Þjóðviljinn - 19.06.1966, Page 2
2 SÍÐA’ — ÞJÖÖVILJIÉfN — Sunnudagur 19. júní 1966
FRÓÐLEIKSMOLAR UM
ULGARIU
□ Fáir ferðamenn gera sér
það ljóst, að á Svartahafs-
strönd Búlgaríu eru ekki að-
eins möguleikar á baðstrand-
arlífi yfir hásumarið heldur
er þar ákaflega notalegt aðra
tíma ársins.
Meðaltalshiti þar er 15.8° C, en meðal-
hiti ■ sjávar 15° C. Meðálsólskinstímar á
dag, eru 8,1 klst. og að jafnaði eru
ekki fleiri en 5—6 rigningardagar á
mánuði. Ultraf jólublágeislunin er 395.105
kal/cm2. Öldulöðrið er þægilegt og.loft-
ið heiðskírt. Á haustin er loftslagið
ákaflega notalegt fyrir baðstrandargesti.
Meðalhiti sjávarins er þá 17° C, meðal-
hiti mánaðarins 14.3° og sólskin að jafn-
aði 5.2 klst. á lag. Rigningardagar allt
að 5 á mánuði.
Sjórinn við Svartahafsströnd Búlgaríu
er heitastur í ágúst, en kaldastur des.—
janúarmánuði. — Mánuðina marz—júní
er sjórinn kaldari en loftið, og kælir
hann því andrúmsloftið, en aðra mán-
uði ársins er sjórinn heitari. Meðaltal
regndaga yfir árið eru 60 dagar, minnst
regn í ágúst—sept., en aðalregntíminn
í desember. Er því ekki hægt að segja
að þarna sé rigningasamt, þegar bað-
strandarlífið er sem mest.
DVOL A SVARTAHAFS-
\ STRÖNDINNI HEFUR MJÖG
HRESSANDI ÁHRIF
Vegna sérstæðra eiginleika
loftslagsins á, Svartahafs-
strönd Búlgariu, er enginn
vafi. á, að baðstaðirnir þar
eru mjög vel fallnir til leyf-
> isferða, skemmtiferða og
hressingaferða, minnst 6
mánuði ársins.
Kristalstært loft, sem áldrei
nær hærra hitastigi en 24—
25° C, súrefnisauðugur sjór,
þar sem flóðs og fjöru gætir
lítið. Breiðar sólgylltar
strendur eru hin sérstæðu
einkenni búlgörsku Svarta-
strandarinnar sem laða ferða-
menn að, í æ ríkari mæli.
Sérstæðir eiginleikar Svarta-
hafsins .
1. Efnissamdrátturinn í upp-
leystum efnum sjávarins er
15 g/1 sem þýðir ákaflega
lága saltmyndun, mun lægri
en í Miðjarðarhafinu, sem er
35 g/1.
2. Hitastig sjávarins yfir sum-
arið fer ekki yfir 26—28° á
Celsíus og er mjög hressandi.
Ferðir í Búlgaríu
□ Ferðamenn sem til Búlgaríu fara, geta kom-
izt í ferðir með Balkantourist. Ferðaskrifstofa
landsis skipuleggur ferðir bæði frá Sofíu,
Varna (Gylltu ströndinni), Nessabar (Sól-
ströndinni), til ýmissa staða innan lands, en
auk þess eru skipulagðar >3—4 daga sjóferðir
til Istambul og Odessa.
NOTKUN BIFREIÐA
Ef ferðamaðurinn vill fara í
eigin bifreið til Búlgaríu, eða
er á ferðalagi í gegn um'
landið á leið til Istambul, eða
landanna fyrir botni Miðjarð-
arhafs, þá er öruggt að öll
þjónusta er með bezta móti
hvar sem er í Búlgaríu. Með-
fram öllum vegum landsins
eru staðir sem selja benzín
og brennsluolíur af öllum
gæðaflokkum. Sömuleiðis eru
á hverjum þessara staða við-
gerða. og þjónustuverkstæði,
en í stórborgum öllum eru
stærri viðgerða- og þjónustu-
verkstæði sem veita alhliða
þjónustu, svo sem bezt gerist
í heiminum. Auk þess eru
um alla Búlgaríu á ferðinni
gulir þjónustubílar, sem veita
strax umbeðana aðstoð, og
er auðvelt að kalla þá upp
gegnum talstöðvar þjónustu-
stöðvanna við vegina sé ipess
óskað, Benzín er afar ódýrt
í Búlgaríu og má t.d. nefna,
að super-oktant 86, kostar
14 úr leva eða um kr. 5.40.
Ferðamenn sem fara á eigin
bílum, geta komizt á hó.tel,
motel eða bílasvæði (camp-
ing) þar sem ríkulega búin
þjónusta bíður þeirra á öll-
um sviðum. Við allar landa-
mærastöðvar eru fulltrúar
„HÆMUS“ sem er félags-
skapur, er annast sérstaklega
alla þjónustu fyrir þá sem
koma á bílum til Búlgaríu,
endurgjaldslaust, hvort held-
er er næturgisting og er verð
þeirra frá kr. 18.75 til 150.00.
Tjaldbúðar-hverfi (camping)
eru afgirt og upplýst, og er
stöðugur vörður í þeim. í
hverji hverfi eru hreinlætis-
tæki, steypiböð með köldu og
heitu vatni, en jafnframt
þessu eru í hverju hverfi eitt
eða fleiri almenningseldhús,
þar sem jafnvel er hægt að
elda mat sjálfur, og spara sér
með því. Þá eru smáverzlanir
sem verzla m.a. með tóbak,
minjagripi, pakkavöru, ávexti,
brauð o. s. frv.
Þeir sem ekki hafa meðferð-
is tjöld, geta fengið þau lán-
uð í þessum hverfum, en auk
þess er hægt að leigja þar
smáhýsi gegn mjög vægu
gjaldL
Er sjórinn oft notaður í laug-
ar sem fylgja baðstöðunum
og er þá gjarnan hitaður upp,
ef hann er kaldari en góðu
hófi gegnir. Hægt er að
stunda jöfnum höndúm sjó-
böð og heilsulindaböð (min-
eral), t.d. eru heilsulindar-
staðir við gylltu ströndina
(The golden beach) og
Drjuba við Varna. Þá er
og jöfnum höndum hægt að
stunda sjóböð og leirböð. Á
stöðum eins og Tuzista óg
fjölda annarra við Svartahaf-
ið eru slík böð og hafa reynzt
■ mjög nytsamleg gegn sjúk-
dómum, svo sem liðagigt og
húðsjúkdómum.
Helztu einkenni loftslags til
fjalla.
Þau landsvæði sem einkenn-
ast af fjallaloftslagi liggja í
um það bil 1000—1800 m.
hæð og eru flestir helztu
ferðamannastaðir Búlgaríu til
fjalla, á þessum svæðum, svo
sem Brovetz og Rilaklaustrið
í Rilafjöllum, Pamporovo í
Rhodosfjöllum og_ Aleko í
Vitoschafjöllum. Á vetrum
snjóar mjög mikið á þessum
svæðum, allt að 1 til 1.5 m.
Aukning ionanna (ioniser-
ing) í andrúmsloftinu hefur
reynzt hafa áhrif til bóta á
fjölda sjúkdóma svo sem
astma, skjaldkirtilssjúkdóma,
svefnleysi, lystarleysi, getu-
leysi til' vinnu, taugaþreytu
(neurasteni), blóðleysi o. fl.
Gyllta ströndin og Safír-
ströndin
Gyllta ströndin er aðeins
í 17 km. fjarlægð frá Varna,
en Drjuba um 10 km. Safír-
ströndin (Drjubas) er fremur
mjó og sundurslitin, en Gyllta
ströndin er aftur á móti ó-
slitin og allt að 3.5 km. löng
og um 200 m. breið og má
líkja henni við stóra breið-
götu.
Þessir tveir baðstaðir hafa
allt það upp á að bjóða sem
veitir ferðamanni yndislega
leyfisdaga. Fallegt landslag,
vel skipulagt af mannsins
hendi, og ótal helztu eigin-
leika baðstranda, svo sem
milt loftslag, eitt hið bezta
þarna um slóðir, sólríkir dag-
ar frá maí til loka október og
svalandi nætur. Þá eykur
garðurinn sem Drjuba hótel-
inn liggja í og skógurinn sem
skýlir Gylltu ströndinni, á
yndisleika staðarins. Sjávar-
Balkantourist
SOFIA, Lenintorgi 1
og fjallaloftið nýtur sín á
báðum þessum stöðum og ó-
tal hitauppsprettur eru víðs
vegar um ströndina.
Meðallofthiti staðarins yfir
sumartímann er 21—23° C.
Regn er þar óverulegt, en
sólin skín þar allt að 2.240
klst á ári.
VEGABRÉFASKOÐUN OG
TOLLSKOÐUN
Sérhver ferðamaður er ætlar
að heimsækja Búlgaríu á
auðvelt með að fá vegabréfs-
áritun, hvort heldur er, til
dvalar eða að fara í gegn um
landið. Sendiráð og fulltrúar
þeirra veita þessar áritanir
og er verð þeirra sem hér
segir: Kr.
Vegabréf fyrir ferða-
menn til dvalar 43,06
Vegabréf fyrir þá sem
eru á ferð í gegnum
landið, gildir 7 daga 43.06
Vegabréf fyrir 14 daga
gildistíma 86.12
Vegabréf þeirra er ætla
að setjast að í landinu
um lengri ^ða skemmri
tíma til búsetu 91.95
Þeir ferðamenn sem koma
frá löndum sem ekki
hafa stjórnmálasamband við
Búlgaríu, geta fengið þessa
áritun við landamæri, á flug-
stöðvum eða í hafnarborgum.
Ekki er nauðsynlegt að hafa
myndir. íslendingar fá vega-
bréfsáritun þessa í Kaup-
mannahöfn og sér ferðaskrif-
stofa vor um alla fyrir-
greiðslu í þeim efnum.
REGLUR UM GJALDEYRI
Heimilt er að fara inn í land-
ið með erl. gjaldeyri frá
hvaða landi sem er. Engin
nauðsyn er að útfylla nein
skilríki því viðvíkjandi.
Skipti á gjáldeyri fara fram á
fjölda staða í Búlgaríu. Þjóð-
bankanum að sjálfsögðu, en
auk þess á öllum landamæra-
^töðvum, flugstöðvum, hafn-
arborgum og sérstökum
„bönkum“, sem eru á flestum
stærri hótelum, veitingastöð-
um og börum. Fyrir ferða-
menn er sérstakt gengi, og
er hlutfallið t.d. milli $ 1:00
og leva, sem er þeirra aðal
gjaldmiðill 1:2, en venjulegt
gengi er $ 1:00 á móti 1.18
leva. íslenzka krónan er
samsvarandi og er hægt að
,..§kipta auðveldlega, og.myndi
þá 2 leva fóst fyrir kr. 43.06,
miðað við núverandi gengi á'
$. Gjaldmiðill landsins er
'léÝa og stotinki, og eru 100'
stotinki í leva. Ekki er heim-
ilt að fara með leva inn eða
út úr landinu og er hægt að
skipta búlgörskum gjaldmiðli
áður en farið er úr lapdinu
í þann gjaldeyri sem skipt
var úr í upphafi, eða annan
erl. gjaldeyri, ef hitt er ekki
mögulegt.
BÚLGARÍA ER FAGURT LAND, þjóðin alúðleg.þjón-
usta með afbrigðum góð, verðlag með því lægsta sem
þekkist í Evrópu og framleiðsla í öðrum og bættum
vexti. ■
BÚLGARÍA myndi því verða eitt fyrsta landið sem
feröamaður heimsækir þegar hann athugar hvert á
að fara í sumar- eða vetrarleyfinu.
Laugavegi 54, Reykjavík. Umboðsskrifstofa.
Símar 22890 og 22875.
* t
4 *