Þjóðviljinn - 21.05.1966, Blaðsíða 4
4 SfÐA — ÞJÓÐVTLJINN'— Laugardagur 21. maí 1966
TJtgefar.di: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guömundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva’dur J^annesson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Nú er iag
J^osningahátíð. Alþýðubandalagsins í Háskólabíói
í fyrradag var eftirminnilegur atburður, fjöl-
mennasta innisamkoma sem haldin hefur verið hér
á landi; stærsta samkomuhus landsins rumaði eng-
an^ veginn allan þann fjölda sem Jcom til fundarins,
og kom fólk sér þó fyrir hvar sem fæti varð drep-
ið niður, í göngum og stigum. ‘Þfessi mikli áhugi
er í senn til marks um sóknarhug Alþýðubanda-
lagsmanna og stórfellda möguleika í kosningunum
á morgun, ef fast er fylgt eftir. En því aðeins verð-
ur fundurinn fyrirboði um úrslit kosninganna að
menn taki hann sem hvatningu tiL starfa, að hver
einasti Alþýðubandalagsmaður starfi ötullega að
kosningunum í dag og á morgun. Nú er lag, ef
menn kunna að nota það. — m.
Ckki nema ein leið
það er ekki nema ein leið í kosningunum á morg-
un til þess að hnekkja valdi auðmannastétt-
arinnar og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það
er heldur ekki nema ein leið til þess að veita
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
verðskuldaða hirtingu fyrir óðaverðbólgu, ogv dýrtjð
og skipulagsleysi og óstjórn á málefnum þjóðar-
innar. Það er ekki nema ein leið til að hindra nýtt
og stórfellt rán af launastéttunum við álagningu út-
svaranna í sumar. Það er. heldur ekki nema ein
leið til að efla svo áhrif alþýðunnar og framfara-
aflanna í borgarstjórn að mikilvægustu hagsmuna-
málum og brýnustu velferðarmálum borgarbúa
verði sinnt af framsýni og myndarskap. Þessi leið
er efling Alþýðubandalagsins, kosningasigur stjórn-
málasamtaka hinnar róttæku verkalýðshreyfingar
og fjölmennu launastétta, sem eru yfirgnæfandi
meirihluti Reykvíkinga. .
]\ú dugir ekkert kák, engin hálfvelgja, ekki eitt
spor áfram og annað aftur á bak, ekki vinstri
— hægri — hægri — vinstri — sitt á hvað. Hér
þarf á allt öðru að halda en hentistefnu og hringl-
anda. Einungis samstaða fjöldans í verkalýðssam-
tökunum og launþegasamtökunum um Alþýðu-
bandalagið, studd traustu atfvlgi millistéttar og
menntamanna, veitir íhaldsöflum borgarstjórnar
og ríkisstjórnar verðugt og ótvírætt svar, sem ekki
verður misskilið. Fleiri og fleiri gera sér ljóst að
glamur og hávaði þeirra sem stefnulausir eru og
klofnir standa í hverju stórmáli, hrekkur skammt
til árangurs og fylgi við slíka veldur engum
straumhvorfum í borgarmálum eða þjóðmálum. Það
eru verkin sjálf, trúnaðurinn við hagsmuni alþýð-
unnar og heiður þjóðarinnar, sem sker úr um heil-
indi stjórnmálamanna og flokka og hvort þeir eru
trausts verðir. Stuðingur við G-listann, stórefling
Alþýðubandalagsins í kosningunum á morgun, er
ekkert happdrætti sem getur brugðizt að loknum
kosningum, heldur trygging fyrir öruggri varð-
stöðn um hag oa rétt launastéttanna og öflugri
sókn ? ^enningar- og sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar — g,
. i ■
HöfUndur kvæöisins, til hægri, rifjar upp gamlar minningar með Hróifi Þorsteinssyni fyrir nokkrum árum.
AfmæliskveBja
til Hrólfs Þorsteinssonar á Stekkjarflötum í Skaga-
firði 80 ára 21. maí 1966
Vetur beið, en sóttiir síðar
sauðabreiðu í fjalla ranni.
Fórstu heiðar fanna víðar,
færar leiðir vöskum manni.
Meðan dróttir bæi byggja,
blunda rótt. Að jökulsvelli
mjög var sótt, og máttir liggja
marga nótt í Laugafelli.
Öræfin ef til vill þekkja
aldur þinn, Hrólfur, í dag.
En að þú ætlir að hætta
við allt þitt göngulag
Svona ófáar svaðilfarir
sóttir þá án hiks og biðar,
þar sem á við urð og skarir
ísablá í gili niðar.
það telja þau naumast trúlegt
og taka ekki heldur í mál.
Þau eiga þig eins og við þekkjum
frá æsku, líkam og sál.
Gljúfurflug og læki lauga,
leynismugur, þaktar snjónum,
Austurbug og Orrahauga
einatt hugall leiddir sjónum.
Sjötíu hefirðu sumur
^ svbimaö um þeirra beð
og ótal sinhum oftar,
ef allt er talið með. . . , -
En nú skal ég koftia með kvíðling
og kveðja mér betur hljóðs,
víkja í veg norður til þín
á vængjum þessa ljóðs.
Mjallarþiljur hnjúkum hlóðu j
hríðarbyljir, lægð og slakka.
Vetrarkyljur elginn óðu
eftir giljum skýjaMakka. !
-Wí j
Drífur falla. — Dagur skemmstur. j
Dregur í stalla hvítra fanna,
Samt í snjallra flokki fremstur
fórstu — allra gagnamanna.
*
Fylltur þori, fögnuð, trausti
fjalls um skor og heiðarsalinn;
eins á vori, vetri, hausti
valdir sporin þín um dalinn.
Vötnm sungu, hlíðar hlógu,
hnjúkar, tungur, brúnir skriður.
Fossárklungur falli nógu
fleytti þungum straumi niður.
Væri ei skylt á vori nýju j
veður stillt á þínum leiðurn, j
og þú fylltir áttatíu :
— auðnu hylltur — frammi á heiðum.
■
Þá skal óði þessum linna.
Þiýtur glóð 1 bragarlínum.
Óskir góðar áttu að finna
inni í Ijóðastrengjum mínum.
■
Hallgrímur Jónasson.
Sumarkvöld eitt fyrir nokkr-
um árum tjölduðum við Hall-
grímur Jónasson við túnfótinn
á Stekkjarflötum í Skagafirði.
Þegar húsbóndinn, Hrólfur Þor-
steinsson, kom heim sótti hann
okkur og leiddi í bæ sinn —
í dimmri, kaldri norðanboku. í
bae hans þetta kvöld átti ég
eina af þeim skemmtilegu
stundum sem ég gleymi ekki.
— og því eru þessar línur
ritaðar. Þarna kynntist ég gest-
risni og heimili eins og þau
gerðust bezt á liðnum tímum.
Ég var þarna áheyrandinn, og
flaug mörg skemmtileg og
skörp setning milli þeirra forn-
vinanna þetta kvöld.
Hrólfur á Stekkjarflötum er
sá maður sem bezt þekkir há-
lendið norðan Hofsjökuls, kann
þar ótal nöfn er aldrei munu
hafa verið fest á landabréf.
1 fyrstu vorgöngu sína fór
hann 10 ára gamall, og hafi
hann að vanda farið í göng-
urnar í haust hefur það verið
70. gangan hans. Hann .er máð-
ur sem ekki gefst upp iyrr en
í fulla hnefana.
Hrólfur á Stekkjarflötum er
áttræður í dag. Ég þakÉa hon-
um stutt en eftirminnilega
skemmtileg kynni og óska hon-
um hreysti og lífsnautnar lengi
enn. JJ8.
Aigert samkomulag á fundi
þeirra Kosygins og Nassers
KAÍRÓ 17/5 — Algert sam-
komulag virðist hafa orðið með
þeim Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, og Nassers Eg-
yptalandsforseta á fundum
þeirra í Kaíró undanfarna daga,
en opinberri heimsókn Kosyglns
til Egyptalands lýkur á morgun.
Kosygin flutti í dag ræðu á
egypzka þinginu og sagði í henni
að hann væri algerlega sam-
mála Nasser um mat hans á á-
standinu í Jemen, þar sem lýð-
veldissinnar berjast með stuðn-
ingi Egypta gegn konungssinn-
um sem studdir eru af Saudi-
Arabíu. Það stríð hefur nú stað-
ið í fjögur ár.
Þessi yfirlýsing Kosygins vakti
athygli þar sem haft hefur ver-
ið fyrir satt að hann hafi reynt
að halda aftur af Nasser sem
ekki hefur farið dult með þá
skoðun sína að nauðsynlegt
kunni að reynast að ráðast á
þær stöðvar í Saudi-Arabíu sem
konungssinnum berst stuðning-
ur frá. Þykir yfirlýsing Kosy-
gins gefa til kynna að Sovét-
ríkin myndu veita Egyptum
fullan stuðning; ef í hart færi
með þeim og Saudi-Aröbum.
★
í ræðu sem Kosygin flutti i
háskólanum í Kaíró í gærkvöld
fór hann hörðum orðum um
hernað Bandaríkjamanna í Viet-
nam og sagði fréttaritari brezka
útvarpsins að engin ræða hans
í Egyptalandsferðinni hefði feng-
ið betri undirtektir. Kosýgin
sagði að í Suður-Vjetnam værí
engin stjórn, heídur aðeins
nokkrir svikulir hgrforingjar er
lytu í einu og öllu’ldíja Banda-
ríkjanna. Allt friðarhjal Banda-
ríkjastjórnar væri blekking og
aðeins notað sem skálkaskjól
fyrir vfirgang hennar.
— Eftir hverja friðaryfirlýs-
ingu Bandaríkjanna er stríðið
magnað, sagði Kosygin. Sprengj-
ur og benzínhlaur eru ekki til
þess fallin að koma á gagn-
kvæmum skilningi þjóða á milli.