Þjóðviljinn - 05.05.1966, Side 12
!
ÁVARP frá Þjóðviljanum
Á síðasta ári sneri Þjóðviljinn sér til lesenda sinna
og greindi þeim frá því að þlaðið ætti við mikla fjár-
hagsörðugleika að etja; væri útgáfa þess í bráðri hættu,
ekki mætti koma til frekari skuldasöfnunar, en því
aðeins væri hægt að komast h'já henni að lesendur
hlypu undir bagga. í framhaldi af þessu ávarpi var
svo haft samband við fólk og kannað hvort það vildi
taka að sér þetta mikla verkefni.
Reikningar síðasta árs sýna að ekki hafði verið gert
of mikið úr örðugleikunum; rekstrarhalli blaðsins varð
um 4 miljónir króna á árinu. En reynsla síðasta árs
sýndi einnig að Þjóðviljinn átti mjög traustan bak-
hjarl meðal lesenda sinna. 'Með fjársöfnun sem fram
fór fyrri hluta árs, happdrættinu síðari hluta árs og
fleiri ráðstöfunum tókst að bjarga rekstri blaðsins, kom-
ast hjá vanskilum og forðast frekari skuldasöfnun. Bar-
áttuhugur og rausnarleg aðstoð stuðningsmanna blaðs-
ins fór fram úr björtustu vonum, og verða þær undir-
tektir ekki þakkaðar svo sem þœr verðskulda.
En hin sigursæla barátta við halla síðasta árs leys-
ir ekki vandann á þessu ári. Til þess að draga úr kostn-
aði hefur Þjóðviljnn neyðzt til þess að hætta útgáfu
Sunnudags, auk þess sem blaðið hefur verið minnkað
smávegis, og er að því nokkur sparnaður. Engu að síð-
ur verður í ár við mikla fjárhagsörðugleika að etja,
ekki síður en í fyrra, og því verður Þjóðviljinn enn
sem fyrr að leita til stuðningsmanna sinna með þá
spurningu hvort þeir hafi getu og vilja til þess að
styrkja reksturinn í ár, eins og þeir gerðu af miklum
myndarskap á síðasta ári. Því verður á næstunni, þrátt
fyrir öll önnur verkefni, leitað til manna á svipaðan
hátt og í fyrra.
Þjóðviljinn hefur alla tíð átt tilveru sína undir stuðn-
ingi lesendanna og unir því; vel. Sú aðstoð er bezta
sönnunin fyrir því að blaðið-á miklu hlutverki að gegna.
!
Mjólkurfélagið byrjar fram-
leiðslu kögglaðs kjamfóðurs
Mjólkurfélag Reykjavíkur hef-
ur nú byrjað framleiðslu á
kögglafóffri fyrir varphænur. Er
Afl i Suðureyrar-
báta í apríl
Suðureyri 3/5 — Afli Suður-
eyrarbáta í apríl var sem hér
segir: Páll Jónsson 133.2 tonn
í 17 legum, Barði 126.9 t í 16
legum, Stefnir 137.4 t í 16 leg-
um, Sif 211.6 t í 18 legum. Frið-
bert Guðmundsson 223.3 t í 10
legum (net) Vilborg 80.6 t í 14
legum og Ölafur Friðbertsson
265.6 t í 11 legum (net).
Árekstur í
Kl. rúmlega átta í gærkvöld
varð árekstur milli mótorhjóls
og bifreiðar á gatnamótum Álf-
heima og Suðurlandsbrautar.
Tveir piltar sem á hjólinu voru,
Jón Þórðarson Skólavörðustíg 16
a. og Viggó Guðmundsson Bú-
staðahverfi 8 meiddust eitthvað
bg voru fluttir á Slysavarðstof-
una.
Fimmtudagur 5. maí 1966 — 31. árgangur
99. tölublað.
Skemmtikvöld Al-
þýiubandalágsins
Kosningaskrif-
stofur Alþýðu-
bandalagsins
utan Rvíkur
AKRANES
í Félagsheimilinu ,,Rein“
Suðurgötu 69 opig 2—7.
Símar 1630 og 2150
VESTMANNAEYJAR
að Bárugötu 9 — Opig 4
tR 7.— Sími ’ 1570.
AKUREYRI
að Brekkugötu 5 — Opið
9—22 — Sími 11516.
HAFNARFJÖRÐUR
í Góðtemplarahúsinu — Op-
ið 5—7 og 8—10. sími 52370.
NESKAUPSTAÐUR
í ,,Tónabæ“ — Opið 5—7
(utan skrifstofutíma hafi
menn samband Við Sigfinn
Karifison j síma 109).
SIGLUFJÖRÐUR
í Suðurgötu 10 — Opið kl,
4— 7, sími 71294
HÚSAVÍK
að Garðarsbraut 52 B (Hús
,,Varða“ h.f.) — síimi 41250
opið alla virka daga frá 8
tþ 10 og laugardaga frá
5— 7
það heilfóður sem inniheldur öll
nauðsynleg næringarefni, sölt,
steinefni og vítamín og Iiarf ekk-
ert annað að gefa hænsunum
nema hreint vatn. Þetta nýja
varpfóður kemur á markaðinn
í dag.
Það 'liggur í augum uppi að
miklu minni fyrirhöfn er við að
gefa þetta fóður ' en annað auk
þess sðm nýting er betri og öll
hænsnin fá sama fóður með svo
fullkominni samsetningu sem
unnt er samkvæmt núverandi
þekkingu. Stuðlar þetta allt að
hagkvæmari rekstri og auknu
varpi.
Verksmiðju- og vörugeymslu-
húsi Mjólkurfélagsins á Lauga-
vegi 164 var lokið sl. ár og hefur
‘félagið þar nú aðalvörugeymslu
sína og fóðurblöndun. Þar hafa
frá því í fyrra verið starfrásktar
fóðurblöndunarvélar af nýjustu
og fullkomnustu gerð, smíðaðar
hjá Biihler.í Sviss og á þessu Blaðamönnum var í gær boðið að skoða fóðurblöndunarverksmiðju
ári bætti félagið svo við köggla- Mjólkurfélagsins og tók Ijósmyndari Þjóðv. A.K. þessa mynd af
pressu frá sama fyrirtæki með tveim starfsmönnum verksmiðjunnar við sekkjun fóðursins.
tilheyrandi útbúnaði. Auk varp- ý
fóðursins sem, byrjað er að
köggla er í ráði að. vinna fleiri
tegundir kjarnfóðurs á sama hátt
og er næsti áfangi að hefja
kögglun svína- og kúafóðurs.
Mjólkurfélag Reykjavíkur verð-
ur 50 ára á næsta ári og eru
félagsmenn þess um 600 talsins,
bændur á svæðinu sunnan
Skarðsheiðar og vestan Hellis-
heiðar að höfuðstaðnum með-
töldum. Formaður félagsins er
ÓJ^fur Bjamason, Brautarholti
og aðrir í stjórn Jónas Magn-
ússon, Stardal, Erlendur Magn-
ússon, Kálfatjörn, Ólafur Andr-
ésson, Sogni og Sigsteinn Páls-
son, Blikastöðum. Framkvæmda-
stjóri er Leifur Guðmundsson.
■ Æskulýðsnefnd Al-
þýðubandalagsins efnir
til skemmtunar í Lídó
föstudaginn 6. maí og
hefst dagskráin kl. 20,30.
Á dagskrá er:
\
■ Ávarp: Svavar Gests-
i son.
■ Karl Guðmundsson
fer með pólitískt spé.
■ Stiginn dans fram eft-
ir nóttu.
■ Kynnir verður Guð-
rún Helgadóttir.
■ í hljómsveitarhléi
munu þeir Atli Heimir
Sveinsson og Árni
Björnsson pipra upp
selskapinn.
■ Um miðnætti flytur
Ömar Ragnarsson gam-
anvísur.
® Allt ungt 'fó'lk er hvatt
til að fjölmenna á
skemmtikvöld Alþýðu-
bandalagsins.
■ Aðgöngumiðar fást á i
kosningaskrifstofu Al-
þýðubandalagsins, bóka-
búðum Máls og menn-
ingar og Kron á morg-
un.
Borgarstjórn / dag á síðasta
fundisínum fyrir kosningar
Ekki enn kominn
ti! meðvitundar
Einn piltanna sem slösuðust
þegar bíl var ekið á hús í Kefla-
vík aðfaranótt 1. maí sl„ Henry
Olsen, Vallagötu 29 Keflavík,
hafði ekki enn komizt til meðvit-
undar þegar Þjóðviljinn spurð-
ist fyrir um Iíðan hans í gær-
kvöld.
Henry er eigandi bifreiðarinn
ar sem piltarnir voru í og sat
við hlið ökumannsins, Einars
Guðjónssonar frá Sandgerði, sem
einnig slasaðist mjög mikið og
komst ekki til' meðvitundar fyrr
en í fyrrakvöld. Er Einar nú tal-
inn úr lífshættu.
Þrír aðrir farþegar voru í
bílnum, Sigurður Baldursson,
Túngötu 20 Keflavík og Sigurð-
ur Friðriksson frá Sandgerði,
sem einnig slösuðust talsvert, en
ekki lífshættulega og liggja nú
á sjúkrahúsi, og Halla Jónsdóttir
Suðurgötu 34 er var sú eina sem
slapp ómeidd.
□ Borgarstjóm Reykjavíkur
kemur saman til fundar í Skúla-
túni 2 kl. 5 síðdegis í dag,
fimmtudag, og verður það vænt-
anlega síðasti fundur borgar-
stjórnarinnar sem kjörin var
fyrir fjórum árum.
□ Á , dagskrá fundarins eru
hvorki meira né minna en 29
mál, mest fundargerðir nefnda
og ráða borgarinnar. Þá verða
kosnir tveir menn í stjórn Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis
og tveir endurskoðendur og fjall-
að um breytingu á lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur.
□ Nokkrar tillögur minni-
hlutafulltrúa eru einnig á dag-
skrá fundarins, m.a. tillaga Al-
freðs Gíslasonar um að settar
verði reglur um, hámarkstölu
vínveitingahúsa í Reykjavfk o.fi.
og tillaga fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins um öflun nægs neyzlu-
fisks fyrir-borgarbúa og fleira.
Alþingi að
Ijúka störfum
Þingdeildirnar luku störfum í
gær og gert ráð fyrir þinglausn-
um í dag. Munu þó fyrst fara
fram nokkrar kosningar, sem
voru á dagskrá í gær, en var
frestað að beiðni þingflokk^aaa.
Þær eru kosning í útvarpsráð,
stjórnir Framkvæmdasjóðs og
Atvinnujöfnunarsjóðs, nefndar
til að „íhuga og gera tillögur
um með hverjum hætti minn-
ast skuli á árinu 1974 ellefu
hundrað ára afmælis byggðar
á íslandi11 nefndar til að athuga
um lækkun kosningaaldurs og
aðrar aldurstakmarkanir laga á
réttindum unga fólksins, og
kosning milliþinganefndar til að
endurskoða lögin um þingsköp
Alþingis.
Drengir fyrir bíl
Á sjöunda tímanum í gærurðu
tveir drengir fyrir bílum,» en
slösuðust ekki hættulega. Stein-
þór Pétursson Lynghaga 18, 5
ára, var að leika sér á hjóli í
Lynghaga þegar hann varð fyr-
ir bíl og. Sigurður Marínósson
Skálholtsstíg 7, 8 ára; var á
reiðhjóli á Laufásvegi.
H-listaskemmtun / Kópavogi
■ Kosningaskemmtun H-listans verður í Félags-
H heimili Kópavogs, uppi, laugardaginn 7. maí
■ kl. 9 eftir hádegi.
® Svandís Skúladóttir flytur ávarp. —- Góð
■ skemmtiatriði.
■ Miðapantanir í síma 41746.
Eldur í heyi
Slökkviliðið var tvisvar kvatt
út í gær, í fyrra sinnið að Bú-
staðabletti 3 þar sem talsverður
eldur var í heyi og í gærkvöld
í Laugarneskamp vegna mikils
reyks í bragga, sem reyndist
vera frá olíuofni en ekki vai* þar
um eld að ræða. 1
Kópavogur
Kosningaskrifstofa Félags ó-
háðra kjósenda er í Þinghól,
opin alla daga frá kl. 1—10
e.h., sími 41746.
1 Kópavogi fer utankjör-
fundarkosning fram í bæjar-
fógetaskrifstofunni að Digra-
nesvegi 10, neðstu hæð, opin
alla virka daga kl. 10—12,
13—15 og 18—20.
Sjálfboðaliðar til starfa á
kjördag og fyrir kjördag eru
einnig beðnir að láta skrá sig
nú þegar £ kosningaskrifstof-
unni.
X H
Frá kosningastjórn Alþýðubandalagsins
□ UTANIKJÖRFUNDARKOSN-
ING stendur yfir. I Rcykjavík
er kosið í gamla Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu, opið alla
virka daga kl. 10—12 f.h., 2—6
e.h. og 8—10 e.h., en á sunnu-
dögum kl. 2—6 e.h.
Úti á landi er kosið hjá öll-
um bæjarfógetum og hreppstjór-
um. Skrá yfir kjörstaði erlendis
og LISTABÖKSTAFI Alþýðu-
bandalagsins er birt á öðrum
stað í blaðinu. Þeir, sem dvelja
fjarri heimilum sínum á kjör-
dag þurfa að kjósa strax, og
eru allir stuðningsmcnn Alþýðu-
bandalagsins beðnir að gcfa
kosningaskrifstofum okkar allar
nauðsynlcgar upplýsingar um þá,
sem fjarverandi eru.
□ KOSNINGASKRIFSTOFUR
Alþýðubandalagsins í Reykjavík,
sem þegar hafa verið opnaðar,
eru í Tjarnargötu 20, opið kl. 9
f.h. til 22 c.h. alla daga, símar
17512, 17511 o.g 24357 og að Lauf-
ásvegi 12 opið kl. 9—19, símar
21127 og 21128. Bá'ðar skrifstof-
urnar veita allar almcnnar upp-
lýsingar varðandi kosningarnar.
í Tjarnargötu 20 er einnig hverf-
isskrifstofa fyrir Vesturbæ inn-
an Hringbrautar og Þingholt.
□ HAPPDRÆTTI og KÖNN-
UNARLISTAR. Allir þeir, sem
fengið hafa senda könnunarlista
eða mi’ða i kosningahappdrætti
Alþýðubandalagsins eru beðnir
að gera skil nú þegar. Á kosn-
ingaskrifstofunum er einnig tek-
ið við framlögum í kosningasjóð
og seldir miðar í kosningahapp-
drættinu, en í því verður dregið
daginn eftir kjördag.
□ SJÁLFBOÐALIÐAR, sem
starfa vilja fyrir Alþýðubanda-
lagið fyrir kjördag og á kjör-
dag eru beðnir að Iáta skrá sig
á kosningaskrifstofunum.
BANDMAGIÐ
□ BÍLAR. Á kjördag þarf
Alþýðubandalagið á að halda öll-
um þeim bílakosti, sem stuðn-
ingsmenn þess hafa yfir að ráða.
Eru bíleigendur sérstaklega beðn-
ir að vera viðbúnir og láta skrá
sig nú þegar til starfs á kjördag.