Þjóðviljinn - 24.04.1966, Side 12
Sovézkur
óœtlana-
frœðingur
heldur
fyrirlestur
I dag kemur hingað sov-
ézkur sérfræðingur í áætl-
anahagfræði, dr. Alexander
Anítsjkín. Anítsjkín starfar
við Rannsóknarstofnun um
efnahagsmál á vegum Rík-
isáætlunar Sovétrikjanna.
Anítsjkín heldur fyrir-
lestur um efnahagsmál á
vegum MfR í Mír-salnum,
Þingholtsstræti 27 á þriðju-
dagskvöld kl. 20.30.
SjálfstæB afstaða reyndist
Framsóknarflokknum ofraun!
□ Lögð hafa verið fram á Al-
þingi nefndarálit um tillögu
þriggja Alþýðubandalagsþing-
manna um endurskoðun á aðild
Islands að Atlanzhafsbandalag-
inu, og leggur minnhluti utan-
ríkismálanefndar Einar Olgeirs-
son til að tillagan verði sam-
þykkt. Undir álit meirihluta, sem
leggur til að tillagan verði felld,
skrifa hinsvegar fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, Alþýðuflokksins
og Framsóknar í utanríkismála-
nefndinni, og hefur Morgunblað-
ið sérstaklega fagnað því að sam-
staða „lýðræðisflokkanna“ um
hemaðarbandalagið sé óhogguð.
□ í nefndaráliti sínu skýrir Ein-
Erindi um mébergs-
fjöllin og Surtsey
Hið íslenzka náttúrufræðifé-
Iag heldur fræðslusamkomu í há-
tfðasal Háskólans mánudaginn
25. apríl kl. 20.30. Þar heidur
Guðmundur Kjartansson, jarð-
fræðingur erindi, sem hann nefn-
ir Móbergsstapar og Surtsey.
Iðja segir
upp
samningum
Iðja, féiag verksmiðjufólks
i Reykjávík, samþykkti ný-
lega á félagsfundi að segja
upp samningum sínum við
atvinnurekendur, en þeir
falla úr gildi 1. júní n.k. A
fundinum var kosin samn-
inganefnd, sem hefur það
verkefni fyrst að gera upp-
kast að kxöfum félagsins og
leggja það íyrir félagsfund.
1 nefndinni eiga sæti Alda
Þórðardóttir, Bjöm Bjama-
son, Guðjón Sigurðsson, Guð-
mundur Þ. Jónsson, Ingi-
mundur Erlendsson og Jör-
undur Jónsson.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Móbergsstaparnir og móbergs-
hryggirnir hafa löngum verið
jarðfræðingum, íslenzkum sem
erlendum, mikið umhugsunar-
efni, enda hafa ótal kenningar
um uppruna þeirra komið fram.
Árið 1943 setti Guðmundur
Kjartansson fram þé kenningu,
að móbergsfjöllin væru hlaðin
upp í eldgosum undir jöklum á
jökulskeiðum ísaldarinnar, og
hafa flestir, sem síðan hafa unn-
ið að athugunum á móbergsfjöll-
um, hallazt að skýringum Guð-
mundar á uppruna þeirra.
Er leið á Surtseyjargosið, varð
Ijóst að því svipaði um margt
til eldgesa undir jöklum, og
myndi það því verða prófsteinn
á kenningu Guðmundar um upp-
runa móbergsfjallanna.
I erindinu mun Guðmundur
Kjartansson gera grein fyrir hin-
um ýmsu kenningum um upp-
runa móbergsfjallanna, og þá
einkum móbergsstapanna, og gera
samanburð á myndun þeirra og
upphleðslu Surtseyjar-
ar Olgeirsson svo frá afstöðu
í nefndinni, að fulltrúar Fram-
sóknarflokksins hafi setið hjá
við atkvæðagreiðslu um málið
og gefur Morgunblaðið i skyn
í gær að þar muni rangt skýrt
frá. Af því tilefni gefnu þykir
rétt að birta eftirfarandi atriði
úr fundargerð utanrikismála-
nefndar, frá fundinum 14. apríl,
í Þórshamri, þegar málið var af-
greitt úr nefndinni. Þar segir
orðrétt, eftir að rakin hafa ver-
ið efnislega ummæli Emils
Jónssonar, Sigurðar Bjarnasonar
og Einars Olgeirssonar:
□ „Fleiri tóku ekki til máls og
var tilagan borin undir atkvæði
á þann hátt hvort nefndin ætti
að mæla mcð hcnni eða ekki.
Við atkvæðagreiðslu reyndist eitt
atkvæði með því, að nefndin mælti
með afgreiðslu tillögunnar, en
fjögur atkvæði voru greidd á
móti þessu. Tveir nefndarmenn
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Niðurstaðan varð því sú af
atkvæðagreiðslunni, að meiri-
hluti nefndarinnar er andvígur
tillögunni og leggur til að hún
verði felld.
Sigurður Bjarnason spurði,
hvort fulltrúar Framsóknarflokks-
ins vildu gera athugasemd. Eng-
inn kvaddi sér hljóðs.
Niðurstaða málsins varð sú að
ncfndin skiptist í meiri hluta
og minni hluta og var ákveðið
að Sigurður Bjarnason skyldi
vera framsögumaður meirihlut-
ans“.
□ Fundargerðin staðfestir það
sem Einar Olgeirsson segir í
nefndarálitinu, að fulltrúar
Framsóknarflokksins ' sátu hjá
við afgreiðslu málsins í utan-
ríkismálanefnd. Einhvers staðar
á leið frá nefndarfundi til prent-
unar nefndarálitsins hefur þó
hin „lýðræðislega samstaða“
orðið yfirsterkari löngun Fram-
sóknarþingmanna til sjálfstæðrar
skoðunar og þeir undirritað í
auðmýkt.
□ Hins vegar hefðu verið hæg
heimatökin fyrir Morgunblaðið
að fá upplýsirjgar um afgreiðsl-
una í nefndinni. Því formaður
utanríkismálanefndar er líka rit-
stjóri Morgunblaðsins.
Sunnudagur 24. apríl 1966 — 31. árgangur — 91. tölublað
Listí Alþýðubanda-
lagsins í Carðahreppi
Piltarnir er létust
voru 17 og 18 ára
15 ára stúlka liggur þungt haldin
■ Eins og frá var skýrt hér í blaðinu í gær varð
hörmulegt bifreiðarslys í Vestmannaeyjum aðfaranótt sl.
föstudags og létust tveir ungir piltar af afleiðingum þess
en kornung stúlka liggur þungt haldin á sjúkrahúsi hér
í Reykjavík og auk þess liggja piltur og stúlka í sjúkra-
húsi Vestmannaeyja minna meidd.
Fylkíngin
Munið hið vinsæla síðdegis-
kaffi í dag kl. 4. Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur g?sti.
Þjóðvjljinn fékk í gfer nán-l
ari upplýsingar um slysift hjá
yfirlögregluþjóninum í Vest-
mannaeyjum oe fer frásögn
hans hér á eftir: )
Aðfaranótt sl. föstudags um
kl. 1.40 varg harður árekstur
bifreiða á Heiðarveginum í Vest-
miannaeyjum, lítilli Volkswagen-
bifreið var ekið undir paii á
kyrrstæðri vörubifreið.
Fimm manns voru í Volks-
údýr skómarkaður
á tveim hæðum í Kjörgarði
KARLMANNASKÓR, margar gerðir.
Verð frá kr. 240,00.
KVENTÖFFLUR og inniskófatnaður kvenna.
í fjölbreyttu úrvali. — Verð frá kr. 98,00.
KVENSKÓR, margar gerðir. — Verð frá
kr. 198,00.
Tökum upp í fyrramálið GOMMISKÓ með
hvítum botni. Stærðir 25 — 39.
Verð: kr. 65,00 til 80,00.
Kynnið yður þennan ódýra skómarkað á
tveim hæðum í Kjörgarði.
EITTHVAÐ FYRIR ALLA.
SKÓMARKADURINN Kjörgarii
Skómarkaður á tveim hæðum. — Laugavegi 59.
wagenbifreiðinni, allir slösuðust
og voru fluttir í sjúkrahús Vest-
mannaeyja. Þar lézt ökumaður-
inn, Stefán Gi-slason Hásteins-
vegj 36. 17 ára. um kl. 4 um
nóttin-a.
Tvennt af fólkinu, Hörð-ur A.
Si-gmundsson, Hásteinsvegi 38.
18 ár-a, og Sigríður Kolbrún
Ragnarsdóttir, Stórholti 12,
Reykjavík, 15 ára voru flutt
í Landakotsspítalann í Reykja-
vík morguninn eftir, Sjúkraflug-
vél Björns Pálssonar annaðist
flutninginn. Þar lézt svo Hörð-
ur skömmu eftir hádegi á
fös-tud-ag. — Kbibrún liggur í
sjúkrahúsinu þun-gt haldin.
Piltur og stúlka eru í sjúkra-
húsi Vestm-annaeyja miklu minna
slösuð. Bifreiðina má teljia ó-
nýta.
Hallgrímur Sæmundsson.
Elín Hannibalsdóttir.
Þorgcir Sigurðsson.
Listi Alþýðubandalagsins við
hreppsnefndarkosningarnar í
Garðahreppi cr þannig skipaðun
1. Hallgrímur Sæmundsson,
kennari.
2. Elín Hannibalsdóttir, hús-
móðir.
3. Þorgeir Sigurðsson, tré-
smíðameistari.
4. Ragnar Ágústsson, skrifstofu-
maður.
5. Öskar Agústsson, múrari.
6. Hans Rödtang, húsasmiður.
7. Helgi Þorkelsson, vélstjóri.
8. Björg Helgadóttir, húsmóðir.
9. Ólafur Helgason, tollvörður.
10. Högni Sigurðsson, verka-
maður.
Ragnar Ágústsson.
Óskar Ágústsson.
Alúmínmálið
Framhald af 1. síðu.
ræðunum, að í samningum við
Grikkland hefðí alúmínhringur-
inn tryggt sér pólitísk áhrif.
sem hann myndi meta allvemlega
til fríðinda. Svo þeir vissu
hvað til stæði, mennimir sem
væru að gera þessa samnin-ga.
Einar taldi ísky-ggilega®t við
allt m-álið hvemig blöð <>g ræðu-
menn stjómarfiokkann-a reyndu
að S.yll-a það fyrir fslendingum
sem einhverja blessun, sem þjóð-
in aetti að Vera þakklát fyrir,
að erlendum auð-hring væri leyft
að ausa af auðlindum fslands
og græða á islenzku vinnuafli.
Þrátt ifyrir allt yrðj þag af-
drifaríkast, ef innrás hins er-
lenda auðhrings yrði til þess að
smækka þjóðina svo hún íceri
að þakka fyrjr það sem hún
helzt ætti að varast.
★
Þriðju umræðu um alúmín-
m-álið i neðri deild lauk laust
eftir kl. hálf eitt á laugardags-
nóttina. ep atkvæða-g-reiðslu var
f-restað. og fór hún fram á fundi
neðri deildar í gær. Var gert
ráð fyrir að málið yrði tekíð til
1. umræðu í efrj deild í gaer
Enn stórflugslys
ARDMORE OKLAHOMA 23/4 —
Flugvél af gerðinn Lockhccd-
Electra steyptist logandi til jarð-
ar í gærkvöld skammt frá Ar-
more í Oklahomaríki. 98 manns
voru um borð — sex manna á-
hafn og 92 hcrmenn. A3 minnsta
kosti 81 lét lífið og þeir sautj-
án sem af komust eru margir
hverjir í lífshættu vegna bruna-
sára.
Flugvélin var eign leiguflugfé-
lags sem heitir American Flyers
og var á leið til Kaliforniu frá
Georgíu og átti að lenda í Ard-
more til að taka eldsneyti.
Dálítil rigning var og skyggni
um 3 km er flugvélin nálgaðist
flugvöllinn til lendingar og hrap-
aði flugvélin í 5—6 km fjar-
lægS frá flugvelli.
Blaðamenn!
Aðalfundur Blaðamannafé-
lags fslands verður haldinn í
dag. sunnudaginn 24. apríl. í
veitingahúsinu Klúbbnum og
hefst kl. 2 síðdegis Venju'.eg
aðalfundars-törf. Félagar fjöl-
mennið.
Sósíalistafélagsfundur
2£a Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur fé-
lagsfund n.k. þriðjudagskvöld kl. 8.30 í
Tjamargötu 20. Til umræðu: 1. maí.
Félagsmál. — Nánar auglýst í næsta
blaði. — Stjórnin.