Þjóðviljinn - 07.12.1966, Page 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Miðvikúdagur 7. desember 1066.
Komið jólabréfum
tímaníega í póst
tJr hinni nýju verzlun Valbjarkar.
Akureyrarsmiðir sækja suður
VALBJÖRK OPNAR
VERZLUN í R VÍK
Póstmeistarinn i Réykjavik
hefur að venju sent frá sér leið-
heiningar um póstlagningu jóla-
bréfa og pakka, póstgjöld og síð-
ustu ferðir til útlanda og út á
land. Kemur þar fram m.a. að á
þessu ári hefur verið tekinn upp
nýr þáttur í bréfapóstþjónustunni,
móttaka á smápökkum til út-
landa.
Þyngt smápakkanna má ekki
fára yfir 1 kg., burðargjald er
kr. 2,50 fyrir hver 50 gr., laegsta
gjald þó kr. 11. Fluggjald baetist
við og tekið er fram að pakkarn-
ir megi ekki innihalda sendibref,_
frímerki, peninga, verðskjöl, dýra
málma né skartgripi, ennfremur
að umbúðum beri að haga þann-
ig að hægt sé að kanna inni--
haldið. Er þessi nýjung mjög tii
bóta, ekki sízt um jólin þegar
margir senda smájólagjafir til
útlanda, sem gjama vega undir
1 kg., en það er laegsta þyngd
sem við er 'miðað við sendingu
böggla.
Jólapóstur innanbæjar
Móttaka á jólapósti innanbæj-
23 árekstrar
23 árekstrar voru skráðir hjá
lögreglunni í Reykjavík frá
morgni til kvölds í gær, og má
teljast góð útkoma miðað við
færðina. Engin slys urðu á fólki
í. þessum árekstrum, en smá-
skemmdir á farartækjum.
Eldur í reykháf
SlökkviJiðið var í gær kvatt að
Hjallabraut 12 í Kópavogi, þar
sem kviknað hafði i í reykháf,
en. fljótlega tókst að ráða nið-
ejdsins.
Ný
fréttaheimild
Aðalfréttin á forsíðu Morg-
unblaðsins í gaer, birt í feitum
ramma, bar fyrirsögnina: „Lá
við að ástarlíf hfossa yrði
verksmiðjunni að falli“. Eru
þar rakin í ýtarlegu máli
vandkvæði sem-hlutust af því
að hryssa, í eigu verksmiðju
einnar í Rússlandi, kastaði
folaldi án þess að ráð hefði
verið gert" fyrir þvílíkri fjölg-
un í áætlunum verksmiðjunn-
ar eða áformum æðri stjórn-
arvalda um framtak fyrir-
tækis þessa, en af því tilefni
lentu skriffinnar í æmum
vanda.
Morgunblaðið getur þess i
upphafi að þessi skemmtilega
frásögn sé tekin úr „sovézka
tímaritinu Krokodil"; hins
vegar forðast Morgunblaðið
að geta þess að Krókódíllinn
er skopblað þeirra Sovét-
manna, einskonar Spegill.
Vissulega segja slík blöð oft
ærinn sannleika á sinn hátt.
en hingað til hafa frásögur ,
þeirra ekki verið taldar til
fréttaefnis. Eða hvernig
myndi Morgunblaðinu geðj-
ast sú fréttamennska, ef er-
lend blöð gerðu Spegilinn að
helztu ■ heimild sinni um at-
burði á íslandi og birtu frá-
sagnir hans í fullri alvöru á
forsiðum sínum?
ar er til kl. 24 'fimmtudaginn 15.
desember og hefst útburður hans
21. des. Á pósturinn að bera á-
ritunina „JÓL“, en þær sending-
ar -sem ekki bera slíka áritun
verða bornar út jafnóðum og
þær berast.
tJt á Iand
Skilafrestur á jólapósti með
bifreiðum lil fjarlægra staða úti
á landi er 16. des., en til ná-
lægari kaupstaða og kauptúna 20.
des.
Síðustu skipsferðir út á land
eru: Austur um land með Esj-
unni 8. des. og vestur um land
með Blik 13. des. og með Esju
17. des.
Flogið er daglega til Akureyr-
at og Húsavíkur (Dalvík, Einars-
staðir), Egilsstaða (Borgarfj.,
Eskifj., Reyðarfj., Fáskrúðsfj.),
Isafjarðar (Bolungavík, Suður-
eyri, Flateyri), Vestmannaeyja
og Neskaupstaðar (Mjóifj.).
Síðustu flugferðir til annarra
staða eru: 21. des til Fagurhóls-
mýrar og Hornafjarðar (Djúpa-
vogur, Breiðdalsvík), 21. des. til
Kópaskers og Þórshafnar (Rauf-
arhöfn, Bákkafj., Vopnafj.) og
22. des. til Patreksfjarðar (Bíldu-
dalur, Tálknafj.,).
Til útlanda
Skipaferðir til Ameríku verða
ekki fleiri fyrir jól, en til Evrópu
má koma skipapósti með Kron-
prins Fredrik, sem fer 10. des. til
Torshavn og Kaupmannahafnar,
og með Hanne Dancoast sem
siglir til Torshavn og Kaup-
mannahafnar 17. des.
Flugpósti til Norðurlanda þarf
að skila fyrir 17. des., en til
annarra landa fyrir 16. desember.
Bjarg-
ráð fundið
í útvarpinu i fyrrakvöld
ræddust þeir við Sigurður
Magriússon kaupmannaleiðtogi
og Guðmundur J. Guðmunds-
son varaformaður- Dagsbrún-
ar, og kom margt skemmti-
legt fram í tali þeirra. Meðal
annars staðhæfði Sigurður að
kjör kaupmanna væru svo
bágborin að tekjur þeirra
hrykkju ekki fyrir óhjákvæmi-
legum kostnaði, þeir greiddu
semsé í sífellu fé úr eigin
vasa til þess að halda verzlun-
um sínum gangandi, og má
slík fómfýsi teljast einstæð,
þótt margir séu væntanlega
forvitnir um þá uppsprettu-
lind sem gerir þeim kleift að
ástunda þvilíka meðgjöf ár
eftir ár.
En því ekki að virkja þessa
fórnarlund kaupmanna enn
betur? Útvegsmenn segjast
vera uppgefnir á því að gera
út togara og minni báta, marg-
ir hraðfrystihúsaeigendur hafa
lokað fyrirtækjum sínum,
iðnaðurinn heldur áfram að
dragast saman. Hvers vegna
ekki að afhenda kaupmönn-
um öll þessi gj aldþrotafyrir-
tæki og nota hið þjóðhagslega
örlæti þeirra til að jafna met-
in? Er það ekki einfaldasta
leiðin til þess að leysa öll
efnahagsvandamál þjóðarinn-
ar? — Austri.
Húsgagnaverksmiðjan Valbjörk
h.f. á Akureyri hefur opnað
húsgagnaverzlun í Reykjavík, að
I.augavegi 103.
Húsgagnaverksmiðjan Valbjöx-k
hóf starfsemi sína fyrir um þaö
bil fjórtán árum, og hefúr síðan
fengið á sig gott tvrð fyrir að
fylgjast vel með nýjungum í hús-
gagnasmíði. Fram að þessu hafa
Valbjarkarhúsgögn ekki verið
seld í neinni sérstakri verzlun í
Reykjavík, heldur í mörgum hús-
gagnaverzlunum í borginni svo og
út um land, en samhlíða vaxandi
stárfsemi fyrirtækisins og stækk-
un verksmiðjunnar héfur fyrir-
tækið nú sett á stofn sérstaka
verzlun í Reykjavík. Verða þar
.jafnan á boðstólum nýjust.u
’framleiðsluvörur fyrirtækisins
hverju sinni og er nú von á —
eða þegar til orðin — nýtízku-
legum sófasettum, nýjungum i
hillu- og skápaframleiðslu svo og
nýjum stálhúsgögnum.
Þá verða og til sölu í hinni
nýju verzlun að Laugavegi 103
listaverk eftir þekkta íslenzka
myndlistarmenn: hafa í henni
verið fest upp verk eftir Jóhann-
es Jóhannesson, Kjartan Guð-
jónsson, Svein og Karen Agathe
Þórarinsson.
Auk húsgagnaframleiðslu hefur
Valbjörk tekið að sér umfangs-
mikil verkefni í sambandi við
innréttingar. Fyrirtækið átti
veigamikinn þátt í gérð Loft-
leiðahótels og hefur annazt inn-
réttingar fyrir marga skóla, hót-
e! og opinbera aðila (Hótel KEA,
Bifröst, Hótel Borgames og fyrir
liggja verkefni fyrir Reykja-
skóla, Laugalandsskóla, Mennta-
skólann á Akureyri og fleiri að-
ila).
Stjórneridur fyrirtækisins telja
það sannfæringu sfna og kapps-
mál að innlend húsgagnafram-
leiðsla sé í raun fullkomlega
samkeppnisfær við innflutta
vöru. Forstjóri Valbjarkar er
Jóhannes Ingimarsson, Torfi Le-
ósson er framleiðslustjóri og
Guðjón Sigurðsson veitir for-
stöðu hinni nýju verzlun í Rvík.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Munið að ijólasöfnun Mæðrastyrksnefndar er fyrst
og fremst fyrir einstæðar mæður, ekkjur og sjúk-
linga. Leggjumst öll á eitt með að ekkert af þessu
fólki verði fyrir vonbrigðum þessi jól.
Gjöfum veitt móttaka á skrifstofu Mæðrastyrks-
nefndár, Njálsgötu 3, alla virka daga frá kl. 10—6.
Á sama stað er útfhlutun fatnaðar
Mæðrastyrksnefnd.
Orðsending frá
Ijósastillingastöð
F. í. B.
Ljósastillingastöð okkar að Suðurlandsbraut 10
verður lokuð fram yfir næst komandi áramót
vegna lagfæringar.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda.
Hver man ekki einhvern hinna sérkennilegu
karla, sem Brynjólfur hefur skapað ó leik-
sviðinu. En færri þekkja' leikarann og mann-
inn sjólfan, sögu hans og skoðanir. Brynj-
ólfur segir fró uppvaxtarórum sínum í
Reykjavík og ó ísafirði, en þar lék hann
sitt fyrsta hlutverk. Hann rekur síðan ýmsa
merka atburði 'í sögu leiklistarinnar og sína
eigin persónulegu sögu, allt
fram á þennan dag. Og auk
þess prýða bókina 60 myndir.
KARLAR
EINS
0GÉG
ÆVIMINNINGAR
BRYNJÓLFS
JÓHANNESSONAR LEIKARA
ÓLAFUR JÓNSSON
FÆRÐ/ íLETUR
Trésmiðafélag
Reykjavíkur
TRESMIÐIR
Aðalfundur skák- og bridgedeildar Trésmiðafé-
lagsins verður að Laufásvegi 8 föstudaginn 9. þ.m.
kl. 20,30.
Stjóm S.B.T.R.