Þjóðviljinn - 19.06.1966, Side 1
Sunnudagur 19. júní 1966 —31. árgangur— 134. tölublað
Mwgit árekstrar, áframhaldandi öivun
Blaðið hafði samband við
lögregluna í Reykjavik seint
í gær og fékk þær úpplýsing-
ar að mikið annríkf væri hjá'
þeirri stofnun, mikið um á-
rekstra og ölvun.
Hátíðin stendur eiginlega
enn, sögðu lögreglumenn, og
hefur aldrei. hætt — með
þeim afleiðingum sem fyrr
greinir. Er ástandið, frómt frá
sagt, með verra móti.
Slökkviliðig átti hinsvegar.
rólega daga um hátíðina —
var einu sinni kallað út á
föstudagskvöld; hafði 'kvikn-
að í vinnuskúr í Álftamýri og
skemmdist hann nokkuð.
Veðurblíða og íjölmenni — en
Hátíiahöldin ieyst-
ust upp í skrílsœði
CH Veðurguðirnir voru mildir við höfuð-
staðarbúa á þjóðhátíðardaginn með sólskini
og heiðríkju allan daginn enda voru tugir
þúsunda af Reykvíkingum á ferli og var mið-
bærinn eitt litríkt mannhaf um kvöldið.
□ Aldrei hefur þó borið á eins mikilli
óþjóðhollustu í sambandi við þennan dag hér
í Reykjavík og takmarkalausu virðingarleysi
fyrir umhverfinu, sagði einn varðstjóri Reykja-
víkurlögreglunnar og leystust hátíðarhöldin
upp í yfirþyrmandi ölæði og skrílslátum í
miðbænum um nóttina.
Hér voru aðallega unglingar á
ferðinni og settu þegar svip sinn
sinn á daginn upp úr hádeginu,
— nýskriðnir úr vetrarhíði frá
bandarísku hernámssjónvarpi og
örvaðir til dáða af þessum sölu-
glöðu smábisnessmönnum með
tjöld sín um allan miðbæ.
Allskonar sirkusdót var til
sölu í þessum tjöldum í miklu
úrvali og rann það út eins og
heitar lummur, — mátti þar
greina þetta marglofaða við-
skiptafrelsi í auknum innflutn-
ingi og létu þannig íslenzkir
heildsalar ekki sinn hlut eftir
liggja, þennan dag.
Mikla lukku gerðu viðamiklar
hernaðarmedalíur stórveldanna
úr plasti og hafði.einhver heild-
salinn tekið sig til og flutt þetta
inn frá Hong Kong í tilefni
dagsins og skrýddust unglinear
■þessu í hundraðatali, og mátti
margur krossberi af hinni ís-
lenzku fálkaorðu skjótast inn í
öngstræti með heldur smágerðar
orður sínar enda bliknuðu bser
við hliðina á bessum eftirlík-
ingum.
í eftirmiðdaginn rásaði fullur
maður um Lækjartorg og spilaði
á munnhörpu, og þyrptist ung-
lingafjöld að honum með hrossa-
bresti, prumpslöngur, ýlandi eft-
irlíkingar af blöðrutyggjó og
gasfylltar blöðrur og fram-
kvæmdu slíkan hávaða með
þessu dóti að hevrðist langar
leiðir
Enda var sungið um kvöldið
dægurljóð á Lækjartorgi tileink-
að seytjánda júní og útvarpað
yfir landslýðinn, — en þar segir
meðal annars, — „að 'gullnum
roða slái á sölutjöldin."
Þegar um kvöldmat var mxð-
bærinn orðinn svo óþrifalegur
af rusli og öðrum ótímabærum
verðmætum úr þessum sölutjöld-
um að ógleði olli hjá flstum.
Nýstúdentar til
fyrirmyndar
Um kvöldið var óskaplegt
mannhaf i miðbænum og fór
fram kvölddagskrá á, Arnarhóli
og síðan var dansað á þrem
stöðum í miðbænupi.
Eldri kynslóðin hélt yfirleitt
reisn sinni framan af kvöldi og
nýstúdentar voru mjög til fyrir-
myndar í hegðun sinni þennan
dag.
Þegar leið á kvöldið tóku ungr
lingarnir forystu með ærslum
( og ölvunarlátum og tóku að
henda brennivínsflöskum og
kókflöskum sitt á hvað í mann-
þrönginni og hlaut margur
skrámu að ósekju af flöskubrot-
um.
Þá gerðu þeir hrið að verzl-
unargluggum í miðbænum og
hrintu fólki á rúðurnar eða
hentu tómum flöskum í þær.
Á Lækjartorgi var allt í einu
tilkynnt í hátalarakerfið, að j
Svavar Gests ætti afmælið í'dag
og var því fagnað hressilega af
þessum lýð og einhvernveginn
hafði maður á tilfinningunni, að
hitt afmælisbarnið væri gleymt
og tröllum gefið.
Klukkan að ganga ellefu um
kvöldið stóð majSur nokkur með
konu sinni við stórhýsi Silla og
Valda í Austurstrœti og sagðist
hafa litið yfir á gangstéttina
hinum megin hjá Hressingar-
skálanum og fleiri húsum þar
með þessu sígilda bungalósniði
og þarna hefðu þyrpzt fram
Unglingar með stóra Texashatta
úr sölutjöldunum og sveiflað
hálfum brennivínsflöskúm. Mér
hnykkti við, sagði maðurinn, —
þetta var eins og lifandi mynd
frá smáborg í Texas.
Eftir miðnætti hófust svo
veruleg skrílslæti í miðbænum
að sögn reykvísku lögreglunnar
og keyi'ði úr hófi með drykkju-
skap unglinga.
Við tví- og þríhlóðum fanga-
klefana inni í Siðumúla og um
nóttina vorum við öðru hverju
að rekast á brennivínsdauða
unglinga á götunum og brugð-
um á það ráð að aka þeim heim
með- hjálp nafnskírteina eftir að
Síðumúli var orðinn yfirfullur
af ölvuðum unglingalýð.
Einn unglingurinn hljóp ölv-
aður 1 höfnina um nóttina og
máttum við hafa okkur alla við
að bjarga honum í trássi við
vilja hans.
Þetta var einn harmleikur alla
nóttina, sagði lögregluvarð-
stjórinn.
Ölvun unglinga er orðið mikið
vandamál í þessari borg, sagði
hann að lokum. _____ ,
t
Var fremstur
sellóleikara
MOSICVU 18/6 — Úrslit í al-
þjóðlegri keppni sellóleikara,
kenndri við tónskáldið Tsjæ-
kovskí, sem nú fer fram í
Moskvu urðu Þau að fyrstu verð-
laun hlaut 22 ára gamall tónlist-
arrnaður armenskrar ættar, Kar-
ine Georgjan. Er hann nemandi
hins heimsfræga sovézka selló-
snillings Rostropovítsj. Vei'ð-
launin eru gullpeningur og 2.500
rúblur.
Unglingadansleikur í Lækjargötu 17. júní undir stjórn Ilcnnanns Ragnars — (Ljósm. Þjóðv. A. K.)
v
*
□ Á fundi borgarstjómar síðastliðinn fimmtu-
dag bar fulltrúi Alþýðubandalagsins, Jón Snorri
Þorleifsson, fram um það tillögu, að kosin skuli
fimm manna nefnd til þess að vinna úr umsóknum
úm byggingalóðir og gera tillögur um úthlutun
þeirra. íhaldið hreinlega felldi þessa tillögu, í
venjulegu frávísunarformi sínu, gegn atkvæðum
allra minnihlutaflokkanna.
í ræðu sinni, er hann fylgdi
tillögunni úr hlaði, gat Jón
Snorri þess, að vaxandi óánægju
hefði gætt með almenningi vegna
lóðaúthlutunarinnar, og það
hefði verið talið, að til þess að fá
úthlutað lóð þyrfti nauðsynlega
að hafa hin . „réttu sambönd".
Nú væri nefndarskipun þó ekki
nægileg ein sér, slík nefnd þyrfti
líka að hafa reglur til ^ð starfa
eftir. Því bar Jón Snorri fram
til vara bá tillögu, að framvegis
fylgi um lóðaúthlutun sem fyllst
greinargerð urn ástæður lóðar-
umsækjanda, einnig að lóðanefnd
skuli settar ákveðnar starfsregl-
ur.
Sjálfsögð vinnubrögð
Jón Snorri rakti það ennfrem-
ur, hve sjálfsögð vinnubrögð það
væru, að greinargerð fylgi um
lóðaúthlutunina, svo sjá megi,
hversvegna einn hlýtur lóð en
öðrum er synjað, enda þættu
það mikil fríðindi nú að fá
byggingarlóð í henni Reykjavík.
Ekki. mætti vera neitt pukur í
sambandi við þessi mál.
íhaldsrökin
Birgir ísl. Gunnarsson varð
fyrir svörum’ af íhaldsins hálfu.
Birgir rakti ýtarlega fyrirkomu-
lag þessara mála, og virtist telja
þau í hinu bezta lagi með nú-
verandi fyrirkomulagi, þar sem
tveir embættismenn borgarinnar
vinna úr umsóknum um lóðir og
skila síðan tillögum sínum til
boi'garráðs. Birgir lagði áherzlu
á það, að borgarráð legði æ
meiri vinnu í þessi mál, enda
væru öll gögn þessum málum
viðkomandi opin hverjum borg-
arfulltrúa, sem vildi kynna sér
þaú. Bar síðan fram þessa venju-
legu frávísunartillögu íhaldsins.
Eðlileg áhrif minnihlutans
Kristján Benediktsson, fulltrúi
Framsóknarflokksins, talaði næst-
ur. Hann kvað það rétt vera,
að lóðaúthlutunin hefði sætt
gagnrýni undanfarið, enda væri
hér um mjög vandasamt verk
að ræða. Sú gagnrýni, sem fram
hefði komið, þyrfti ekki að þýða
það, að þeir embættismenn borg-
arinnar, sem um umsóknimar
fjölluðu, ynnu ekki verk sitt vel,
enda hefði hann' fullan skilning
á erfiðleikum þeirra, en þeir
hefðu einnig sína húsbændur.
Það væri ekki eðlilegt fyrir-
komulag, að tveggja manna lóða-
nefnd sinnti þessum málum. Hér
væri um geysi mikið og erfitt
verk að ræða, og borgarráð svo
störfum hlaðið, að það gæti ekki
sinnt þessu verkefni sem skyldi.
Til þess að tryggja minnihluta-
flokkunum eðlileg áhrif á út-
hlutunina, bar Kristján svo fram
þá tillögu, að í úthlutunamefnd
ætti sæti einn maður frá hverj-
um stjórnmálaflokki, sem sæti
ætti í borgarstjóm, en borgar-
stjóri skipi formann nefndar-
innar.
Jón Snorri féllst fyrir sitt leyti
á þessa tillögu Kristjáns.
Frávísun íhaldsins
Jón Snorri Þorleifsson ítrek-
aði þá skoðun sína, að til þess
að tryggja eðlilega lóðaúthlutun
yrði að skipa sérstaka nefnd,
en það myndi aftur gjörbreyta
aðstöðu minnihlutaflokkanna til
þess að hafa áhrif á þessi mál.
Frávísunartillaga Birgis var síðr
an samþykkt með 8 atkvæðum
gegn 7, íhaldið ætlar með öðr-
um orðum, með minnihluta at-
kvæða borgarbúa á bak við sig,
að halda sömu íhaldsaðferðinni
við lýði um lóðaúthlutun í höf-
uðborginni.
Kmverjar
PEKING, BÚKAREST 18/6 —
I gær hélt forsætisráðherra Kína
Sjú En-læ ræðu í Búkarest, en
hann er i opinberri heimsókn í
Rúmeníu þessa daga. Veittist
hann mjög að Sovétríkjunum og
kvað sovézka forystumenn hafa
tekið höndum saman við banda-
i'íska heimsvaldasinna um að
kveða niður byltingaröfi í heim-
herskáir
inum. Rúmensk blöð slepptu
þessum ummælum í frásögnum
af ræðunni í morgun — hins-
vegar sögðu þau frá loforði for-
sætisráðherrans um að Kínverj-
ar myndu styðja Rúmena í því
að efla sjálfstæði sitt innan
kommúnistíski-ar heimshi'eyfing-
ar.
Framhald á 7. síðu.