Þjóðviljinn - 19.06.1966, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.06.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA’ — ÞJÖÖVILJIÉfN — Sunnudagur 19. júní 1966 FRÓÐLEIKSMOLAR UM ULGARIU □ Fáir ferðamenn gera sér það ljóst, að á Svartahafs- strönd Búlgaríu eru ekki að- eins möguleikar á baðstrand- arlífi yfir hásumarið heldur er þar ákaflega notalegt aðra tíma ársins. Meðaltalshiti þar er 15.8° C, en meðal- hiti ■ sjávar 15° C. Meðálsólskinstímar á dag, eru 8,1 klst. og að jafnaði eru ekki fleiri en 5—6 rigningardagar á mánuði. Ultraf jólublágeislunin er 395.105 kal/cm2. Öldulöðrið er þægilegt og.loft- ið heiðskírt. Á haustin er loftslagið ákaflega notalegt fyrir baðstrandargesti. Meðalhiti sjávarins er þá 17° C, meðal- hiti mánaðarins 14.3° og sólskin að jafn- aði 5.2 klst. á lag. Rigningardagar allt að 5 á mánuði. Sjórinn við Svartahafsströnd Búlgaríu er heitastur í ágúst, en kaldastur des.— janúarmánuði. — Mánuðina marz—júní er sjórinn kaldari en loftið, og kælir hann því andrúmsloftið, en aðra mán- uði ársins er sjórinn heitari. Meðaltal regndaga yfir árið eru 60 dagar, minnst regn í ágúst—sept., en aðalregntíminn í desember. Er því ekki hægt að segja að þarna sé rigningasamt, þegar bað- strandarlífið er sem mest. DVOL A SVARTAHAFS- \ STRÖNDINNI HEFUR MJÖG HRESSANDI ÁHRIF Vegna sérstæðra eiginleika loftslagsins á, Svartahafs- strönd Búlgariu, er enginn vafi. á, að baðstaðirnir þar eru mjög vel fallnir til leyf- > isferða, skemmtiferða og hressingaferða, minnst 6 mánuði ársins. Kristalstært loft, sem áldrei nær hærra hitastigi en 24— 25° C, súrefnisauðugur sjór, þar sem flóðs og fjöru gætir lítið. Breiðar sólgylltar strendur eru hin sérstæðu einkenni búlgörsku Svarta- strandarinnar sem laða ferða- menn að, í æ ríkari mæli. Sérstæðir eiginleikar Svarta- hafsins . 1. Efnissamdrátturinn í upp- leystum efnum sjávarins er 15 g/1 sem þýðir ákaflega lága saltmyndun, mun lægri en í Miðjarðarhafinu, sem er 35 g/1. 2. Hitastig sjávarins yfir sum- arið fer ekki yfir 26—28° á Celsíus og er mjög hressandi. Ferðir í Búlgaríu □ Ferðamenn sem til Búlgaríu fara, geta kom- izt í ferðir með Balkantourist. Ferðaskrifstofa landsis skipuleggur ferðir bæði frá Sofíu, Varna (Gylltu ströndinni), Nessabar (Sól- ströndinni), til ýmissa staða innan lands, en auk þess eru skipulagðar >3—4 daga sjóferðir til Istambul og Odessa. NOTKUN BIFREIÐA Ef ferðamaðurinn vill fara í eigin bifreið til Búlgaríu, eða er á ferðalagi í gegn um' landið á leið til Istambul, eða landanna fyrir botni Miðjarð- arhafs, þá er öruggt að öll þjónusta er með bezta móti hvar sem er í Búlgaríu. Með- fram öllum vegum landsins eru staðir sem selja benzín og brennsluolíur af öllum gæðaflokkum. Sömuleiðis eru á hverjum þessara staða við- gerða. og þjónustuverkstæði, en í stórborgum öllum eru stærri viðgerða- og þjónustu- verkstæði sem veita alhliða þjónustu, svo sem bezt gerist í heiminum. Auk þess eru um alla Búlgaríu á ferðinni gulir þjónustubílar, sem veita strax umbeðana aðstoð, og er auðvelt að kalla þá upp gegnum talstöðvar þjónustu- stöðvanna við vegina sé ipess óskað, Benzín er afar ódýrt í Búlgaríu og má t.d. nefna, að super-oktant 86, kostar 14 úr leva eða um kr. 5.40. Ferðamenn sem fara á eigin bílum, geta komizt á hó.tel, motel eða bílasvæði (camp- ing) þar sem ríkulega búin þjónusta bíður þeirra á öll- um sviðum. Við allar landa- mærastöðvar eru fulltrúar „HÆMUS“ sem er félags- skapur, er annast sérstaklega alla þjónustu fyrir þá sem koma á bílum til Búlgaríu, endurgjaldslaust, hvort held- er er næturgisting og er verð þeirra frá kr. 18.75 til 150.00. Tjaldbúðar-hverfi (camping) eru afgirt og upplýst, og er stöðugur vörður í þeim. í hverji hverfi eru hreinlætis- tæki, steypiböð með köldu og heitu vatni, en jafnframt þessu eru í hverju hverfi eitt eða fleiri almenningseldhús, þar sem jafnvel er hægt að elda mat sjálfur, og spara sér með því. Þá eru smáverzlanir sem verzla m.a. með tóbak, minjagripi, pakkavöru, ávexti, brauð o. s. frv. Þeir sem ekki hafa meðferð- is tjöld, geta fengið þau lán- uð í þessum hverfum, en auk þess er hægt að leigja þar smáhýsi gegn mjög vægu gjaldL Er sjórinn oft notaður í laug- ar sem fylgja baðstöðunum og er þá gjarnan hitaður upp, ef hann er kaldari en góðu hófi gegnir. Hægt er að stunda jöfnum höndúm sjó- böð og heilsulindaböð (min- eral), t.d. eru heilsulindar- staðir við gylltu ströndina (The golden beach) og Drjuba við Varna. Þá er og jöfnum höndum hægt að stunda sjóböð og leirböð. Á stöðum eins og Tuzista óg fjölda annarra við Svartahaf- ið eru slík böð og hafa reynzt ■ mjög nytsamleg gegn sjúk- dómum, svo sem liðagigt og húðsjúkdómum. Helztu einkenni loftslags til fjalla. Þau landsvæði sem einkenn- ast af fjallaloftslagi liggja í um það bil 1000—1800 m. hæð og eru flestir helztu ferðamannastaðir Búlgaríu til fjalla, á þessum svæðum, svo sem Brovetz og Rilaklaustrið í Rilafjöllum, Pamporovo í Rhodosfjöllum og_ Aleko í Vitoschafjöllum. Á vetrum snjóar mjög mikið á þessum svæðum, allt að 1 til 1.5 m. Aukning ionanna (ioniser- ing) í andrúmsloftinu hefur reynzt hafa áhrif til bóta á fjölda sjúkdóma svo sem astma, skjaldkirtilssjúkdóma, svefnleysi, lystarleysi, getu- leysi til' vinnu, taugaþreytu (neurasteni), blóðleysi o. fl. Gyllta ströndin og Safír- ströndin Gyllta ströndin er aðeins í 17 km. fjarlægð frá Varna, en Drjuba um 10 km. Safír- ströndin (Drjubas) er fremur mjó og sundurslitin, en Gyllta ströndin er aftur á móti ó- slitin og allt að 3.5 km. löng og um 200 m. breið og má líkja henni við stóra breið- götu. Þessir tveir baðstaðir hafa allt það upp á að bjóða sem veitir ferðamanni yndislega leyfisdaga. Fallegt landslag, vel skipulagt af mannsins hendi, og ótal helztu eigin- leika baðstranda, svo sem milt loftslag, eitt hið bezta þarna um slóðir, sólríkir dag- ar frá maí til loka október og svalandi nætur. Þá eykur garðurinn sem Drjuba hótel- inn liggja í og skógurinn sem skýlir Gylltu ströndinni, á yndisleika staðarins. Sjávar- Balkantourist SOFIA, Lenintorgi 1 og fjallaloftið nýtur sín á báðum þessum stöðum og ó- tal hitauppsprettur eru víðs vegar um ströndina. Meðallofthiti staðarins yfir sumartímann er 21—23° C. Regn er þar óverulegt, en sólin skín þar allt að 2.240 klst á ári. VEGABRÉFASKOÐUN OG TOLLSKOÐUN Sérhver ferðamaður er ætlar að heimsækja Búlgaríu á auðvelt með að fá vegabréfs- áritun, hvort heldur er, til dvalar eða að fara í gegn um landið. Sendiráð og fulltrúar þeirra veita þessar áritanir og er verð þeirra sem hér segir: Kr. Vegabréf fyrir ferða- menn til dvalar 43,06 Vegabréf fyrir þá sem eru á ferð í gegnum landið, gildir 7 daga 43.06 Vegabréf fyrir 14 daga gildistíma 86.12 Vegabréf þeirra er ætla að setjast að í landinu um lengri ^ða skemmri tíma til búsetu 91.95 Þeir ferðamenn sem koma frá löndum sem ekki hafa stjórnmálasamband við Búlgaríu, geta fengið þessa áritun við landamæri, á flug- stöðvum eða í hafnarborgum. Ekki er nauðsynlegt að hafa myndir. íslendingar fá vega- bréfsáritun þessa í Kaup- mannahöfn og sér ferðaskrif- stofa vor um alla fyrir- greiðslu í þeim efnum. REGLUR UM GJALDEYRI Heimilt er að fara inn í land- ið með erl. gjaldeyri frá hvaða landi sem er. Engin nauðsyn er að útfylla nein skilríki því viðvíkjandi. Skipti á gjáldeyri fara fram á fjölda staða í Búlgaríu. Þjóð- bankanum að sjálfsögðu, en auk þess á öllum landamæra- ^töðvum, flugstöðvum, hafn- arborgum og sérstökum „bönkum“, sem eru á flestum stærri hótelum, veitingastöð- um og börum. Fyrir ferða- menn er sérstakt gengi, og er hlutfallið t.d. milli $ 1:00 og leva, sem er þeirra aðal gjaldmiðill 1:2, en venjulegt gengi er $ 1:00 á móti 1.18 leva. íslenzka krónan er samsvarandi og er hægt að ,..§kipta auðveldlega, og.myndi þá 2 leva fóst fyrir kr. 43.06, miðað við núverandi gengi á' $. Gjaldmiðill landsins er 'léÝa og stotinki, og eru 100' stotinki í leva. Ekki er heim- ilt að fara með leva inn eða út úr landinu og er hægt að skipta búlgörskum gjaldmiðli áður en farið er úr lapdinu í þann gjaldeyri sem skipt var úr í upphafi, eða annan erl. gjaldeyri, ef hitt er ekki mögulegt. BÚLGARÍA ER FAGURT LAND, þjóðin alúðleg.þjón- usta með afbrigðum góð, verðlag með því lægsta sem þekkist í Evrópu og framleiðsla í öðrum og bættum vexti. ■ BÚLGARÍA myndi því verða eitt fyrsta landið sem feröamaður heimsækir þegar hann athugar hvert á að fara í sumar- eða vetrarleyfinu. Laugavegi 54, Reykjavík. Umboðsskrifstofa. Símar 22890 og 22875. * t 4 *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.