Þjóðviljinn - 07.09.1966, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvi'kudagur 7. september 1966.
Otgefandi:
Sósíalistaflokk-
Sameiningarflokkur alþýðu
urinn.
Ritstjórar: tvar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson,
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Höfum við efni á því?
• •
fkðru hvoru birta stjórnarblöðin hátíðlegar grein-
ar um þörfina á vísindanámi, vísindamönnum
og vísindastörfum í nútímaþjóðfélagi. Sú þörf er
brýnni en flest annað fyrir nútímaþjóðfélag og
verður vart ofreiknuð. Hins vegar gæti mönnum
virzt að mikið vanti á að íslenzk stjórnarvöld skilji
þessa þörf eða hafi forgöngu svo um muni að full-
nægja henni með stórauknum fjárveitingum. Há-
skólanám er enn allörðug ganga fyrir efnalaus
ungmenni, og verður ekki úr bætt fyrr en þjóð-
félagið viðurkennir að slíkt nám er vinna unnin í
þágu þjóðfélagsins alls og stúdentum sem og öðrum
námsmönnum er leggja á sig langt framhalds-
nám beri námslaun allan þann tíma sem þeir
stunda námið. Og þegar löngu óg ströngu námi er
lokið tekur við algjört vanmat ráðamanna þjóð-
félagsins á launaþörf vísindamanna og fræði-
manna, með þeim árangri að íslenzkir vísinda-
menn geta fæstir sinnt rannsóknar- og úrvinnshr
verkefnunum sem hrúgast upp í kringum þá, held-
ur verða að vinna allt að tvöfaldan vinnudag við
kennslu eða einhver störf sem hægðarleikur væri
að leysa af hendi af öðrum en manni með vísinda-
menntun. Sumir, og það ekki menn af verri end-
anum, gefast hreinlega upp á því að vinna við
slík kjör, og lejta ólíkt betri skilyrða og launa-
kjara í öðrum löndum, en íslenzka þjóðin situr
eftir sýnu fátækari vegna missis þess starfs og
áhrifa sem ágætir íslenzkir vísindamenn gætu
haft hér heima. Embættismaður sem gagnkunn-
ugur er þessum málum, formaður Rannsóknarráðs
ríkisins, lýsti fyrir nokkrum kvöldum í útvarpi
þessu vandamáli og ættu valdamenn þjóðarinnar
að hafa hrokkíð við.
f^að er ekki nóg að Morgunblaðið og Vísir skrifi
fjálglega um þörf vísinda 1 nútímaþjóðfélagi.
Hér þarf að verða mikil breyting á. Gera þarf út-
lægan hugsunarhátt núverandi valdamanna, að ís-
lendingar hafi ekki efni á því að gera vel við
æðstu menntastofnanir sínar og vísindamenn. Það
nægir ekki að hökta við betlistaf framan í erlend-
um þjóðum og sníkja framlög til rannsókna á nátt-
úru íslands, og allra sízt er viðeigandi að erlendir
auðhringar sletti í íslendinga einhverjum pening-
um, jafnframt því að þeim eru ofurseldar auð-
lindir íslands og náttúrugæði. Ríkisstjóm sjálf-
stæðs íslands þarf að eiga meiri metnað en svo,
að gera tandmælingar íslands að févana hjálpar-
tæki erlends hers, sem kortleggur ísland allt til
eigin þarfa. íslenzkir stjórnmálaflokkar og ríkis-
stjórnir verða að gera það upp við sig, að sívax-
andi hluta ríkistekna þurfi að verja til vísinda-
náms og vísindastarfa, og ekki verður hjá því kom-
izt að stórauka fræðslu í raunvísindum og tækni-
vísindum við æðstu menntastofnanir þjóðarinnar.
Þjóðfélagið hefur efni á því að búa vísindamönn-
um sínum þau kjör að þeir kiósi hvergi fremur að
vinna en heima Við hqfum ekki efni á hinu —
að missa þá. — s.
v________________ í . < vl \ '> -.vT'
Nýju orði skýtur upp í
viSrœðum manna og virð-
ist eiga enskan uppruna
eins og fleiri á hinum síð-
ustu dögum. „Heldurðu að
ég $é imbi?“ spyrja krakkar
ef telja á þeim trú um eitt-
hvað ótrúlegt. Og nú sé ég
prentað í Alþýðublaðinu á
sunnudaginn orðið „imba-
kassi“, sem virðist orSið all-
algengt nafn á sjónvarps-
tæki. Mér skilst að „imbi“
sé notað í merkingunni
auli eða fló,n og er líklega
komið gegnum enska orðið
„imbecile“ wr hinu latn-
eska „imbecillus“, sem mun
svipaðrar merkingar. OrðiS'
imbakassi segir þá nokkra
sögu um álit manna á her-
mannasjónvarpinu, en það
er eina sjónvarpið sem Is-
lendingum hefur verið til-
tækt.
☆ ☆ ☆
Annars œtlar sjónvarps-
málið ekki að gera það
endasleppt við valdsmenn
í landinu og má nú ætla að
sómi þeirra aukist sýnilega
með viku hverri af með-
höndlan þess máls. Nokkrir
eigendur aulakassanna í
Vestmannaeyjum hafa af
alefli reynt að setja leið-
indastimpil á Vestmanna-
eyiúga almennt, enda þótt
allur þorri íbúanna muni
lítið hrifinn af bröltinu. Og
svo kemur hver fáráðling-
urinn öðrum verri í blöð
og heldur að það sé sam-
bærilegt ef íslendingar sjá
einhverja sjónvarpsskímu
frá öðrum löndum og hitt
að erlendur her sem hreiðr-
að hefur um sig í landinu í
skjóli hernámsflókkanna
skuli lauma áróðri Banda-
rikjastjórnar og soranum af
bandarísku „skemmtiefni“
inn á þúsundir íslenzkra
heimila, hella þessu óféti
yfir íslenzk börn, sem ékki
hafa vit á að varast það.
☆ ☆ ☆
Þeir menn sem leggja
þetta að jöfnu hljóta að
hafa glatað dllri heilbrigðri
þjóðerniskennd og þjóðar-
metn.aði. Þeir virðast hafa
aulakassann fyrir altari
sitt og bandaríska her-
mannadrafið sem andlega
næringu. Og þetta breytist
ekki þó íslenzka sjónvarpið
hefjist, nema því aðeins að
orðið sé við skilyrðislausri
kröfu íslendinga í öllum
stjórnmálaflokkum að
bandaríska sjónvarpið verði
bannað, og með því látið
lokið smánarlegum kafla í
undirlægjuhætti íslenzkra
stjómarvalda við hinn er-
lenda her.
Fi veitír leiðbeiningar um
fiskleiíar- óg siglingartæki
Fiskifélagið hefur tekið upp þá
uýbréýtni’ í starfsemi sinni að
gefa útgerðarmönnum kost á
tæknilegum leiðbeiningum um
fiskileitar- og siglingatæki.
Hörður Frímannsson rafmagns-
verkfræðingur hefur verið ráð-
inn í þetta starf frá og með 1.
sept sl. og verður hann ofan-
nefndum aðilum til ráðgjafar um
þessi efni. Mun hann jafnframt
slcipuleggja námskeið um við-
gerðir og meðferð þessara tækja
fyrir viðgerðarmenn og skip-
stjórnarmenn.
Óþarfi ætti að vera að benda
á þýðingu starfs sem þéssa. í
íslenzka fiskiskipaflotanum nem-
ur verðmæti slikra tækja fleiri
hundruð miljónum króna. Geta
bilanir eða galíar í slíkum tækj-
um eða óhentug tæki valdið út-
gerðarfyrirtækjum og þjóðinni í
heild miklum skaða.
Fiskifélagið vonast til þess að
s'tarfsemi þessi geti orðið við-
komandi aðilum að liði og vænt-
ir góðrar samvinnu við útgerðar-
menn og skipstjórnarmenn.
(Frá Fiskifélagi íslands).
HeiBruBu
viðskiptavinir
IÐNISYNINGIN
Vér viljum hér með minna yður á Iðnsýn-
iijtguna ’66, sem jafnframt er kaupstefna.
Vér sýnum þar framleiðslu vora, veitum
allar upplýsingar og tökum á móti pönt-
unum við STÚKU 207.
Vinnufatagerð íslands hf.
Nám oa atvinna
Stúlkur, sem læra vilja gæzlu og umönmn van-
gefinna, geta komizt að í slíkt nám á Kópavogs-
hæli í haust. Laun verða greidd um námstímann.
Nánari upplýsingar gefa yfirlæknir og fbrstöðu-
maður. Símar 41504 og heima 41505.
Reykjavík. 6. september 1966.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
jLétt rennur
G/teSoo
FÆST i KAUPFÉLÖGUM OG
VERZLUNUM UM LAND ALLT
Bétagreiðs/ur
almannatrygginganna
Útborgun ellilífeyris hefst að þessu sínni
fimmtudaginn 8. sgptýynber.
rrrir^'fOrfi i.
Bætur greiðast gegn framvisun nafnskír-
teinis bótaþega, sem útgefið er af Hagstof-
unni.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS.
Eitt námskeið
— er ódýrt, og í það fer lítill tími. En það
getur gert gæfumuninn þegar þú
kemur út.
■ Kanntu að svara fyrir þig í tollinum?
■ Kantu að spyrja til vegar?
Ef ekki, þá skaltu spyrja strax eftir nám-
skeiði sem þér hentar við Málaskólann
Mími.
/
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4, sími 1000 4 (kl. 1—7 e.h.)
Hafnarstræti 15, sími 2 16 55.
Stretch-buxur stærðir 1-9
Verð frá kr. 139,00 til 188,00.
R.Ó. búðin
Skaftahlíð 28, sími 34925.