Þjóðviljinn - 07.09.1966, Side 1

Þjóðviljinn - 07.09.1966, Side 1
Miðvikudagur 7. september 1966 —-31. árgangur — 202- tölublað fÐNlSÝNH4GINl w Tízkusýningin endurtekin ★ Sl. sunnudag, á degi fataiðnaðarins á Iðnsýningunni, var ★ efnt til tízkusýninga kl. 4 og 8.30 siðdegis. Greysileg aðsókn ★ var að sýningunni þdiman dag og gátu miklu færri en ★ vildu séð nýjustu haust- og vetrartízkuna. Þvi hefur ver- ★ ið ákveðið að endurtaka tízkusýninguna kl. 8.30 í kvöld. ★ Alis munu 13 fyrirtæki sýna þar framleiðslu sína. VERWOERD MYRTUR Þingþjónn stakk hann þremur hnífsstungum í háls og bringu þegar hann beið þess í ráðherrastól sínum að þingfundur væri settur HÖFÐABORG 6/9 — Hendrik Verwoerd, forsæt- isráðherra Suður-Afríku, var myrtur í þinghúsinu í Höfðaborg í dag. Einn af þingþjónunum, maður á fimmtugsaldri, gekk að .Verwoerd þar sem hann sat í ráðherrastól sínum og beið þess að þing- fundur haefist, rak hriíf þrívegis aftan í háls og í bringu honum og lézt hann skömmu síðar. Þing- menn hlupu til og tókst þeim að handsama til- ræðismanninn. Morðið átti sér stað einmitt í þann mund að hringt var til þingfundar. Margir þingmann- anna höfðu þegar tekið sér sæti í þingsalnum, en tilræðið bar svo brátt að að þeir fengu ekki að gert. Verwoerd hné þegar niður í stól sínum þegar hánn hafði verið stunginn, en blóð spýttist úr sárum hans. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■' Eldur Fjöldi Keykvíkinga veitti því athygli á tólfta tíman- um í gærkvöld að allt stóð i björtu báli í Engey. Höfðu lögregla og slökkvilið varlá við að svara fólki sem vildi tilkynna þeim brunann: — að leyfi hefði verið veitt til að kveikja í hú'sunum! Það er ríkið sem ttx eig- andi Engeyjar, en þar var alit í niðurníðslu og voru húsin að hrynja. Þótti ekki svara- kostnaði að rífa þau og tekið það ráð að fjar- lægja þau með eldi. Kristinn Sigurjónsson byggingameistarí fékk það verkefni að sjá um að brenna húsin og tilkynnti hann lögreglunni þetta í gærkvöld, en hins vegar gleymdist að tilkynna brun- ann opinberlega fyrirfram og því von að fólki brygði í brún. 'Gefið hefur verið upp að morðinginn heiti Dimitri Staf- endas og er talið að hann sé af grískum og portúgölskum ætt- um. Enn hefur ekkert vitnazt um það hvers vegna hann framdi tilræðið. Fjórir læknar sem allir eiga sæti á þingi reyndu að veita Verwoerd björg og reyndi einn þeirra að blása lofti í lungu hans. Rétt á eftir var Verwoerd borinn á börum út í sjúkrabíl. Þremur - stundarfjórðungum síðar reis forseti neðrideildar- innar, Ben Schoeman samgöngu- málaráðherra, úr sæti sínu og sagðist ætla að forsætisráðherr- ann væri ekki lengur á lífi og ^kömmu síðar var það staðfest að hann væri látinn. Hann hafði látizt áður en komið var með hann til sjúkrahússins. Greinilegt var að Verwoerd átti sér einskis ills von og hélt augsýnilega að þingþjónninn væri að færa honum einhver skilaboð. Hann hallaði sér fram eins og til að heyra betur hvað þingþjónninn hefði að segja. Skyndilega dró Stafendas upp stóran rýting. Verwoerd reyndi að bera hönd fyrir höfuð sér, en það var of seint. Blóðið streymdi niður bringu hans og rann niður á grænt gólfteppið. Hægriofstækismaður? Enda þótt ekkert hafi verið látið uppi um tilgang morðingj- ans, virðist mega ráða það af ummælum þingfréttaritafa blaðsins „Die Vaderland" að hann hafi verið úr hópi þeirra ofstækismanna sem telja að Ver- woerd háfi ekki gengið nógu langt í ofsóknum sínum á hend- ur Afríkumönnum. Þingfréttaritarinn segir að til- ræðismaðurinn hafi heyrzt kvarta yfir því að Verwoerd gerði of mikið fyrir þeldökkt fólk, en of lítið fyrir hvita menn. Dimitri Stafendas hafði hafið starf í þinghúsinu fyrir tæpum mánuði. Hann er 'sagður hafa sagt starfsfélögum sínum að faðir hans væri grískur en móð- Ilendrik Verwoerd og kona hans irin portúgölsk. Hann er talinn vera hálffimmtugur, er hávax- inn maður og ber sig vel. Hann mun hafa búið um tíma í portú- gölsku nýlendunurp Angóla og Mosambik og hafa verið dóm- túlkur í Durban. Þá er sagt að hann hafi dvalizt langdvölum í Frankfurt. í Vestur-Þýzkalandi. Hann er sagður kunna átta tungumál. Víðasthvar hafa stjórnarleið- togar, einnig Afríkuríkja, harm- að og fordæmt morðið, en sum- staðar í Afríku hefur það vakið fögnuð manna, t.d. í Lagps, höf- uðborg Nígeríu, þar sem fólk dansaði af fögnuði á götunum þegar fréttin barst. Formaður apartheid-nefndar Sameinuðu þjóðanna sagði að menn mættu vera tilræðismann- inum þakklátir ef verknaður hans leiddi til þess að Suður- Afríka skipti um stefnu í kyn- þáttamálum. í aðalstöðvum Reuters í Lon- don er aftur á móti sagt að þangað hafi borizt af því fréttir úr mörgum höfuðborgum að menn óttist að morðið muni verða til þess að stjórn Suður- Afríku verði enn öfgafyllri en áður í kynþáttamálunum og að enn muni versna sambúð henn- ar við önnur ríki Afríku. Fréttaskýrandi brezka útvarps- ins taldi í dag að morðið á Vei;- woerd myndi enn veikja aðstöðu Wilsons til að leysa RódeSíu- málið. Eftirmaður Verwoerds myndi verða enn ófúsari en hann til hvers konar tilslakana. Afríski þjóðþingsflokkurinn, stjórnmálasamtök Afríkumanna í Suður-Afríku, sem hefur að- alstöðvar í Álgeirsborg, sagði-að morðið myndi verða til þess að auka baráttuþrek skæruliða í sveitahéruðum landsins og allra þeirra sem ættu um sárt að binda af völdum Verwoerd- stjórnarinnar. — (Sjá 3. síðu). Fagrar stuðlabergssúlur fallegu stuðlabergss' Snæfetlsnesi en það er einn þeirra sérkennilegu og fögru stáða sem farið verð- ur um í skemmti- og berjaferð Alþýðubandalagsins í Keykjavik um næstu helgi, en nánar er sagt frá ferðinni á 8. síðu blaðsins í dag. (Ljósm.: Gunnar Guttormsson). Haft eftir Sén Ji utanríkisráðherra: | Úrskurður fallinn í sjónvarpsmálinu: | I Lögbannskröfunni syn/að í gær var kveðinn upp af Jóni Óskarssyni fulltrúa bæjar- fógetans í Vestmannaeyjum úrskurður í máli Ríkisútvarps- ins gegn Félagi sjónvarpsáhugamanna í Vestmannaeyjum, en Ríkisútvarþið hafði krafizt lögbanns við sjónvarps-end- urvarpsstarfsemi þeirri sem rekin hefur verið á vegum fé- lagsins að undanförnu. Úrskurður dómarans var á þá leið að synjað var um lög- bannið og var sá dómur byggður á þeirri forsendu að Rík- isútvarpið hefði framselt einkarétt sinn til endurvarps- starfsemi til annars aðila, þ.e. pósts og síma. Hefur lög- fræðingur Ríkisútvarpsins ákveðið að áfrýja þessum 'úr- skurði til Hæstaréttar. Dómur hefur enn ekki verið felldur í máli Landsíma ís- lands gegn Félagi sjónvarpsáhugamanna í Vestmannaeyj- um, en Landsíminn hefur krafizt þess að endurvarpsmastr- ið verði fjarlægt af lóð Landsímans á Stóra-Klifi ásamt öllu því tilheyrandi. Kínverjar eru ekki alls ófúsir til að semja vii Bandaríkin um Vietnam Tekur um lejð fram að engm önnur lausn komi til greina en sú að Bandaríkjamenn fari frá Vietnam — Orð hans vekja mikla athygli TOKIO og PAíJÍS 6/9 — Sén Ji, utanríkisráðherra Kína, er sagður hafa 'skýrt japönskum þingmönnum sem voru í heimsókn í Peking frá því að Kínverjar hafni ekki af- dráttarlaust viðræðum við Bandaríkjamenn um Vietnam, en Sén Ji ítrekaði að engin lausn væri hugsanleg fyrr en allt bandarjskt herlið hefði verið flutt burt frá Suður- Vietnam. Það er fréttaritari japönsku fréttastofunnar Kyodo í Peking sem hefur þessi tíðindi eftir nefnd þingmanna úr stjórnar- flokknum japanska, Frjálslynda demókrataflokknum, sem ræddu í þrjár klukkustundir við kín- verska utanríkisráðherrann. For- maður nefndarinnar var Zentaro Kosaka, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Japans. Sén Ji hafði í viðræðunum sagt að grundvallarhugmynd alh-ar milliríkjaþjónustu væri að leitast við að leysa öll alþjóðleg deilu- mál. En slík lausn á Vietnam- stríðinu væri óhugsandi sem stæði vegna þess að Bandarík- in beittu ölium ráðum til að þvinga fram hernaðarlega lausn. Sén Ji er sagður hafa nefnt sem dæmi um að Kínverjar væru ekki ófúsir að ræða við Banda- ríkjamenn að sendiherrar beggja hittust alltaf annað slagið til við- ræðna í Varsjá. Hann hafði hald- ið uppi vörnum fyrir „menning- arbyltingunni", en tók um leið fram að hún hefði engin áhrif á utanríkisstefnu Kína. Henni væri ætlað að tryggja það að þróun sósialismans yrði ekki með sama hætti í Kína og í Sovétríkjunum og Júgóslavíu. Þá er Sén Ji borinn fyrir því að sambúð Kínverja og Banda- ríkjamanna muni ekki ævinlega vera jafnslæm og hún gé nú. Á- tökin milli þeirra muni ekki standa að eilífu. Vekja athygli Þessi ummæli sem höfð eru eftir Sén Ji, vekja athygli í Par- ís, segir franska fréttastofan AF manna. Henni myndi ljúka með P, einkum þau að Kínverjar séu fúsir til samninga um Vietnam. Menp veiti þeim athygli ekki sízt fyrir þá sök að Sén Ji sé ekki í hópi þeirra kínverskra ráða- manna sem taldir séu vilja fara varlega í sakirnar. Á það er minnt að hann hafi áður lýst yf- ir að Kínverjar væru alveg,ó- hræddir við innrás Bandaríkja- fullum ósigri þeirra. ,AFP segir að talið sé í París að samhengi sé milli þessara ummæla Sén Jis og ræðu de Gaulle í Pnom Penh þar sem hann hvatti til samninga, enda þótt hann segði Bandarikja- menn eiga alla sök á hvemig komið væri í Vietnam og ættu að fara burt með allan her sinn þaðan. Hrakningar við Surtsey — 6 menn veðurtepptir i eynni Sex menn urðu veðurtepptir í Surtsey í fyrrakvöld eftir nokkra hrakninga og tilraunir til að komast um borð í Lóðsinn frá Vestmannaeyjum. Ætlaði Árni Jölinsen gæzlumaður í eynni að ferja fólkið milli eyjar og skips í gúmbát, en bátnum hvolfdi með hann um einn km. frá eynni og 100 metra frá Lóðsin- um. Árna tókst að halda sér við bátinn þar til skipsmenn á Lóðs- inum tóku hann um borð og fór hann með þeim til Eyja. Þjóðviljinn átti í gserkvöld tal við skipstjóráiin á Lóðsin- um, Einar Sv. Jóhannsson, og sagði hann að fólkið, fjórir þýzkir kvikmyndatökumenn og tveir nátlúrufræðingar íslenzkir hefðu komið með þeim frá Vest- Framhald á 6! síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.