Þjóðviljinn - 14.08.1966, Síða 10

Þjóðviljinn - 14.08.1966, Síða 10
1Q Stoa' — ÞJÖÐVILJINN — SuTmudagur 14. ágúst 1966. CLAUDE, CATTAERT; ÞANGAD SEM GULL- FISKAR FARA hann spartK mig hvad ég væri að gera þará. Ég benti á gömlu hjónin og hvíslaði, að afi minn og amma ætluðu með mig upp í sveit- Frammi í salnum var burðarmaður að teikna töluna átta með blautum sópi. og ég braut heilann um hvers vegna hann væri að því. Rykug lest full af ljósum kom inn á stöðina. Ég var með ákafan hjartslátt og ég fór að líta á kiukkuna og þreifa á farmiðanum í vasa minum al- veg eins og hver annar ferða- maður, þótt ég visei mætavel uni brottfarartímann og að ég var á réttum brautarpalli- önnur lest kom og spýtti utúr sér sæg af fólki sem rölti til vinnu sinn- ar með ömurlegum svip eins og það væri að taka út refsingu. Aftur leit ég á klukkuna og far- miðann; ég var búin að fá nóg af því að bíða. Burðarmaður ýtti splunkunýju vélhjóli eftir pallin- um; og það fúrðulega var að það hvarflaði ekki einu sinni að mér að hugsa um afdrif Pitous- Þegar lestin mín kom var ég fyrst inn í hana. Ég stóð í gang- inum, því að ég get 'ekki setið kyrr á ierðalögum, ogstuddioln- bogunum f gluggakistuna, og gullfiskurinn danglaði við úlnlið- inn á mér. Ég hafði engan ann- an farangur og átti enga peninga eftir. Blaðasali fór framhjá; ég hefði átt fyrir dagblaði. en mér <Jatt það ekki einu sinni í hug- t Þegar. lestin lagði af stað, fannst mér sem ég væri að fara fyrir fúllt og allt; ég myndi feldra * sjá þessa brautarstöð aft- ur, né borgina- Ég hafði engar áhyggjur af því hvernig mér myndi, famast annars staðar. Stelpa á mínum aldri kom út úr klefa; hún hélt á brúðu og var strax komin me$ væmnis- svip eins og mæður með ung- böm. Mér hefur alltaf verið meinilla við brúður; mér leið- HárereíSslan Hárgreiðslu- og snyrtistófa Steinu nr> r>ó^ó Laugavegi 18 III hæg flyftal SfMI 24-6-16. P E R M A Hárgreiðslu- Og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968 D ö M U R Hérgreiðsla vig alira hæfl TJABNARSTOFAN Tjamargötu 10, Vonarstrætls. megin — Síml 14-6-62. 22. DAGUR. ast allar eftirapanir á lrön-u sjálfu. Ég gekk eftir vögnunum og kom að fyrsta farrými. Brest- ur sat makindalega í homi og var að lesa blað; hann hefði hæglega getað farið á öðm far- rými og látið mismuninp ganga til fátækra. 'v Ég horfði á. stöðvarnar og hús- in þjóta framhjá; símavíramir sýndust opnast og lokast útum gluggann. Ég skemmti mér dá- lítið við samskeytin á vögnunum- Þegar ég fór aftur inn í ganginn rakst ég beint á miðavörð; ég sýndi honum farmiðann minn, en ég hafði vaðið fyrir neðan mig og sagði að „mamma" væri hin- um megin í lestinni. Ég hafði tekið það í mig að verða móður- laus f eitt skipti fyrir öll, en það var ekki víst að aðrir létu sér það lynda. Ég studdi olnbog- unum aftur í gluggakistuna og ýtti enninu að rúðunni; iég var ekki að hugsa um neitt sérstakt, þegar ég eá á renna gegnum blómabreiðu, hverfa inn í skóg og koma aftur í ljós hinum meg- in. Það var einmitt þetta sem ég var að leita að, en lestin stanz- aði ekki þama. En ef maður veit hvað hann vill, þá er allt svo auðvelt. Ég mundi að ég hafði verið vöruð alvarlega við að snerta neyðarhemilinn: Ef þú kemur við hann, þá stöðvast lest- in- Hann var þama beint fyrir ofan mig, og rauðmálaður. Til allrar hamingju er ég stór eftir aldri Dg ég teygði mig óg togaði í hann. Árangurinn var furðuleg- ur; vélin blístraði, .það ískraði í hemlunum og kónumar í klefan- um veinuðu. Ég hefði ekki mátt seinni vera, áin var næstum horf: in sýnum bakvið skógihn. *Ég bjástraði við dyraútbúnaðinn; steig yfir þrep og valt niður brekkuna innanum valmúur. Ég leit ekki til baka en hljóp áfram inn í lítinn skóg sem suðaði í hitanum; ég varð að komast að þessari á. Ég ruddist áfram gegn- um kjarr, síökk yfir stíg; langt fyrir aftan mig heyrðist enn há- vaðinn i vélinni. Ég kom inn í landslag sem ég hafði verið aö leita að: blómabreiður án allra girðinga eða hindrana, skógar- lundur og á sem streymdi lygn milli trjáanna- Rétt hjá göngu- brú úr timbri var fiskimaður með stráhatt álútur yfir færinu sínu. Ég gekk nær ánni og sa rótar- tægjur titra í straumnum yfir gulum sandinum, eins og þær dreymdi um það eitt aS losna og komast niður að sjó. Ég settist undir tré og án þess að fara úr skónum stakk ég fótunum niður í vatnið.. Veturinn leynd- ist niðri i vatninu og greip um ökjana á mér. Ég held það væri hægt að sitja alla ævjna á ár- bakka; þetta gera fiskimenn; færin þeirra eru bara fyrirslátt- ur, en það veit enginn nema þeir. Ég lagðist endilöng með ennið við vatnsborðið, eins og það væri gluggarúða. Mér hefði þótt gaman að brjóta þá rúðu og sökkva niður í vatnið. Ég öfund- aði gullfiskinn sem kæmist þang- að bráðum- Hann ætti að vita, hvaðan hann kom, þótt enginn annar virtist vita það. Ég hélt honum enn í fangelsi rétt fyrir ofan vatnið, þegar fiskimaðurinn kallaði. — Hæ. Gætta þess að detta ekki út í. Það var leitt að fiskimaðurinn skyldi fara að kalla. Það sem fólk segir er alltaf óviðeigandi- Hann var bara með eina tönn og hún var brotin; dálítið minn- ismerki í minningu allra hinna- — En þú færir svo sem ekki lengra en að stíflunni við myll- una, Þetta var áfall; ég hafði gert mér f hugarlund að áin rynni gegnum engi og meðfram- trjám og ekkert myndi stöðva hana. • — Ég gæti farið gegnum hana, ságði ég veikróma. — Þáð má vera, en svo er virkjunin og verksmiðjuveggur- inn. Það væri heldur óskemmti- legt. Ég sá fyrir mér hvernig gull- fiskurinn slægist við stífluvegg- inn og byrjaði aftur að synda í eilífa hringi. Til hvens var að sleppa honum í þessa á? Fiskimaðurinp lagði frá sér færið og tók upp brauðhleif og soðið bjúga sem hann velti bara upp í sér og gat með engu móti tuggið. Ég var að velta fyrir mér hvað ég ætti að gera næst, þegar tveir lögregluþjónar birtust í landslaginu. Aldrei þessu vant komu þeir á réttam tíma. Áður en ég fór með þeim, mundi ég eftir gervitönnum bar- ónsins og setti þær í körfu fiski- mannsins, sem auðvitað var tóm. Þannig 'vildi ég , sýna honum þakkiæti mitt. Hann hafði forðað mér frá því að gera síðusta skyssuna með síðasta fiskinn minn- Þegar ég gekk af stað með lög- regluþjónunum stönzuðu þeir öðru hverju til að þurrka af sér svit- ann pg þusuðu yfir hitanum, sem var ótrúlegur, og óveðrinu sem aldrei kom. Það var enn Heitara á lög- reglustöðinni. Lýðveldisstyttan ó- missandi var á arinhillunni — Marianne með hárið niðurundan húíunni og blússuna flaksandi frá sér; henni var líka heitt. 1 einu hominu, rétt hjá glugga með rimlum fyrir, var kona að glamra á ritvél hjá gervirós í vasa. Það var skuggalegt milli súkkulaðibrúnna veggjanna þrátt fyrir sólskinið. Fiugur suðuðu kringum rafmagnsperu uppi und- ir lofti. Ég settist á bekk og hélt enn á fiskinum í plastpokanum- Lögregluþjónamir vom að tala við rauðhærðan mann, lögreglu- i fulltrúann- — Það er bezt að láta lögreglu- j stjórann vita. Hann sér um þetta. Lögregluþjónamir vom í ess-! inu sínu; í þyert skipti sem þeir sögðu söguna, bætta þeir svo- litlu við. )l — Sjáðu til, þegar við sáum áð telpan var ekki héðan úr ná- grenninu þá þótti okkur það dá- lítið grunsamlegt. Hinn hélt áfram: — Og yið fór- um pg gripum hana, til allrar hamingju. Auðvitað voru þeir að Ijúga; áður en þeir höfðu sagt eitt ein- asta orð var ég búin að segja þeim hvað ég héti, heimilisfang foreldra minna og hvenær ég hefði farið að heiman; hinu þagði ég yfir- Fólk var farið að hópast sam- an á torginu fyrir utan og andlit komu á gluggana og gægðust inn; lögregluþjónamir lokuðu dymn- um þrátt fyrir hitann. Ég sat bara þama og sagði ekki neitt og horfði á gullfiskinn minn. Svo kpm lögreglustjórinn; hann hefði getað komið beint úr Sex- tánda hverfi í ensku tvídfötun- um og með hundinn sinn. Hann hlustaði á lögregluþjónana, sem fundu upp á fleiru til viðbótar. — Hún reyndi að sleppa, en við náðum henni skammt frá ánni. Ef þetta héldi áfram miklu lengur, þá myndu þeir fara að veiða mig uppúr áhni á öngul og' færi. Lögreglustjórinn kom yfir til mín og vildi spyrja spuminga- Þetta kom honum ekkert við fremur en neinum öðmm; ég sagði honum að hringja til- for- eldra minna, þótt pabbi sé venju- ' lega á skrifstofunni á þessum i tíma og mamma að spila bridge- En þótt undarlegt megi virðast, þá var móðir mín heima. — Henni líður ágætlega, frú, ■ ég fullvissa yður um það. Þér þurfið engar áhyggjur að hafa. Nei, hún er hin hressasta. Ég skal sjálfur koma með hana til ’-yðar. Ég var einmitt að leggja af stað til Parísa^, Sígaunavagn var að fara yfir tprgið- Ung stúlka sat afturí hon- um og dinglaði fótanum niður- undan rósótta kjólnum og hélt á bami í fanginu. Ég sá dálítið | eftir því að hafa ekki spurt hina sígaunastúlkuna, hvort ég myndi eignast böm seinna meir. Mér þykir vænt um t litla krakka og þegar ég sé þau, langar mig að þrýsta þeim að mér og vernda þau... Það er hræðilegt að vera lítill innanum allt þetta full- orðna fólk. Mér þætti gaman að vita, hvort ég man eftir þessu seinna meir. Lögreglustjórinn var enn í símanum og nú var hann að tala við pabba. — Það gleður mig mjög að geta létt af ykkur á- hyggjunum — áhyggjum þeirra, hver hafði trúað því! — en henni líður ágætlega — dálítið feiminn, það er allt og sumt. En auðvitað skal ég kalla á hana í símann — andartak. Hann kallaði til mín: — 4821 — Þrátt fyrir alla erfiðleika hefur Stanley enn von um sigur. Allir eru í bezta skapi á skútanni. Akku-tækið hefur að vísu brugðizt, en það er smá útvarpstæki um borð sem má heyra veðurfregnir og aðrar fréttM- L — Því miður getur hann nú ekk- ert frétt af keppinaut sínum og hefur ekki grun um hvort hann er á undan eða eftir. Það væri sannarlega gaman að frétta af honum. Nú, jæja, aðalatriðið er að fá veðurfréttirnar: það mun hvessa og einnig er búizt við regni- S KOTTA Ég á í lítilsháttar vandræðum með Donna. Hann er farinn að bjóða öðrum stelpum út! TRYGGINGAFELAGIÐ HEIRAIR" IINDARGATA 9 REYKJAVlK SlMt 2IR60 SlMNEFNI • SURETY Leðurjakkar á stúlkur og drengi. Peysur og peysuskyrtur. Góðar vörur — Gott verð. Verzlunin Ó. L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). Gúmmívinnustofan hvf. s Skiphoíti 35 — Símar 31055 og 30688 i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.