Þjóðviljinn - 07.09.1966, Qupperneq 12
!
!
I
!
!
Varan seht betur í fiignm umbúðum
I»að er umbúðajðnaðurinn
sem á daginn á Iðnsýning-
unni að Þessu sinni. Alls taka
sex fyrirtæki sem framleiða
umbúðir þátt í sýningunni, en
þau eru Piastprent, Kassagerð
Reykjavikur, Etna, Dósaverk-
smiðjan, Stálumbúðir og Sig-
umlast. Voru blaðamenn sér-
staklega boðnir að skoða
þeirra deild á sýningunni i
gger í tilefni dagsins.
í>ótt tvö þessara fyrirtækja
séu um og yfir þrítug að aldri
er umbúðaiðnaður í nútíma
merkingu tiltölulega ung iðn-
grein hér á landi, með bætt-
um og nýjum hráefnum, sí-
feilt meira vöruúrvali og aukn-
um kröfúm um uitlit og hrein-
læti hefur þróunin í þessari
grein iðnaðar orðið gífurlega
ör, einkum á síðustu árum,
enda stenzt íslenzk fram-
leiðsla á þessu ' sviði fyllilega
samkeppni við’ útlenda og er
m.a.s. stúndum ódýrari. Þó
nýtur iðngreinin lítillar eða
engrar tollverndar og má
nefna sem dæmi að tollur á
hrápíni í pappírs- og plastum-
búðir er 30 og 35%, en á
fuHunfeum umbúðum úr sama
efni aðeins 40%.
Þegar keyptar eru dýrar
vélar er að sjálfsögðu mikið
atriði að reyná að nýta véla-
kostinn eftir því sem hægt er,
en hér er markaðurinn þröng-
ur sem eðlilegt er og mætti
ætla að mörg fyrirtæki i
sama iðnaði ættu erfitt upp-
dráttar. En í þessari iðngrein
hefur orðið æskileg verka-
skipting miUi fyrirtækjanna
og er hvert með sína fram-
leiðslu, eitt með blikk- og
alúmíndósir, annað plastbrúsa
og dósir, hið þriðja pappa- og
pappírsumbúðir, fjórða aðal-
lega með poka úr plasti og
pappír o.s.frv.
Mjjólkurkassarnir
Elzta umbúðafyrirtækið er
Kassagerð Reykjavíkur og er
orðið 34 ára gamalt og fram-
leiðir alls konar áprentaða
kassa og öskjur fyrir íslenzka
framleiðslu, bæði þá sem fer
á innanlandsmarkað og eins
það sem flutt er út, t.d. úr
frystihúsunum.
Þá framleiðir Kassagerðin
hina frægu 10 Htra mjólkur-
kassa. sem hægt er að fá
mjólkina í á Akureyri og víð-
ar norðanlands, en Mjólkur-
samsalan hefur ekki fengizt
til að nota þrátt fyrir mikinn
áhuga af hálfu neytenda.
Þessar mjólkurumbúðir eru
IÐNISÝNINGINi
w
til sýnis á Iðnsýningunni og
eins 25 lítra umbúðir af sömu
gerð, sem ætlaðar eru fyrir
mötuneyti, sjúkrahús, skip og
veitingahús og passa tveir
slíkir kassar í sérstakan kæli
og þarf síðan aðeins að skrúfa
frá krana til að ná í mjólk-
ina. Eini aðilinn sem Mjólk-
ursamsalan hefur fengizt til
að fylla slík ílát fyrir er
Keflavíkurflugvöllur.
Margt fleira er til sýnis í
stúku Kassagerðarinnar, t.d.
er rétt að benda á aðra nýj-
ung: einangrunarefni úr al-
úmíni, sem lítur út eins og
bylgjupappi og kostar fet-
metrinn af þessu efni 32 krón-
ur.
40 þús. dósir
á 8 tímum
Dósaverksmiðjan h.f. ^ar
stofnuð 1937 og mun fram-
leiða flestar þær dósir sem
soðið er niður í hér og seld-
ar á innanlandsmarkaði og
hluta af því sem út er flutt.
Eru þetta dósir úr bæði blikki
og alúmíni og notaðar mjög
hraðvirkar vélar við fram-
leiðsluna, t.d. er hægt að fram-
leiða 40 þúsund alúmíndósir
á 8 tímum Á sömu vélinni.
Þarna vinna uppundir 30
manns og hefur fækkað um
helming starfsfólks á síðustu
20 árum en framleiðslan þó
aukizt um ca. 20%.
Allt meðalalýsi sem héðan
er flutt til annarra landa er
sent í tunnum frá Stálumbúð-
um h.f. og eru þær sýndar á
Iðnsýningunni, en auk þess
framleiðir fyrirtækið stál-
bakka og fleira fyrir mat-
vælaiðnað og nýjustu gerð af
sorptunnum með föstu loki
fyrir rykfría sorphreinsun og
er Reykjavíkurborg t.d. smátt
og smátt að skipta um og
farin að nota þessar tunnur.
Ein aðalframleiðsluvara fyrir-
tækisins er þó orðin flúor-
lampar af 'ýmsum gerðum til
notkunar bæði úti og inni.
Plastið vinsælt
Tvö fyrirtæki hafa skipt á
milli sín plastumbúðunum og
er annað með poka og fleira
þessháttar á sínum vegum en
hitt með brúsa og dósir úr
plasti. Plastprent sér um pok-
ana, en slíkar umbúðir eru
nú notaðar í æ ríkara mæli
útan um alls konar vörur,
sælgæti, matvörur, fatnað, og
jafnvel húsgögn. Fyrirtækið
er átta ára gamalt og byrjaði
í 30 ferm. bílskúr, en hefur
nú 600 fermetra húsnæði til
umráða. Slíkar umbúðir voru
áður fluttar inn, en nú mun
' lítið sem ekkert vera um inn-
flutning á þessu og mikið af
hráefninu er framleitt á
Reykjalundi. Auk plastumbúð-
anna framleiðir fyrirtækið
einnig alla pappírspoka fyrir
pökkunarverksmiðjuna Kötlu.
Þá eru framleiddir nokkrir
hlutir fyrir almennan mark-
að t.d. eldhúsplastpokinn, sem
mjög margir nota, pokar til
að hlífa fatnaði, laxapokar,
plastsvuntur og stórir ferða-
plastpokar.
!
!
Sigurplast hefur starfað í
sex ár og framleiðir nú flesta
þá brúsa, dósir og glös úr
plasti sem íslenzkur iðnaður k
þarf á að halda, einnig pillu- ™
glös fyrir apótekin. Hafa mörg
fyrirtæki fengið s£n. eigin mót
og mun flestir kannast við
t.d. þvolbrúsana og umbúðir
Hreins og Mjallar.
Etna er síðasta fyrirtækið í
þessari deild en þar eru
framleiddir allir öl- og gos-
drykkj aflöskutappar sem not-
aðir eru hér á landi, líklega
35—40 miljónir árlega — og
höfum við þó ekki bjórinn!
Sigurplast h.f.
!
!
Nerskur línuveiðari strundur í Sundvík
B Norski línuveiðarinn „Gesana“ strandaði í gærmorg-
un í Sandvík, rétt sunnan við Norðfjörð, í aftakaveðri.
Mannbjörg varð og kom björgunarsveit frá Neskaupstað
og merin af varðskipinu Þór á strandstað, og aðstoðuðu
skipverja hið bezta.
Gésana er 28 ára gamalt skip,
168 rúmlestir. Skipið var á rek-
netaveiðum og var að enda túr,
með 1060 tunnur af saltsíld inn-
anhorðs. Ætlaði það að koma
við á einhverjum Austfjarðanna
en lenti þá í Sandvík.
Aftakaveður var á Norðfirði
þriðjudagsnóttina, einkum frá
kl. 2-5, og mun skipið hafa
strandað um fimmleytið. Varð-
skipið Þór náði neyðarkalli frá
því og komu skilaboð um nótt-
ina frá Slysavarnafélagi íslands
til formanns Slysavarnadeildar-
innar á Norðfirði, Reynis Zoega.
Var þá þegar farið að undirbúa
að senda björgunarsveit frá Nes-
kaupstað og fóru þeir um borð
í björgunarskipið Goðann sem
lá þar við .bryggjú'.
Nokkur óvissa var fyrst um
hvar skipið væri strandað, því
skipverjar sjálfir héldu að þeir
væru við Dalatanga. Skipin sem
reyndu að miða „Gesana“ héldu
að það væri strandað við Barðs-
nes, en í gærmorgun kom „Jón-
Kjartansson“ til Neskaupstaðar
og hafði farið fyrir Sandvík og
séð skipið strandað þar.
Goðinn flutti norðfirzku slysii-
varnamennina og fimm menn af
„Þór“ yfir að Stuðlum og þaðan
gengu þeir yfir Barðsnesfjall
um Sandvíkurskarð til Sandvík-
ur, en það er hátfc í tveggja
tíma gangur.
Þegar þeir komu í víkina var
þar háfjara og skipið nærri á
þurru, lá þvert fyrir árósinn en
við ósinn hafði myndazt sandrif
sem skýldi því. Var skipverjum
sagt að fara ekki úr skipinu
fyrr en björgunarsveitin væri
komin. Var byrjað að kveikja
upp í skipbrotsmannaskýlinu, og
þegar hafizt handa að .koma á-
höfninni í land, mátti heita að
hún gæti gengið í land þurrum
fótum.
Var skipverjum gefin hressing
og veitt aðhlynning í skýlinu
og haft samband með talstöð
sem þar er við Hornafjarðar-
radíó og varðskipið Þór, og síð-
an lagt af stað yfir fjallið. Brátt
Framhald á 6. síðu.
Per Borten kemur
í kvöld kl. 20.30
í kvöld klukkan 20J30 er Per
Borten, forsætisráðherra Nor-
egs, væntanlegur til íslands í
boði ríkisstjórnarinnar. Á morg-
un heimsækir Borten Bessastaði,
ræðir við ráðherra og skoðar
Reykjavík. Föstudag skoðar ráð-
herrann Borgarfjörð og Akra-
nes, en heldur á laugardag til
Akureyrar og Mývatns. Á sunnu-
dag svipast hann um í Eyjafirði,
en kemur síðdegis til Reykja-
víkur aftur. Mánudag er ætl-
unin að haida til Þingvalla, en
síðdegis ræðir Borten við frétta-
menn. Utan heldur hann svo á
þriðjudagsmorgun.
Vék fyrir sjúkra-
bíl og ók á annan
Tveir bílar lentu í mjög hörð-
um árekstri á horni Miklubraut-
ar og Lönguhlíðar í gær og
skemmdust báðir mikið, Öku-
maður annarrar bifreiðarinnar,
Jóhannes Guðmundsson kvartaði
um þrautir í höfði og hné og
var fluttur á Slysavarðstofuna,
einnig fékk farþegi í bifreið
hans höfuðhögg, en ekki er kunn-
ugt hve alvarleg meiðsl þeirra
reyndust.
Slysið varð með þeim hætti
að sjúkrabíll var á leið eftir
Lönguhlíð inná Miklubraut og
var með sírenurnar í gangi, en
bílar stóðu á báðum akreinum
á rauðu ljósi. Ætlaði fremsti
bíllinn að hliðra til fyrir sjúkra-
bílnum og fór inn á gatnamót-
in með fyrrgreindum afleiðing-
um.
------------?------------—
Næstbezti kúlu-
varpari í heimi
kemur í kvöld
í kvöld kemur hingað til lands
annar bezti kúluvarpari heims,
Bandaríkjamaðurin Neal Stein-
hauer. Hann kemur hingað á
vegum FRÍ og mun dveljast hér
í fimm daga við að þjálfa ís-
Ienzka kúluvarpara og e.t.v. taka
þátt í keppni hér. Steinhauer
hefur í sumar varpað kúlunni
20,44 m., en að undanförnu hef-
ur hann verið í keppnisferð á
Norðurlöndum, þar sem hann -að
sjálfsögðu sigraði með miklum
yfirburðum.
Kona og barn
duttu úr strætisv.
í gær, rétt fyrir kl. 2, varð
það slys á Sundlaugavegi, að
kona og barn duttu útúr stræt-
isvagni í götuna. Meiddist barn-
ið, 4 ára drengur, eitthvað og
var fluttur á Slysavarðstofuna.
Heitmsðir Mar-
grétar í Kltöfn
KHÖFN 5/9 — Heitmaður
Margrétar, krónprinsessu Dan-
merkur, franski greifinn Henri
de Laborte de Monpezant, kom
á lapgardaginn til Kaupmanna-
hafnar. Búizt er við að þjóð-
þingið fjalli um — og samþykki
— trúlofunirta 5. október og að
brúðkaupið verði haldið næsta
vor.
Per Borten er fæddur í
Þrændalögum 1913. Hann braut-
skráðist frá búnaðarháskólanum
í Ási 1939 og hefur frá því 1946
stjórnað tæknideild landbúnað-
armálastjórnar í Suður-Þrænda-
lögum. Afskipti af stjórnmálum
hóf Borten að marki 1945 og var
þá kjörinn forseti bæjarstjórnar
í heimabæ sínum, Flá, aðeins 32
ára gamall. Um árabil var hann
form. æskulýðssamtaka Bænda-
flokksips í fylkinu og tók þátt
í stofnun æskulýðssamtaka
sveitafólks (Bygdefolkets Ung-
domsfylking). Frá því 1950 hef-
ur hann átt sæti á Stórþinginu
sem þingmaður , Suður-Þrænda-
laga fyrir Bændaflokkinn, sem
nú hefur tekið upp nafnið Mið-
flokkur. Hann hefur verið for-
maður flokksins frá því 1955 og
formaður þingflokksins frá því
1957. Frá 1961 hefur hann ver-
ið forseti neðri deildar norska
þingsins, Óðalsþingsins svo-
nefnda. Borten var skipaður for-
sætisráðherra Noregs 12. októ-
ber 1965 en hefur gegnt fjöl-
mörgum fleiri trúnaðarstörfum
en hér hafa verið talin.
Ragnhildur Thor-
oddsen látin
Síðastliðinn sunnudag lézt í
Reykjavík frú Ragnhe'iðúr Thór-
oddsen, ekkja Pálma heitins
Hannessonar, rektors. Frú Ragn-
hildur var fædd á Isáfirði 26.
ágúst 1899 dóttir Skúla alþingis-
manns Thoroddsen og Theodóru
Thoroddsen; hún giftist Pálma
Hannessyni árið 1926 og eiga þau
fjögur uppkomin böm.
íkviknun frá
rafmagnsofni
Slökkviliðið var kallað að
Lindarbraut 2 á Seltjamamesi
rétt fyrir hádegi í gær,, en þar
hafði kviknað í út frá rafmagns-
ofni, sem gleymzt hafði í sam-
bandi. Urðu nokkrar skemmdir
af völdum eldsins, sem hafði
læstst í stól og gólfteppi, en
fljótlega tókst að slökkva hann.
BLAÐ-
DREIFING
Blaðburðarfólk óskast i
eftirtalin hverfi:
Mela
Framnesveg.
Laufásveg.
Leifsgötu.
* Grettisgötu •
Njálsgötu.
Miðbæ.
Laugaveg.
Hverfisgötu.
Tjarnargötu
Háteigsveg.
Miklubraut
HÖfðahverfi
Múlahverfi
Laugarnesveg.
Brúnir
Sólheima
Skipasund.
Langholtsveg.
Sími 17-500