Þjóðviljinn - 18.10.1966, Síða 10
Stofnuð Alþýðcbandalagsfélög fyrir
Suiurnes, Mýra- ag Borgarf jarðars.
Á fimmtudag verða stofnuð félög í Garðahreppi qg á Seltjarnarnesi
■ FYrir og um helgina voru stofnuð tvö ný Alþýðu-
bandalagsfélög, annað fyrir Suðumes og hitt fyrir
Mýrarsýslu og Borgarfjarðarsýslu innan Skarðs-
heiðar. Þá verður í kvöld stofnað félag fyrir suður-
hluta Borgarfjarðarsýslu og Akranes. Á fimmtu-
dag verður haldinn stofnfundur Alþýðubandalags-
féiagrs í Garðahreppi og sama dag verður einnig
haldinn framhaldsstofnfundur Alþýðubanjjalags-
félags á Seltjamamesi.
Einn kjörbúðarbíll Boðabúðar. — ( Ljósm. R.Á.).
KjörbúBtsrbílastríð
hafíð í Garðabreppi
■ Undanfarið hefur gengið í Garðahreppi skjal til undir-
skriftar, þar sem skorað er á hreppsnefndina að endur-
skoða afstöðu sína til kjörbúðarbíla Kaupfélags Hafnar-
fjarðar og Boðabúðar.
4
Hert á eftirliti með útivistarreglum:
Börn yngri en 12
ára heima kl. átta
Hreppsnefndin mun hafa skrif-
að fyrrgreindum aðilum bréf,
þar sem hún setur þeim reglur
um viðkomustaði en í þeim
reglum er fólgin mikil takmörk-
un á umferð bílanna vegna slysa-
Telpa slasast
í Kópavogi
í gaerkvöld kl. 19,13 varð telpa
fyrir bíl á Digranesvegi í Kópa-
vogi á mótk við hús nr. 56. Var
hún flutt í Slysavarðstofuna og
síðan 4 Landspítalann. Mun hún
hafa bæði handleggs- og fót-
brotnað. Telpan heitir Sigrún
Ögmundsdóttir. til heimilis að
Hraunteigi 91.
SAIGON 17/10. — Enn magnast
misklíð innan herforingjastjórn-
arinnar i Saigon. í dag baðst
efnahags- og fjármálaráðherrann
Iausnar frá embætti, ef ekki verða
Ræðir um um-
dæmaskiptingu
landsins
Á fundi Lögfræðingafélags ís-
lands í Tjarnarbúð í kvöld,
þriðjudag, flytur Hjálmar Vil-
hjálmsson ráðuneytisstjóri er-
indi, sem hann nefnir: „Skipting
landsins í umdæmi". Fundurinn
hefst kl. 8,30.
hættu, sem hreppsnefndin telur
að stafi' af þeim.
Nú er svo mál'með vexti að í
Garðahreppi er ekki starfandi
nema ein matvöruverzlun, en-
byggðin hinsvegar á stóru svæði.
f>eir sem að undirskriftunum
standa teljá að ekki stafi meiri
hætta af kjörbúðarbílunum en
bílum yfirleitt, t.d. oliabílum. Og
ennfremur telja þeir það furðu-
lega ráðstöfun hreppsnefndarinn-
ar, að takmarka svo athafnasvið
kjörbúðarbílanna, meðan ekki
eru fleiri fastar verzlanir til
staðar.
Þá er hægt að benda á, að með
færri viðkomústöðum verða við-
skiptavinir á hverjum stað miklu
fleiri og þar af leiðandi verri
umgengni á hverjum stað.
scttar niður deilur innan stjóm-
arinnar áður en Manilaráðstefn-
an um Vietnam hefst.
Áður höfðu sex ráðherrar sagt
af sér fyrir sakir andstöðu við
Ky forsaetisráðherra, en hann
hefur neitað að taka þessar lausn-
arbeiðnir þeirra til greina.
Fjármálaráðherrann, Au Tru-
ong Thanh, átti að vena í sendi-
nefnd þeirri er Saigon-stjórnin
sendir til Manila. Segir hann, að
leysa verði deilurnaf áður en
ráðstefnan hefst svo að sendi-
nefndin geti komið fram sem
fulltrúi einhuga stjórnar gagn-
vart viðmælendum sínum.
Afstaða Thanhs er talin tals-
vert áfall fyrir Ky, því í Man-
ila átti einmitt að leggja mikla
áherzl'U á efrratoagsmál.
Stofnfundur Alþýðubandalags-
ins á Suðurnesjum var haldinn
sl. föstudagskvöld í félagsheimil-
inu Stapa og nær félagssvæðið
yfir Vatnsleysustrandarhrepp,
Njarðvíkurhrepp, Keflavík,
Gerðahrepp, Miðneshrepp, Hafna-
hrepp og Grindavíkurhrepp.
Á fundinum voru mættir þing-
menn Alþýðubandalagsins í
Reykjaneskjördæmi, Gils Guð-
mundsson og Geir Gunnarsson,
og skýrðu þeir frá undirbúningi
að stofnun Alþýðubandalagsfé-
laga í kjördaeminu.
f stjóm félagsins voru kjörnir:
Sigmar Ingason Ytri-Njarðvík,
formaður, varaformaður Úlfar
Þormóðsson Keflavík, ritari Odd-
bergur Eiríksson Ytri-Njarðvík,
gjaldkeri Grétar Haraldsson Ytri-
Njarðvík og meðstjórnendur Sig-
urður Brynjólfsson Keflavík, Ari
Einarsson Sandgerði og Kjartan
Kristófersson Grindavík.
Þá/ voru kjörnir tveir fulltrúar
á landsfund Alþýðubandalagsins,
þeir Sigmar Ingason og Karl Sig-
urbergsson Keflavik. Varamenn
á landsfund voru kjörnir Odd-
bergur Eiríksson, Sigurður
Brynjólfsson og Bjarni Einars-
son Ytri-Njarðvík.
Fundur i Borgarnesi
Stofnfundur Alþýðubandalags
fyrir Mýrasýslu og Borgarfjarð-
arsýslu innan Skarðsheiðar var
haldinn í Borgamesi sl. sunnu-
dagskvöld.
f stjóm felagsins voru kjörn-
ir eftirtaldir menn: Sigurður B.
Guðbrandsson Borgarnesi for-
maður, Jónas Árnason Reykholti
varaformaður. Guðbrandur
Brynjólfsson Brúarlandi.Hraun-
hreppi, gjaldkeri, og meðstjórn-
endur Kristján Benediktsson
Víðigerði Reykholtsdal og Hall-
dór Brynjólfsson Brúarlandi.
Fulltrúar á landsfuild Alþýðu-
bandalagsins voru kjörnir Sig-
urður B. Guðbrandsson og Guð-
mundur Þorsteinsson Skálpa-
stöðum í Lundarreykjadal. Vara-
fulltrúi á landsfund var kjörirm
Benjamín Ólafsson Holti í Borg-
arhreppi.
Fundur í Rein í kvöld
Þá verður haldinn í kvöld í
Stórþjófnaður
í Stokkhólmi
STOKKHÓLMI 17/10 — Um
helgina var gulli og skartgrip-
urft fyrir um hálfi miljón sænskra
króna stolið úr skartgripaverzl-
un £ Stokkhólmi. Þjófamir virð-
ast hafa kunnað mjög vel til
verks.
Fjölgað í vestur-
þýzka hernum
BONN 17710 — Vamarmáilaráð-
herrá Þýzkalands, Kai-Uwe von
Hassel, segir í viðtali við Die
Welt í dag að búast megi við
því, að Bandaríkjamenn dragi úr
herafla sínum f Evrópu á næstu
þrem árum.
Ráðherrann segir að þess í
stað verði fjölgað í vesturþýzka
hemum um 100 þúsund manns
fyrir árið 1970 (í honum eru nú
um 400 þús. manns), vopn hans
endurbætt og auk þess séu liðs-
flutningar yfir Atlanzhaf nú
auðveldari en áður.
NEW YORK 17/10. — Einn af
fulltrúum Sovétríkjanna hjá SÞ,
K.úlebjakin, gagnrýndi mjög fjár-
hagsáætlun samtakanna fyrir
næsta ár. Einkum gagnrýndi
hann gífurlega skriffinnskukostn-
að í aðalbækistöðvum SÞ, en
hann gleypir nú 75% af útgjöld-
um samtakanna. Fuilltrúi Dan-
rnerkur tók mjög f sama streng.
Rein á Akranesi stofnfundur Al-
þýðubandalags fyrir Ak?anes
og Borgarfjarðarsýslu sunnan
Skarðsheiðar.
Tveir fundir á fimmtudag
Á fimmtudagskvöld verður
haldinn stofnfundur Alþýðu-
bandalags í Garðahreppi í Garða-
holti og sama kvöld verður hald-
inn framhaldsstofnfundur Al-
þýðubandalags á Seltjarnarnesi.
Þá er og í undirbúningi að
stofna Alþýðubandalagsfélög í
Suðurlandskjördæmi, á Vest-
fjörðum og í Kópavogi og verð-
ur sagt nánar frá því hér í
blaðinu síðar.
Engin síldveiði
var um belgina
Bræla var á miðunum um
helgina og engin síldveiði. í
fyrrinótt lóðaði leitarskipið Æg-
ir á mikið síldarmagn um 150—
200 mílur norðaustur af Langa-
nesi og virtist sú síld vera á
hraðri leið suður. Var þá norð-
austanátt, 6 vindstig, og mik-
ill sjór á þessum 6lóðum.
7 ára dreng-
ur meiddist
Á laugardaginn varð slys á
móts við Grenimel 31. Sjö ára
gamall drengur hljóp út á götuna
milli kyrrstæðra bíla og lenti á
vinstra framhorni annars bíls-
ins. Drengurinn heitir Gunnar
Karl Guðmundsson og á heima
að Grenimel 30. Hann hlaut á-
verka á höfði og var fluttur á
Slysavarðstofuna en meiðsli hans
voru ekki talin alyarleg.
HÖFÐABORG 17/10 — 1 dag
hófust yfirheyrslur í máli Dem-
etrio Trafendas, morðingi Ver-
woerds forsætisráðherra Suður-
Afriku. §á)fræðingur hélt því
fnam fyrir rétti í dag að Tsaf-
endas hafi varla vitað hvaðhann
var að gera.
NEW YORK 17/10 — Alilsherj-
arþing SÞ samþykkti í dag aðild
Afríkuríkjanna Botswana og Les-
otho (áður brezku vemdarsvæð-
in Bechuanaland og Basutoland)
að samtökunum. Aðaldarríkin era
þá orðin 121.
Forsetinn lagði af stað
skömmu eftir hádegi eftir ís-
lenzkum tíma. Var hann í bezta
skapi óg sagði við brottförina,
að Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra myndu gera si;t
bezta til að koma á „friði með
sæmd“ í Vietnam.
Á ferð sinni heimsækir for-
setirm Nýja Sjáland, Astralíu,
Barnaverndarnefnd Reykjavík-
ur gengst um þessar mundir í
samvinnu við lögregluna fyrir
herf^rð gegn útivist barna og
unglinga á kvöldin. Hafa verið
hengd upp spjöld í strætisvögn-
um í þessu augnamiði og á
næstunni ' verða afhent litil
spjöld í mjólkurbúðum bæjarins
og stendur á þeim hve lengi hver
aldursflokkur má vera úti á
kvöldin.
Eftirlit með útivist barna,
sem mest áherzla verður lögð á
að þessu sinni, verður þannig
háttað, að borginni verður skipt
í hverfi jafnmörg barnaskólun-
um. Eftirlitsmenn verða kennar-
ar sem unnið hafá hjá lögregl-
unni á sumrin og einnig kvenlög-
regluþjónar og hafa þeir bæki-
stöð í skóla viðkomandi hverfis.
í viðtali við forgöngumenn her-
ferðarinnar kom í Ijós að þeir
vænta samstarfs foreldranna og
skólástjórar bæjarins hafa heit-
ið þeim aðstoð sinni. Börn fá
afhenta bæklinga í skólunum
sem þau eiga að sýna foreldrum
sínum og kennararnir ræða við
börnin um útivistarreglurnar.
Langt er síðan núverandi úti-
vistarreglur voru teknar í gildi
en nú á að herða á eftirliti með
að þeim verði fylgt og jáfnframt
gera könnun á afstöðu almenn-
ings til útivistar barna yngri en
12 ára eftir kl. 8 á kvöldiri. Verð-
ur farið heim til þeirra barna
sem eru úti eftir þann tíma og
rætt við foreldrana.
Sálfræðingurinn, Cooper, að
nafni, segir að morðingjanum
hafi að vísu verið illa við Ver-
woerd, en samt gæti hann enga
skýringu á því gefið hvers vegna
hann réðst á hann í þingsal og
veitti honum þá áverka meðhnff
sem dró hann til bana. Væri
hæpið að hann vissi það sjálfur.
Þó væri Tsafendas ekki svo geð-
veill að ekki eigi að leiða hann
fyrir rétt.
Tsafendas hefur, sagði Cooper,
fengið þá flugu í höfuðið að inn-
an í sér sé bandormur sem virki
é sig eins og illur. andi.
Filipseyjar, Thailand, Malasfu og
Suður-Kóreu. Forseti herforingja-
stjórnarinnar í Saigon mun
einnig bjóða forsetanum heim.
Forsetinn filaug rakleiðis ril
Honolulu og hélt ræðu í háskóla
borgarinnar um kvöldið. Lét
hann í ljós vonir um að leiðtog-
ar Asíu myndu ekki takmarka
sig við þjóðemisstefmi heldur
Sérstök nefnd sér um fram-
kvæmd herferðarinnar og er for-
maður nefndarinnar Ólafur Jóns-
son. Varaformaður er prófessor
Þórir Kr. Þórðarson og aðrir í
nefndinni eru Sigurlaug Bjarna-
dóttir, Margrét Margeirsdóttir,
Valborg Bentsdóttir, Guðný
Helgadóttir og Kristín Gústafs-
dóttir. Framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar er Þorkell Kristjánsson
og sálfræðingur sem starfar með
nefndinni er Örn Helgason.
Dr. Árni Frið-
riksson látinn
Dr. Árni Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins, lézt í Kaupmanna-
höfn á sunnudáginn var, 67 ára
að aldri. Árni var fæddur að
Króki í Ketildalshreppi árið 1898,
varð stúdent frá Menntaskólan-
öm í Reykjavík árið 1923 og tók
magistergráðu í dýrafræði við
Kaupmannahafnarháskóla árið
1929. Hann varð ráðunautur
Fiskifélags íslands 1931 og stjóm-
andi Fiskideildar Atvinnudeildar
Háskólans árið 1937 til 1953.
Síðan varð hann framkvæmda-
stjóri Alþjóða hafrannsókna-
ráðsins. Auk þess átti hann sæti
í stjórnum fjölmargrá félaga,
bæði innlendra og erlendra. Eftir
Árna liggur mikill fjöldi rita og
ritgerða. Árni var tvíkvæntur og
var seinni kona hans Helene
Rope Nathalia.
taka upp í rikari rriæli víðtæka
efnahagssamvinnu. Kvaðst hann
og búast við því að slíkur hugs-
unarháttur skyti rótum einnig f
Kína þótt síðar yrði.
Ónafngreindir menn í Nýja-
Sjálandi og Ástralíu hafa hringt
til dagblaða undanfarna daga og
hótað því að myrða Johnson er
hann kemur. Einn Ástralíumanr.-
anna kvaðst með þessu mótivilja
hefna sonar síns, sem hefði fall-
ið í Vietnam. Fylgja forsetanum
a ferðalaginu f jöldi lífvarða und-
ir stjórn Youngblodds þess, er
varði Johnsorí með líkama sín-
um er skotið var á Kennedy í
Dallas.
Sjö ráðherrar Saigonstjórn-
arinnar hafa nú sagt af sér
Morðingi forsætisráðherra
Suður-Afriku fyrir rétti
Johnson forseti heimsækir
bandamenn sína' SA-Asfa
WASHINGTON 17/10 — Johnson Bandaríkjaforseti hóf í
dag langá ferð um sex Suðausturasíulönd. Helzta erindi
forsetans er að sitja ráðstefnu um Vietnam sem haldin
verður í Manila, höfuðborg Filipseyja. í Ástralíu og Nýja-
S’jálandi hafa heyrzt hótánir um að forsetinn verði mýrtur
í ferðinni.