Þjóðviljinn - 09.09.1966, Page 3
Föstudagur 9. eeptember 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SfÐA 3
Fjöldamorðin í Sharpeville
........-w.....-----
wÍWW.'A\%'AvÍE^W>.^w.^vAv.VW..V.V...'A...Í
Verwoérd sálugi sveifst einskis til að tryggja stöðu hvítra manna og sýndi bað bezt í marz 1969,
þcgar hann lét lögregluna í bænum Sharpeville hefja skothríð á friðsama kröfugöngu blökkumanna
og ganga af 67 manns dauðum. Blökkumennirnir voru í kröfugöngu gegn hinni hötuðu passalög-
gjöf en samkvæmt henni eru allir blökkumenn skyldugir að ganga ævinlega með passa á sér. sem
veitl alls konar upplýsingar um bá. Fjöldamorðin í Sharpeville vöktu á sínum tíma heimsathygli
og hafa síðan staðið mörgum fyrir sjónum sem tákn aðskilnaðarstefnu Verwoerds.
Ummæli Sén Ji utanríkis-
ráðherra borin til baka
Kínverska stjórnin mun ekki semja við Bandaríkin
VARS.TÁ, WASHINGTON 8/9 — Hin langa og:
harðorða yfirlýsing sem sendiherra Kínverja í
Varsjá gaf út í gær eftir fund með bandaríska
starfsbróður sínum er afdráttarlausasta neitun á
hugmyndinni um samninga um Vietnam sem Kín-
verjar hafa látið frá sér fara, segja vestrænir
fréttamenn í Varsjá og skyggir hún gersamlega á
ummæli Sén Ji utanríkisráðherra um samninga.
I dag voru ummæli Sén Ji einnig borin til baka
í Peking.
Fundir sendiherra Bandaríkj-
anna og Kínverska alþýðulýð-
veldisins í Varsjá eru einu
reglulegu stjórnmálaskiptin sem
ríkin hafa með sér.
Hingað til hafa fundirnir far-
fð fram án þess að annar hvor
aðili léti nokkuð uppskátt um
viðraeðurnar og braut Wang
sendiherra þessa hefð í gær.
Vestreenir fréttamenn segja að
ekki komi fram neitt nýtt í yf-
irlýsingu tsendiherrans, hún sé
aðeins óvenjulega harðorð end-
urtekning á viðhorfum Kínverja,
en þeir telja athyglisvert hvern-
ig og hvenær hún er birt. «
Blaðamannafundur í
Peking
f Peking var sagt í dag að Sén
Ji utanríkisráðherra hefði ekki
sagt, að Kína hefði ekki endi-
lega horfið frá hugmyndinni um
samninga um Vietnam við
Bandaríkin.
Japanskir þingmenn sem eru
í heimsókn í Kína kölluðu í dag
blaðamenn á sinn fund í Pek-
ing og er haft eftir þeim að
Sén Ji hafi raunverulega sagt,
að ibúarnir í Vietnam verði
sjálfir að ráða sér og Kína
styðji fullkomlega eindreginn á-
setning Vietnama að berjast til
þrautar við Bandaríkjamenn,
jafnvel í 10 til 20 ár.
Undir þessum kringumstaeð-
um hefur kínverska rikisstjórn-
in engan veginn í hyggju að
ræða um Vietnam við Banda-
ríkin.
Leiðrétting
• Mistök urðu í myndartexta í
blaðinu í gær, Björn Bjarman
var þar óvart kallaður Þor-
steinsson.
Víðræður krata
og komma í -
Þýzkalandi?
DORTMUND 8/9 — Walter Ul-
brieht leiðtogi austur-þýzkra
kommúnista hefur lýst því yfir
að hann sé reiðubúinn að taka
aftur upp viðræður við vestur-
þýzka sósíaldemókrata um
stjórnmálaumræður við þá.
Sænska Alþýðusambandið borgar:
Hálfa aðra miljón króna
í kosningabaráttu krata
STOKKHÓLMI 8/9 — Á þingi sænska Alþýðusambandsins
í Stókkhólmi var í dag dkveðið að veita eina og hálfa milj-
ón sænskra króna til kosningabaráttu Sósíaldemókrata-
flokksins fyrir bæjar- og fylkisstjórnarkosningamar á
sunnudaginn kemur. *
Þetta er næstum tvisvar sinn-
um hærri upphæð en Alþýðu-
sambandið veitti flokknum í
kosningabaráttunni fyrir þing-
kosningarnar fyrir tveim árum.
Gjaldkeri Sósíaldemókrata-
flokksins skýrði nýlega frá því
að 730.000 s. kr. halli yrði lík-
lega á kosningabaráttu Sósíal-
demókrata að þessu sinni.
Kosningabarátta flokksins
kostar um 5,2 miljónir s. kr.
Þar sem Alþýðusambandið
hefur nú gefið 70(k000 krónum
meira en i síðustu kosningum
ættu kratarnir að geta sloppið
hallalaust.
1 í ár fær Sósíaldemókrataflokk-
urinn samtals 11,5 milj. s. kr.
í fjárhagsaðstoð frá ríkinu, eft-
ir að samþykkt var á þingi í
fyrra að 25 miljónum króna
skyldi varið til stuðnings við
stjórnmálaflokkana.
En svo til allri þessari upp-
hæð er varið til þess að styðja
flokksblöðin sem eru rekin með
halla.
Sænska Alþýðusam-
bandið samþykkti í dag
að reynt skuli að þre-
falda aðstoð Svíþjóðar
við vanþróuð ríki sem
fyrst. — í ályktunartil-
lögu segir að Alþýðu-
sambandið skuli vinna
að því að efnahagsað-
stoðin verði sem svarar
1% af þ'jóðartekjum
Svía, en nú er 'hún um
0,3 prósent.
Qtgöngubann sett
í Sýrlandi í gær
DAMASKUS 8/9 — Stjómin í
Sýrlandi setti á fimmtudags-
kvöld útgöngubann á í öllu land-
inu og útvarpið í Damaskus
skýrii frá nýju samsæri gegn
stjórn landsins. Sérhver borgari
var beðinn þess að vera reiðu-
búinn að taka þátt í bardagan-
um til þess að tryggja sigur og
framgang byltingarinnar, eins
og það var orðað.
Það var stjórn Baath-flokksins
sem fyrirskipaði útgöngubannið,
sem er í gildi frá kl. 21 að stað-
artíma. Ekki var nánar skýrt
frá orsökum þessara aðgerða,
enda ýmislegt enn á huldu um
gang mála í Sýrlandi. Þetta út-
göngubann nær ekki til allra,
vissir starfshópar eru undanþegn-
ir.
BLACKPOOL 8/9 — Þing brezku
verkalýðssamtakanna, sem hald-
ið er í Blackpool, samþykkti í
dag ályktun þar sem hvatt ertil
þess, að flugiðnaður • landsins
verði settur undir ríkiseftirlit og
vissar greinar hans þjóðnýttar.
Góð togarasala
í fyrradag seldi togarinn Sig-
urður í Þýzkalandi 170 tonn
fyrir 155 þúsund mörk.
ÞU LÆRIR
MÁLIÐ
✓
1
MÍMI
Nylonsokkar
kr. 15.00 parið.
?**>**>
--------------
lipsif '5ji
Opna í dag
málflutningsskrifstofu að Skólavörðustíg
16, II. hæð.
Lögiræðistörf — Fasteignasala.
Sími 13036 — heimasími 17739.
tíögni Jónsson hdl.
iðnIsýningin
w
HEILSAN FÝRIR ÖLLU
Byrjið daginn með Jurta
Stúka okkar er nr. 343
AFGREIÐSLA
SMJÖRLÍKISGERÐANNA H.F.
Meira í flöskunni • aftur í glösin
KÓNGA-FLASKAN
Ný flöskustærd af Coca-Col
er komin á markaðinn fyrir þá sem vilja fá meira
í flöskunni fyrir tiltölulega hagkvæmara verð.
Bidjid um stóru kónga-flöskuna.
Ætíð sami Ijúffengi drykkurinn, svalur og hress-
andi, sem léttirskapið og gerirstörfin ánægjulegri
FRAMLEITT A F VERKSMIDJUNNI V ÍF I LFEU i UMB OB I THE COC A-COLAEX PORTCO R P.