinlegu
„tilviljun" að saman fari
„þjóðfélagsleg og hagfræði-
leg vandamál". Þegar þeirri
röksemdafærslunni lýkur, er
svo talað um valdbeitingu og
það á meginlandi, sem hefur
undanfarin tíu ár verið leik-
völlur tíu blóðugra afturhalds-
uppreisna, 16 engu síður blóð-
ugra alþýðuuppreisna og 35
allsherjarverkfalla.
Er svo emhver lýðræðisleið
til fyrir Rómönsku Ameríku,
spyrja menn.
Það er erfitt að svara þess-
ari spurningu afdráttarlaust
með já eða nei. í fyrsta lagi
verða menn að komast að sam-
komulagi um það, hvað átt er
við með „lýðræði"
Sé með því átt við stjómar-
skrá, „frjálsar kosningar“ og
beitingu stjómmálalegra >g
þjóðfélagslegra réttinda, — þá
er svarið nánast nei. Það er
erfitt að hugsa sér að „bláir“
eða „rauðir“ iðnaðarjöfrar
Argentínu, hershöfðingjar Bra-
silíu eða oh'uspekúlantar Ven-
ezúela haldi þá leiðina. Það
eru ekki miklar líkur til þess.
að Stroesner i Paraguay eða
Barrientos í Bólivíu taki upp
á því að rýma sviðið af frjáls-
um vilja. Svo ekki sé nú
minnst á einræðisherrana i
Mið-Ameríku, svo sem í Guat-
emala, E1 Salvador og Hondu-
ras.
I sjö af níu ríkjum Suður-
Ameríku og fimm af sex ríkj-
um Mið-Ameríku er ekki í
augnablikinu fær vegur frá
hálfgerðu eða algjöru einræði
til lýðræðis.
En það hefur hlaðizt upp
nægilegt sprengiefni ti'l bess
að þeyta hverju þessara landa
sem er á leið inn í lýðræðis-
lega þróun.
Og þau öfl, sem fær eru
um slíkt. eru hvorki leyndar-
dómsfull né skuggaleg. Það
eru lýðræðisöflin, það eru al-
þýðufylkingamar, skæruliða-
fylkingamar og verkalýðsfé-
lögin. Hér er ekki talað um
valdbeitingu eða ekki vald-
beitingu. hér er um það rætt,
hvað gera þurfi hverju sinoi
og við ákveðnar aðstæður.
Spumingin er ekki hand-
sprengjur eða þing heldur
handsprengjur og þing, Vopn-
uð, en einnig þolinmóð stjóm-
málabarátta sé bví að skipta.
F
sinn hátt, til lýðræðis. Kúba
kemur að sjálfsögðu í fremstu
röð. Þar hefur verið lagður
grundvöllurinn að lýðræði með
ýmsum aðgerðum: Landbúnað-
arumbótum, þjóðfélagsumbót-
um, baráttu til að útrýma ó-
læsi, þjóðnýtingu og svo sjálf-
stæðri og óháðri utanríkis-
stefnu.
En á Kúbu er að finna pól-
itíska fanga, einsflokka kerfi
og útlagasamtök, munu menn
segja. Einmitt þessi atriði sýna
það, hve víðtæk þjóðfélags-
bylting hefur átt sér stað á
Kúbu, Einn póhtískur fangi er
einum of mikið, einsflokks
kerfi er ekki skilyrðislaust til
bóta, útlagar eru ekki allir
vanaglæpamenn eða heroín-
smyglarar. Um það eru állir
sé af þeirri ástæðu upp til
handa og fóta og sagt eitt-
hvað á þá leið: „Já, en í hin-
um frjálsa heimi. . .“
Slíkur málflutningur er lýð-
ræðinu lítil vöm.
í Mexíkó í norðri og Chile
í suðri eru tvær útvarðstöðvar
lýðræðisins í Rómönsku Am-
eríku, og er þó ýmistegt, sem
betur mætti fara. í báðum
ríkjunum er margflokkakerfi og
kosningar, sem ætti að vera
nóg í augum „hins frjálsa
heims“. En í þessum löndum
koma fyrir grimmilegustu
hefndaraðgerðir, hætt er við
landbúnaðarumbætur hálfgerð-
ar, þjóðnýting gerð meö hálf-
um huga og þar við bætist —
sérstaklega hvað Mexíkó við-
kemur — gífurleg spilling rík-
Indíánadrengur úr fjöllunum í Ecuador. — Langflestir Indíánar
Rómönsku Ameríku kunna hvorki að lesa né skrifa, eða eins
og Inkahöfðinginn Roca sagði fyrir meir en 600 árum: ,,Það á
ekki að dreifa þekkingu til hinna fátæku því þeir eiga ekki að
vita meir en hinir ríku“.
árum. Nú á að marka stjórn-
arstefnuna. Svo á heimurinn
eftir að sjá. hvort það skeður
án erlendrar íhlutunar og rétt
er að minnast þess, ag það
voru kommúnistamir, sem
börðust fyrir stjórnarskránni.
en bandarískt herlið barðist
segn henni til hins síðasta.
Myndin er frá Chacc-héraðinu í Paraguay. Þar er jarðvegurinn svo rakur að uxakerrur með háum
hjólum eru einu nothæfu farartækin. f þessu mýriendi hefur verið komið upp fangabúðum fynr
pólitíska fanga.
ögur ríki Rómönsku Am-
eríku stefna nú, hvert á
sammála. En jafn sammála
verða menn að vera um það,
að sérhver sönn bylting hljóti
jafnan að kalla fram sitt and-
stæða segulskaut. Þannig hefur
það ætíð orðið. Bandaríska
byltingin skapaði einnig sína
trúvillinga, sínar varúðarráð-
stafanir og sina pólitisku út-
laga.
Kannski úndrast menn, að
herliði skuli sífellt vera boðið
út á Kúbu, en verða þá að
minnast þess, að eyjan hefur
brennt allar brýr að baki og
á sér því mikinn og grimmileg-
an óvin í aðeins 90 mílna fjar-
lægð. Barátta Bandaríkja-
manna gegn sósíalismanum á
því, sem þeir telja sitt eigið
hagsmunasvæði, hefur skapað
ástand, sem minnir einna helzt
á umsátur.
Þegar þjóðfélagi er ógnað —
og það er hlægilegt að halda
það. að það séu Bandaríkin,
sem sé ógnað af Kúbu — þá
gerir þetta bjóðfélag vissar
varúðarráðstafanir. sem líta
hreint ekki alltaf „lýðræðis-
lega“ út. Kúba hlýtur að hafa
rétt til slíks, án þess að rokið
isstarfsmanna. Hvað Chile við-
kemur ríkir þar, að því er
virðist, óstöðvandi dýrtíð. Ef
útkoman verður jákvæð þrátt
fyrir allt, er það aðallega að
þakka eindreginni afstöðu
þessara ríkja gegn bandarískri
heimsvaldastefnu og margend-
urteknum kröfum þeirra um
að mega sjálf ráða málum sín-
um til lykta.
Dóminíska lýðveldið er á at-
hyglisverðu þróunarstigi.
Hér var skrefið stigið, hér
varð sprengingin Engan get-
ur furðað á því — eftir Truj-
illo og Balaguer Á sama hátt
getur það engan undrað að
bandaríska stjórnin hefur ekki
breytt teljandi um stefnu frá
þvi um aldamótin í Dómíníska
lýðveldinu fór allt fram á
hefðbundinn hátt. Með vopn
í hönd og eftir langan stjórn-
málaundirbúning ,.sprengdi“
eyrfkið sig fram til lýðræðis-
legrar þróunar Nú fyrst á að
geta hafizt lýðræðislegt stjórn-
málalíf Nú á að greiða at-
kvæði um stjórnarskrá sem
var samþykkt fyrir nokkrum
Uruguay er ekki nefnt í
þessu sambandi, einfaldlega
vegna þess, að þróunin í land-
inu gengur ekki í lýðræðisátt.
Hitt væri sönnu nær að segja,
að ríkinu sjálfu sé ógnað:
stjórnmálalíf í landinu er allt
undirlagt þeirri staðreynd, að
efnahagur landsins er í kalda
kolum. Lýðræðið hefur verið
stöðvað á þróunarbrautinni.
Nágrannahershöfðingjarnir í
Argentinu og Brasilíu óttast
það lýðræði og hata.
En enda bótt afturhaldsöfl
og einræði megj sín nú meir
en framfaraöfl meginlandsins,
er rétt að minna á orð Mexi-
kanans Carlos Feuentes, þau
er hann mælir til Bandaríkj-
anna: „Og takið vel eftir því:
Jörðin mun komast á réttar
hendur, óðalsherrarnir munu
verða að víkja set og þegar
1955 voru 10 einræðisstjórn-
ir í Rómönsku Ameríku. nú,
1965 finnum við aðein= sjö.
Þá var að vísu aðeins ein her-
foringjastjórn, ,,la revolucion
libertadora“ i Argentínu í dag
finnum við hálfa þriðju:
stjórnir Brasilíu og Bólivíu og
hina dulbúnu herforingjastjóm
í Argentínu. Árið 1955 voru á
meginlandinu fimm vopnaðar
andspymuhreyfingar, í dag eru
þær tíu. Á tímabilinu 1955 til
1961 unnu lýðræðisöflin þrjá
mikilvæga kosningasigra; á
tímabilinu 1962 til ’64 urðu
sigramir sex. Á fyrmefndu
tímabili risu nju miklar verk-
fallsöldur, á síðara tímabilinu
var talan komin upp í 12.
Móti mesta „sigri“ banda-
riskrar heimsvaldastefnu, vald-
ráninu í Brasiliu 1964, vegur
sú staðreynd. að Bandaríkjun-
um mistókust innrásarfyrirætl-
anir sinar á Kúbu.
Suður-Ameríkumaðurinn hefur
séð, hvað hann sjálfur getur,
þá. . .
Yfirlit yfir þróun síðustu tíu
ára staðfestir þetta mat:
Hlutverk kommúnistaflokk-
anna í þessarj baráttu allri
er í raun og veru mjög einfalt:
Kommúnistamir em hvergi
eina byltingaraflið, þeir eru
allstaðar hluti af því „sprengi-
efni“, sem daglega knýr á til
aukins lýðræðis. f Brasiliu
bíður kommúnistanna hvað erf-
iðast verkefni, þar eð ekki hefur
enn tekizt að koma á fót raun-
verulegri andspyimuhreyfingiu
eegn einræðisstjóm Castellos
Branco. Hvað þeim löndum
viðkemur, sem.þróast ; átt til
lýðræðis, þá er staða komm-
únistanna án efa sterkust í
Chile, en veikust í Mexikó.
f Rómönsku Ameriku eins
Ov hún er í dag er hins vegar
ekkj svo miög spurt um flokka-
pólitik. heldur um hæfileikann
til þess að beita réttum að-
ferðum við réttar aðstæður. Og
hér hafa kommúnistarnir lært
mikið af dæminu frá Kúbu.
Hafa þá kommúnistarnir yf-
irleitt einhverja þýðingu? Fyr-
ir almenningj Rómönsku Ame-
ríku er slík spúming hlægileg
og jafngildir því að spyrja,
hvort það hafi yfirleitt ein-
hverja þýðingu að berjast gegn
afturhaldinu.
Vikjum svo aftur að þvj sem
á var byrjað, lýðræðisleið
Rómönsku Ameríku. Hún er
til og teygir sig um megin-
landið allt. Hún hefst hvar þar
sem fjöldinn gerir upp reikn-
ingana við kúgara sína, og
þótt lýðræðisleið þessara landa
verði e.t.v. ekki nákvæmlega
eftir sömu forskriftum og það
sem við getum kallað vestrænt
lýðræði. skyldi enginn vaða i
villu og svima um þýðingu
hennar.
Kína ætlar að
hindra AA-fund
ALGEIRSBORG 26/ 10 — Kin-
verska stjðmin hefur enn hert
á þeirri kröfu sinni að frestað
verði ráðstefnu Asíu- og Afrílcu-
ríkja sem á að hefjast í Algeirs-
borg 5. nóvember og mun ekki
senda utanríkisráðherra sinn á
undirbúningsfund ráðstefnunnar
sem halda á í Algeirsborg á
fimmtudag. Margar þeirra 47 rfe>
isstjórna sem boðað hafa þátt-
töku eru sagðar þeirrar skoðun-
ar að tilgangslaust sé að halda
ráðstefnuna ef Kína kemur
hvergi nærri.
Tólf óra
tónskóld
Sinfóniuhljómsveit ein í
Moskvu hefur nú tekið til
flutnings verk eftir 12 ára
gamlan tónsmið, Anítu Lotsevu
að nafni. Verkið heitir „Söng-
urinn um Tsjeboksary“ og var
mjög vel tekið af hljómlistar-
unnendum Or það var fyrst ,
flutt. Aníta Lotseva tók að
leika á píanó, er hún i,
var sjö ára gömul, og fór að
semja tónverk fyrir tveim ár-
um. Hún hefur nú þegar sanv
ið um 20 minni tónverk. Enn
gengur tónskáldið þó í tónlist-
arskóla. en aðalkennari henn-
ar þar er tónskáldið Viktor
Sjodiasjef.
— Það er þvi miður ekki rétt,
að ég hafi sagt upp kærustunni
eftir að hún fékk sér gleraugu.
Það var HÚN sem sagði MÉR
upp eftir að hún fékk sér gler-
augun.
(— Salon Gahlin).
í félagslögum golfklúbbs
eins í Narobi er efti'rfar-
andi ákvæði: „Ekki ber
skylda til þess að leika kúln
sem liggur í minna en tíu
metra fjarlægð frá Ijóni'*.
Börn eru fólk sem fær :
ekki að haga sér eins og
foreldrar þeirra höguðu
sér á þeirra aldri.
Hann er norskúr þessi:
— Hvad er vanskelígere
enn á fá en gravid elefant
inn i en Folkevogn?
— A fá en elefant gravid
inni en Folkevogn.
(— ,,Farmand“).
Nútíma húsmóðir á alltaf að
vita, hver cr uppáhaldsréttur
mannsins hennar. Og Iika á
hvaða veitingahúsi hann fæst.
(— „Hudibras")
í
i
I
i