Þjóðviljinn - 01.12.1965, Blaðsíða 2
2 SÍÐa — í>JÓÐVTLJINN — Mfóvíkudagtir 1. desember 1965
Krisfinn Hákonarson yfirlögregluþjónn
Opið bréf til hr. alþingismanns
Matthíasar Á. Mathiesen
Þegar ég kom til Hafnar-
fjar&ar, fyrir rúmum 25 árum,
varst þú lítill snáði. Þú bjóst
í fögru húsi, skammt frá heim-
ili mínu. Þú dafnaðir vel,
varðst myndarlegur, stór og
stæðilegur maður. Ég man ekki
eftír þér öðruvísi en ávallt
prúðum.
Eftir að þú varðst fulltíða
maður, fannst á mörgu að þú
hugsaðir til frama, enda ungur
að aldri settur til trúnaðar-
starfs, og rak nú hvað annað.
Fyrst alþingismaður fyrir Hafn-
arfjörð, síðan fyrir Reykjanes-
kjördæmi. Það þarf sterk bein
til að þola svona og þvílíkt
meðlæti. Nú situr þú á hinu
háa Alþingi á rökstólum með
vitrum mönnum og ræðir um
farsældarmál þjóðarinnar.
Laugardaginn 27. nóv. s. 1.
las ég heillanga grein í Morg-
unblaðinu, með fimm dálka yf-
irskrift. Þetta var ræða flutt á
Alþingi, um pólitískar árásir,
sem þú telur að hafi verið
gerðar á hæstvirtan dómsmála-
ráðherra. Þú hefur greinina á
því, að minnast á frumvarp um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins, sem fyrir þinginu lágu
til 1. umr. Þú lýsir því yfir, að
aðrir, þér færari menn, hafi
rætt um málið, sem þú virðist
gera að umræðuefni og sé ekki
þörf fyrir þig að ræða meir um
það, en þér virðist ljóst að
frumvarpið sé tilkomið vegna
veitingar bæjarfógetaembætt-
isins í Hafnarfirði og sýslu-
mannsins í Gullbr. og Kjósar-
Þú talar mikið um réttlætis-
kennd í sambandi við embætt-
isveitinguna f Hafnarfirði, sem
mér skilst, á skrifum þínum,
að ekki sé allra að búa jrfir.
Þú getur þó vart neitað því,
að réttlætiskennd eigi rétt á
sér, þó að þér fínnist hún ekki
skarta öllum, en það er þitt
mál.
Þú talar um ákveðna alþing-
ismerrn, sem hafi gert embætt-
isveitinguna í Hafnarfirði að
umræðuefni á Albingi, og tel-
ur þeim ekki farast, þar sem
einhvern tíma fyxr hafi áttsér
stað óréttlæti í embættisveit-
ingum, sem þeirra flokksmenn
hafi staðið að.
Ég býst ekki við, að þérhafi
verið kennt það í lagadeild
Háskólans, þegar þú varst þar,
að ef sekur maður getur bent
á dæmi þess, að annar maður
hafi framið svipað afbrot, bá
sé beim nýseka það til máls-
bótar, að foTdæmið sé tiJ. Þú
telur þig vita glögg dæmi þess,
að Framsóknarflokkurinn eða
menn úr þeim flokki, eigi ó-
fagra sögu í embættisveiting-
um. Ég ætla ekki að bera blak
af neinum pólitfskum flokki í
þeim efnum, en ef þér finnst
það málsbót fyrir hæstv. dóms-
málaráðherra, að annar hafi
framið svipað ranglæti eða
verra en þáð sem mér og fjöl-
mörgum öðrum virðist hann
hafa framið með embættisveit-
ingunni í Hafnarfirði. þá tel
ég að þú standir höllum fæti
gagnvart réttlætiskennd, enda
er greinin þín. nær því öll,
samtíningur og leit að misferli,
sem þú telur að hafi átt sér
stað í embættis- og starfsveit-
ingum og bryddir hvergi á rétt-
lætingu á því sem gert hefur
verið þessu sinni, né rökum
því til málsbóta.
Eigum við að gera ráð fyrir
að þú vitir hvað þú ert að
segja, þar sem þú telur þessa
embættisveitingu í alia staði
löalega. og svo hnýtir þú því
við, að hún, b.e. vefitingin,
-tandist allt siðgæðispróf. Ég
gæti orðið þér 'sammála um
þetta siðgæðispróf, ef þú hefðir
sagt pólitískt siðgæðispróf, en
frá sjónarmiði óspillts og ó-
truflaðs manns, lít ég svo á,
að hér hafi gleymzt mikiilvægt
atriði, sem er tillitssemi gagn-
vart einstaklingi og þjóðinni,
mannúð og réttlæti.
Það dylst engum, að hér var
vikið frá starfi manni, sem
þriðjung mannsaldurs var bú-
inn að vinna á einum og sama
stað, viðurkennt með einstakri
elju og samvizkusemi, þrátt
fyrir að hann á við heilsu-
leysi að stríða. Manni, sem
hefur áunnið sér með störfum
sínum vinsemd og virðingu
allra sem með honum hafa
starfað og sem hann hefur
starfað fyrir. Ég mótmæli rétt-
mæti þess og lít svo á, að hver
maður, sem þannig hefur starf-
að, eigi þjóðfélagsins vegna að
fá að starfa í friði, hvað sem
lagalegum heimildum líður um
að hægt sé að reka hann úr
starfi, án allra saka.
Þú fullyrðir að Jóhann Gunn-
ar Ölafsson, bæjarfógeti á ísa-
firði, hafi sótt um bæjarfógeta-
embættið í Hafnarfirði vegna
þess að hann álíti, að settur
bæjarfógeti þar hafi engan rétt
áunnið sér til embættisins með
setu sinni þar öll þessi ár. Mig
furðar á hafi Jóh. G. Óiafsson
sagt þér þetta, og tel hann
langt of virðulegan mann til
þess að hafa gert það. Hitt
myndi ég fallast á, að Jóhann
G. Ólafsson hafi sótt um emb-
ættið í trausti þess, að hann
yrði látinn njóta stárfsaldurs
og starfsferils, sem ég hygg að
enginn muni treysta sér til að
kasta skugga á.
Þú hefur mörg orð um upp-
sagnir starfsfólksins á bæjar-
fógetaskrifstofunni í Hafnar-
firði og telur þær, ásamt öðru
framkomnu í þessu máli póli-
tíska árás á hæstvirtan dóms-
málaráðherra. Ég er einn þeirra
mörgu, sem hafa mótmælt því,
að Björn Sveinbjörnsson er
sviptur starfi því, sem hann
hefur helgað krafta sína und-
anfarna tvo áratugi.' Mál þetta
er allþjóð kunnugt af þeim
skrifum, sem um það hafa orð-
ið. Ég hef ekki litið á þetta
mál sem pólitíska árás, ég lít
á það með almennri réttlætis-
kennd. Sennilega mætti segja,
að það væri valdníðsla; ef
brugðið er frá lagalegri venju,
eða lög brotin í því tilfelli,
sem hér um ræðir, en einhver
brestur mun á, að hér um séu
ágreiningslaus lagaákvæði, enda
hefur það komið glöggt fram
í skrifum þínum og annarra,
að duttlungar vajldhafanna
falla misjafnlega við almenn-
ingsálitið.
Því miður finnst mér þú
styðjast nokkuð mikið við slef-
burð, í ræðu þinni, og slærð
svo föstu að hér sé um póli-
tíska árás að ræða. Mér finnst
ekki úr vegi að ég segi hér
eina sanna sögu, frá bæjar-
fógetaskrifstofunni. Þegar búið
var að auglýsa í blöðunum,
hverjum hafði verið veitt emb-
ættið, og fyrsta uppsögnin
barst bæjarfógetanum setta, þá
varð honum að orði við starfs-
menn sína, að hann ætlaðist
ekki til þess að menn segðu
upp störfum sínum, né tækju
á sig nokkurskonar óþægindi
hans vegna, þó svona hefði
farið.
Settur bæjarfógeti er grand-
var með það, að eyða ekki
starfstíma sínum til viðræðna
um pólitísk mál, og þau 20
ár, sem ég hef starfað með
honum, hef ég aldrei heyrt
hann ræða við nokkum mann
um bæjar- eða landsmálapóli-
tík, og ég held að það sé ör-
uggt, að hann metur ekki menn
eftir því, hvar þeir standa í
pólitískum flokki, fremur eft-
ir manngildi þeirra og hegðan.
Finnst þér líklegt að Bjöm
Sveinbjörnsson hafi staðið fyr-
ir þessum pólitísku árásum,
sem þú nefnir? Eru pólitískar
árásir, sem beint eraðákveðnu
marki ekki venjulega studdar
af einni og sömu stefnu?
Matthías minn, þér er vel
kunnugt um að ég telst ekki
tíl nókírurs stjórnmálaflokks,
því ég hef sagt þér það sjálfur.
Hversvegna ætti ég þá að vera
með pólitíska árás á hæstv.
dómsmálaráðherra og ráðherr-
an veit sjálfur, ég ætlaði
ekki opinberlega, að skrifa um
þetta mál, en þegar ég las
greinina, eða ræðuna þína, þá
fannst mér ég eins geta skrif-
að, þú fyrirgefur það, og fann
mig knúinn til þess.
Ég fullyrði, að uppsagnir úr
starfi hjá skrifstofufólki bæj-
arfógetaembættisins eru ekki
sprottnar af pólitík, ekki held-
ur mótmælaundirskriftimar.
Uppsagnir þessar og undir-
skriftir eru framkomnar vegna
þess, að fólkinu fannst rétt-
lætiskennd sín særð. Það er
þýðingarlaust að segja mér og
öðrum, að slík málsmeðferð,
sem hér hefur átt sér stað, sé
afsakanleg vegna þess að ann-
að svipað eða jafnvel enn verra
hafi átt sér stað í fortíðinni og
þá framkvæmt af einhverjum
öðrum en núverandi dóms-
málaráðherra. Fordæmi sllíkra
aðstæðna, sem hér um ræðir
eru ekki til í sögunni.
Ég held, að þeir sem þekkja
hæstvirtan dómsmálaráðherra,
bæði flokksmenn hans og
margir aðrir, telji hann góðan
mann, og ég fullyrði að góðir
menn vilja ekki vísvitandi
fremja ranglætisverk, oghyggn-
ir menn geyma vítin sér til
varnaðar.
Nú finnast mér flest mál
þingsalahæf, þegar dýrmætum
tíma er sóað, frá umræðum
um þýðingarmikil þjóðmál, til
að þvæla um lögregluþjóns-
ráðningu í Hafnarfirði. Ég
verð hálf feiminn, því að ég
hef ekki hugsað mér að eyða
tíma í skrif um sjálfan mig,
en fyrst þú nefnir, í ræðu
þinni ráðningu yfirlögreglu-
þjóns í nafnarfirði, með þeim
athugunum, sem þar eru gerð-
ar, sem ég hirði ekki um, þá
yil ég til glöggvunar, án þess
að sveigja að neinum, geta
þess, að yfirlögregluþjónninn
hefur í höndunum bréf frá
bæjarstjóminni í Hafnarfirði,
þar sem sagt er að bæjarstjórn-
in hafi ráðið hann til starfsins.
Manstu hvaða maður það var,
sem stöðvaði mig á götu, af
einskærri velvild og tilkynnti
mér, að hann væri búinn. að
leggja fyrir sína menn í bæj-
arstjóminni að ráða þann sem
varð ráðinn. Þér finnst kannski
að ég launi þér illa óumbeðin
roeðmæli, en það væri mikill
roisskilningur, því að ég launa
þér með því sem bezt er, að
segja sannleikann. Hversvegna
varstu að draga þetta auvirði-
lega mál inn á Alþingi. Get-
urðu sagt mér satt um það?
Viltu viðurkenna að þú hafir
ætlað að gera settum bæjar-
fógéta einhvern miska með því,
að hann hafi ráðið mig, en
ekki hina?
Viltu viðurkenna að ræða
þín, mestöll, er leit að misferlJ
um og afbrotum pólití&kra
andstæðinga þinna, en ekki um
það mál, sem henni er ætlað
að fjalla um? Varstu að benda
lesendum á sannleikann í mál-
inu? Veiztu ekki, að í röðum
Sjálfstæðismanna eru ekki
færri en í röðum annarrapóli-
tískra flokka menn og konur,
sem líta á það mál, sem hér
er rætt um, sömu augum on
ég. Ég hef talað við hundrrf [
manna, úr bæ og í, ekki einn
einasti, hvar sem hann stendur
í pólitík, blandar skoðun um
málið. Þó vil ég ekki skilja
svo við þig, að ég gleðji þig
ekki ögn. Þú átt fjölmarga
dygga fylgismenn, sem vegna
Framhald á 9. síðu.
SKIPATRYGGINGAR
Tryggingar
á vörum í flutnlngí
á eigum skipverja
Heimistrygging hentar yður
Aflafiryggingar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRS
UNDARGATA 9 REYKJAVIK SlMI 2 1 2 60 SlMNEFN! ; SURETY
BÚTASALA
Terylene bútasala að Skipholti 35
3ju hæð, stendur yfir.
Verksmiðjan Sparta hf.
Almannatryggingar
í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Útborgun bóta almannatrygginganna fer
fram sem hér segir:
í Mosfellshreppi fimmtud. 2. des kl. 2-5
í Kjalarneshreppi föstud. 3. des kl. 2-4
í Seltjarnarneshreppi mánud. 6. des kl. 1-5
og föstud. 17. des kl. 2-4.
í Grindavíkurhreppi þriðjud. 7. des kl. 9-12
í Njarðvíkurhreppi þriðjud. 7. des kl. 1.30-5
og miðvikud. 8. des kl. 2-5.
í Gerðahreppi þriðjud. 7. des kl. 2-4.
í Miðneshreppi miðvikud. 8. des kl. 2-5.
— Á öðrum stöðum fara greiðslur fram eins
og venjulega. — Ógreidd þinggjöld óskast
greidd um leið.
Sýslumaðurinn
I Gullbringu- og Kjósarsýslu.
:
Bs li mi ggi m |R st n m H m if||
Kynnibyður hin hagstœbu
JÓLAFARGJÖLD LOFTLEIÐA
.Aflar úpplýsingar hjí félaginu og umboðsskrifstofum þess
MOFTLBDIR
maŒmss
lHn