Þjóðviljinn - 27.01.1966, Blaðsíða 3
Fimmí’udagur 27. janúar 1966 — Þ-JÖÐVILJINN — SÍÐA J
Súslof talar á
þinginu í Róm
RÖM 26/1 — Mihail Súslof, full-
trúi sovézkra kommúnista á 11.
þingi Kommúnistaflokks Italíu,
flutti því í dag ávarp og iígddi
einkum um Vietnamstríðið.
Hann kvað Sovétríkin veita vi-
etnömsku þjóðinni fyllsta stuðn-
ing í baráttu hennar gegn árás-
um bandarískra heimsvaldasinna
og dró þann lærdóm af atburð-
um síðustu missera að aftur-
haldsöflin færðu sig jafnan upp
á skaftið þegar uppi væru deil-
ur innan alþjóðlegu verkalýðs-
hreyfingarinnar.
VR 75 óra
Framhald af 10. síðu.
breyttist eðli félagsins algerlega
þegar það varð hreint launþega-
félag.
— Hver hafa verið stærstu
stökkin í kjarabaráttunni?
— Það stærsta var náttúrlega
í desember 1963 eftir að félagið
hafði átt í 4ra daga verkfalli.
Þá má segja. að svo til hverri
einustu grein gamla samningsins
hafi verið breytt til hins betra
fyrir verzlunar- og skrifstofufólk.
Laun hækkuðu þá að meðaltali
um 43%, flokkaskipun var gjör-
breytt til mun meira samræmis
við ríkjandi starfsaðstæður. Or-
lof var lengt og vinnutími stytt-
ur. Þá jukust greiðslur í veik-
indaforföllum, Vert er einnig að
minnast á, að launajöfnuður
milli karla og kvenna tókst þá í
öllum flokkum nema einum.
— Við hverju má svo búast í
næstu framtíð?
— Það er erfitt að ræða um
það nú, því að samningaviðræð-
ur standa yfir og eru eiginlega
á hástigi núna. En í þeim leggj-
um við aðaláherzlu á að okkar
fólk fái almenna kauphækkun
og vinnutímastyttingu og einnig,
að kjör afgreiðslufólks í verzl-
unum verði sérstaklega bætt, því
segja má að stór hluti þeirrh
teljist til láglaunafólks.
Þá er eitt af baráttumálum
nú, að verzlunarfólk öðlist aðild
að atvinnuleysistryggingum og
svo finnst okkur sjálfsagt, að
launþegar sameinist um stofnun
alþýðusparisjóðs eða réttar sagt
alþýðubanka. Mér finnst óhæfa
hversu lengi þetta mál hefur
dregizt og ber að hrinda því í
framkvæmd hið fyrsta.
— Að lokum. Hvernig hefur
verið samstarfið við önnur verk-
lýðsfélög í ASl?
— Hið faglega og stéttarlega
samstarf hefur verið mjög gott
og er það mín skoðun að is-
lenzk Iaunþegasamtök hafi og
geti látið mikið og gott af sér
kveða og gegni mikilsverðu for-
ystustarfi í íslenzku þjóðfélagi.
Franska stjórnin játar loks
hlutdeild lögreglu sinnar
Fjöldafundur haldinn í París í gær til að mótmæla
framkomu stjórnarvalda, krafizt af sagnar de Gaulle
PARÍS 26/1 — Ráðuneytisfundur var haldinn í París í
dag um Ben Barka-málið og var viðurkennt í tilkynn-
ingu sem gefin var út eftir fundinn að starfsmenn úr
lögreglu og njósnaþjónustum hennar hefðu átt hlutdeild
í brottnámi Ben Barka.
Ben Barka, sem var landflótta
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í.
Marokkó, var rænt á götu í París
29. október sl. og hefur hann
ekki sézt síðan. Einn þeirra sem
stóð að 'brottnámi hans, Georges
Figon, hefur skýrt frá því að
hann hafi verið myrtur í húsi
einu í úthvei;fi Parísar tveimur
dögum síðar. (Sú frásögn Figons
er birt á 5. síðu blaðsins í dag).
1 tilkynningu frönsku stjórn-
arinnar í dag segir að lögreglu-
menn hennar hafi ýmist vitandi
vits eða óvitað átt þátt í brott-
námi Ben Barka. Langt er síðan
Framhald af 1. síðu
Fulbright, fortnaður utanríkis-
málanefndarinnar.
Mansfield sagði að fundinum
loknum að enn hefði engin end-
anleg ákvörðun verið tekin um
að hefja aftur loftárásir á Norð-
ur-Vietnam, og aðrar leiðir
kæmu enn til greina.
AFP segir að allhörð átök hafi
orðið á þessum fundi og hafi
sumir þingmanna beitt sér fast
gegn því að loftárá&irnar verði
hafnar aftur. Meðal þeirra hef-
ur Fulbright vafalaust verið.
Hann lagði til á fundi í utan-
ríkismálanefndinni í fyrradag að
hléið á loftárásunum yrði fram-
lengt, enda hefði það staðið alltof
stuttan tíma til að aðilum hefði
"gefizt færi til að leita fyrir sér
um frið. Fulbright hefur sagt
að hefji Bandaríkin aftur loft-
árásir á Norður-Vietnam hafi
þau endanlega varpað fyrir borð
allri von um að hægt verði að
leysa Viétnam-deiluna með frid-
samlegum hætti.
Frumkvæffi Afríkuríkja?
Stjórn Sómalíu lagði í dag ti'l
að ríki Afríku og Asíu settu á
laggimar nefnd til að leita lausn-
ar á Vietnam-deilunni. Stefna
bæri að því að kalla deiluaðila
að samningaborðinu þar sem
samið væri um vopnahlé, brott-
flutning alls erlends herliðs úr
landinu, afnám allra erlendra
herstöðva og frjálsar kosningar.
vitað var að tveir lögreglumenn,
Voitot og Souchon, tóku þátt í
brottnáminu, enda hafa þeir
verið í haldi vikum saman. Það
þykir þó sannað að þeir hafi
ekki haft hugboð um hvað til
stóð.
Hitt er aftur- á móti nýtt, að
franska stjórnin viðurkenni að
starfsmenn hennar hafi vitandi
vits staðið að brottnámi Ben
Barka og þá um leið morðinu
á h'onum. Engin nöfn eru nefnd,
en helzt mun átt við foringja
í frönsku leyniþjónustunni, Leroy
að nafni, öðru nafni Finville. .
Mótmælafuntlur
Fjöldafundur var haldinn í
París í dag til að mótmæla fram-
ferði franskra stjómarvalda, lög-
reglunnar, hinna ýmsu dei'lda
leyniþjónustunnar og ríkisstjóm-
arinnar sjálfrar, í þessu máli.
Á fundinum var borin fram
krafa um að de Gaulle forseti
segði af sér vegna þessa máls,
sem er orðið eitt mesta hneyksli
sem um getur í franskri sögu.
Höfuðkeppinautar de Gaulle í
síðustu forsetakosningum, Franco-
is Mitterrand, sagði á fundin-
um að annaðhvort væri að de
Gaulle hefði vitað um brottnám
Ben Barka en þó látið það við-
gangast eða þá að hann hefði
ekki haft minnsta hugboð um
það. Ef svo vœri, hvaða vit væri
þá í að öll völd væru í hönd-
um eins manns, spurði Mitter-
and.
Bardagar harðna
aftur í Vietnam
SAIGON 26/1 — Bardagar eru nú aö harðna aftur í Suö-
ur-Vietnam eftir vopnahléið um síöustu helgi. Skæruliðar
geröu allmörg áhlaup á stöðvar Saigonhersins í nótt og
Bandaríkjamenn segjast hafa hafið sóknaraögerðir í Binh
Dinh-fylki í miðju landinu.
lnkskosningin í
er í deg
LONDON 26/1 — I dag fer fram
aukakosning í kjördæminu Hull
North á Englandi og er úrslit-
anna beðið með mikilli eftir-
væntingu. Verkamannaflokkur-
inn hlaut þingsætið 1964 með
naumum meirihluta (1181 atkv.),
en missi hann það nú hjaðnar
meirihluti Wilsons á þingi niður
í eitt atkvæði.
Það eru sveitir úr fyrstu stór-
skotaherdeild Bandaríkjahers
sem taka þátt í þeim aðgerðum
en þeim virðist ekki hafa orðið
mjög ágengt síðan þær hófust
á þriðjudag. Sagt er að tólf
skæruliðar hafi verið felldir.
Skæruliðar náðu í nótt á sitt
vald einni útvarðstöð Saigon-
hersins og gerðu harða skothríð
úr sprengjuvörpum á héraðshöf-
uðborg á óshólmum á Mekong-
fljóts og hæfðu þar aðalstöðvar
Saigonhersins.
Skæruliðar hafa einnig haft
sig nokkuð í frammi í Quang
Ngai héraði norðantil í landinu,
en þeir virðast þó hvorki þar
né annars staðar tefla fram
miklu liði.
Sprengju var varpað í dag að
bandarískum herjeppa á flug-
vellinum í Saigon. Tilræðismað-
; urinn komst undan.
Bandaríkjamenn héldu áfram
hörðum loftárásum á staði um
allt landið þar sem skæruliðar
eru taldir hafast við.
Pökkunarstúlkur
óskast í frystihús. — Fæði og húsnæði.
FROST H.F.
Hafnarfirði.
Sími 50565.
NÝTT
Belgísk hugkvæmni
Vírlásar úr alúmíni
'WtaWmUH
ZÖ'dtT
Handhægir, léttir, ryðlausir, ódýrir.
Margvíslegt notagildi fyrir loftnet,
g^rðingar o.fl.
BORGAREY h.f.
Langholtsvegi 33 — Sími 20880.,