Þjóðviljinn - 12.03.1966, Blaðsíða 13
Laugardagur 12. marz 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA J3
OPiÐ BRÉF
Framhald af 4. síðu.
búi ekkert annað undir en að
ljúka þurfi skýrslunum, hann
skuli bara koma. Hann gaf
hins vegar enga skýringu á,
hvers vegna hann hafi nýlega
samið um mætingartíma, fyrst
hann gat raunverulega engu
um hann ráðið.
Sonur minn snýr sér nú aft-
ur að sendimönnunum og innjr
þá eftir því hvort þeir hafi
meðferðis handtökuskipun.
Sendimenn segjast enga hand-
tökuskjpan hafa. Hennar þurfi
heldur ekki við. Hér sé ekki
um neina handtöku að ræða,
aðeins boðun til skýrslugjafar,
og þeir endurtaka það sem
Kristján hefur áður sagt, að
hann muni strax fluttur aft-
ur á vinnustað þegar hann hafi
gefið skýrsluna. Sektin komi
hér ekki málinu við, enda muni
frestur fást á henni. Af tor-
tryggnisleysi unglingsins, lét
Sonur minn freistast til að taka
þetta trúanlegt og fór.
Þegar til bækistöðva saka-
dóms kemur, er sonur minn
leiddur fyrir Torfa Jónsson,
lögregluþjón, sem tók af hon-
um skýrslur um tvo smávægi-
lega bifreiðaárekstra. Þá er
honum vísað í annað herbergi,
þar sem ungur maður, sem
hann ekki þekkti með nafpi,
tekur að yfirheyra hann um
stöðumælakærur á bifreið þá
er ég á, og að síðustu um kæru
fyrir of hraðan akstur, á 90
km hraða, á Reykjanesbraut,
þegar sonur minn ók bílnum.
Af eðlilegum ástæðum neitaði
hann að þar væri rétt með far-
ið. Sagði maðurinn þá að mál-
ið yrði að fara til rannsóknar-
lögreglunnar. Yfirheyrslum var
þar með lokið.
Sonur minn bjóst nú til að
fara, eins og um hafði verið
talað. En því var ekki aldeilis
að heilsa. Nú skyldi hann fá að
heilsa upp á sektainnheimtuna.
Þar er fyrir kona, sem virð-
ist hafa æðstu völd. Hún mun
heita Ingveldur Ingólfsdóttir.
Hún heimtar að hann greiði nú
þessa sekt, sem áður getur, kr.
l.OOO.oo. Sonur minn segir frá
ástæðum sínum, hann hafi ver-
ið veikur í 6 mánuði, og hafi
því ekki getað greitt. Hann
kveðst ekki eiga fyrir sektinni
í svipinn og biður um frest til
næsta föstudags. Vitnar einnig
í símtal það, er hann hafi áð-
ur átt við sakadóm, svo og
í vjðtöl sín vjð Kristján Sig-
urðsson og hina boðunarmenn-
ina. En Ingveldur Ingólfsdótt-
ir virðist ekki vera veik fyrir
rökum. Hér yrði engrar undan-
komu auðið. Sektin skyldi
greiðast þama og á stund-
inni, annars yrði hann að af-
plána bana.
Sonur minn biður nú um
síma. Segir að trúlega muni ég
greiða sektina, ef hann aðeins
fái að gera mér aðvart. En
Ingveldur Ingólfsdóttir er ekki
upp á það komin að leyfa hon-
um að nota síma. Ekki einu-
sinni til að fá sektina greidda. i
Sonur minn segist verða að fá:
að láta vita af sér, að minnsta
kosti. En Ingveldur Ingólfs-.
dóttir segir, að það geti hann
gert, þegar hann sé kominn í
hegningarhúsið. Þar geti hann
fengið að nota síma og einnig
geti hann greitt sektina þar,
hér sé ekki biðstofa eða síma-
þjónusta. Ingveldur Ingólfs-
dóttir bendir því næst lög-
regluþjónum að taka son minn,
og þeir fluttu hann í hegning-
arhúsið, eins og fyrr er sagt.
Þar með er sagan öll, — að
sinni. Enn er þó eftir að upp-
lýsa hver beri ábyrgð á öllu
þessu, og hvaða skýrsla það
var, sem átti eftir að taka, sem
var svona mikilvæg. Einnig er
enn óupplýst, hvort íslenzk lög
og réttarvenjur geri ráð fyrir
slíkum aðferðum við unglinga.
Ég geng hinsvegar út frá því
sem vísu, að hér sé ekki um að
ræða neinar sérstakar ráðstaf-
anir gegn syni mínum. Held-
ur sé þessi saga aðeins eitt
dæmi af mörgum um það,
hvernig íslenzka réttarríkið fer
að því að innræta yngstu þegn-
um sínum virðingu fyrir lög-
unum og þjóðfélaginu, fyrjr
heiðarleika og mannhelgi. Ég
hefi því talið mér skylt að
segja þessa sögu í smáatrið-
um, eins skilmerkilega og mér
er unnt, og ennfremur að
reyna að sjá til þess, að hún
komist fyrir almenningssjónir.
Að lokum, herra dómsmála-
ráðherra, fáeinar spurningar
óbreytts og ólö'glærðs þegns,
sem ég væntj að þér séuð mér
samihála um að séu þýðjngar-
mjklar, bæðj fyrir hvern ein-^
stakling o,g fyrjr þjóðfélagig í
heild, að réttlætanlegt sé að
fórna broti af yðar dýrmæta
tíma til að svara, svo að ekki
verði um villzt:
1. Hvaða reglur gilda um
starfsmenn löggæzlunnar. Er
þeim heimilt eða til þess ætl-
azt af þeim, að þeir beiti að-
eins þeim aðferðum í starfi,
sem að þeirra eigin dómi,
hvers og eins, hæfi bezt, eða
þeir kunni að kjósa að nota
hverju sinni?
2. Teljið þér, að það sé til
þess fallið að skapa virðingu
fyrir lögum og rétti, að fyrstu
kynni unglinga af starfsmönn-
um löggæzlunnar séu þau, að
orðum löggæzlumanna megi !
ekki treysta?
3 Teíjið þér, að Það muni
hafa jákvæð áhrif á hegðun
unglinga, og þá á afstöðuna til
réttvísinnar á komandi tímum, '
að meina unglingum að sækja
fé til greiðslu sekta, eða að
hafa samband við aðstandend-
ur sína, en leggja í staðinn
allt kapp á að koma þeim und-
ir lás og slá?
4. Teljið þér það til þess
fallið að skapa jákvæða af-
Útíör móður okkar
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Þórsgötu 7,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. marz kL
1.30. — Blóm vjnsamlega afþökkuð.
Árný Guðmundsdóttir
Elín Guðmundsdóttir
Helgi Guðmundsson.
Þökkum innilega hina miklu samúð, okkur auðsýnda,
við andláíi' og útför sonar okkar, unnusta og bróður
BIRGIS VESTMANNS BJARNASONAR,
Háholtj 19, Akranesi.
Ásta
Bjarai Jónsson Ósk Axelsdóttir
og systkinjn.
stöðu unglinga til laga og rétt-
ar, og að það muni verða til
að fækka afbrotum, að starfs-
menn löggæzlunnar, allt frá
lögregluþjónum til dómara,
keppist við að sýna ungling-
unum vald sitt við hvert tæki-
færi?
5. Teljið þér að það muni
hafa jákvæð uppeldisáhrif á
unglinga, að dómari láti loka
þá inni til þess eins að hafa
þá við höndina. til ómerki'legr-
ar skýrslugerðar, t.d. vegna
neitunar á að samþykkja kæru
lögregluþjóns fyrir að hafa ek-
ið með 90 km hraða á Reykja-
nesbraut?
6. Hvert er sjónarmið ís-
lenzks réttarfars gagnvart ung-
lingum. Er það að skapa ótta,
eða er það að skapa aðhald,
með uppeldissjónarmið fyrir
augum. Hvort sjónarmiðið telj-
ið þér vænlegra til árangurs?
7. Hefur íslenzkur dómari
rétt til að fyrirskipa neitun á
viðtöku sektarfjár, og að af-
plánun skuli koma í stað
greiðslu?
8. Leyfir íslenzkt réttarfar
að mönnum sé haldið í fang-
elsi, t.d. vegna væntanlegrar
skýrslugerðar, án þess að hand-
tökuskipun eða dómsúrskurður
um það sé birtur viðkomanda?
9. Er löglegt, eða til þess
ætlazt, að mönnum sé fyrir-
munað að afla sér réttargæzlu,
eftir að þeir hafa verið settir
í fangelsi?
10. Gerir íslenzkt réttarfar
ráð fyrir bótum til manna er
verða kynnu fyrir misbeitingu
dómsvaldsins?
Virðingarfyllst
Guðlaugur E. Jónsson,
Heiðargerði 116,
Reykjavík
Meðfylgjandi er afrit af bréfi
mínu til Þórðar Björnssonar,
yfirsakadómara, vegna þessa
máls.
Yfirlýsing
Framhald af 9. síðu.
slökkviliðsstjóra, hr. Gunnari
Si’gurðssyni á, sem opinberum
og ábyrgum starfsmönnum að
láta ekki hafa eftir sér um-
mæli, sem geta skaðað heiður
manns. — Og einnig vil ég
benda þeim á. að vegna um-
mæla þeirra hafa þeir gerzt
ábyrgir að röngum ummælum
í nokkrum daigblöðum. sem
varða mig, og hljóta þeir uð
verða að taka afleiðingum af
því.
Kópavogi, 9. marz. 1966
Páll M. Jónsson.
Vottorð byggingarfulltrúans.
I
Á fundi byggingamefndar |
Kópavogs sem haldinn var 26. j
9. 1957, var Páli Jónssyni veitt
byggingarleyfi fyrir viðbygg-
ingu úr timbri við áður byggt
verksmiðjuhús að Álfhólsvegi
11, Kópavogi. — Viðbyggingu
þessa byggði hann samkv. á- I
kvæðum byggingarsamþykktar '
en á þessu tímabili var ég
undirritaður byggingarfulltrúi
bæjarins.
7/3 1966
Virðingarfyllst,
Einar Júliusson.
(sign).
Sfíumavélaviðíyorðir
Ljósmvmíavéla-
viðererðir
— FLJÖT AFGREIÐSLA —
S Y L G J A
Laufásvegj 19 (bakhús)
Sími 12656
Sænskir
sjóliðajakkar
nr. 36 - 40.
PÓSTSENDUM.
ELFUR
Laugavegj 38
Snorrabraut 38
SMÁAUGLVSINGAR
HITTO
HióEfoerSovfðgerSir
CMMÐ ALLA DAGA
(LÍKA LAUGARDACA
OG SUNNUDAGA)
FRAKL8TIL2Z.
Cúmznívinnustofan L/f
SfcipboW 35, avkwvíL
Skrifsíofan:
Verkstæðið:
SlMl 3-10-55
SÍMl 3-06-88
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
BRIDGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstrl.
BRl DGESTON E
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
Skólav'órðustíg 36
Símf 23970.
INNHEIMTA
LÖOFXÆOl&Tðtir
Ryðverjið nýju bif-
reiðina strax með
TECTYL
Súnj 30945.
Frá Þórsbar
Seljum fast fæði
(vikukort kr. 820.00)
Einnig lausar mál-
tíðir.
Kaffj og brauð af-
greitt allan daginn.
ÞÓRSBAR
Sími 16445.
SÆN G U R
Endumýjum gömlu sæng.
urnar eigum dún- og fið-
urheld ver æðardúns- og
gæsadúnssængur og kodda
aí vmsum stærðum.
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Simi 18740.
(Örfá skref frá Laugaveigi)
Stáleldhúshúsgögn
Borð
Bakstólar
Kollar
fcr 950.00
- 450.00
145.00
F omverzlunin
Grettisgötn 31
EYJAFLUG
MES HELGAFELLI NJÓTHB ÞÉR
ÓTSÝNiS, FUÓTRA
OC ÁNÆGJUIEGRA FLUGFERDA.
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
£/Gr~
SÍMARr
VESTMANNAEYJUM 1202
REYKJAVÍKURFLUGVElll 22120
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu
sængina. — Eigum
dún- og fiðurheld
ver.
NÝJA FIÐUR-
HREINSUNIN
Hverfisgötu 57 A
Sími 16738
JAPÖNSKU NinO
HJÓLBARDARNIR
i flestum stærðum fyrirliggjancii
I Tollvörugeyinslu.
FUÓT AFGREIDSLA
DRANGAFELL H.F.
Skípholfi 35 — Sfmi 30 360
BIFREIÐA
EIGENDUR
V atnskassaviðgerðir.
Elementaskipti.
Tökum vatnskassa úr
og setjum í.
Gufuþvoum mótora
o fl.
VATNSKASSA-
VERKSTÆÐIÐ
Grensásvegi 18,
sími 37534.
B I L A -
LÖKK
Grnnnnr
FylHr
Sparsl
Þyanir
Bón
EINKAUMBOÐ
ASGEIR ÓLAFSSON kefldv
Vonarstræti 12 Simj 11075
Dragið ekki að
stilla bílinn
■ MÖTORSTILLINGAB
■ HJÓLASTILLINGAR
Sfciptum um fcerti og
olatinur o Q.
BÍLASKOÐUN
Sfcúlagötu 32 9imj 13-100
Pússningarsandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allai gerðiT ai
Dússningarsandj beim-
Quttum og blásnum lnn
Þurrfcaðar vikurplötui
og einangruTiarplast
Sandsalan við
Fll’ðavog s.f.
Elliðavagt 115 slmi 36120
VQ lR 'Vísx+xuJ'er? frejzt
aBrmmmsassrm
$
«
*