Þjóðviljinn - 01.12.1965, Page 10
jjg SfÐÁ — ÞðÖBVIIiJmisr — matátouaamc t 'áesexciber 1965
úr sfcagga um að hún væri sdð-
samlega til íara,
earólína kraup hjá henni.
Hvar futinið þér til. írú Dew-
hurst?
— Emma, tautaði hún lágt.
— Emma, hvar eruð þér
meiddar? sagði Caróiína.
Harry hreytti útúr sér: Hún
er alls ekkert meidd. Hún tap-
aði sér bara og féll í yfirlið, í
stað þess að gera eitthvað af
viti til að stöðva eldinn.
— Hún hefur lítið gert, ef hún
hefur ekki vaknað í tæka tíð,
sagði herra Sherwin og gekk
af stað í áttina til brunaliðs-
mannanna, sem voru eins og
skuggaverur inni í reykmekkin-
um. Hann var dálítið móður eft-
ir áreynsluna, en samt var hann
snyrtilegur og rólegur eins og
ævinlega.
— Hvar fannstu hana, Harry?
spurði Jan PuUen.
— Fyrir ofan stigann, eins og
hvert annað hrúgald, sagði
Harry. Og þegar ég ávarpaði
21
hurst til hans. Hún stundi aft-
ur.
Hann sneri baki við henni og
starði á húsið. 1 stað ánægjunn-
ar sem ljómað hafði á andliti
hans meðan hann hafði enn ver-
ið inni í brennandi húsinu, var
nú komin beiskleg reiði. Það
var eins og hann væri að ákveða
með sjálfum sér, hver skyldi
fá að þjást fyrir það sem gerzt
hafði. En annars var eins og
hann hefði aldrei þessu vant
jppurið alia orku sína. Hann
var siginaxla og átti þungt um
andardrátt Þegar Fenella teygði
fram armana í átt til hans, var
eins og hann tæki ekki eftir
því. Þegar hún faðmaði hann að
sér. hreyfði hann sig ekki. held-
ur hélt áfram að stara á hús-
— Ertu ómeiddur, Harry?
spurði hún. Harry, Harry — ertu
meiddur?
Á teppinu bylti frú Dewhurst
sér ögn og tautaði: Maðurinn...
önnur hönd hennar fór að
þokast upp arminn og athuga
hneppinguna á sloppnum, ganga
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI 33-9-68
D Ö M U R
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tíarnargötu 10 Vonarstrætis-
megin — SÍMl 14-6-62
fá f o-rei^sl ustof a
Auvfii'rHfpiar
aria Guðmundsdóttir
!avegj 13 sími 14-6-58
lírtofar er á =ama stað
hana, sagði hún: ,,Kallið mig
I Emmu! Drottinn minn dýri!
| Um leið kallaði einn bruna-
liðsmannanna í Harry, bað hann
hann að koma og líta á eitthvað
sem þeir höfðu fundið.
Hann hreyfði sig ekki, svo að
Fenella fór í hans stað, og
þegar Jan komst að raun um að
Harry vildi ekkert við hann
tala, fór hann á eftir henni.
Emma Dewhurst bærði aftur
varimar; þær vipruðust í miðju,
! fölu andlitinu.
I — Það var maður .... ég
j heyrði til hans .... ég fór að gá
.... vældi hún. Ó, höfuðið
mér!
Harry sneri sér samstundis
við, eins og hann hefði einmitt
verið að biða eftir þessu, og
kraup hjá henni.
— Maður, Emma? Hvaða
maður?
Carólína yggldi sig framaní
hana. Við ættum að ná í lækni,
hvíslaði hún.
Hann sinnti henni ekki
Hvemig leit hann út, Emma?
Segðu mér það; það skipt-
ir miklu máli.
Hún stundi aftur. Ég sá hann
ekki vel. Hann barði mig. Ó,
höfuðið á mér!
— Svona, svona! Harry hafði
hrist af sér slenið. Dálítið út-
stæð, skær augun glóðu af á-
kafa. Var hann stór eða lítill,
gamall, ungur, dökkhærður, ljós-
hærður?
Hún sneri höfðinu frá honum
á ábreiðunni og svaraði ekki.
— Við verðum að sækja handa
henni lækni, sagði Carólína.
Þennan sem kom til mín í gær
— hvað heitir hann? Ég ætla
út í bílskúrinn og hringja í
hann.
Með ótrúlegum flýti rétti frú
Dewhurst aðra. holduga hönd-
ina og þreif í handlegginn á
henni
— Ekki fara! hrópaði hún,
Góða, skiljið mig ekki eftir!
Harry hló hranalega. Ég sagði
þér að hún væri ekkert meidd.
Þetta er bara ögn í viðbót af
þessari bölvaðri móðursýki.
— Nújæja, sagði Carólína.
Hún er að minnsta kosti dauð-
hrædd.
— Og hví skyldi hún ekki
vera hrædd? spurði hann kald-
ranalega. Þegar hún hefði hæg-
lega getað kveikt í húsinu okk-
ar vegna? Húsinu okkar, fallega
húsinu okkar, mundu það.
Hann snerist á hæli og gekk
af stað á eftir Jan og Fenellu.
Emma Dewhurst andvarpaði
bungt. Hún settist upp, Iaut á-
fram og huldi andlitið í höndum
sér.
— Ó, ég vona að hatm fcorrd
ekki aftur, sagði hún og hrollur
for um harna. Þér ætlið ekki að
yfirgefa mig, góða mín? Ég er
svo hræðilega hrædd.
— Eruð þér hræddar við
Harry? sagði Carólína undr-
andi. En hann bjargaði yður
út úr eldinum.
— Gerði hann það?.............
Hver?...... Frú Dewhurst leit
sljólega á Carólínu og nú var
eins og hún reyndi fyrir alvöru
að sjá hana. Ó, eigið þér við
Harry? Gerði hann það? Ég er
svo ringluð. Ég átti við það
að ég væri hrædd við mannínn
sem ég heyrði til inni í húsinu.
En stundum gerir Harry mig
líka hrædda. Sumt sem hann
segir ....
— Það skiptir ekki máli
sagði Carólína. Bíðið aðeins
smástund — ég ætla að athuga
hvort ekki er annað teppi í
bílnum. Það þarf að breiða eitt-
hvað ofaná yður.
— Nei — í öllum bænum!
Óttasvipur kom enn í augun á
frú Dewhurst, svo að þau urðu
starandi og heimskuleg. Sögðuð
— sögðuð þér ekki að herra
Lyddon hefði bjargað mér útúr
eldinum?
Carólína sagði henni hvað
Harry hefði gert.
— Jæja! sagði frú Dewhurst
og andvarpaði enn um leið og
hún lagðist aftur útaf á teppið.
Það breytir öllu. Hann er dá-
samlega hugrakkur, er það ekki?
Og ég þakkaði honum ekki einu
sinni fyrir. Ég sagði ekki eitt
einasta otrð. Það var efcld að
undra, þótt hartn yrði reiður við
mig.
— Hann varð affls ekki reiður
við yður, sagði Carólína. Honum
gramdist bara þessi óheppni.
Honum þótti svo vænt um hnós-
ið.
Hún hugsaði með sér, að það
væri ekki fyrr en í kvöld, sem
hún hefði metið til fulls ást
Harrys á húsinu, þessu heimili
sem hann ætlaði að verða rót-
gróinn á.
— Hann er dásamlega hug-
rakkur, endurtók frú Dewhurst.
En ég verð að segja honum, að
það hafi ekki verið ég sem
kveikti í. Að hugsa sér — að ég
hafi gert annað eins og það!
Vesalings pilturinn, að láta
þetta útúr sér. Ég vona að ég
geti fengið hann til að trúa mér.
— Auðvitað trúir hann yður.
En orð Carólínu létu ekki eins
sannfærandi í eyrum og hún
hefði viljað. Það gat svo sem
vel verið að Harry fengi þá
flugu í höfuðið að eirihver hefði
gert þetta viljandi honum tii ó-
þurftar. Nú eruð þér éfcki leng-
ur hræddar, er það? Ég má til
að sækja kápu eða eitthvað til
að breiða jrfir yður.
Um leið kom Fenella með
kápu á handleggnum. Það var
blá kápa með litlum skinn-
kraga.
— Gerið þér svo vel, sagði
hún. Þetta er yðar kápa, frú
Dewhurst, er það ekki?
— Jú, góða mín. Mikið er
þetta hugulsamt af yður. Þakka
Giafabókin
HERMANN SCHLENKER
Fuglar
Bókin hefur að geyma úrvalsmyndir af íslenzkum
fuglum. Texti eftir Brodda Jóhannesson skóla-
stjóra og Steindór Steindórsson menntaskólakenn-
ara. íslenzk, ensk og þýzk útgáfa fást nú hjá
bóksölum um land allt.
Verð aðeins kr. 241,80 með söluskatti.
Bókaútgáfa Meimingarsjóðs.
TARRAGON
mayonnaise er betra
SKOTTA
,,Fyrst segir hún manni eitthvað í trúnaði. Svo breiðir hún það
sjálf út um allan sikóla áður en maður getur kjaftað því í neáxm!“
Plaslmo
Plast
þakrennur og
niðurfallspípur
fyrirliggjandi
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir seltu og sót
þarf aldrei að móla
MARS TRADIN6 COHF
KLAPPARSTÍG 20 SÍMI 17373
Kuldajakkar, úlpur og vinnubuxur,
allar stærðir.
Terylenebuxur á drengi.
Góðar vörur á góðu verði.
Verzlun Ó.L.
Traðarkotssundi 3 — (móti Þ'jóðleikhúsinu)'.
Sendifí
óskast strax. — Eftir hádegi.
Þarf að hafa hjól.
ÞJÓÐVILJINN
Simi 17-500.
JíÚibilaleiga MAGNUSARl
Skipholti 21 símar 21190-21185
eftir lokun i slma 21037
n
i