Þjóðviljinn - 05.06.1966, Blaðsíða 12
I
Hæstu vinningar í
Happdrætti DAS
f gær var dregið í 2. fL Happ-
drættis D.A.S. tim 250 vinninga
og féllu vinningar þannig:
fbúð eftir eigin vali fyrir kr.
500.000,00 kom á nr. 47896. Um-
boð Aðalumboð
Bifreið eftir eigin vali , kr/
200.000,00 kom á nr. 29073. Um-
boð Keflavík.
Bifreiðir pftir eigin vali kr.
150.000,00 kom á nr. 8536, Sval-
barðseyri, 13843, 29405, 33485.
Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 35 þús. kom á nr. 9120.
Umboð Hafnarfjörður.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyTÍr kr. 25 þús. kom á nr. 26034.
Umboð Keflavik.
Húsbpnaður eftir eigin vali
fyrir kr 20 þús. kom á nr. 25807
og 63237. Aðalumboð.
Húsbúnaður eftir eigin vali
fyrir kr. 15 þús. kom á nr. 1466.
Aðalumboð. 32094, ísafjörður,
44699. Aðalumboð.
Fulltríaráð ÆFR
f frétt af aðalfundi Æskulýðs-
fylkingarinnar i Reykjavík hér
í blaðinti .í gær féllu niður
nöfn tveggja félaga, sem kosnjr
voru í fuiltrúaráð, en þeir eru ;
Guðmundur Magnússon og Úlfur
Hjörvar.
Bflar til Búrfellsvirkjunar
Sunnudagur 5. júní 1966 — 31. árgangur — 123. tölublað.
Tóaleikar / Kefía-
vík og á ísafírði
EINAR 0LGEIRSS0N ritar
pólitiskar endurminningar
■ Nýkomið hefti af tímaritinu RÉTTI er líklegt til að
viekja athygli fyrir skemmtilega ritaðar og fróðlegiar
pólitískar endurminningar, sem Einar Olgeirsson skrifar,
frá árunum milli 1920 og 1930, og nefnir „Fyrir 40 árum“.
Pjalla þær að verulegu leyti um verkalýðshreyfinguna á
Akureyri og svo þjóðmálabaráttuna. Greininni fylgja
myndir frá þessum árum af iundum og fólki og margir
kunnir menn úr verkalýðshreyfingunni og stjórnmálun-
um koma við sögu.
Fyrir nokkru voru sjö vöru-
bifreiðar („tipptrukka“ kalla
Svíar þær) settar í skip og
sendar til íslands. Bifreiðarn-
ar eru frá sænska fyrirtæk-
inu Kockum-Liandsverk en
kaupendur eru E. Pihl & S0n
og Almenna Byggingafélagið.
* Þessi fyrirtæki ætla svo aft-
ur að nota bílana við það
sem þau á heimsmálinu kalla
Burfell Hydroelectric Pro-
ject. — Áður hefur þetta
sama sænska fyrirtæki selt
íslendingum ýmsar stórvirk-
ar vinnuvélar.
* Myndin er af einum þessara
sjö bíla á leið í skip, verið
getur að tveir verði keyptir
til viðbótar.
Réttur minnist með þessum
árgangi 50 ára afmælis og hafa
heftin tvö sem út hafa komið á
árinu verið prýðilega fjölbreytt
og margt þar athyglisvert. I
síðara heftinu er líklegt að veki
athygli tvær greinar sænskra
Kápa frá fyrstu árgöngum Rétt-
ar, með teikningu eftir Rikharð
Jónsson.
kommúnista. Mikil hreyfing er á
kommúnistaflokki Svíþjóðar og
vekja ekki sízt skrif og ræður
hins nýja formanns flokksins C.
H. Hermannsson, athygli einnig
utan Svíþjóðar. Hér er birtur í
íslenzkri þýðingu kafli úr um-
deildri bók eftir C. H. Her-
mannsson, „Vegur vinstri hreyf-
ingar,“ og nefnist þessi kafli
„Lýðræði í atvinnuiífinu." í
fhinni greininni lýsir annar
sænskur kommúnisti, Gunnar
Öhmann þeim breytingum, sem
va^ið er að gera eða fyrirhug-
aðar eru á starfi sænskra komm-
únista og nefnist greinin „Ný
viðhorf — nýjar starfsaðforðir."
Af öðrum greinum í þessu
hefti má minna á grein eftir
Johan Vogt um Georg Lukacs
og ræðu Sverrir Kristjánssonar
á 60 ára afmæli Dagsbrúnar.
í fyrra heftinu er m.a. ýtar-
leg yfirlitsgrein Einars Olgeirs-
sonar „Hugleiðingar um hálfrar
aldar reynslu íslenzkr'ar verka-
lýðshreyfingar á nokkrum svið-
um“, löug grein eftir Sverri
Kristjánsson um Jón Sigurðsson,
Aðallöndunarbrygg/an hjá
SR á Siglufírði endurbyggð
Að undanförnu hefur verið
unnið af kappi vjð endutbygg-
ingu á aðallöndunarbryggju Síld-
arverksmiðja rikisins á Siglu-
firði og er það verk nú langt
komið. Hins vegar er eftir að
setja upp löndunartækin en þau
verða nú í fyrsta sinrt með út-
búnaði til þess að vigta sildina
en hún hefur ti! þessa verið
mæld í máliun.
Bryggja þessi er byggð bann-
ig að rekin voru niður stál-
stólpamót sem síðan var steypt
i. Á stólpana voru því næsjt
lagðijl bitar úr strengjasteypu
og ofan á bitana lagðir steypu-
flekar. Þar ofan á verður svo
steypt slitlag. Er þetta alger
nýjung í bryggjugerð hér á
landi.
★
Enn hefur síldin ekkj látið
sjá sig fyrir Norðurlandi frem-
ur en undanfarin ár, en Sigl-
firðingar munu hafa fullan hug
á að vera viðbúnir komu henn-
ar þegar Þar að kemur.
Einar Olgeirsson.
og þingræða Magnúsar Kjart-
anssonar.um alúmínmálið.
Einar Olgeirsson birtir í þessú
hefti „tvö söguleg skjöl sósial-
ismans á íslandi". Það er frá-
sögn af jafnaðarmannafélagi
sem Ólafur Friðriksson stofnaði
á Akureyri veturinn 1914—1915.
Þarna eru birt í fyrsta sinhi svo
vitað sé lög þessa félags og
„Stefnuskrá íslenzkra jafnaðar-
manna“, frumvarp sem Ólafur
sendi ýmsum um þetta leyti. Er
hvort tveggja hin merkustu
heimildarskjöl varðandi sögu
sósíalistahreyfingar á íslandi, og
þyrftf að grafa meira upp af
slíkum frumheimildum og birta
þær.
Fjölmargt fleira er í heftun-
um, einkum erlent efni. Má af
þessari upptalningu sjá að Rétt-
ur er síður en svo í afturför,
heldur flytur hann enn sem
jafnan fyrr tímabært og mikil-
vægt efni, sem allir íslenzkir
sósíalistar ættu að kynna sér og
fylgjast með.
Brandí kosinn
DORTMUND, laugardag. —
Willy Brandt, borgarstjóri Vest-
ur-Berlínar, var í dag endur-
kjöWnn formaður vesturþýzka
Sósíaldemókrataflokksins. Við
formannskjörið hlaut Brandt 324
atkvæði af 326. Varaformennirn-
ir voru einnig endurkjörnir,
beir Fritz Erler Og Herbert
Wehner.
Leiðrétting
í frétt Þjóðviljans í gær um
kosningar í borgarstjóm misrjt-
aðist föðurnafn endurskoðanda
Styrktarsjóðs sjónfanna- og
verkamannafélaganna í' Reykja-
vík. ' Hann , heitir Alfreð og er
Guðmundsson en ekki Guðna-
son eins og sagt var í blaðinu.
Píanósnillingurinn bandaríski
Daníel Pollack, er væntanlegur
hingað til lands þriðjudaginn 7.
þessa mánaðar og efnir til
tveggja opinberra hljómleika,
auk þess sem hann mun leika
inn á segulband fyrir ríkisút-
varpið.
Þetta er í annað sinn, sem
Pollack leikur hér á landi, því
að hann kom hér við i hljóm-
leikaför árið 1963 og lék hér þá
við frábærar undirtektir áheyr-
enda. Að þessu sinni leikur
hann ekki í Reykjavik, heldur
verða hljómleikar hans haldnir
í Keflavík þriðjudaginn 7. júní
og á ísafirði daginn eftir, og eru
það tónlistarfélögin á þessum
stöðum, sem gangast fyrir tón-
leikunum. Á fimmtudag heldur
hánn svo vestur um haf.
Pollack er aðeins liðlega þrí-
tugur, fæddur í Los Angeles í
Kaliforníu 23. janúar 1935, en
samt hefur honum hlotnazt mik-
ill sómi víða um heim fyrir
píanóleik sinn. Hann byrjaði að
læra aðeins 4ra ára gamall, og
tæplega átta ára að aldri kom
hann í fyrsta sinn fram opin-
berlega og vakti furðu gagnrýn-
enda og aðdáun. Þegar hann var
tæpra níu ára lék hann með
Fílharmóníuhljómsveit New
York og aftur vakti hann undr-
un og hrifningu gagnrýnenda
með djúpum skilningi sínum og
innsýn í verk ýmissa meistara,
svo sem Chopin. Hann hlaut
fyrsta skipti verðlaun fyrir leik
sinn, þegar hann var ellefu ára
gamall, en alls hlotnuðust hon-
um 22 ’ verðlaun af ýmsu tagi
fram til 22ja ára aldurs, Hann
hlaut ýmsa námsstyrki sem sér-
lega efnilegur nemandi, meðal
annars við Juilliard-skólann,
frægasta tónlistarskóla Banda-
ríkjanna, og loks hlaut hann
Fulbright-styrk- til framhalds-
náms í Vín.
Segja má, að Pollack hafi að
vissu leyti unnið mesta sigur
Daniel Poilack
sinn í apríl 1958, þegar hann
hlaut verðlaun í fyrstu alþjóð-
legu Tsjaikovskipíanókeppninni
í Moskvu, en hann og Van Cli-
Framhald á 9. síðu.
Eddukvœði
á grúsísku
MOSKVU — Hin ódauðlegu
norrænu söguljóð, sem kallast
einu nafni Eldri-Edda (Sæ-
mundar-Edda) og hafa nú
þegar verið tvisvar þýdd á
rússnesku, er nú verið að þýða
á grúsísku. Þýðinguna gerir
þekkt grúsískt skald, þjóð-
fræðingur og þýðandi, Ge-
orgí Kalanadze. Hefur hann
þegar þýtt af íslenzku sex
kvæði. (Fréttastofan ARN).
Þess má geta að Grúsíu-
menn eru að þvi líkir Is-V
lendingum að þeir telja ýms-
ar fornar baékur sitt mesta
stolt — á þessi Kákasusþjóð
víðfræg og ágæt skáld allt
frá þeim tíma er Eddur voru
festar á bókfell hérlendis.
NÝ SENDING t FYRRAMÁLIÐ
KVENSKÖR
FRÁ
STÓRGLÆSILEGT ÚRVAL
SKÓVAL
Austurstraeti 18
(Eymundssonarkj allara )
\