Þjóðviljinn - 27.01.1966, Blaðsíða 8
g SlÐA *- ÞJÖÐVrt-JINN — Fimmtudasur 27. jarudar 1860.
STORM JAMESON:
O,
BLINDA
HJARTA
Marta þagði og horfði á hann
með ihugandi brosi.
— Þú ert voða gáfaður, sagði
hún. En sfcundum ertu ekki sér-
lega skynsamur.
— Hvemig á ég að vera skyn-
samur? sagði hann með ofsa. Ég
veit ekkert hvað er að gerast
heima hjá mér og ég get ekki
um annað hugsað. Ég hugsa um
bað hverja einustu nótt og all-
an daginn. Ég er kannski vitlaus
— en ef þú værir nú send íburt
á einhvem hræðilegan stað þar
sem þú þyrftir að ganga undir
öðru nafni og þú gætir ekki tal-
að við neinn, enginn gæti sagt
þér hvað pabbi þinn væri að
gera, hvort hann væri dáinn.
hvort húsið væri brunnið til
kaldra kola — þú vissir hreint
ekki neitt og gætir ekkert gert.
Bödd hans brast • allt í einu.
Kannski er hún veik núna —
og ég fæ ekkert að vita.
— Þú sagðir mér — ég hélt
þú hefðir sagt — að hún hefði
lofað að finna einhverja leið
til að láta þig vita ef hún yrði
veik eða ef þau flyttu burt,
sagði Marta.
— Já. Hann gretti sig framan
í hana. En hvað veit ég um
það, hvort hún stendur við það
loforð?
— Treystirðu ekki einu sinni
henni?
Hann kipraði varimar og svip-
ur hans varð skuggalegur og
eftir andartak sagði hann svo
lágt að várla. heyrðist:
— Hún lét þau taka mig.
— Hvað gat hún annað gert?
sagði telpan rólega.
— Við hefðum getað strokið
Há:g?eiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinunn o«r Dédó.
<Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI 33-968
DðMUB
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjarnargötu 10 Vonarstræt-
ismegin — Sími 14-6-62
Hárgreiðslustofa
austurbæjar
María Guðmundsdóttir.
Laugavegi 13 Sími 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
burt saman. Ég — ég bað hana
um það.
— Þið hefðuð náðst.
— Það getur vel verið. En þá
er ekki víst að þau hefðu tekið
mig af henni, þessi kvikindi. Ég
hata þau, ég hata alla héma —
— Nema mig, greip hún fram
í og brosti.
— Já, auðvitað ekki þig, sagði
hann óþolinmóðlega. En alla
hina og þetta hræðilega ljóta
land. Og ég verð að vera hérna
í mörg ár — og hver einasti
dagur fer til ónýtis, mörg, mörg
ár fara til ónýtis, rétt eins og
ég væri í fangelsi. Þú getur alls
ekki skilið þetta!
— Ég skií vel að þér þykir
þetta andstyggilegt. En, Jean, þú
átt heima héma. Ef þú átt ekki
heima hérna, í þorpinu, þá áttu
hvergi heima, og þú gætir eins
verið hann herra Leighton, of
'gamall til að finna til eins eða
neins.
Hann sagði hæðnislega:
— Þú ert sniðug í dag.
— Nei. Ég er bara skynsöm.
Það er svo margt sem mig lang-
ar til, mig langar til að eiga
hjól og ég vildi að mamma væri
lifandi og helzt af öllu vildi ég
að Agata frænka færi eitthvað
burt með langa smettið sitt og
prédikanirnar. En hverri mínútu
sem ég sóa í að hugsa um hana,
er kastað á glæ.
— Þetta er tómt bull í þér,
sagði hann og nísti tönnum.
En hún hræddist ekkert reiði
hans. Það getur vel verið, sagði
hún glaðlega. En þú hlýtur nú
samt að geta verið svoh'tið á-
nægðari héma, þótt þú fyrirlítir
staðinn og fólkið.
— Já, já, ég veit það. Ef þú
getur ekki fengið það sem þú
vilt, þá látfcu þér lynda það sem
þú getur fengið ........ Ég þoli
ekki svona fólk, ég þoli ekki
fólk sem sættir sig við tíunda
flokks hundalíf og segir þakk
fyrir. Ég veit'hvað ég vil og
hvað ég hafði áður, og enginn,
ekki einu sinni þú, skal fá mig
til að segja að mér líki þessi
staður eða að ég fyrirgefi þess-
um föntum sem tóku mig burt.
Ég skal — Hann tók andköf:
hann var orðin fölur og augun
voru galopin.
— Jean, sagði hún í skyndi og
hörfaði frá honum.
Hann leit niður fyrir sig. Fyr-
irgefðu.
— Allt í lagi. Hún leit á hann
og brosti glaðlega. Þú veizt að
það er eitt sem þú gætir gert
til að gera lífið auðveldara fyr-
ir þig. Þú gætir verið í öðru
vísi fötum.
— Þetta eru fötin sem ég var
alltaf í heima. Hvað er athuga-
vort við þatt?
— Látfcu ekki eins og þú vitir
iþað ekki. Þetta eru alltof fín
hversdagsföt.
— Ég á engin önnur.
— Mamma þín gæti látið þig
hafa föt eins og allir aðrir eru í.
— Ma — Hann beit fast sam-
an tönnunum.
— Hún er mamma þín.
— Ég klæði mig eins og mér
sýnist, sagði hann kuldalega. Og
ég bið ekki frú Olozel um að
kaupa eitt eða neitt handa mér.
— Jæja, jæja ....... ég verð
■bráðum að fara. Ætiarðu núna
að segja mér frá bóndabænum?
Þetta var líka leikur hjá þeim,
nema hjá Jean Clozel var það
fremur helgiathöfn. Þau höfðu
byrjað að leika hann daginn sem
Marta sagði:
— Ef ég væri nú blind og ég
væri komin í heimsókn til þín
— ég á við áður en þú komst
hingað. Hvað myndirðu segja?
Þú myndir kannski segja: .Var-
aðu þig á tröppunum. Eða: Þarna
vinstra megin er dúfnakofinn,
heyrirðu ekki kurrið í þeim ..
.... Þú skalt þykjast vera að
fylgja mér þar heima og segja
mér frá öllu.
Fyrst var hann ófús, en síðan
vaknaði áhugi hans og með sí-
vaxandi ánægju leiddi hann
hana um bóndabæinn og landið
í kring, lýsti hluturn og lands-
lagi, sem hún gat ekki séð sjálf
vegna þess að hún var blind.
Þau opnuðu breiða hliðið og
hann sagði henni að standa
kyrri til að anda að sér llmin-
um og hlusta — hann sagði að
það væri júní — og gæti hún
ekki heyrt suðið í býflugunum.
Þaðan sem þau stóðu voru tvær
leiðir sem þau gátu farið inn í
sjálft húsið — gegnum húsagarð-
inn með hlöðunni og skúrnum
inn í l'anga, steinlagða ganginn
með mjólkurhúsinu til hægri og
eldhúsdyrunum til vinstri: eða
þá að þau gætu farið að fram-
i hliðinni eftir malarstígnum milli
i blómabeðanna og staðið stundar-
kom og horft yfir akrana í
kring, lækinn og stóru trén —
allt er grænt, allir mögulegir
grænir og fallegir litir — ekki
svona hart og þurrt og skræln-
að eins og hér — og síðan opn-
aði hann hvítmáluðu dymar með
i þunga málmhúninum og þau
stigu inn í svalt anddyrið sem
! ilmaði af sápu <?g þurrum viði
og síðan irm í setustofuna eða
upp hreinþveginn stigann. upp í
svefnherbergin og síðan upp á
stóra háaloftið fyrir ofan þau...
1 dag ákvað hann að fara með
hana inn í svefnherbergi móður
sinnar. Hann sagði henni hvar
kistumar stóðu í herbergi henn-
ar og hvað í þeim væri, opnaði
skápa og lét hana handfjatla
rekkjuvoðimar á rúmunum og
stóra vattteppið. Allt í einu —
þau voru að ganga yfir herberg-
ið frá glugganum og það voru
stólar á leiðinni — stanzaði
hann.
— Haltu áfram, sagði Marfca.
— Bíddu — varaðu þig —
þarna ær stóllinn með bogna bak-
inu og engum örmum og hinn
stóllinn, armstóllinn, er með út-
saumuðum púða, gulum og —
og — ég.man það ekki.
Hann stóð upp og sagði\ aft-
ur:
— Ég man það ekki.
— Það gerir ekkert til, sagði
Marta rólega.
— Ég — þú — Nú vom augu
hans orðin eins og steinar í and-
liti hans og hann keyrði fram
höfuðið eins og hann vilddi
stanga með því. Hann reyndi að
hafa taumhald á rödd sinni þeg-
ar hann sagði: Farðu heim.
— Ætlar þú ekki að koma?
Venjulega gengu þau páman
niður geitatroðninginn, síðan
hélt Marta áfram og hann varð
eftir dálitla stund áður en hann
kom á eftir, svo að þau ættu það
ekki á hættu að sjást saman á
götunni niður í þorpið. Þau töl-
uðu aldrei um þessa varúðarráð-
stöfun; þau höfðu gert hana af
eðlisávísun, í þögulli vissu um
bað að ekki væri hægt að
treysta hinum fullorðnu.
— Nei. Ekki strax.
— Allt í lagi.
Hún horfði á hann útundan
sér meðan hún burstaði strá af
pilsinu sínu og þegar hann veitti
henni athygli og sagði ekkert,
sneri hún sér við og gekk burt
í skyndi án þess að líta við.
Er hún reið? hugsaði hann.
I svipinn var honum alveg sama
hvort hún var reið eða ekki.
Hún fjarlægðist og hvarf og
hann gleymdi henni. Það var
eins og hringiða þyrlaðist íhöfði
hans, sem minnti á dökka ólg-
una í vatninu undir yfirborðinu.
Hann var ringlaður og hann
steig áfram og síðan annað skref
án þess að hugsa og eftir stund-
arkorn uppgötvaði hann, að
hann var kominn ,að geitaslóð-
anum. I stað þess að ganga eftir
honum, beygði hann til vinstri
eftir enn þrengri og 'grýttari slóð
sem lá beint upp hæðina sem
SKOTTA
1
Skipholti 21 simar 21190-21185
I
eftir lokun 1 sima 2T037
4666 — Síðar talar Þórður um áætlunina við Eddy, sem einnig
yrði velkominn á Al-Makdis, ein,s og snekkjan heitir. Eddy vill
óður og uppvægur fara með. Þeir hafa hvort sem er ekki um
neitt annað að velja sem ster.dur. Þórður kinkar kolli og þeir
fara saman til hótelsins þar "m Hassan býr til að segja honum
frá ákvörðun sinni.
Prinsinn hefur á réttu að standa þegar hann grunar, að hann
sé umkringdur njósnurum. Tbn Sakkras fær að vita um hvert
spor hans og hann les af áhuga skýrslurnar frá Italíu sem eru
sendar honum reglulega. Hann veit, að snekkjan er komin og
hann veit einnig um samingana við Þórð.
— Hafðu ekki áhyggjur. Þeir gleyma henni um leið og þeir sjá
matarkörfuna okkar.
Plaslmo
Plast
þakrennur og
niðurfallsprpur
fyrírliggjandi
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir seltu og s’ót
þarf aldrei að méla
KLAPPARSTÍG 2 0 SÍMI 173 73
« BILLINN
Rent an Icecar
Sími 1 8 8 3 3
<r ' ' ■,
Auglýsið / Þjóðviljanum