Þjóðviljinn - 03.03.1966, Blaðsíða 10
|Q SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmttidagur 3. merz 106a -J'P
STORM JAMESON:
Ö,
BLSNDA
HJARTA
— Ekki fyrir þig. Hvað gerðir
þú rangt?
— Hver veit? sagði hann og
drakk.
— Það er óréttlátt — það var
engin ástaeða til að refsa þér.
— Þú ert kjáni, sagði hann
með góðlátlegri hæðni — haeðn-
in beindist að honum sjálfum,
góðvildin fremur að henni sem
gamalkunnoim, þægilegum hlut
en persónu. Það er ekki verið að
refsa neinum. Haltu áfram að
drekka. Við erum ekki alveg
allslaus, við eigum nóg til
tveggja eða þriggja mánaða og
við erum ekki skuldbundin nein-
um og getum farið hvert sem
við viljum. 1 raun og veru er
þetta ekki endir á neinu. held-
ur upþhaf-
— Þú getur sagt það, tautaði
hún. Þitt fall var ekki eins
mikið.
Það kann að vera sárt að
glata hinum háu hugmyndum
um sjálfan sig — að maður sé
afbragðs náungi, of slunginn til
að láta blekkja sig, og eigi konu
san lítur upp til hans — sárt
og kveljandi, en þó getur það
verið léttir á vissan hátt.
Kannski gegnir öðru máli um
konuna, hugsaði hann: án þess-
ara háu hugmynda um sjálfa
sig finnst henni hún veraþokka-
laus og glötuð.
— Góða mín, sagði hann glað-
lega. Hugsaðu um björtu hlið-
amar,: þú ert frjáls eins og fugl-
inn. axarsköft þín og hrasanir
eru að baki; þú þarft ekki að
gera annað það sem þú átt eft-
if ólifað en horfa, bragða,
snerta og lykta — og öll skiln-
ingarvit þín eru í lagi. Hann
strauk á henni vangann. Og við
erum tvö.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Sfeinu orr Dódó
Laugavegi 18 in hæð GyftaD
SÍMI 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI 33-968
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hsefi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 Vonarstræt-
ismegin — Sími 14-6-62
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
María Guðmundsdéttir.
Laugavegi 13 Síml 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
— Já, sagði hún og hló stutt-
aralega. En vildirðu ekki heldur
vera án mín?
— Nei.
— Af hverju ekki?
Hann yppi öxlum. Spyrðu ekki
of margra spuminga. Fáðu mér
glasið þitt.
Hún ýtti því til hans. Ég verð
að spyrja, sagði hún hljóðlega.
Hvers vegna sparkaðirðu mér
ekki út? Þú værir betur kominn
án mín, — þú gætir gifzt ungri
konu, eignazt börn — lifað nýju
lífi.
— Það má vera, en .. Hann
leit á hana með vingjamlegri
stríðni. Hvað á þetta eiginlega
að þýða? Viltu láta reka þig
burt?
— Nei.
— Nú. jæja.
— Ég er hrædd við einmana-
leikann, sagði hún og rödd
hennar var undarlega ópersónu-
leg. 1 rauninni er hann þrír
fjórðu hlutar af lífi okkar. Hann
og öryggisleysið.
— Ég veit það — hann var
brosandi. Og tveir h'kamir eru
betri en einn. Það er að minnsta
kosti öruggt.
Þótt ekki sé annað, hugsaði
hann. Og þótt líkamshiti, félags-
skapur og allt hitt sé ekki ann-
að en gríma yfir einangrun og
kulda. En er nokkuð athugavert
við það?
— Eftir allt saman, sagði hún,
þá þekktirðu mig þegar ég var
ung kona.
— Eftir allt saman?
— Á undan öllu saman. Kona
á mínum aldri — hver annar
myndi líta við mér?
— Svo að þú ert þá þakklát
eða hvað?
— Nei, sagði Eotta.
Hún sagði þetta með röddinnij
djúpri, máttugri, hrjúfri, sem
enn gat snortið hann.
— Gott, sagði hann þuirlega.
Setjum svo, hugsaði hann og
dreypti á glasinu, að á okkar
aldri sé ekkert eftir — nema
venjur og einmanaleiki. Þá
skiptir mestu máli að viður-
kenna það ekki. Ég er víst ekkl
á marga fiska sjálfur, hugsaði
hann áhyggjulaus, — kokkáll,
auli sem lætur ræna af sér al-
eigunni, — en mér stendur svo
gersamlega á sama .... Á ein-
hvem undarlega náinn hátt
skildi hann áhyggjur hennar af
þessum , hálfgamla líkama og
smáninni. Það var ekkert sem
hann gat gert: konan. sem hann
hafði þekkt árum saman og
elskað ofsalega í mörg ár, var
horfin — nema röddin og dauf-
ur sedrusilmurinn. Gleymdu
henni, hugsaði hann, gleymdu
henni og sjáðu ögn eftir
henni .. En ekkert gramdist
honum meira en að hann væri
grunaður um að vorkenna henni.
Þótt hlægilegt væri — þótt hann
væri hlægilegur — þá vildi
hann heldur meta hana mikils.
Ekki fyrir neitt sem hún gat
veitt honum — hvað gat hún
veitt honum annað og meira en
hver annar skikkanlegur kven-
maður? Meta hana fyrir það
sem hann gat veitt henni. Ná-
vist mína að borði og sæng,
hugsaði hann og brosti: enn hef
ég kropp og allt sem honum
fylgir og tungu í höfðinu.
— Æjá, sagði hann næstum
reiðilega. Þú getur reitt þig á,
að við eigum eftir að vinna og
þræla og njóta þess. Trúirðu
mér?
Honum til undrunar og gleði
gaf hún frá sér djúpa, hrjúfa
hláturinm en hann hafði hann
ekki heyrt langalengi. Já, já.
— Langar þig ekki til að vita
50
hvert við erum að fara? spurði
hann.
— Þú sagðir — Marseilles.
— Þú hefur þó ekki haldið að
við ættum að setjast þar að?
Við getum farið hvert sem vera
skal, allar leiðir eru opnar —
en við byrjum í Grikklandi.
Hvað segirðu um það? Ef til vill
setjumst við þar að. Hann hló.
Kennum þeim að búa til mat.
Þau voru komin að armagn-
acinu Ef ég drekk meira, sagði
Lotta, þá drekk ég alltof mikið.
— Vitleysa.
— Það er satt. Hún stóð upp.
Ljúktu við það sjálfur. Ég ætla
í rúmið.
— Allt í lagi. Ég kem þegar
búið er úr flöskunni.
Hann horfði á eftir henni.
Þegar allar venjulegar ástæður
til samlífs voru úr sögunni,
þegar hann nyti þess ekki leng-
ur að sofa hjá hennij teygði úr
sér f sólskintoa og Srykfe^ þá
var hann viss um að eftír yrði
einhver taug á miHi þeirra,
sterk, dálítið hlægileg, eins og
hann var sjálfur, en alla vega
óslítanleg.
Þau yfirgáfu húsið — sem ekki
var lengur Hotel Modeme Ar-
istide, heldur traustlegt, dálítið
subbulegt hús sem beið s,útlend-
ingsins“ — nokkru eftir klukkan
fimm. Litlaus birta fyllti götur
þorpsins. Michal var rólegur og
hress í bragði. þrátt fyrir stutt-
an svefn. Hann mundi eftir lo£-
orði sínu við Englendinginn og
í stað þess að beygja til vinstri
af torginu, sneri hann til hægri.
Þröngi, grýtti stígurinn sem lá
upp að húsi Leightons var and-
spænis gamla grjótnáminu: tré
skýl^u lágu húsinu og hið fyrsta
sem hann sá, þegar hann ók upp
að trjánum, var gamli svarti
Peugeotbíllinn hans Bertins
læknis. Hann stóð fyrir framan
útidymar og hafði verið skilinn
'eftir opinn.
Miohal stöðvaði bílinn en fór
ekki út. Hann beið rólega og
undrunarlaust. Ahmed kom út í
dyrnar. Hann stóð þar stundar-
kom og lyfti handleggjunum,
svo að lófamir á grönnum,
höndunum vissu upp, og lét þá
síðan falla niður.
— Ætlarðu inn? spurði Lotta?
— Nei. Hann fór að snúa
bílnum. Nei. við skulum halda
áfram.
ENDIR
4696 — Dúfan hefur fallið niður í húsagarðinn og Mustafa tek-
ur bréf undan væng hennar sigri hrósandi. Það var þá þetta
sem stúlkumar biðu eftir! Þetta er bréf frá Hassan prins, Must-
“a les það, þungur á brúnina. „Margir ættflokkar trúir kon-
unginum .... Floti á hafinu ....“ Það er þá satt, að pilturinn
sé með einhverjar áætlanir á prjónunum .... Sendir föngunum
bréf .... ÖþolandiH Og í kastalanum hljóta þá að vera svikarar
sem hjálpa til! Gamla kerlingin!! Hana verður að reka héðan
tafarlaust!
SKOTTA
9 / / ((. / V
Eruð þið alveg vissar um að pabbar ykkar borgi þetta seinna?
FRÁ ,
SOVETRIKJUNUM
REYNSLAN
HEFUR
SANNAÐ
GÆÐIH
Húsasmíðameistarar
Aðalfundur Meistarafélags húsasmiða verður hald-
inn laugardaginn 5. marz kl. 2 e.h. i Skipholti 70.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjómin.
HIOLBARÐAR