Þjóðviljinn - 29.07.1966, Page 3
I
Föstudagur 29. júlí 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3
Hervirkjageri í Norður-
Noregi ógnar heimsfriii
Segir sovézka blaðið Izvestía og deilir harðlega á
varnarmálaráðherra Norðmanna og hershöfðingja Nato
HernaSarástandið í Ródesíu
standi enn í jtrjá mánuSi
Háskólaráð og Rektor telja háskólann óstarfhæfan
vegna ráðstafana ríkisstjórnar hvíta minnihlutans
MOSKVU 28/7 — Höfuðmálgagn sovézku ríkisstjórnarinn-
ar, Ísvestía, gagnrýnir norska vamarmálaráðherrann Otto
Grieg Tidemann, harðlega og kallar hann einn „hinna
áköfustu Natosinna11. Blaðið segir að varnarmálaráðherr-
ann sé „fullur beiskju“ vegna þeirrar stefnu Norðmanna
að leýfa ekki erlendar herstöðvar né kjarnorkuvopn á
norskri grund á friðartímum. I
f grein eftir Júrí Golosjúbof
segir að Norður-Noregur hafi
verið gerður að andsovézku
hernaðarsvæði.
Sovézka þjóðin getur ekki,
segir í greininni, setið með hend-
ur í skauti og horft aðgerðar-
laust á það sem gerist í nágrenni
hennar.
Ógnarjafnvægi
Tidemann ráðherra er sakað-
ur um að aðhyllast kenninguna
um ógnarjafnvægi.
Hvers vegna er einmitt
þörf á að sýna tryggðina við
Nato, spyr Golosjúbof og bætir
við að Nato veroi æ óvinsælla
í Noregi.
Þrátt fyrir það hafi Natovinir
ekki aðeins haldið fast við göm-
ul sjónarroið sín, en reyni einn-
ig að fá landið til að gefa enn
frekar eftir við Nato hershöfð-
ingjana.
Hernaðarundirbúningur
Natohdrshöfðingjarnir hafa
i aukið hernaðarundirbúning veru-
lega í Noregi, sérstaklega norð-
urhluta landsins, sem er í' raun
og veru orðið stríðsbirgðasvæði
Nato á Norðurlöndum, segir í
greininni.
Ógnun
Ízvestía segir að þar séu byggð
hernaðarmannvirki sem séu
miklu viðameiri en þaffir Nor-
egs gefi tilefni til og nú líti
út fyrir að hernaðarundirbúning-
urinn verði einnig hafinn á Sval-
barða.
Vestur-þýzku hernaðarsinnarn-
ir taka sífellt meiri beinan þátt
í herstefnu Natohershöfðingja á
N orðurlön dum.
Þetta er ógnun við öryggi
þjóðanna á Norðurlöndum.
Það er undir Norðurlöndum
sjálfum . komið og þá einkum
Noregi og Danmörku hvemig á-
standið i Skandinavíu breytist í
framtíðinni, segir í greinarlok.
nú.l
Portúgalar unnu lið
Sovétríkjanna 2:1
LONDON 28/7 — Portúgal tryggði sér bronsverðlaunin í
heimsmeistarakeppni í knattspymu í leik við Sovétrikin
í dag. En það munaði mjóu, því það var ekki fyrr en tveim
mínútum .fyrir leikslok að miðherji Portúgala, Jose Torres,
tókst að sfcort eftir sendingu fró Augusto á stuttu -færi og
var alveg vonlaust fyrir ,hinn heimsfræga Lev Jashin,
markvörð sovézka liðsins, að verja.
Staðan í hálfleik.var 1:1.
Leikurinn var tiltölulega jafn
og varð aldrei verulega góður.
Hvorugt liðið sýndi þá réttu
baráttugleði og var leikhraða
mjög ábótavant.
Sagt er, að hinir 70.000 á-
horfendur hafi verið ánæg^ir
með sigur Portúgala eftir hinn
frábæra leik þeirra á þriðjudag,
en enginn hefði haft neitt við
það að athuga þó úrslitin hefðu
orðið öfug. því leikurinn var svo
jafn og atburðalaus.
Eusebio skoraði fyrsta markið
fyrir Portúgala úr víti eftir að
12 mínútur voru liðnar af leikn-
um.
Þetta var níunda markið sém
Eusebio setur í heimsmeistara-
keppninni í ár og getur hann
farið að renna hým auga til
120.000 krónanm sem sá ieik-
maður fær í verðlaun er setur
flest mörkin í keppninni.
Sovézka liðið átti vel skilið að
geta jafnað einni mínútu áður
en hálfleik lauk, er Banishevski
skallaði í mark.
I seinni hálfleik átti sovézka
liðið meira í leiknum og var
sóknarleikur þeirra margbrotnari
en leikur Portúgala og vörnin
var betri.
Allir höfðu búizt við að leik-
urinn yrði framlengdur þegar
ekki vom nema örfáar mínútur
í leikslok, en þá gerði Torres
sem sagt óþarft að framlengja
leikinn.
Torres var yfirleitt miklu betri
en í mörgum fyrri leikjum og
náði betri árangri en Eusebio,
en hann var vandlega „dekkað-
ur“ allan tímann.
Sovézka liðið lék með fimm
varaliðsmönnum, vömin var á-
líka góð og áður en Tsjíslenko
var saknað í framlínunni.
Sovézknr hundur
til tnnglsins
WASHINGTON 28/7 — Dr.
Werner von Braun hinn þýzki
yfirmaður bandarísku geimferða-
áætlunarinnar Satumus, sem
miðar að því að koma geimför-
um til tunglsins hefur sagt, að
svo virðist sem Sovétríkin séu
að því komin að senda geimfara
á braut um mánann, eða þeir
muni láta geimfar lenda þar með
hundi innanborðs.
Ég er viss um að Sovétríkin
muni bráðlega framkvæma ann-
að hvort, segir von Braun ^ við-
tali við Washington Post og Los
Angeles Times.
Ólafsvíkurhöfn
Che Cuevara á lífí
RIO DE JANEIRO 28/7—
Utanríkisfáðherra Argen
tínu, Juracy Magalhaes
sagði á blaðamannafundi >
dag, að byltingarmaðurinn
heimsfrægi, Ernesto Che
Guevara hefði sézt á landa-
mærum Argentínu og Bras-
i'líu.
Guevara sem- var áður
einhver nákomnasti félagi
Fidels Castro forsætisráð-
herra Kúbu, hvarf fyrir 15
mánuðum og hefur oft ver-
ið skýrt frá því að hapn
væri að skipuleggja skæru-
hernað kommúnista í ýms-
um heimshomum.
Magalhaes utanríkisráð-
hema sagði, að Guevar;
hefði sézt á landamærun
um fyrir tveim mánuðun
og hefði hann verið hand-
leggsbrotinn.
La Prensa, dagblað sem
gefið er út í Liima hélt því
i fram í marz síðastliðnum,
að Guevara væri staddur í
landamærahéruðum Brasil-
íu og Argentínu og hefði
hann einnig verið í Chile.
Framhald af 10. síðu.
hvaða veðri sem er og fá góða
afsetningarmöguleika fyrir miíli-
landaskipin. Gert er ráð fyrir
að þessi lenging verði fram-
kvæmd vofið 1967 en ker steypt
í sumar og haust. Er undirbún-
ingur þegar hafinn.
Þegar þeirri framkvæmd er
lokið er langþráðu marki náð,
að skapa góða höfn i Ólafsvík,
sem er og hefur verið í fremstu
röð útgerðarstaða landsins.
Yfir 20 bátar eru nú gerðir >it
frá Ölafsvík.
Síldveiðin
Framhald af 10. síðu.
12. maí til 31. maí var síldar-
aflinn hér ; sunnanlands alls
4.597 lestir.
Alls hafa 63 skip fengið ein-
hvern afla, þar af 55 50 lestir
eða meira. Aðeins 5 skip hafa
það eru ísleifur IV. Vestmanna-
aflað 1000 lestir eða meira en
eyjum 1614 lestir, Gullborg Vest-
mannaeyjum 1369, E»gey Rvík
1205, Ársæll Sigurðsson II. Hafn-
arfirði 1149 og Sigurður Bjarni
Grindavík 1066 lestir.
NEW YORK 28/7 — Þingið í Ródesíu féllst í kvöld á til-
lögu um að framlengja herlög í landinu um þrjá mánuði.
Alan Milton settur rektor við háskólann í Salisbury mót-
mælti í dag handtöku níu háskólakennara og 10 stúdenta
í gær.
Ég mótmæli harðlega aðgerð-
um, sem ekki eru aðeins framd-
ar á óheppilegum tíma, en eru
einnig ótimabær íhlutun um
mál, sem háskólinn á sjálfur
að fjalla um samkvæmt há-
skólareglunum, sagði Mflton.
Rektor lokaði háskólanum i
gær eftir að lögreglan hafði
skyndilega ráðizt inn í skólann
og handtekið níu háskólakenn-
ara og 10 stúdenta.
litsiénvarp
París 28/7 — Ríkisstjórnir Frakk-
lands og Sovétríkjanna hafa a-
kveðið að vinna að frekari end-
urbótum á franska Secam litsjón-
varpinu.
Sjónvarpsviðtæki fyrir litsjón-
varp verða til sölu í Paris strax
í september.
Undir venjulegum kringum-
stæðum lýkur háskólamisserinu
20. ágúst.
Þingið
Allir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar í Ródesiu greiddu at-
kvæði gegn tillögunni um að
framlengja hernaðarástand í
landinu. En tillagan var sam-
þykkt með 39 atkvæðufn gegn 11.
Hætta
Desmond Lardner-Burke dóms-
málaráðherra sagði að ástæðan
væri til til að óttast auknar at-
logur að sjálfstæði Ródesíu, og
án herlaga hefðu líf og eignir
saklausra mann verið í mikilli
hættu síðastliðna níu mánuði.
Stjórnarandstaðan
Leiðtogi stjómarandstöðunnar
Chad Chipunza sagði að ekki
væri nein nauðsyn að hafa her-
lög í landinu. Allt og sumt sem
rikisstjórnin þarf að gera er að
framkvqpma breytingar, sem geta
fengið stuðning allrar þjóðarinn-
ar.
Eini óháði hvíti mað-
urinn á þingi, Pealey sagði að
svo virtist sem dómsmálaráð-
herrann gæti ekki leyst vandamál
landsins með öðru móti en því
að framlengja hernaðarástand.
Rektor
I yfirlýsingu sinni í dag segir
Milton rektor, að handtökurnar
hafi skapað ástand sem geti leitt
til ofbeldisverka.
Þá væri ekki lengur hægt að
veita fullnægjandi kennslu.
íhlutun ríkisstjórnarinnar hefði
eyðilagt þá möguleika sem há-
skólinn hefði sjálfur haft til að
halda uppi nauðsynlegum aga.
Enginn háskóli getur starfað ef
honum er ógnað eða verður fyrir
svipuðum aðgerðum og ríkis-
stjómin hefur nú gripið til, seg-
ir í yfirlýsingunni.
Háskólaráð hefur einnig mót-
mælt handtökunum, sem það
segir brot á einföldustu mann-
réttindum.
HIN VINSÆLU AMERISKU BLONDUNARTÆKI I
ELDHÚS OG BAÐHERBERGI.
Lsndsmét skáta 1966, Hreðavatni, Borgarfirði
Sunnudaginn 31. júlí n.k. frá kl. 13.30 verður mótssvæðið opið fyrir foreldra skátanna
og aðra þá, sem vilja heimsækja mótssvæðið og sjá tjaldbúðirnar.
Þennan dag' verða ýmsar sýningar í gangi, bæði úr starfi skátanna, sýning á úti-
lífsvörum og sýningar tengdar ramma mótsins, hafinu.
Þennan sama dag er einnig heimsóknardagur ylfinga og ljósálfa á Landsmótið, og
hvetjum við eindregið alla foreldra þeirra að koma með börn sín í heimsókn á
mótið á sunnudaginn.
Um kvöldið verður gestavarðeldur.
, MÓTSSTJÓRN.