Þjóðviljinn - 22.07.1966, Síða 10

Þjóðviljinn - 22.07.1966, Síða 10
I ! I I ! □ Sláttur er víða hafiinn hér sunnanlands og vestan og þó í litlum mæli víðast hvar hjá bændum, — óskaplegt regnveður geisaði víða um land í gær nema á Austfjörðum og Suð- austurlandi. □ yið höfðum tal af nokkrum bændum aðallega fyrir sunnan og vestan og inntum þá eftir tíðarfari og heyskaparhorfum þessa daga, og jafnframt færðum við mjólkurskattinn í tal við þá alla. Fara þessi viðtöl hér á eftir. Okladjúpar tjarnir í túninu Öskapleg rigning VÍiS náðum tali af Hjörleifi Guömundssyni, bónda að Hreggviðsstöðum í Andakíls- hreppi í Borgarfirði, og spurð- um hann um tíðarfar og horf- ur: — Hér er búin að vera ó- skapleg rigning í dag og eig- inlega óþurrkur alla þessa \nku. Bændur hér í sveitinni voru. almennt aðeins byrjaðir að slá, en vegna þess hvað grassprettan hefur verið sein til í vor, — þá liggur ekki mikið hey í hrakningum. — Ég rek baeði kúabú og sauðfjárbúskap og hefurmargt verkið fallið til núna í vor. Bændur eru óánægðir með mjólkurskattinn almennt hár í sveitinni.. Vonlaus barátta Við náðum tali í gærdag af Jóhanni Sigurðssyni, bónda að Stóra Núpi í Gnúpverja- hreppi, og Jnntum hann eftir heyskaparhorfum og efnahags- ástandi: — Hér er búin að vera linnulaus rigning frá því á þriðjudag og er úrkoman með mesta móti í dag sagði hann. Þegar ég lít héma út um gluggann hjá mér, hélt hann áfram, þá sé ég að stórar tjamir eru komnar í túnið hjá mér og hygg ég þær vera ökladjúpar, enda hefur úr- koman verið óskapleg í dag. — Bændur hér i sveitinn setluðu almennt að hefja slátt í þessari viku og verða nú að seinka því, — grasspretta er mánuði seinna á ferði'nni og er þó orðin hæf fyrir slátt, — þannig ætlar grashrestur- inn ekki að verða tilfinnan- legur hér í sveitinni. — Hvað . segir þú um m jólkurskattinn ? — Þetta er góð aðferð til þess að fá bændur til að leggja niður búskap í fram- tíðinni, — persónulega lít ég orðið núna á búskap sem vonlausa baráttu og hygg draga mig út úr honum á næstunni. — Bú upp á fjórar miljón- ir króna gefur álíka tekjur og vörubíll, sem kostar fjög- ur hundmð þúsund krónur með rekstri, — fjárfestingin er orðin svo erfið í búskap, að bændur hrekjast frá bú-__ um sínum og leita til auð- veldari atvinnuhátta, — hygg ég að reki að því. Við erum til dæmis orðnir spenntir fyr- ir flutningabílum, — þeir gera tíðar ferðir hér um sveit- ina í sambandi við virkjun- arframkvæmdir við Búrfell, — alúmínið heillar og er gull dagsins í dag. Ó, já, mínar átján kýr eru í hasttu. Lifir á iandsins gæðum Við náðum tali í gær af Árna Sigurðssyni, bónda í Knarrarnesi í Álftaneshreppi í Mýrarsýslu, og spurðum hann um tíðarfarið í sveitinni: — Hér hefur verið óskap- legt regnveður í dag, — þetta hefur verið skýfall, en aðeins er nú að rofa til undir kvöld- ið. — Bændur vom almennt farnir að slá hér í sveitinni og óþurrkar hafa gengið hér yfir að undanförhu og hef- ur þetta allt orðið að vot- heyi hjá okkur. — Ég er búinn að slá fjórða partinn af túninu og grasspretta var ágæt enda hef ég alltaf notað eingöngu hús- dýraáburð. — Hvernig lízt bændum á m j ólkurskattinn ? — Minnstu ekki á það mað- ur, — það er bölvað og ragn- að á hverjum bæ. — Annars kemur þetta ekki við mig. Ég hef aðallega stundað sauðfjárbúskap og missti bústofninn á síðast- liðnu ári, — skorinn niður í núll. — Ég hökti hérna með tvær til þrjár beljur og mjólkin fer til heimilisink. — Við Hfum Iiér í dag ein- göngu á hlunnindum, — æða- varpi og lundatekju. — Ég er hættur að koma í kaupfélagið og kaupi mín- ar þurftir í Reykjavík, — þetta gamla, sitt pundið af hvoru, — ætli þeim líði ekki bezt, sem em í minnstum téngslum við efnahagsbrölt þessara spekinga og lifi að- eins á landsins gæðum. Þetta léku franskir bændur í spillingartíð hans Lúðvíks 18. Reiðir yfir áburðarverði Við náðum tali af Lúðvíki Jónssyni, bónda á Molastöð- um í Holtshreppi í Skagfirði, og spurðum um tíðarfar og, heyskaparhorfur í sveit hans: — Hér hefur verið mikil úrkoma í dag og hvassviðri og óþurrkar undanfamar vik- ur með þokubrælu ságði hann. Bændur eru fyrir löngu byrj- aðir slátt og hefur heyið hrak- izt mikið að undanförnu, — það er óskaplegt að horfa upp á hvernig fóðurgildið rýmar í heyinu við hvem regndag. — Bændur eru almennt reiðir yfir mjólkurskattinum i Skagafirði, — þeir sem hafa kúabú, — ég hef hinsvegar alltaf verið með fjárbú og með hausti vofir yfir okkur skattur frá Framleiðsluráði, — það var að minnsta kosti fyrirhugað fyrr í sumar. Ann- ars var taxtinn á áburðinum í vor fyrir neðan allar hellur og þetta er að verða óskap- lega erfið barátta við búskap- Lítið byrjaðir slátt Við höfðum samband við Magnús Sigurðsson bónda í Bryðjuholti í Hrunámanna- hreppi og spurðum bónda um heyskaparhorfur í sveitinni. —- Hér hefur verið mígandi slagveður allt sfðan á þriðju- dag og er með mesta móti i dag, sagði hann. — Sláttur var almennt ekki hafinn hér í Hrunamanna- hreppi hjá bændum vegna grassprettunnar og við höf- um lfka verið uppteknir við rúningu fjárins og höfum ver- ið að reka féð til fjalls. — Einhverjir bændur vom þó byrjaðir slátt og lendir það hey í hrakningum. — Ég held að bændur hafi þó almennt ætlað að hefja slátt í þessari viku og dregst það auðvitað úr hömlu. — Hvað segir þú um mjólk- urskattinn, Magnús? — Ég segi fyrir mig með minar fjórtán kýr, að þetta er tilfinnanlegur skattur fyrir búrekstur minn, — það er ekkert spursmál, og ber að létta honum af frá upphafi. Hér er löghlýðið fólk Þá náðum við tali af Jóni Egilssyni, hreppstjóra á Sela- læk í Hvolshreppi, og spurð- um hann um heyskaparhorf- ur í sveitinni: — Hér hefur verið óskap- leg úrkoma í dag og óþurrkar alla vikuna. Þetta kemur nú ekki svo mikið að sök sem stendur, sagði Jón, hrepp- stjóri, — bændur voru lítið farnir að slá hér í sveitinm. svo að hey lendir ekki í hrakningum. — Grasspretta hefur náð sér á strik og telst nú all- sæmileg og hefði margur bóndinn viljað hefja slátt fyr- ir alvöru í þessari viku. — Hvað segir hreppstjórinn um mjólkurskattinn? — Mikið er nú búið að tala um hann á mannfundum og í blöðum og fá menn meiri vitneskju um hann þar held- ur en hjá mér, — það held ég nú, — lítið að frétta um hann hér á Selalæk. — Annars er mannlff hér ósjúkt og mannheilt og fólk- ið er löghlýðið, — það býr alltaf löghlýðið fólk í sveit- unum. ! ! ! Keppa í nýju sundlauginni á morgun Landskeppni íslendinga og Dana í sundi hefst á morgun, laugardag, kl. 3 í nýju sund- lauginni í Laugardainum og kl. 5 á sunnudag verður keppn- inni haldið áfram. — Myndina tók ljósm. Þjóðviljans, A.K., af danska landsliðsfólkinu á æf- ingu í Sundlaug Vesturbæjar. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Lars Kraus Jensen, Ej- vind Petersen, Vibeke Slot Christensen, Jörgen-Juul And- ersen, Finn Rönnow, Lone Mortensen, Bente Dunker, Gitte Raving og Britta Ped- ersen. Á minni myndinni sjást tveir dönsku landsliðsmannann- anna á æfingu í Sundlaug Vest- urbæjar, þeir Lars Kraus Jen- sen og Ejvind Petersen. Flugsýnarvélin komin til landsins: Fer væntanlega til Norðf jarðar í dag B Flugsýnarvélin ný'ja kom til Reykjavíkur í gær- morgun kl. 5. Var hún í skoðun í gær en verður vænt- anlega tekin í notkun í áætlunarflUg í dag og fer hún þá ,til Neskaupstaðar. Eins og áður hefur verið sagt frá hér í blaðinu er flugvélin af gerðinni Douglas Dakota DC 3 og tekur hún 36 farþega eða fjórum fleiri en fyrri Douglas- vélin sem Flugsýn fékk í júní sl. Flugstjóri á heimleiðinni var Kristján Gunnlaugsson en að- stoðarflugmaði/r Einar Peter- sen. Einnig var með vélinni Jón Magnússon, stjórnarformaður Flugsýnar, er gekk frá kaup- unum úti. Flugsýn á nú tvær stórar flug- vélar, Douglasvélarnar, því Her- on-vélina sem tók 15 farþega og notuð var til Norðfjarðarflugs- ins seldi félagið í Bretlandi nú fyrir skemmstu um sama leyti og gengið var frá kaupum á nýju vélinni sem kom í gær. Þessar stóru vélai mun Flugsýn nota til að halda uppi áætlun- arflugi til Norðfjarðar og til leiguflugs jöfnum höndum eftir því sem ástæður leyfa. Þá á Flugsýn og 6 litlar flug- vélar, 2—4 farþega. Þrjár þess- ara véla eru eingöngu notaðar til kennslu en hinar þrjár bæði til kennslu pg í leiguflug. Hef- ur Flugsýn haldið uppi ferðum til nokkurra staða úti á landi með þessum litlu vélum, t.d. til Siglufjarðar, þótt þar sé ekki um fast áætlunarflug að ræða. 2000 skátar á mót- inu i N&riurárdal □ Landsmót skáta verdur hald- ið dagana 25. júlí til 1. ágúst við Hreðavatn eða nánar tjl- tekið á flötunum við Norður- á þar sem Bifrestingar æfa sig í knattspyrnu og öðrum í- þróttum á vetrum. □ Þar verða nú tjaldbúðir 2000 skáta á að gizka. Erlendir skátar á mótinu verða tæp- lega 280, þar af 25 af Kefla- víkurflugvelli og nokkrir út- Iendingar sem eru hér í sum- arleyfi. sem er gríðarstórt, svo að segja tilbúið frá Siglufirði. Þátttakendur verða um 2000 þar af um 289 útlendingar. Stærstu hópar útlendinga koma frá Bretlandi og Kanada en þeir Framhald á 6. síðu- Vörabifreið stol- ið á Akureyri Blaðið hafði samband við Önnu Kristjánsdóttur og sagði hún að undirbúningur væri haf- inn fyrir nokkru á mótsstað og væru þar 20—30 íslenzkir skátar og auk þess 3 þýzkar stúlkur og ein ensk. En undirbúningur- inn fer ekki allur fram þar, t.d. verður kcanið með mótshliðið, I fyrrakvöld stálu tveir 17 ára strákar úr Reykjavík vörubifreið á Akureyri. Drengimir voru ölv- aðir og missti sá sem ók bif- reiðinni fljótlega vald á henni. Voru þeir enn inní bænum þeg- ir þeir náðust. Einn hjólbarði eyðilagðist á bifreiðinni en áð öðru leyti skemmdist hún ekki. Metunum rigndi í Hveragerði í gær Ágætur árangur náðist á sund- móti því, sem Sundsamband Is- lands efndi til í gærkvöld í sundlauginni í Hveragerði. Voru þar sett fjögur ný Islandsmet og eitt Jótlandsmet. I 200 m flugsundi karla sigr- aði Guðmundur Gíslason á met- tíma, 2.28,0 mín en Jörgen Juul frá Danmörku synti á 2.49,7. 1 200 m baksundi kvenna sigr- aði Lone Morteifsen frá Dan- morku á 2.56,9 mín sem er nýtt józkt met, en Matthildur Guð- mundsdóttir varð önnur á 8.01,6 mín sem er íslandsmet. Þá setti landssveit Islands nýtt met í 4x100 m fjórsundi karla, synti á 4.37,4 mín en Danimir syntu á 4.38,5 mín. Fyrsta sprett- inn, 100 m baksund, synti af Islendinga hálfu Guðmundur Gíslason og setti nýtt íslands- met, 1.08,3 mín. Þetta voru metin, en af öðr- um úrslitum sundmótsins má nefna: 1 4x50 m fjórsundi kvenna sigraði sveit Dana, á 2.26,2 mín en íslenzka sveitin synti á 2.28,3 mín. I 400 m skriðsundi kvenna sigraði Vibeke Slot, Danmörku á 5.12,6 mín og Bente Dunker varð önnur á 5.13,1 mín. Britta Petersen Danmörku sigraði í 100 m bringusundi kvenna á 1.25,1 mín og Lars Kraus Jensen bar sigur úr být- um í 100 m baksundi karla á i.06,5 mín. Þá vann Finn Rönnow Dan- mörku 100 m bringusund karla á 1.16,9 mín en Fylkir' Ágústs- son úr Vestra synti á 1.17,8. Fylkir sigraði þó Danann glæsi- lega í boðsundskeppninni, synti 100 metrana þá á 1.16,0 mín en Daninn fékk tímann 1.19,0.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.