Þjóðviljinn - 03.07.1966, Qupperneq 12
M ■
Bankarnir undirbúa nú aðgerðir til
að sporna við misnotkun á tékkum
Síðasta skyndikönnun leiddi í Ijós verulega aukna misnotkun
Q Sl. laugardag, 25. júní, fór fram skyndikönn-
un á jnnistæðulausum tékkum með svipuðu sniði
og áður hefur verið. Kom í ljós, að innstæða var
ófullnægjandi fyrir tékkum, samtals að fjárhæð
kr. 2.247.000,00. Heildarvelta dagsins í tékkum við
ávísanaskiptadeild Seðlabankans var 213,8 milj.
króna og var því 1,05% fjárhæðar tékka án full-
nægjandi innstæðu.
Frá nóvember 1963 hafa alls
farið fram 11 skyndikannanir. í
fyrstu skyndikönnuninni kom
fram, að um verulega misnotk-
un tékka var að ræða, en er
fram í sótti og þessar aðgerðir
Seðlabankans og viðskiptabank-
anna urðu tíðari, virtist draga
úr misnotkuninni. Til dæmis var
prósentutala innstæðulausra
tékka miðað við heildarveltu í
ávísanaskiptadeild Seðlabankans,
er skyndikannanir fóru fram á
síðasta ári 0,48%—0,69%.
Niðurstaða þessarar síðustu
skyndikönnunar ber með sér, að
misnotkun tékka hefur aukizt
verulega á ný miðað við undan-
farandi skyndikannanir. Seðla-
bankinn og viðskiptabankarnir
líta á 'þessa niðurstöðu mjög al-
varlegum augum, segir í frétt
frá Seðlabanka íslands, og enn-
fremur er ljóst, að frekari og
strangari aðgerða er þörf til
þess að sporna við misnotkun-
Kópavogur
Félag óháðra kjósenda heldur
félagsfund í Þinghól annað
kvöld, mánudag, kl. 9. Rætt
verður um nýja bæjarmála-
samninginn, Hafnarf jarðarveg o.
fl. ~
lausra tékka. Auk þess verða
bankarnir að setja strangari
reglur um stofnun tékkareikn-
inga og innlausn tékka.
Seðlabankinn mun, sem áður,
halda áfram aðgerðum til þess
að vinna á móti misnotkuninni,
m.a. með tíðari skyndikönnun-
um og öðrum nauðsynlegum að-
gerðum.
inni. Eru slíkar aðgerðir í und-
irbúningi hjá bönkunum. Kem-
ur m.a. til greina að leita laga-
breytinga, sem leiddu til þyngri Ferðaleikhúsið er nú að
refsidóma fyrir útgáfu innstæðu- leggja af stað í leikför um land-
Leika hvert kvöld
samf leytt 40 daga
Rúmenar vilja fá
Bessarabíu aftur
VÍN 1/7 — Rúmenski kommúnistaflokkurinn hefur aftur
vakið máls á stöðu Bessarabíu, en það er landsvæði sem
Rúmenar létu Sovétríkin fá eftir seinni heimsstyrjöldina.
Stjómmálafréttaritarar í Vín
telja þetta enn eitt d'æmi um
sjálfstæðisvilja Rúmena gagn-
vart Sovétríkjunum.
Rúmenskur sagnfræðingur,
Stefan Voiou skrifar grein í síð-
asta hefti hugmyndafræðilegs
máigagns Rúmena um ákvarðan-
ir sem Kommintem tók 1940, en
þá höfðu samtökin enn þýðing-
armiklu hlutverki að gegna.
Vbicu víkur greinilega að
Bessarabíu í sambandi við gagn-
rýni á viss§r ákvarðanir Komm-
intem sem hafi haft hinar al-
varlegustu afleiðingar fyrir sjálf-
stæðisbaróttu Rúmena.
Áður hefur leiðtogi rúmenskra
kommúnista Nikolae Ceausescu
sagt að Rúmenía hafi veriðneydd
til að ganga að sovézkum kröf-
um um þetta landsvæði.
Bessarabía varð rúmenskt
land 1920, þegar Rúmenar tóku
það af hinu unga sovézka ríki.
1940 misstu Rúmenar það til
Sovétríkjanna en fengu aftur
þegar nazistar réðust inn í Sov-
étríkin. Er sovézki herinn rak
flótta Þjóðverja tók hann Bess-
arabíu aftur.
ÓDÝR
SKÓFATNAÐUR
FRAKKLANDI
- úr striga
- úr leðri
- úr vinyl
- fyrir kvenfólk
- fyrir karlmenn
- fyrir börn
NÝJAR SENDINGAR
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100
ið og mun sýna leikritin Tóna-
spil og Hjónaspil eftir Peter
Shaffer. Er ætlunin að hefja
sýningar á Höfn í Hornafirði 6.
júlí og fara síðan norður um og
vestur og sýna á hverju kvöldi,
alls um 40 sinnum.
Ferðaleikhúsið var stofnað í
vetur og sýndi þá þessi leikrit
sex sinnum í Reykjavík, austan-
fjalls og á Akranesi, en nú hef-
ur verið skipt um leikendur í
aðalkarlhlutverkum og fara með
Kristín Magnús í hlutverki sínu.
þau hinir vinsælu leikarar Þjóð-
leikhússins Róbert Arnfinnsson
Dg Baldvin Halldórsson. Kven-
hlutverk í báðum leikritum leik-
ur Kristín Magnús og aðrir
leikendur eru Leifur ívarsson
og Jón Júlíusson. Sjötti maður-
inn í flokknum, bílstjóri og
framkvæmdastjóri með meiru er
Halldór Snorrason. Þorgrímur
Einarsson hefur teiknað leik-
myndir og verða tjöldin flutt
milli staða.
Þeir Baldvin og Róbert hafa
báðir mikla reynslu í leikferðum
um landið, þetta er 15. ferð Ró-
berts og 9. ferð Baldvins, og
sögðu í viðtali við blaðamenn
í fyrradag, að þetta væru mjög
ánægjulegt starf, þótt erfitt
væri, og hv*»-gi fengju þeir
þakklátari áhorfendur en úti á
landi. Einnig sögðu þeir að
mikil umskipti hefðu orðið á
síðustu 10 árum hvað snerti all-
ar aðstæður til leiksýninga, nú
væru risin svo mörg góð sam-
komuhús og félagsheimili og lé-
legu húsin í minnihluta.
Eins og áður er sagt verður
fyrsta leiksýning Ferðaleikhúss-
ins á Höfn 6. júlí og síðan
þræddir Austfirðirnir og Norð-
urland og verður síðasta sýning-
in í ferðalaginu á Logalandi 14.
ágúst. Á Akureyri verður flokk-
urinn kringum 20. júlí og á
Vestfjörðum fyrstu dagana í
ágúst. ,
Síldveiðin
minnkandi
/
Gott veður var á sildarmið-
unum fyrir austan í fyrrinótt,
en veiðin var ennþá minni en
nóttina áður. Fjórtán skip veiddu
samtals 1095 tonn.
Veiðisvæðið hefur færst lengra
út f haf og hélt flotinn sig nú
aðallega 150 mílur austsuðaustur
frá Dalatanga.
Eftirtalin skip fengu veiði í
fyrrinótt og er afli þeirra í
tonnum.
Guðmundur Þórðarson 45, Ósk-
ar Halldórsson 90, Hoffell 70,
Arnar 200, Halldór Jónsson 84,
Þrymur 40, Ólafur T'riðbertsson
115, Fákur 30. Skímir 50, Gunn-
ar 45, Sæfaxi II 65, Eldborgin
150 og Jörundur II 73.
Sunnudagur 3. júlí 1966 — 31. árgangur
145. tölublað.
Umferð um Múlaveg aðra hvora helgi
ÓLAFSFJÖRÐUR 30/6. —
Vinna hófst í Múlavegi í síðustu
viku og er unnið í innanverðum
Múlanum utan Ófærugjár. Enn
er mest unnið við sprengingar
og með ýtum og eru þrjár jarð-
ýtur á stáðnum.
3.200.000 krónur voru veittar
til vegagerðarinnar í sumar og
gert ráð fyrir að vegurinn verði
sæmilega akfær í haust. Þó
nokkur um'ferð hefur verið um
veginn, en það er stórhættulegt
meðan unnið er við hann og er
því ætlunin að leyfa umferð um
hann aðeins aðra hvora helgi í
sumar og hafa hann þá greiS-
íærajn þá daga sem hann er op-
inn. — Sv. Jóh.
Afmælishátíðahöldin undirbúin
ÍSAFJÖRÐUR 30/6 — Hér er
unnii, af kappi við undirstming
hátíðahaldanna 15.—17. júlí í
tilefni 100 ára afmælis ísafjarð-
arkaupsti ívár. Einkum eru það
iðnaðarmen,- sem eru önnum
kafnir, því alstaðar er verið að
mála og prýða hús fyrir afmæl-
iff og útrýma kofum, skúrum og
öðru drasli. J
Unnið er viff malbikun ýmissa
gatna í bænum og við lagningu
vegar inn á flugvöllinn. Þá er
verið að smíða brú á Kirkju-
bólsá, en ekki enn byrjað á
flugskýlinu sem átti að byggja í
sumar.
Búizt er via miklu fjölmenni
við hátíðahöldin og mjög mörgu
aðkomufólki, og munu gestir
hvergi nærri komasit fyrir í
þeim 2 gistihúsum sem hér eru.
Hernum og Mánakaffi. ísfirðing-
ar í Reykjavík munu ætla að
koma á sérstöku skipi og búa
um borð í því og margir verða
hjá ættingjum og vinum. Þá eru
tjaldstæði skammt frá bænum.
í húsmæðraskólanum eiga að
búa boðsgestir bæjarins m.a.
fulltrúar frá ríkisstjóm og frá
vinabæjum ísafjarðar á Norður-
lön^- -.
A lisins var minnzt í vetur
með hátíðafundi. og veizlu, en
aðalhátíðahöldin verða nú í
sumar. Mjög fjölbreytt dagskrá
er í undirbúningi. — H.Ó.
Sláttur ekki fyrr en seint í júlí
Ólafsfjörður 30/6. — Hér er
nú ljómandi veður og hlýindi,
en allt að hálfur mánuður til
þrjár vikur þar til sláttur getur
hafizt þar sem veturinn var
mjög langur og snjóþungur.
Hefur öll vorvinna tafizt og víða
er ekki enn búið að gera við
girðingar kringum bæi eftir vet-
urinn. Sáningu kartaflna og
annarra' jarðávaxta var lokið
fyrri hluta júnímánaðar og var
óvenju mikið sett niður að þessu
sinn. — Sv. Jóh.
Fyrsta fjölbýlishúsið á Egilsstöðum
EGILSSTAÐIR 30/6 — Mikl-
ar hyggingaframkvæmdir standa
nú yfir hér í kauptúninu og eru
um 20 íbúðarhús í smíðum.
Mannfjöldaaukning hefur verið
mjög hröð, á síðasta ári bættust
við 69 íbúar, nýfæddir og inn-
fluttir og voru íbúar taldir tæp
500 um síðustu áramót, en eru
þó fleiri í raun, því margir eru
byrjaðir að byggja hér sem enn
eru ekki skráðir með lögheimili
á staðnum.
Meðal húsanna sem eru í
byggingu er fyrsta fjölbýlishús-
ið sem hér rís, en fram að þessu
hafa eingöngu verið hyggð ein-
býlishús. Er þetta^ átta íbúða
blokk og búizt viSTað fleiri komi
á eftir. Fimm húsanna sem ver-
ið er að byggja eru á vegum
Byggingarféíags verkamanna og
tvö á vegum hreppsins, að hin-
um standa einstaklingar. —
Sv.Á.
Beðið eftir leyfi til söltunar
Ólafsfjörður 30/6 — Undir-
búningur er hafmn hér að síld-
arsöltun og verið að útbúa þrjár
söltunarstöðvar fyrir sumarið,
þær sömu og hafa starfað und-
anfarin sumur. Hefsl vinnsla
strax og ’^vfi íæst til að salta.
Síldarverksmiðjan hefur feng-
ið um 16.000 lestir síldar það
sem af er sumri og hefur þetta
mestallt farið í bræðslu og smá-
vegis verið fryst. Það eru nær
eingöngu bátar frá Olafsfirði
sem hér leggja upp síld og hafa
þeir komið rne'ð aflann hingað
að austan.
Margir litlir bátar hafa byrjað
dragnótaveiðar, en afli hefur
verið rýr. Þrír 12—15 tonna bát-
ar héðan eru á handfærum og
sækja þeir yfirleitt austur um
Langanes. Afli þeirra hefur ver-
ið dágóður og salta þeir fiskinrí
um borð. — Sv. Jóh.
Ferðamenn flykkjast austur
Egilsstaðir 30/6 — Hér er nú
ágætis tíðarfar, Egilsstaðabænd-
ur famir að slá og gott útlit á
túnum í nærsveitum. Ferða-
mannastraumurinn er að hefjastt
flest ferðafólkið býr á sumar-
gistihúsunum að Eiðum og Hall-
ormsstað, en einnig er margt í
tjöldum í skógunum, mest við
Átlavík.
Almenn veitingasala hófst í
nýja héraðsheimilinu á Egils-
stöðum á mánudag, þar verða
einnig haldnir dansleikir um
helgar í sumar og eru ákveðnir
þrír almennir dansleikir í júlí,
en aðra hejgina í júlí 9.—10.
verður haldin mikil tveggja
daga útisamkoma á Hallorms-
stað og verður þar margt til
skeriimtunar og dansað bæði úti
og inni. Önnur slík samkoma
verður haldin á Hallormsstað
um verzlunarmannahelgina af
Ungmennafélaga- og íþróttasam-
bandi Austurlands. Engin áfeng-
isneyzla verður leyfð á þessari
samkomu. — Sv.Á.
Síld úr erlendum skipum aðalvonin
Sifflufjörður 30/6 — Litlu
sem engu hefur verið landað
hér af síld í sumar, enda síldin
öll á austursvæðinu enn. Nokkr-
ir Siglufjarðarbátar eru á síld,
en ekki hefur verið samið við
þá um að sigla með aflann norð-
ur fyrix eins og Ólafsfj.bátar
gera. Bátar héðan á síldveiðum
eru Siglfirðingur og Sigurður,
einnig eru Anna og Sigurborg
skráðir hér, en gerðir út frá
Akranesi.
Margar söltunarstöðvar und-
irbúa þó móttöku síldar j sum-
ar og er aðalvonin hér að fá síld
frá útlendum veiðiskipum.
Togarinn Hafliði hefur verið
á veiðum fyrir Norðurlandi það
sem af er árinu og landað á
Siglufirði og lagði hann í gær
upp 120 tonn af þorski og karfa.
Tveir bátar eru að hefja ufsa-
veiðar' Hringver og Tjaldur, eru
þeir nýkomnir úr fyrsta túrnum
með um 40 tonna afla hvor. —
E.M.A.
j