Þjóðviljinn - 03.07.1966, Síða 3

Þjóðviljinn - 03.07.1966, Síða 3
SumwidagOT 3. Jtffi 1966 — ÞJÖÐVXEJTINN — SÍÐA 3 A HVÍLDAR- DACINN VIDREISN OG VERDBÓLGA Ráðleysi Ad undanfömu hafa stjórn- arblöðin skrifað mikið um veröbólguna. Sá er jafnan hátt- ur þeirra að fara hörðum orð- um um allar hækkanir þegar gera á kjarasamnihga við verk- lýðsfélögin; en um leið og samningar hafa verið undirrit- aðir verða hækkanimar óhjá- ’ kvæmilegar og ekki umtals- verðar. En að þessu sinni hafa verðbólguskrifin einnig borið vott um óvenjulega mikiö ráð- leysi; það hefur verið megin- efni þeirra að stjórnarstefn- unni verði ekki með nokkru móti kennt um hina ömurlegu verðlagsþróun. Meðal annars hefur Ólafur Björnsson próf- essor birt alllangar ritsmíðar í Morgunblaðinu, og var það meginniðurstaða þeirra að stjómarvöldin hefðu það ekki á valdi sínu fræðilega séð að ráða við verðlagsþróunina, þau gætu aðeins framkvæmt ýmsar hliðarráðstafanir sem ekki hefðu komið að tilætluðum not- um hérlendis. Og inn á milli hafa ritstjórar stjórnarblaðanna fómað höndum af örvæntingu og spurt: Hver eru úrræði stjómarandstæðinga, kommún- ista, Framsóknarmanna? „Nýtt viðhorf" Sú var tíð að stjórnarflokk- amir kváðust ekki vera ráða- lausir. 1960 vissu þeir nákvæm- lega hvemig þeir ætluðu að stöðva verðbólguna. Þeir fram- kvæmdu stórfellda gengislækk- un og töldu að hún myndi tryggja öllum atvinnugreinum landsmanna góða afkomu án styrkja og uppbóta af opinberu fé. Eftir þá kollsteypu sáu þeir framundan tímabil stöðugs verðlags eins langt og augað eygði. Fyrir þessum ánægju- legu framtíðarhorfum var gerð svofelld grein í ritinu ,Viðreisn‘ sem ríkisstjórnin gaf út 1960, bls. 23: „Ákvörðun grunnlauna verð- ur eftir sem áður háð frjáls- um samningum á milli atvinnu- rekenda og stéttarfélaga. Þrátt fyrir þetta getur ekk.i hjá því farið. að viðhorfið í launamál- um verði annað að lokinni framkvæmd þeirra ráðstafana, sem hér er gert ráð fyrir, held- ur en það hefur verið um langt skeið undanfarið. Útflytjendur hafa um margra ára skeið tal- ið öruggt, að þeir gætu fengið sérhverja launahækkun, er þeir veittu starfsmönnum sínum, jafnaða með hækkun útflutn- ingsbóta. Á sama hátt hafa aðr- ir atvinnurekendur miðað við það, að þeir gætu fengið sér- hverja launahækkun endur- greidda í hækkuðu verði á vör- um sínum og þjónustu ...... Slíkar launahækkanir eru laun- þegum gagnslausar, en leiða hins vegar til verðbólgu, og hafa þannig hinar alvarlegustu af- leiðingar fyrir efnahagslíf landsins, þegar til lengdar læt- ur. Ríkisstjórnin telur að með þeim ráðstöfunum í efnahags- málum, sem tillögur hennar fela í sér, muni nýtt viðhorf skapast. Útflytjendur verða framvegis að sæta ríkjandi gengi og geta ekki fcngið auk- inn launakostnað endurgreidd- an í hækkuðum útflutningsbót- um. Þá er það einnig ætlun rík- isstjórnarinnar að leyfa engar verðhækkanir á innlendum vör- um og þjónustu vegna launa- hækkana‘‘. Átti að duga Þannig var kerfið sem átti að stöðva verðbólguna fullskap- að. Atvinnurekendum var sagt að beir vrðu að standa á eigin fótum: ef beir semdu um launa- hækkanir vrðu þeir að greiða þær sjálfir í raun og veru og að óhemjuskapurinn í þessari þróun fer langt út fyrir það sem skynsamlegt má teljast. Þama hefur mjög verulegur hluti af framleiðsluaukningúnni lent, á sama tima og togara- útgerð er að leggjast niður og hluti bátaflotans er kominn í þrot. Eina leiðin Verulegur liluti af stórauknum þjóðartekjum Islcndinga hefur á undanförnum árum starfsfólk hefur tvöfaldazt á skömmum tíma. Kostnaðinn greiðir almenningur fa’rið í hverskyns viðskiptamusteri þar í síhækkandi vöruverði, vaxandi verðbólgu. sem fengju hvork-i framlög úr ríkis- sjóði þeirra vegna né heldur heimild til að velta launahækk- ununum af sér út í verðlagið. Forsendur kauphækkana voru því aðeins framleiðsluaukning, aukin hagkvæmni í rekstri eða skertur gróði, en færi atvinnu- rekandi út fyrir þau mörk sem reksturinn stóð undir gerði hann sjálfan sig gjaldþrota. Kerfið átti því að tryggja það til fulln- ustu að kjarasamningar yrðu raunhæfir; aukin dýrtíð átti aðeins að eign sér stað ef við- skiptakjör okkar út á við versn- uðu. þ.e.a.s. innfluttur varning- ur hækkaði meira en útflutn- ingsvörur okkar. Hafnaði sínu eigin kerfi Alþýðusamtökin sýndu ráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar mik- ið langlundargeð. Samt kom fljótlega í ljós að viðreisn rík- isstjórnarinnar var framkvæmd . einhliða á kostnað launafplks, ekki með því að stuðla að hag- kvæmari atvinnurekstri heldur með því einu að sækja fjár- muni í vasa almennings. Geng- islækkunin skerti lífskjör vinn- andi fólks svo mjög að neyzl- an dróst í fyrstu stórlega sam- an; verzlunarskýrslur sýndu að á fyrsta ári viðreisnarinnar minnkaði meira að segja inn- flutningur á algengustu mat- vörutegundum. Því var það að alþýðusam- tökin bjuggu sig til átaka sum- arið 1961; nú skyldi reyna á kerfið. Þá kom fljótlega í ljós að nokkur hluti atvinnurekenda taldi sig geta 1 komið talsvert til móts við kröfur laujiafólks af eigin rammleik; fyrirtæki samvinnuhreyfingarinnar sömdu um þó nokkra kauphækkun. Eftir viðbótarátök fylgdu aðrir atvinnurekendur svo í kjölfar- ið. Þessir samningar höfðu tek- izt í samræmi við hin „nýju viðhorf“: atvinnurekendur áttu sjálfir að borga það kaup sem þeir höfðu samið um og hvorki að fá útflutningsuppbætur né verðhækkanir á móti. Engin verðbólga átti að hljótast af þessum samningum. En þá brá svo undarlega við að ríkisstjórnin neitaði að fallast á sitt eigið kerfi. Hún framkvæmdi nýja gengislækk- un í þeim tilgangi að svipta launafólk beirri kauphækkun sem um hafði verið samið. Fyr- irheitið um að laun skyldu ,.háð frjálsum samningum á milli atvinnurekenda og stétt- arfélaga“ reyndist ekkert gildi hafa. Ríkisstjórnin hætti viðað láta atvinnurekendur standa á eigin , fótum og bera ábyrgð gerða sinna, heldur lék þá eins og pelaböm. Alger uppgjöf Öþarfi er að rekja þróunina síðan, hún er öllum í fersku minni. Ríkisstjórnin hefur ger- samlega gefizt upy við stefnu sína, horfið skilyrðislaust frá því kerfi sem átti að stöðva verðbólguna og gera kaupsamn- inga raunhæfa. Allir kjara- samningar hafa á undanförnum árum verið miðaðir við það af hálfu atvinnurekenda „að þeir , gætu fengið sérhver.ja launa- hækkun, er þeir veittu starfs- mönnum sínum, endurgreidda 5 hækkuðu verði á vörum sínum og þjónustu“. Á sama hátt hafa útflutningsatvinnuvegirnir feng- ið sínar hækkanir bættar með síhækkandi styrkjum og upp- bótum, sem nema nú hundruð- um miljóna króna á ári. 1 stað þess að ríkisstjórnin ætl- aði að hafa verðlagseftirlit á öllum „innlendum vörum og þjónustu“ til að komaívegfyr- ir óheimilar verðhækkanir, hef- ur verðlagseftirlit þetta verið afnumið að heita má — því er aðeins haldið á nokkrum vísi-' töluvörum til þess að reyna að skerða umsamdar verðlagsupp- bætur launafólks Þetta afnám verðlagseftirlitsins hefur leitt til þess að atvinnurekendur hafa velt út í verðlagið miklu fleiru en kauphækkunum þeim sem þeir sömdu um. Um alla þessa þróun eiga við hin fornu sannleiksorð ríkisstjórnarinn- ar í Viðreisnarbókinni: „Slikar launahækkanir eru launþegum gagnslausar, en leiða hins veg- ar til verðbólgu, og hafa þann- ig hinar alvarlegustu afleiðing- ar fyrir efnahagslíf landsins. þegar til lengdar lætur.“ Lengur en efni stóðu til „Hinar alvarlegustu afleiðing- ar“ af uppgjöf. ríkisstjórnar- innar hafa dregizt lengur en efni stóðu til vegna óvenju- lega hagstæðs árferðis um langt skeið. Ný tækni, aukin verk- kunnátta og miki) vinnusemi hafa tryggt ný aflamet ár eft- ir ár, og það hefur verið bax- izt um ýmsar afurðir okkar á erlendum mörkuðum þar sem fengizt hefur síhækkandi verð. Þjóðartekjurnar hafa aukizt um nær 9 hundraðs- hluta á ári hverju, um 40— 50% á síðustu fimm árum. Þessi stökkbreyting hefur gert okkur að einni tekjuhæstu þjóð heims miðað við mannfjölda, og þær aðstæður hafa hald- ið þjóðarbúskapnum gangandi fram undir þetta þrátt fýrir það þótt ríkisstjórnin hafi gef- izt gersamlega upp á því aðal- verkefni sínu að stöðva verð- bólguna. En nú er greinilega að koma að skuldadögum. Dýr þróun Verðbólguþróunin hefur orð- ið þjóðinni dýr. Hún veldur því að stórauknar þjóðartekj- ur hafa engan veginn notazt svo sem skyldi, hvorki að því er varðar lífskjör almennings^. né afkomu atvinnuveganna. Allt of mikið hefur hreinlega farið í súginn í verðbólgufram- kvæmdir sem hafa takmarkað þjóðhagslegt gildi og eru marg- ar hverjar baggi á efnahags- kerfinu. Það voru mjög athygl- isverðar steðreyndir sem fram komu í ræðu sem Gylfi Þ. Gíslasbn viðskiptamálaráðherra hélt á aðalfundi kaupmanna- samtakanna 28da apríl í vor. Hann sagði m.a.: „Á áratuginum 1950—1960 jókst mannafli í viðskiptum um 3.250 manns eða um 56%. Með viðskiptum er hér átt við heildsölu, smásölu og banka- og trygginga-starfsemi. Á þess- um áratug nam heildaraukning mannafla i öllum atvinnu- greinum um 12.000 manns eða um 20%. Aukning mannafla I viðskiptum var því næstum því þrisvar sinnum meiri en mjnn- aflaaukning yfirleitt. Á þessum áratug tóku því viðskiptin til sín 27% allrar mannaflaaukn- ingar þjóðarbúsins eða milli þriðja og fjórða hluta mann- aflaaukningarinnar. Á þessum áratug, frá 1950—1960. var mannaflaaukningin örari í að- ’eins einni atvinnugrein þ.e.a. s. fiskiðnaði. Á síðastliðnum hálfum ára- tug, 1960—1965, var heildar- mannaflaaukningin í öllum at- vinnugreinum 9%. Mannafla- aukningin í viðskiptum nam hins vegar um 31% á þéssum árum. Þetta er örari mannafla- aukning en * nokkurri annarri atvinnugrein. Um það bil 40% af allri mannaflaaukningunni gengu til viðskiptanna,“ Oft hefur réttilega verið á það bent hversu stórfelldar fúlgur hafa á undanförum ár- um farið í bankahús, verzlun- arhallir og önnur mammons- musteri, en reksturskostnaður þeirra íyrirtækja hefur einnig aukizt að sama skápi, og undir honum þarf þjóðarbúskapurinn að rísa ár eftir ár. Árið 1950 unnu 5.800 manns að viðskipt- um, nú nær 12.000 — aukning- in er tæp 6.000 manns. Stofn- kostnaður af viðskiptahöllunum og stóraukinn reksturskostnað- ur fer beint út í verðlagið og magnar verðbólguna, gerir kauphækkanir óhjákvæmilegar bg lendir að lokum á fram- ieiðsluatvinnuvógunum. Að sjálfsögðu felst aukin þjón- usta í þessum umsvifum óg skal engan veginn lítið úr henni gert, en augljóst er Þegar spurt er hvemig sósí- alistar vilji stöðva verðbólg- una er því auðsvarað. Það er að sjálfsögðu hárrétt sjónai- mið að kjarasamningar verða að vera raunverulegir, atvinnu- rekendur verða sjálfir að taka að sér að greiða það kaup sem þeir semja um án uppbóta og verðhækkana. En jafnframt verður að koma til stjóra á þjóðarbúskapnum sem tryggi það að aflafengur þjóðarheild- arinnar nýtist sém bezt ' til skynsamlegra framkvæmda. Það verður ekki tekið gilt þótt at- vinnurekandi sanni á pappím- um að hann rísi ekki undir hærra kaupi . ef jafnframt er látið viðgangast að hann eyði tugum og hundruðum miljóna króna í framkvæmdir sem hafa lítið þjóðhagslegt gildi eða eru jafnvel baggi á efnahags- kerfinu. Við verðum að taka upp áætlunarbúskap, þar sem beitt er hagstjómarþekkingu okkar tima til að leggja á ráð- in um alla meginþætti í þró- un atvinnumála, ákveðið hvað er æskilegt og hvað miður æskilegt. Menn segja að siíkt séu höft. en það eru ekki önnur höft en þau sem beitt er í hverju vel reknu fyrirtæki — og þjóðarbúskapur Islendinga er aðeins minni háttar fyrir- tæki í veröldinni. Einmitt vegna þess hve efnahagskerfi okkar er lítið í sniðum höfum við öllum öðrum minni efni á því að sóa fjármunum okkar í stjómlausu og fyrirhyggju- lausu verðbólgukapphlaupi, í viðskiptahallir og smjörfjöll og hverskyns ævintýri. Aðeins með þvílíkri hagstjóm 1 í náinni samvinnu við verklýðshreyfing- una mun takast að tryggja stöðugf verðlag og skynsamlega efnahagsþróun á Islandi. — Austrl. Sigaretturnar, sem allir hafa beðið eftir eru nú Ioks á markaðnum. Biðjið um BLACK & WHITE MARCOVITCH • PICCADILLY • LONDON

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.