Þjóðviljinn - 24.05.1966, Síða 3

Þjóðviljinn - 24.05.1966, Síða 3
Þriðjudagur 24. maí 1960 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA J Uppreisnarmenn létu undan síga í Danang, en leiðtogar búddatrúarmanna herða andróðurinn Saigonhersveitir hafa mestalla Danang á sínu valdi, en uppreisnarmenn verjast áfram í Hue, og búddatrúarmenn hafa boðað til mótmælaaðgerða í Saigon og öðrum borgum SAIGON 23/5 — Herforingjaklíka Kys í Saigon lét um helgina til skar- ar skríða gegn uppreisnarmönnum sem búið höfðu um sig í tveim hofum búddatrúarmanna í Danang í norðurhluta Suður-Vietnams og voru bæði hofin tekin eftir harða og blóðuga bardaga. Enn munu uppreisnarmenn þó ekki að fullu sigraðir í Danang og þeir hafa einnig háskólabæinn Hue á sínu valdi. Augljóst virðist eftir þessa síðustu atburði að engar sættir geti tekizt með herforingjunum og leiðtogum búddatrúarmanna sem hafa boðað mótmælaaðgerðir í Saigon og öðrum borgum landsins. Það var á laugardaginn sem Saigonhersveitirnar gerðu á- hlaup á Tan Ninh-hofið í Dan- ang og tókst þeim að ná því á sitt vald eftir bardaiga sem stóð í fjórar klukkustundir. Uppreisnarmenn urðu að gefast upp fyrir ofureflinu og voru 700 þeirra teknir höndum. Talsmenn þeirra sögðu á sunnudag að síð- an Saigonstjórnin sendi hersveit- ir sínar norður fyrir einni viku hefðu 215 menn fallið í Danang fyrir vopnum þeirra, en um 800 manns hefðu særzt í bardögun- um. munu hafa sett það skilyrði fyr- ir að leggja niður vopn að þeim yrði fyrirfram veitt uppgjöf saka. Þær viðræður munu ekki hafa borið árangur, því að í dag réðust aðkomusveitirnar á hina aðalbækistöð uppreisnarmanna, sem var í Tinh Hoi-hofinu í Dan- ang. 1 einni frétt var sagt að upp- reisnarmenn hefðu veitt lítið viðnám og hefði það ekki skipt neinum togum að hofið félli í hendur Saigonhernum. Brezka útvarpið hafði það hins vegar eftir fréttaritara sínum að harð- Um helgina fóru fram samn- ir bardagar hefðu orðið um Tinh ingaumleitanir milli fulltrúa Hoi-hofið og hefði orðið mikið uppreisnarmanna og Saigon- mannfall í liði beggja. stjórnarinnar, en þeir fyrrnefndu Leiðtogi búddatrúarmanna, Thich Minh Chieu, sem hafzt hefur við í Tinh Hoi-hofinu meðan átökin hafa staðið yfir, var þar ekki þegar hofið féll í hendur Saigonhernum. Borgarstjórinn í Danang, Ngu- yen Van Man, sem stutt hefur uppreisnarmenn í átökunum við Saigonklíkuna hefur verið hand- tekinn og mun hafa verið farið meg hann til Saigons í dag. Uppþot í Saigon. Enn í dag urðu sprengingar og uppþot í Saigon og voru það búdd.atrúarmenn sem stóðu fyrir þeim til að mótmæla aðförunúm í Danang. I sprengingu sem varð í hinu þéttbýla kínverska hverfi borgarinnar eyðilögðust sex hús. mönnum í borginni að vera á ferli á götum hennar eftir kl. 20,30 á kvöldin og fram á morg- un. Ky og Thieu fari Enda þótt herforíngjaklíkan hafi, a.m.k. um sinn, tekizt ■ að bæla niður mótspyrnuna í Dan- ang að mestu, eru engar horfur a skjótum sigri hennar yfirand- stæðingunum. Leiðtogar búdda- trúarmanna í hinum hernumdu héruð.um landsins virðast sem fyrr staðráðnir að berjast til þrautar. Þeir sögðu í dag að engin önnur lausn kæmi til greina eftir árásimar á hofin í Danan.g en að Þeir Ky ..forsæt- isráðherra“ og Thieu ,,forseti“ yrðu látnir víkja. Þeir hafa þverneitað að taka þátt í ráðstefnu sem þeir Ky og Thieu hafa boðað til í Sai- gon á morgun, en þar á að fjalla um „stjómmálaástandið“ í land- inu. En þótt fréttamönnum og fréttaskýrendum komi saman um að engin ástæða sé til að ætla að leiðtogar búddatrúarmanna muni láta af andstöðu sinni gegn herforingjaklíkunni og húnmuni þvert á móti fara síharðnandi og ástandið í hinum hernumdu hér- uðum S-Víetnams því verða stöðugt ótryggara, er sagt 'að ráðamönnum í Washington hafi létt mjög við að heyra tíðindjn frá Danang. „Varfærnisleg bjart- sýni“ ríkir í Washington eftir að fréttirnar bárust frá Danang í dag, segir fréttaritari Reuters. Ekkj vejtti af, því daginn áður hafði fréttaritarinn það eft- ir háttsettum mönnum í Was- hington að Johnson hefði þung- ar áhyggjur út af gangi máli í Suður-Vietnam og . áhrifum þeim sem atburðirnir þar gætu haft á almenningsálitið í Banda- ríkjunum. Síðasta Gallupskoðun hefði leitt í ljós að 54 prósent Bandaríkjamanna vildu ag banda- ríski herinn yrði fluttur frá Suð- ur-Vietnam ef „borgarastríð brytist út í- landinu.“ Aukið herlið. Bandaríska fréttatímaritið „Newsweek" skýrir frá því að ætlunin sé að f jölga enn í banda- ríska hernum í Suður-Vietnam um 125.000 fyrir næstu áramót. Þá yrðu um 400.000 bandarískir hermenn í Suður-Vietnam. Vietnamstríðinn mótmæli í Aþenu AÞENU 23/5 — Um 40.000 manns tóku í gær þátt f fjöldafundi f Aþenu til að mótmæla hemaði Bandaríkjanna í Vietnam og. fylgja á eftir kröfunni um að staðsetning kjamavopna verði bönnuð í Evrópu. Fyrir fundinn höfðu um 10.000 manns tekið þátt í mótmælagöngu frá Mara- þon. ---i—■ ■ ■■■— . - Jarðskjálftar í Kongó, M fórust LEOPOLDVILLE 23/5 — Jarð- skjálfti sem varð í norðaustur- hluta Kongós i síðustu viku mun hafa orðið um 90 manns að bana. Mest varð tjónið í bæn- um Beni þar sem hundruð húsa hrundu. Beni er í eldf jallahéraði þar sem jarðhræringar eru al- gengar._________________ ÖR hafnaði kröfu Afríkuríkjanna NEW YORK 23/5 — Tillaga Afríkuríkja um að Bretar yrðu skyldaðir til að beita stjórn Ians Smiths í Ródesíu valdi fékk ekki nægilegt fylgi í öryggisráðinu. Tillagan fékk sex atkvæði. en níu er lágmark. Með tillögunni greiddu atkvæði Mali, Nígeria, Oganda. Sovétríkin, Búlgaría og Jórdan, en Nýja Sjáland á móti. Fulltrúar annarra rikja sátu hjá. Friðsamleg sambúð aðeins eftir hrun heimsvaldastefnu PEKING 23/5 — Kínverjar reiða sig ekki á að Sovétríkin muni koma þeim til aðstoðar ef stríð brýzt. út með þeim og Banda- ríkjamönnum, segir Sén Ji. utan- ríjsisráðherra Kína, í skriflegu viðtali sem hann hefur átt við hokkra blaðamenn frá Norður- löndum og birt var dag. — Við erum við því búnir að verða að komast af án aðstoðar annarra. Sovétríkin kunna að að- stoða okkur — en ef til ‘ vill munu Sovétríkin hefja stríð á hendur okkur samtímis Banda- ríkjunum. Við treystum á okkur sjálfa. sagði Sén Ji. Þegar hann afhenti svör sín við tíu spumingum blaðamann- anna sagði hann að svo virtist sem ekki yrði hjá því kömizt að i odda skærist með Kína og Bandaríkjunum. — Við munum ekki hefja stríð. en við erum undir stríð búnir af þvi að hin- ir bandarísku heimsvaldasjnnar búa sig undir árásarstríð á hendur Kína. Hann sagði það skoðun Kín- verja að lönd sem byggju við ólik þjóðhagskerfi gætu búið saman í friði, en forsenda þess væri endanlegt hrun heims*- valdastefnunnar. Mikil uppþot urðu við Hoa Dao-hofið, þar sem eru aðal- stöðvar búddatrúarmanna í bar- áttu þeirra gegn herforingja- klíkunni. Vietnamskur hermaður féll fyrir byssuskoti og rétt í því áttu- bandarískir herbílar leið þar fram hjá. Múgurinn réðst á bílana og kveikti í tveimur1 þeirra. Bandarísku hermennimir lögðu á flótta og leituðu hælis í aðalbækistöð hins erlenda her- liðs í S-Víetnam, en hún er þar í grenndinni. Fallhlífaliðar Saigonstjórnar- innar voru sendir á vettvang, Bandaríkjamönnunum til aðstoð- ar og beittu þeir táragasi til að halda aftur af mannfjöldanum. Eftir þennan atburð og aðra svipaða undanfarna daga hefur bandaríska herstjórnin í Saigon bannað öllum bandarískum her- % Wilson lýsir neyðarástandi vegna farmannaverkfallsins Bænda- og verklýðsf lokkar mynda stjórn í Finnlandi Gengið um helgina frá stjórnarsamstarfi Miðflokksins, sósíaldemokrata, símoníta og Lýðræðisbandalagsins HELSINKI 23/5 — Gengið var um helgina frá' myndun nýrrar ríkisstjómar í Finnlandi, samsteypustjórnar Mið- flokksins og verklýðsflokkanna þriggja, Lýðræðisbanda- lagsins, símoníta og sósíaldemókrata. Samkomulag tókst þá um stefnuskrá hinnar nýju stjórnar, sem sennilega mun taka við á föstudaginn. Það voru sósíaldemókratar sem höfðu forgöngu um myndun þessarar „Alþýðufylkingarstjórn- ar“, eins og hún er nefnd. enda höföu þeir unnið mikinn si,gur í síðustu þingkosningum. Talið er víst að forsætisráðherra verði leiðtogi þeirra, Rafael Paasio, nýkjörinn forseti finnska þings- ins. ar flokksins voru hlynntir slíku samstarfi. Sérstaka athygli vakti afstaða Leskinens, sem á sínum tíma átti hvað mestan þátt í að upp úr samvinnu verklýðs- flokkanna slitnaði. Hann beitti sér nú eindregið fyrir því að sú samvinna yrði aftur tekin upp. Samningaviðræður um stjórn- armyndun hafa staðið yfir í margar vikur og þrátt fyrir aug- ljósan samstarfsvilja samninga- manna gekk erfiðlega að koma saman stefnuskránni og ná sam- komulagi um skiptingu ráðherra- embætta. Kekkonen forseti skarst sjálfur í leikinn á föstu- daginn þegar hann sendi flokk- unum fjórum bréf, þar sem hann hvatti þá til að hraða samning- unum svo að rikisstjómin hefði verið mynduð áður en Dean Rusk, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. kemur til Finnlands nú í mánaðarlokin og fyrir opin- bera heimsókn Kosygins, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, sem væntanlegur er til Finnlands í næsta mánuði. Tekur sér með því heimild til að koma í veg fyrir að verðlag fari upp úr öllu valdi og til annarra aðgerða LONDON 23/5 — Harold Wilson, forsætisráðherra Bret- lands,. lýsti í dag yfir neyðarástandi í landinu vegna verk- falls sjómanna á brezka kaupskipaflotanum sem nú hefur staðið í rúma viku. Með því hefur hann fengið heimild til að gera ýmsar ráðstafanir án þess að biðja um sam- þybki þingsins 1 hvert skipti. Farmannaverkfallið er farið að segja til sín. þótt almenning- ur hafi enn lítið fundið fyrir því. Um 500 skipum hefur nú verið lagt í brezkum höfnum af þvi að áhafnirnar hafa gengið af þeim bg hefur þetta m. a. haft í för með sér að útflutnings- vörur að verðmæti um 5 milj- arðar króná hafa hrúgazt upp í höfnunum. Reynt er að fá erlend skip til að annast ■ þessa flutninga svo og aðflutninga á ýmsum nauð- synjum sem Bretar geta ekki verið af án, bæði matvælum og þá ekiki síður hráefnum til iðn- j höfnum þar sem allt legupláss við hafnarbakkana er nú óðum að fyllast. Auk þessa mun leiga fyrir erlend skip hafa óhagstæð áhrif á greiðslujöfnuðinn og mega Bretar þó sízt við því. Búizt er við að Wilson ætli sér að nota þá heimild sem neyðarástandstilskipunin gefur honum m.a. til þess að láta brezka sjóliða flytja til brezk skip í höfnum svo að erlend komist að. Formaður farmanna- sambandsins sagði í síðustu viku að ef sjóliðar yrðu notaðir til verkfallsbrota gæti svo farið að öll brezka verklýðshreyfingin risi upp gegn stjórninni sem þá mætti eiga yon á allsherjarverk- gengur ekki í gildi fyrr en þingið hefur samþykkt hana, og verður það að gerast innan sjö daga. Það er þó aðeins formsatriði þar sem Wilson hefur öruggan þing- meirihluta. Tilskipunin um neyðarástand er gefin út samkvæmt lögum sem sett voru í hinu mikla alls- herjarverkfalli brezkrar verk- lýðshreyfingar 1926, en með þeim lögum var verkfallið brotið á bak aftur með þeim afleiðing- um að verklýðshreyfingin í Bret- landi hefur varla enn náð sér eftir það áfall. Farmenn krefjast styttingar vinnuvikunnar úr 56 í 40 klukku- stundir með óskertum launum. Þeir hafa nú 15 sterlingspund (1.800 kr.) í vikulaun. 1 Far- mannasambandinu sem stendur einhuga að baki verkfiallinu eru um 65.000 félagar og er búizt við að í lok þessarar viku muni um 22.000 þeirra hafa gengið í land og um 700 skip verða bundin vegna verkfallsins. Traustur meirihluti Stjórnin mun hafa traustan meirihluta að baki, 152 þingsæti af 200. Eins og áður segir er búizt við að ríkisstjóm Paasios taki við völdum á föstudaginn og er talið að sósíaldemókratar muni fá sex ráðherra í henni, Miðflokkurinn (áður Bænda- flokkurjnn) fimm. Lýðræðis- bandalag kommúnista og vinstri- sósíalista þrjá og flokksbrot só- síaldemókrata sem venjulega er kennt við leiðtoga þess. Simon- en, einn. Talið er að núverandi forsætisráðherra, Virolainen frá Miðflokknum, muni taka við . þingforsetaembættinu af Paasio. Eftir 17 ár Lýðræðisbandalagið fær nú aftur aðild að ríkisstjóm í Finn- landi eftir 17 ára hlé og þessi stjómarmyndun táknar tímamót í samskiptum verklýðsflokkanna og finnskum stjómmálum yfir- leitt. Það var Paasio sem beitti sér fyrir því í sósíaldemó- krataflokknum að leitað yrði eftir samstarfi við kommúnist- ana í Lýðræðisbandalaginu, og þótt það kostaði nokkur átök innan flokksins var frá upphafi Ijóst að mikill meirihlutl flokks- manna og einkum helztu leiðtog- aðarins, en bæði er það að erfitt er að útvega skjp með stuttum j fyrirvara og hitt að þau eiga erf- fialli. itt með að athafna sig í brezkum 1 Tilskipunin um neyðarástand Tii sölu Moskvitch árgerð 1957. — Góður bíll. Verð kr. 20 þúsund. HELLUVER SF Bús'taðabletti 10. Bókbindarar % Óskum að ráða verkstjóra á bókbands- vinnustofu. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.