Þjóðviljinn - 21.05.1966, Page 6
0 SlBA — ÞJÖÐVTXjJINN — Laugardagur 2L mai 1366
yUÐMUNDUR VIGFÚSSON
Sigurmöguleikar G-LISTANS eru fyrir hendi
en framlag hvers einstaklings ræður úrslitum
Alþýðubandalagið varð síð-
búnara til kosingabaráttunnar
að þessu sinni en aðrir aðilar,
er að framboðum standa. Til
þess liggja ástæður sem allir
þekkja. Ég hygg að þrátt fyr-
ir þetta hafi Aiþýðubandalag-
inu tekizt að gera Reykvíking-
um þá grein fyrir stefnu sinni,
málefnum og markmiðum að
við megi una. Alþýðubandalag-
ið birti fyrst allra framboðs-
aðila stefnuyfirlýsingu sfna í
borgarmálum, og fyrir henni
hefur verið gerð allítarleg grein
í blaðagreinum, blaðaviðtölum
og á fundum Alþýðubandalags-
ins og í umrseðum í útvarpi.
Einnig hefúr verið gerð grein
fyrir því. sem að áliti okkar
Alþýðubandalagsmanna er
brýnast að breytt verði í stjórn
bg rekstri Reykjavíkurborgar.
Við höfum haldið uppi mál-
efnalegri gagnrýni á störf og
stefnu meirihluta borgarstjórn-
ar og sýnt fram á, að hagsmun-
ir og réttur yfirgnæfandi meiri-
hluta bæjarbúa er fyrir borð
borinn undir stjóm Sjálfstæð-
isflokksins. Við höfum sýnt
fram á að Sjálfstæðisflokkur-
inn stendur á verði um eifika-
hagsmuni fámennra sérrétt-
indastétta og gróðahópa, og að
það eru þessir aðilar sem móta
stefnu og störf flokksins þegar
á reynir, þrátt fyrir gagnstæð-
ar yfirlýsingar við „allar stétt-
ir.“
Við Alþýðubandalagsmenn
höfum í þessari kosningabar-
áttu reynt að sýna fram á og
rökstyðja nauðsyn bess að
vinnustéttir borgarinnar. hvort
sem þær tilheyra verkalýðs-
samtökunum eða samtökum op-
inberra starfsmanna, eigi og
þurfi að standa saman um sín
eigin stjórnmálasamtök Al-
þýðubandalagið, og varast að
skipta liði í marga flokka. Við
höfum sýnt fram á að Alþýðu-
flokkurinn er samvaxinn Sjálf-
stæðisflokknum og að Fram-
sókn er klofin og óheil í flest-
um málum og nánast stefnulaus
í borgarmálum. öll rök hníga
að því að alþýðustéttir borg-
arinnar studdar atfylgi milli-
stéttar og framsækinna og
þjóðlegra rpenntamanna veiti
Alþýðubandalaginu stuðning á
sunnudaginn og geri það að
enn áhrifaríkari aðila í borg-
armálum en það hefur áður
verið.
Ég tel að Aliþýðubandalagið
geti verið ánægt með undir-
tektir borgarbúa í kosningabar-
áttunni og þá athygli sem starf
þess hefur vakið. Alþýðubanda-
lagið hefur haldið stærstu
kosningafundina í þessari kosn-
ingabaráttu. Það var húsfyllir
á fundinum i Austurbæjarbíói
12. maí, um 900 manns, er
hlýddu með athygli á ræður
frambjóðenda og vottuðu þeim
ágætar undirtektir. Þá hafði
enginn annar fundur verið
haldinn í Reykjavík með slíku
fjölmenni.
Menningarsamkoma G-list-
ans í Háskólabíói s.l. fimmtu-
dag 19. maí skipar sérstakan
sess í kosningaundirbúningi á
íslandi. Þar komu fram auk
þeirra er ávörp fluttu. fjöldi
beztu listamanna borgarinnar,
Reykvíkingar svöruðu þessu
, framtaki Glistans og ágætu
framlagi listamannanna með
því að gera meir en troðfylla
þetta stærsta samkomuhús á Is-
landi. Fjöldi manna varð frá
að hverfa vegna skorts á hús-
rými. Fundinn sóttú um 2000
manns. Er það tvímælalaust
langsamlega fjölmennasta sam-
koma, sem nokkur stjómmála-4>
samtök hafa haldið innanhúss
á Islandi. bæði fyrr og síðar.
Við Alþýðubandalagsmenn
erum þakklátir bæði listafólk-
inu, sem þama kom fram á
frábænan og pgleymanlegan
hátt, og einnig þeim óvenju-
lega mannfjölda. er samkom-
una sótti. Slíkt er mikil upp-
örvun og hlýtur að hvetja til
framtaks og atorku í þágu þess
málstaðar sem Alþýðubanda-
lagið berst fyrir.
Enginn efi er á því að grund-
völlur G-listans í Reykjavík er
góður og miklir möguleikar til
að ná árangrí sem um munar
og straumhvörfum getur valdið
í borgarmálum og landsmálum.
Hér veltur þá allt á tvennu:
Áfram — ruslið á sorphaugana!
1 fýrsta lagi nægri glöggri
íhugun, dómgreind og skörpum
skilningi borarbúa almennt.
Og þá fyrst og fremst skiln-
ingur hinna fjölmennu laun-
þegastétta í borginni, á ríkri
nauðsyn þess að hnekkja ofur-
valdi afturhalds og fésýsluafla
Sjálfstæðisflokksins, með því
að fylkja sér af einhug og festu
um Alþýðubandalagið, um
G-listann.
Launþegarnir í Reykjavík
eru þrír fjórðu af öllum íbú-
um bórgarinnar. Samstaða
þeirra er afl sem um munar
og ekkert fær staðizt. Og þeir
þurfa nú sjálfir á þessari sam-
stöðu að halda fremur en
nokkru sinni fyrr.
Hitt atriðið er starf og fram-
Iag allra Alþýðubandalags-
manna og allra stuðningsmanna
G-listans fram að kjördegi og
á kjördaginn sjálfan. Geri hver
einstakur allt sem I hans valdi
stendur fyrir G-Iistann, noti
hver einasti stuðningsmaður
listans hverja stund og hvert
tækifæri til að afla honum
nýrra stuðningsmanna, nýrra
kjósenda, þá efast ég ekki um
að undan lætur og þeim ár-
angri verður náð sem eftir
verður tekið.
Ég vil hvetja alla stuðnings-
menn G-listans til dugmikils
og drengilegs starfs í þágu
sameiginlegs málstaðar. Látum
ekkert atkvæði fara forgörðum
sem unnt. er að tryggja G-list-
anum. Störfúm öll ötullega
fram að kjördegi pg allan kjör-
daginn á enda. Aðeins með
slíku persónulegu framlagi. og
um leið sameiginlegu átaki
allra, tryggjum við G-Iistanum
þann sigur, sem hagsmunir
alþýðunnar og málstaður Al-
þýðubandalagsins þarf nú á að
halda.
Guðmundur Vigfússon.
Kosningaskrif-
stofur Alþýðu-
bandalagsins
utan Rvíkur
AKRANES
í Félagsheimilinu ,,Rein“
Suðurgötu 69 opið 2—7.
Símar 1630 og 2150.
VESTMANNAEVJAR
að Bárugötu 9 — Opið 4
til 7— Simi 1570.
AKCREYRl
að Brekkugötu 5 — Opið
9—22 — Sími 11516.
HAFNARFÍÖRÐUR
1 Góðtemplarahúsinu — Op-
ið 5—7 og 8—10. sími 52370.
NESKAUFSTAÐUR
i ,,Tónabæ“ — Opið 5—7
(utan skrifstofutíma hafi
menn samband við Sigfinn
Karlsson i síma 1091.
SIGLUFJÖRÐUR
í Suðurgötu 10 — Opið. kl.
4—7, símj 71294
HÚSAVÍK
að Garðarsbraut 52 B (Hús
,,Varða“ h.f.) — sirni 41250
opið alla virka d.aga frá 8
til 10 og laugardaga frá
6—7.
Haraldur Ó. Leonhardsson
F. 11. nóv. 1914 —- D. 13. maí 1966
Haraldur Ó. Leonhardsson er
látinn. Hann lézt eftir stutta
legu á Borgarspítalanum hér í
bænum 13. þ. m.
Fráfall hans bar að með svo
sviplegum hætti, að við vinir
hans, ekki sízt skólasystkini úr
Verzlunarskólg íslands, áttum
erfitt með að trúa þessari
fregn, því að við höfðum að-
eins fyrir fáum dögum komið
saman til að minnast þess, að
30 ár eru liðin síðan við út-
skrifuðumst úr skólanum.
Halli, — en svo kölluðum
við hann jafnan — var þar á
meðal okkar glaður og reifur
og tók sinn venjulega þátt í
félagslífinu, hélt þar meira að
segja ræðu sem dúx bekkjar-
ins.
Haraldur Óskar Leonhards-
son var fæddur að Nýja-Kast-
ala á Stokkseyri 11. nóv. 1914.
Foreldrar hans voru hjónin
Leonharður Sæmundsson söðla-
smiður og kona hans Krist-
björg Gísladóttir. Þau hjón
voru af vel þekktum bænda-
ættúm þar eystra. Leonharður
var fæddur 15. sept. 1866 að
Grákletti í Villingaholtshreppi.
Gráklettur var hjáleiga frá
Hróarsholti. Foreldrar hans
voru hjónin Sæmundur Guð-
mundsson, sem var sonur Sig-
ríðar Sæmundsdóttur á Vatns-
enda og fyrri manns hennar,
en kona Sæmundar var Guð-
rún Lénharðsdóttir, Þorsteins-
sonar, bónda aö Syðra-Velli i
Gaulverjabæ, Jónssonar, bónda
í Meðalholtshjáleigu í sömu
sveit. Leonharður lézt hér í
bænum 3. marz 1950.
Kristbjörg var fædd 31.
ágúst 1874 að Syðri-Nýjabæ í
'Þykkvabæ. Hún var dóttir
hjóna þar, Gísla bónda Ólafs-
sonar, Ormssonar, og seinni
konu hans Ástu Einarsdóttur,
frá Hrauk 1 Vestur-Landeyj-
um, Þorleifssonar. Kristbjörg
lézt hér í bænum 23. desem-
ber 1953.
Haraldur ólst upp með for-
eldrum sínum og systkinum á
Stokkseyri til ársins 1930, að
fjölskyldan fluttist til Reykja-
víkur. Systkini Haralds voru
þessi:
1. Sæmundur Leonhardsson,
sjómaður. Bjó á Barónsstíg 31.
Lézt 30. marz 1951. Hann var
kvæntur Hansínu Scheving,
sem lifir mann sinn.
2. Ásta Sigurðardóttir, sem
er gift Friðfinni Finnssyni,
kaupmanni Oddgeirshólum í
Vestmannaeyjum. /
3. Valdimar Leonhardsson,
bifvélavirki, býr að Klepps-
vegi 56 hér í bæ og er kvænt-
ur Guðrúnu Björnsdóttur.
Haustið 1933 innritaðist Har-
aldur í Verzlunarskóla íslands.
Hann reyndist frábær náms-
maður, enda óvenjulega skarp-
ur maður. Hann var alltaf
hæstur allra sinna skólasyst-
kina á öllum prófum. Jafn-
framt náminu tók hann einnig
mikinn þátt í félagslífi í skól-
anum, m.a. í söng og ferða-
lögum. Hann hafði þó alltaf q,
tíma til að lesa með félögum
sínum og hjálpa þeim við nám-
ið, ef þess var þörf, þar á
meðal og ekki sízt þeim er
þetta ritar. Við, félagar hans
þá, munum lengi minnast
þeirra stunda, er við áttum
með honum heima hjá honum,
á Barónsstíg 31.
Árið 1942, þann 5. desember,
kvæntist Haraldur æskuvin-
stúlku sinni, Guðbjörgu Ingi-
mundardóttur frá Strönd á
Stokkseyri. Þau stofnuðu þá
strax fallegt heimili að Bar-
ónsstíg 31 hér í bænum. Fjöl-
skylda Haralds bjó'lengi í því
húsi, öll nema Ásta systir hans,
§em bjó í Vestmannaeyjum.
Ungu hjónin voru prýðilega
lagin bæði og samhent í því
að byggja upp og fegra heim-
ili sitt, ok okkur kunningjun-
um þótti alltaf gott að heim-
sækja þau, enda gerðum við
það oft. v-
1 au Haraldur og Guðbjörg
eignuðust tvo syni. sem nú eru
báðir uppkomnir. Eldri sonur-
inn er Leonhard Ingi, sem er
orðinn stúdent og stundar nám
í tannlæknisfræði hér við há-
skólann. Yngri sonurinn er
Haukur, sem lokið hefir prófi
frá Samvinnuskólanum og nú
starfar sem verzlunarmaður
hér í bænum, hjá Gefjun.
Atvinna Haralds var alla tíð
skrifstofuvinna, og var hann
m.a. framkvæmdastjóri Inn-
kaupasambands rafvirkja á
meðan það starfaði. Nú síðast
vann hann hjá Pappírsvörum
h.f. við Skúlagötu.
Haraldur var félagslyndur
maður og vel liðinn af öllum
er kynntust honum. Hann
hafði mikinn áhuga á söng og
tónlist, var t.d. ásamt Valdi-
- mar bróður sínum meðal stofn-
enda Samkórs Reykjavíkur og
vann þar mikið starf. Þá var
Haraldur mjög virkur meðlim-
ur í Stokkseyringafélaginu hér
í bæ, og mun, eins og fleiri,
oft hafa hugsað hlýtt til æski*-
stöðva sinna.
Við, vinir og kunningjar
Haralds og fjölskyldu hans
vottum frú Guðbjörgu, konu
hans, og sonum þeirra okkar
dýpstu samúð og hluttekningu,
og rhinnumst Haralds jafnan .
sem góðs drengs og félaga.
Kristján Elíasson
Alþjéðaþing
i bléðstreymis-
fræði haldið í
Reykjavík
Fyrsta alþjóðaþing um blóð-
streymisfræði (hemorheology)
verður haldið í Háskóla Islands
dagana 10. — 16. júlí í sumar.
Þing þetta munu sitja milli 60
og 70 erlendir vísindamenn frá
mörgum þjóðlöndum ásamt
nokkrum íslenzkum vísinda-
mönnum. Á þinginu verðurflutt-
ur mikill fjöldi fræðilegra fyrir-
léstra á sviði læknisfræði, líf-
eðlisfræði, lífefnafræði og eðlis-
fræði. Forseti þingsins mun
verða dr. A. L. Copley, prófessor
við læknaháskóla New York
borgar. — (Frá Háskóla íslands).
1