Þjóðviljinn - 07.12.1966, Page 3
Miðvikudagur 7. desember 1966 — WÖÐVXLJINN — SlÐA 3
Bretar hræðast viðskiptastríð við Suður-Afríku
Stjórn Wilsons reynir að draga úr
refsiaðgerðunum gegn stjórn Smiths
/ veizlu hjá de Gaulle
i
LONDON, SALISBURY 6/12. — Það kemur æ skýrar fram,
að úrslitatilraun Wilsons til að ná samkomulagi við stjórn
Ians Smiths í Ródesíu byggðist á því, að Bretar óttast
sjálfir afleiðingar af þeim refsiaðgerðum gegn Smith sem
þeir hafa lofað: stjórn Wilsons reynir nú allt hvað hún
getur að koma því svo fyrir að refsiaðgerðirnar leiði ekki
til viðskiptastríðs við Suður-Afríku. sem er þriðji stærsti
viðskiptaaðili Breta.
umrædu á íundi Öryggisráðs S.Þ.
á morgun.
Afríkulönd
Frá ýmsum Afríkulöndum
heyrast æ ákveðnari raddir' um
að bein valdlbeiting sé eina leiðin
til að steypa minnihlutastjórn
Smiths. Framkvæmdastjóri
Smiths. Framkvæmd;istj. nefndar
Afríkuríkia um frelsun Ródesíu
sagði í Dar-es-Salaam í dag, að
væntanlegar refsiaðgerðir Sam-'
einuðu þjóðanna. gætu því aðeins
haft áhrif að þær væru algjör-
ar, en ólíklegt væri að svo yrði
fyrir sakir afstöðu Suður-Afríku
og Portúgala og væri valdbeiting
því eina leiðin.
Stjóm' hvítra manna í Suður-
Afríku hefur veitt stjórn Smiths
margvíslegan stuðning eins og
kunnugt er og m.a. ekki komið
i veg fyrir að olía væri flutt
þaðan til Ródesíu. Brezka stjórn-
in hefur því reynt að fá sam-
þykki nefndar samveldislandanna
um Ródesíu til að fallast á það,
að olíubann verði ekki innifaiið
í þeim efnahagslegu refsiaðgerð-
um gegn stjóm Smiths, sem nú
eru í undirbúningi, til að forðast
það að til viðskiptastriðs komi
við SuumAfríku.
Samveldisnefndin féllst hins-
vegar ekki á þetta og vildu flest-
ir nefndaraðilar að olíubann
fylgdi. Verða refsiaðgerðimar til
Umboðsmenn Happdrœtt-
ís WéíSvillniK úti á londi
REYK J ANESK JÖRDÆMI:
Kópavogur: Hallvarður Guðlaugsson, Auðbrekku 21
Hafnarfjörður: Geir Gunnarsson, Þúfubarði 2
Garðahreppur: Ragnar Ágústsson, Melás 6
Njarðvíkur: Oddbergur Æiríksson, Grundairvegi 17 a
Keflavík: Gestur Auðunsson, Birkiteig 13
Sandgerði: Hiörtur Helgason, Uppsalavegi 6
VESTURLANDSKJÖRDÆMI:
Akranes: Páll Jóhannsson, Vesturgötu 148
Borgames: Olgeir Friðfinnsson
Stykkishölmur: Erlirgur Viggósson
Grundarfjörður: Jóhann Ásmundsson, Kvemá
Hellissandur: Skúli Alexandersson
Dalasýsla: Sigurður Lárusson, Tjáldanesi, Saurbæ
VESTFJ ARÐAK JÖRDÆMI:
Isafjörður: Halldór Ólafsson, bókavörður
Dýrafjörður: Friðgeir Mágnússon, Þingeyri
Súgandafjörður: Guðsteinn Þengilsson, læknir.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI — vestra:
Blönduós: Guðmundur Theódórsson
Skagaströnd: Friðjón Guðmundsson
Sauðárkrókur: Hulds Sigurbjömsdóttir,
Skagfirðingabraut "87
Siglufiörðnr: Kolbeinn Friðbjamarson, Bifreiðastöðinni
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI — eystra
Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, Ólafsvegi 2
Akureyri: Rögnvaldur Rögnvaldsson, skrifstofu
,,Verkamannsins“ Brekkugötu 5
Húsavík: Gunnar Valdimarsson, Uppsalavegi 12
Raufarhöfn: Guðmundur Lúðvfksson
AUSTURL (VNDSKJÖRDÆMI
Vopnaifjörður: Davíð Vigfússon
Fljótsdalshérað: Sveinn Árnason, Egilsstöðum
Seyðisfjörður: Jóhann Sveinbjömsson, Brekkuvegi 4.
Eskifjörður; Guðjón Bjömsson
Neskaupstaður: Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri
Reyðarfjörður: Bjöm Jónsson, kaupfélagi
Fáskrúðsfjörður: Baldur Bjömsson
Djúp;vogur: Ásgeir Björgvinsson
Homafjörður: Benedikt Þorsteinsson, Höfn
SUÐURLANDSK.IÖRDÆMI:
Selfoss: Þórmundur Guðmundsson, Miðtúni 17
Hveragerði: Björgvin Ámason, Hverahlíð 12
Stokkseyri: Frímann Sigurðsson, Jaðri
Rangárvallasýsla: Guðrún Haraldsdóttir, Hellu
V -Skaftafellssýsla: Magnús Þórðarson, Vík
Vestmannaeyiar: Tryggvi Gunnarsstm, Vestmannabraut 8
Afgreiðsla Happdrættisins í Reykjavík er á Skólavörðustíg
'19 og i Tjarfiargötu 2a
Salisbory
Stjóm Smiths lýsti þvi yfir
í dag, að það hefði táknað skil-
yrðislausa uppgjöf, ef gengið
hefði verið að tillögum Wilsons
um framtið Ródesíu. 1 stað nú-
verandi stjórnar hefði komið
kvislingastjóm og stjómleýsi og
öngþveiti tekið völd í landinu.
Sú bráðabirgðastjóm hefði ekki
orðið annað en Trójuhestur til
að lauma • brezku herliði inn í
landið og halda því þar von úr
viti.
Frá Salisbury berast þær fregn-
ir, að hvítir menn búi sig undir
harðnandi átök en. reyni að bera
sig mannalega, segjandi sem svo,
að það sé þó gott að allri 6-
vissu sé lokið og aðskilnaðurinn
við Bretland orðin fullkomlega ó-
afturkallanleg staðreynd.
— Síðári fregnir
herma að Wilson forsætisráð-
herna hafi sagt í sjónvarpsviðtali
í kvöld, að stjóra sín hefði stung-
ið upp á þeirri bráðabirgðalausn
Ródesiúdeilunnar, að Bretland og
Ródesía gerðu með sér banda-
lag, þannig að Ródesíumenn
kysu fulltrúa á brezka þingið
og nytu um leið sjálfsstjómar. »
Beckett kom-
inn til Sovét
Áhugi á framúrstefnu í leik-
ritagerð virðist vera að örfast í
Sovétríkjunum. í síðasta hefti
tímaritsins Inostrannaja littera-
túra birtist til að mynda þýðing
á „Beðið eftir Godot“ eftir
Beckett, einhvern helztan frum-
kvöðul stefnunnar. Áður hafði
sama tímarit birt leikrit eftir
Ionesco.
Heimsókn Kosygíns, forsætisráðherra Sovétríkjanna, til Frakklands
hefur verið mikið rædd í fréttum að undanfömu. I gær heimsótti
hann miðstöð fransks vefnaðar, Lyon, og kynnti sér þar nýtízku-
fyrirtæki í þeirri grein, en sjálfur er Kosygin vefnaðarverkfræðing-
ur að mennt. — Myndin sýnir þá Kosygin og de Gaulle forseta í
veizlu í forsetahöllinni í Paris á dögunum.
GERIÐ SKII
'TK> QV
Erfítt að fji
Efnahagshandalagi
BRUigSEL 6/12 — Gouve de Mur-
ville, utamríkisráðherra Frakka,
sagði á ráðherrafundi Efnahaigs-
bandalagsins í dag, að gæta yrði
fyllstu varúðar í sambandi við
viðræður um aðild Austurríkis
að EBE, þair eð Sovétríkin væru
andvíg slíkri aðild og teldu hana
brot á hlutleysi Austurríkis.
Á fundínum er og rætt um
hugsanlega aðild Bi’etlands, en
gert er ráð fyrir því, að de
Gaulle háldi fast við að beilai
neitunarvaldi sínu gegn henni-
Allavega muni hann setja Bret-
um skilyrði, sem þeir geti ekki
gengið að — m.a. það, að Bret-
ar slíti hinni nánu pólitísku
samvinnu sína við Bandaríkin.
★
Wilson forsætisráðhen-a og
Brown utanríkisráðherra Breta
ætla í janúar n.k- til Parísair að
ræða þetta mál við de Gaulle.
Leiðtogar kommúnista heimta
Málshöf ðun vegna
flóðanna á Ítalíu
Stalín hylltur í
Kremlarþinghöll
á afmæli orustunnar um Moskvu
MOSKVA 6/12 — Jósef Stalín var í dag hylltur sem leið-
togi í styrjöldinni á fundi, sem haldinn var í Kreml til að
minnast þess að 25 ár eru liðin frá ósigri Þjóðverja við
Moskvu.
Fundurinn var haldinn í þing-
höllinni í Kreml að viðstöddum
helztu forystumönnum flokks og
stjórnar. Aðalræðu flutti formað-
ur Moskvudeildar flokksins, Jeg-
orítsjéf, og setti hann fram þá
túlkun á orustunni. um Moskvu
fyrir 25 árum að hún hefði ekki
ekki verið hrein varnarorusta
heldur ein þeirra, sem úrslitum
réðu í styrjöldinni. Var honum
vel fagnað er hann hyllti Zjúkof
marskálks, er fallið hefur í ónáð
bæði hjá Stalín og Krústjoff, og
enn meir var klappáð er hann
fór viðurkenningairorðum um
hlutverk Stalíns sem hæstráð-
anda í hemum þá.
Skömmu síðar yfirgáfu tvedr
kínverskir sendiráðsmenn salinn
í mótmælaskyni við að Jegorít-
sjéf ásakaði Maó Tse-tung um
að fylgja stórveldisstefnu í bland
við þjóðrembu- Hefði þessi stefna
þann -tilgang að grafa undan
einingu sósíalistískra landa og í
kommúnistískri heimshreyfingu.
Hefðu Kínverjar úthrópað Sovét-
ríkin sem óvin númer eitt á þeim
tíma „er við erum bakhjarl þjóð-
anna í baráttu þeirra við banda--
ríska heimsvaldastefnu“ eins og
Jegorítsjéf komst að orði.
Nýútkomnar endurminningar
Zjúkof mairskálks um orustuna
hafa vakið mikla athygli.
RÓM 6/12 — Þekktur ítalskur
kommúnistaleiðtogi, Terracini,
hefur borið fram kröfu úm að
fylkisstjórinn í Flórens verði á-
Nýr flokkur
á Imflandi
NÝJU DEHLI 6/12. Fyrrverandi
meðlimir Kongressflokksins ind-
verska, sem farið hefur með
stjórn síðan landið varð sjálf-
stætt, komu saman á fund í dag
til að stofna nýjan andstöðu-
flokk- Formaður hans verður J.
B Kripalani sem vair formaður
Kongressflokksins fyrst eftir að
landið varð stjálfstætt.
kærður — m. a- fyrir manndráp
— í sambandi við afleiðingar
flóðanna miklu í fyrra mánuði.
Að sögn málgagns kommún-
istaflokksins, 1‘Unita, vill Terr-
acini fylkisstjórann, dr- Manfredi
de Bemairt, leiddan fyrir rétt
vegna glæpsamlegrar vanrækslu
og manndrápa- Dómari ‘ hefur
settur til að rannsaka ákæru-
atriðin áður en ákvörðun verður
tekin um piálshöfðun.
Kommúnistar hafa öðrum
fremur veitzt hart að ítölsku rík-
isstjórninni í sambandi við flóð-
in. Segja þeir að yfirvöldin hafa
ekki gert nauðsynlegar varúðar-
ráðstafanir og beri því að nokkru
leyti ábyrgð á flóðunum og láti
113 manna- 1 Flórens einni létu
30 manns lífið af völdum flóð-
anna.
Rauðu varðliðarnir vilja
leiða leiðtoga fyrir rétt
PEKING 6/12. — Rauðir varð-
liðar settu upp kröfuspjöld í
Peking þess efnis, að þrír menn
sem til skamms tíma hafa verið
í hópi helztu forystumanna rik-
isins verði leiddir fyrir rétt.
Var spjöldunúm komið upp
skammt frá bækistöðvum mið-
stjórnar flokksins í borginni.
Þessir menn eru þerr Peng
Tsjén, fyrrum borgarstjóri í Pek-
ing, Lú Júng-tí, fyrrum mennta-
málaráðherra og yfirmaður á-
róðursdeildar kommúnistaflokks-
ins og Lo Júí-tsjíng, fyrrum yf-
irmaður herrsíðsins. Peng Tsjén
var í tíu manna kjarna mið-
stjjórnar kommúnistaflokksins.
Ekki hefur spurzt neitt um þessa
menn að undanförnu.
í spjöldunum eru þessir mehn
ákærðir fyrir samsæri gegn
kenningum og pólitískri stefnu
Maós Tse-hmgs-
Vísbending til vinstrí
/ kosningunum á Ítaiíu
Það gelur verið varasamt að
treysta um of á fréttastofur,
einkum ef þær segja frá tíðind-
um sem leggja má á pólitíSkt
mat. Þannig skýrði NTB- frétta-
stofan norska frá því í vikunni
sem leið og bar fyrir sig frétta-
ritara Reuters í Róm, að úrslit
kosninga til bæjar- og fylkis-
stjórna í nokkrum héruðum á
Ítalíu fyrra sunnudag hefðu orð-
ið þau að allir helztu flokkar
hefði haldið sínu; Kristilegir
demókratar fengið rúman þriðj-
ung atkvæða, kommúnistar tæp-
an fjórðung og hinn nýsameinaði
sósíalistaflokkur hefði orðið
þriðji stærsti flokkurinn og feng-
ið 14—18 prósent. atkvæða.
Nú hafa borizt nákvæmar töl-
ur frá þessum kosningum sem
gefa nokkra vísbendingjj um
stjórnmálaþróunina á Ítalíu, enda
þótt greidd atkvæði hafi aðeins
verið-tæp miljón talsins. Frásögn
fréttastofunnar af atkvæðahlut-
falli Kristilegra og kommúnista
er ekki beinlinis röng, en er þó
villandi. Og þetta á enn frekar
við um frásögnina af atkvæða-
magni hins sameinaða sósíalista-
flokks (PSI-PSDI). Höfuðein-
kenni þessara kosnfnga voru þau
að kommúnistar og bandamenn
þeirra í flokki vinstrisósíalista
(PSIUP) 'unnu talsvert á, en því
fór fjarri að hinn sameinaði
flokkur Nennis og Saragats héldi
því atkvæðamagni sem flokkar
þeirra höfðu áður, hvað þá að
þeim tækist að laða til fylgis
við sig fólk sem fylgt bafði
kommúnistum að máli.
Kommúnistar og bandamenn
þeirra hlutu samtals nú 27,1
prósent atkvæða á sameiginleg-
um listum (höfðu áður 27,5). era
PSIUP hlaut nú 2,9 prósent á
eigin listum (hafði 0,8) og hinir
róttæku vinstriflokkar hlutu þvi
30 prósent (höfðu 28.3).
Hinn sameinaði sósíalistaflokk-
ur, PSI-PSDI, hlaut nú 14,7 pró-
sent, en flokkarnir höfðu áður,
ýmis hvor sínu lagi eða á sam-
eiginlegum listum, 16.6 prósent
Kristilegir héldu sínu atkvæða-
magni, fengu 35,5, höfðu 35,6.
f ljosningunum til fylkisstjóm-
anna í Trieste og Massa-Carrara
í Toscana hlutu kommúnistar og
PSIUP nú saman 27,3 prósent
(höfðu 23,7), PSI-PSDI hlaut 14,4
(flokkarnir höfðu áður 17,9). f
þremur fylkishöfuðborgum. Tri-
este, Massa og Ravenna, hlutu
kommúnistar og PSIUP 28,5
(höf^u 25,7). en PSI-PSDI hlaut
11.7 (áður 15.1))
Af þessum ursliturn má ráða
(með þeim varnagla að vísu að
kosið var aðeins í fáum héruð-
um) að leiðtogar PSI og PSDI
hafi reiknað dæmið skakkt þegar
þeir rugluðu saman reitum sín-
um.Þeir töldu sig mundu vinna
fylgi bæði til vinstri og hægri,
bæði frá kommúnhstum og Krií(ti-
legum. en tölurnar gefa til kynna
að þeir hafi tapað fylgi og það
jafnvel á báðar hendur