Þjóðviljinn - 07.12.1966, Page 12
Einar Hákonarson
Ein af myndunum í möppu Einars, en texti þessarar er: „Þá hljóp hann af baki til hans og
hjó hann banahögg'*.
HRAFNKA TLA / GRAFÍK
Ungur reykviskur listamaö-
ur, Einar Hákonarson, hefur
tekið sig til og gefið út Iltó-
grafiska möppu, hina fyrstu
sinnar íegundar á íslandi, en
í henni eru tíu myndir með
mótívum úr Hrafnkelssögu
Freysgoða. Möppuna hefur
hann gefið út í 100 tölusettum
eintökum og eru myndirnar
til sýnis í glugga Morgun-
blaðsins og til sölu þar, kosta
kr. 3000 mappan. Þær eru
allar unnar sl. sumar í Gauta-
borg, en þar er Einar við nám.
Einar Hákonarson er einn
þeira fimm íslendinga sem
myndir voru valdar eftir til
þátttöku í samnorrænni sýn-
ingu ungra listamanna, Nord-
isk Ungdoms Biennale, í Lo-
usiana safninu í Humlebæk i
Danmörku, sem opnuð var sl.
laugardag. Dómnefnd, sem i
átti sæti m.a. Svavar Guðna-
son Iistmálari tilkynnti þá
verðlaunaveitingu og var Ein-
ar einn af fimm sem eiga að
skipta með sér verðlaununum.
30 þús. kr. dönskum.
Er þetta mikil viðurkenn-
ing og þegar við hittum Ein-
ar að máli kvaðst hann mjög
ánsegður yfir þessu, en vildi
sem minnst um það tala, enda
var það aðallega grafíkin sem
við ætluðum að spyrja um,
hvernig slíkar myndir eru
únnar.
— Einhverskonar prentnn
er þetta þó?
— Já, en það er feginmun-
ur á svona grafík og venju-
legum eftirprentunum, m.a.
sá, að listamaðurinn fer yfir -
hvert þrykk sem hann tekur.
Byrjað er á að teikna mynd-
ina á kalkstein með slípuðu
yfirborði og eru notaðir þar
til gerðir blýantar, feftar krít-
ar, líka er til Btógrafískt blek.
Þá er teikningin brennd inn
með sýrum og síðan er hægt
að fara að valsa. Pressan er
mjög frumstæð, smásleði sem
dreginn er yfir ,steininn, og
prentunin byggist á því að fit-
an hrindir frá sér vartni, en
tekur við svertunni.
— Hvað er hægt að prenta
mörg eintök?
— Það er kannski hægt að
fara upp í 2—3 hundruð, en
alls ekki meira, því steinninn
eyðist.
— Hvað kom trl að þú vald-
ir einmitt Hrafnkelssögu sem
verkefni?
— Satt að segja var það á-
bending frá öðrum manni
að taka ísiendingasögu
en ekki eitthvað ann-
að og Hrafnkelssaga varð fyr-
ir valinu þar sem hún er bæði
mjög myndræn og gerist
margt í henni, enda vilja
menn halda því fram að hún
sé ekki söguheimild heldur
sjálfstætt listaverk. Það er lít-
ið gert af því að myndskreyta
íslendingasagnir, hvað sem
veldur, það eru kannski ein-
ir 3—4 menn sem hafa teikn-
aft fyrir einhverjar útgáfur.
— Þú hefur tmnið þessar
myndir þínar erlendis.
— Já, það er mjög algengt
á meginlandinu að gefa út
svoná möppur með nokkrum
myndum um sama efni, t.d.
er Svíi nokkur nýbúinn að
gefa út svona myndaflokk um
ísland, það eru allt landslags-
myndir. 'Ég veit ekki til þess
að þetta hafi verið gert hér
áður.
—r' ertu aðallega í grafík
eða líka með Kti?
— Jöfnum höndum. Þegar
maður er orðinn þreyttur á
oliunni er ágætt að geta far-
ið yfir í grafíkina og öfugt.
Myndirnar á sýningunni í
Louisiana eru allt olíumynd-
ir, stúdíur af fólki, sem er
sett inn í myndina sem and-
staða við harða fleti.
Hvernig er að stunda nám
í Svíþjóð?
— Ágætt. Ég geng í Valands
Konstskola í Gautaborg og
er á þriðja ári, en þetta er
fimm ára nám. Skólinn er
mjög frjáls og var á sínum
tíma stofnaður á móti aka-
demiunni í Stokkhólmi, sem
þótti of gamaldags og hefð-
bundin, þar gerðist aldrei
neitt nýtt. Skólinn hefur síð-
an hlolið fulla viðurkenningu
og flestir beztu málarar Svía
nú hafa gengið í þennan
skóla. Það er líka mjög gott
að læra í Svíþjóð vegna þess
að þar er almennur áhugi á
myndlist og Svíar fá mikið
af sýningum sent frá út-
löndum, bæði frá Evrópu og
Ameríku, t.d. Nútíxtialistasafn-
ið í Stokkhólmi, þangað er yf-
irleitt fljótt komið tii sýning-
ar það sem er allra nýjast.
Þetta stafar kannski af al-
mennri velmegun Svía, þeir
hafa efni á þessu, þar er líka
niikið keypt af myndum, ekki
bara af einstaklingum, heldur
hafa flestar stærri verksmiðj-
ur og fyrirtæki listaklúbba
sem koma sér upp listasöfn-
um og allir bæir hafa sitt
listafélag og safn. Það er ó-
hætt að segja að Svíar sýni
listum mjög mikinn áhuga.
— vh
Þrjár nýjar bækur frá Heimskringlu
Liéí Snorra Hjartar, nýíslands-
jr
saga—og bók eftír Asa í Bæ
■ Út eru komnar þrjár bækur frá Heimskringlu: Ný ís-
landssaga eftir Björn Þorsteinsson, fyrsta bindi af fjórum,
Lauf og stjömur, ný ljóðabók eftir Snorra Hjartarson og
bók/eftir Ása í Bæ, sem nefnist Sá hlær bezt.
fengizt við að skýra stöðu og
Lýst eftir vitnum
Þann 3- þessa mánaðar milli
klukkan 12 og 12.30 á hádegi var
ekið aftan á fólksbifreiöina R-
20472 þar sem hún stóð á
Hringbraut við Miklatorg og að-
faranótt sunnudagsins á tímabil-
inu frá klukkan hálf eitt til kl.
3 á synnudaginn var ekið á
Skódafólksbifreið R-8267 við
Lækj airhvamm við Breiðholtsveg.
Báðir ökumennimir, sem ollu á-
rekstrinum flúðu af • staðnum.
Rannsóknarlögreglan skorar á
þá og sjónarvotta að árekstrun-
um að gefa sig fram hið fyrsta
við umferðardeiiiíæa.
Með bók Björns er farið af
stað með nýtt verk, handbók um
sögu og náttúru Islands, reist á
nýjustu rannsóknum og er ráð-
gert að það verði í fjórum
bindum. I eftirmála segir höf-
undur m.a- að íslenzk þjóðar-
saga sé svo samofin og ákvörð-
uð af vettvangi atburðanna, að
hún verði ekki skilin til hlýtar
án rækilegrar þekkingar á nátt-
úru landsins- Þá feegir þar og að
aðalþáttur bókarinnar fjalli
um sögu íslenzka þjóðveldisins,
raknir séu helztu þættir í sögu
samfélagsins hér á landi fram til
1262 og að lögð sé ríkari áherzla
á að greina frá því, hvað t.a.m-
Sturlungaöld var en rekja at-
burðarás tífnabfflsins, fremur
störf kennimanna en segja sög-
ur af biskupum.
Bókin er 304 bls. prýdd fjölda
mynda, Gísli B- Bjömsson gerði
kápu og sá um uppsetningu.
Snorri Hjartarson er löngu
viðurkenndur eitthvert ágætasta
Ijóðskáld þjóðarinnar, en nú er
alllangt um liðið síðan hann
hefur sent frá sér nýja bók-
,,Lauf og stjömur“ geyma 53
Ijóð- Bókin er 89 bls. kápumynd
gerði Hörður Ágústsson.
Ási í Bæ er þekktur skemmt-
unarmaður, söngvaskáld og
vísnasöngvari, en hann er einn-
ig rithöfundur og útgerðarmað-
ur. ! þessari bók rekur hann
sögu útgerðar sinnar, uppganp
henrlar, örðugleika \ og endalok
Ási í bæ hefur áður gefið út
skáldsöguna „Ereytileg átt“.
„Sá hlær bezt* er 167 bls
Ragnar Lár gerðí myndir ng
kápu-
Snorri Hjartarson
Bjöm Þorsteinsson
Miðvikudagur 7. desember 1966 — 31. ággangur — 280. tölublað.
Peningaskápur K.A.
fannst / fjörunni
Peningaskápurinn sem stolið . nað var í og hafa þeir þegar
var frá Kaupfélagi Árnesinga í | játað stuldinn. Hluti þýfisins
Hveragerði aðfaranótt 21. nóvem- hefur fundizt, þó ekki nærri allt,
ber sl. fannst i gær í fjörunni en í skápnum voru um 150 þús.
milli Eyrarbakka og Stokkseyrar- , krónur í peningum og ávísunum
Hafði verið tætt af skápnum ! auk margra sparisjóðsbóka og
hurðin og hann tæmdur. : alls konar skjala-
Málið er í rannsókn og vildi
Lögreglan á Selfossi fór á iögreglan ekkj segja meira um
staðinn og féll við rannsókn j það að svo stöddu, en búizt er
strax grunur á vissa menn, sem 1 við að ramnsókn ljúki í dag.
Stálu skartgripum
og uppþvottakústum
Aðfarapótt sunnudagsins var
framið innbrot í gullsmíðavinnu-
stofu Benedikts Gunnarssonar
og stolið þaðan skartgripum fyr-
ir um 32.000 krónur. Þjófarnir
höfðu brotið rúðu á bakhlið húss-
ins og komizt þar inn.
í fyrrakvöld náðust tveir menn,
sem meðgengu þjófnaðinn og
jafnframt játaði annar þeirra að
hafa gert tilraun til innbrots á
tveim stöðum öðrum sömu nótt.
Hann braut rúöu í verzlun Hjart-
ar Hjartarsonar á Bræðraborgar-
stíg 1, en komst ekki inn í búð-
ina, hinsvegar gat hann kraekt
í 20 uppþvottakústa, sem hann
hafði á brott með sér. Hann er
ókvæntur- Einnig braut hann
rúðu á Vesturgötu 28, en komst
ekki inn i húsið og varð frá
að hverfa.
Þjófamir sitja bóðir inni og
hafa skilað mestöllu býfinu-
Dregið í Happdrætti Háskóla Islands á laug-ardag:
24 miliónir - hœstcr fjárhœð
vinninqa í sama drœtti
Á laugardaginn kemur verður
dregið í 12. flokki Happdrættis
Háskóla fslands. Að þessu sinni
verða dregnir út 6.500 vinningar
að fjárhæð tuttugu og fjórar
miljónir og tuttugu þúsund krón-
ur. Er þetta hæsta fjárhæð og
flestir vinningar sem. nokkru
sinni hafa hafa verið dregnir út
í eipum drætti á íslandi.
Vinningarnir skiptast þannig:
2 v á 1.000.000 kr. = 2.000.000
2 v á 100.000 kr. = 200.000
968 v á 10.000 kr. = 9.680.000
1.044 v á 5.000 kr. = 5.220.000
4.480 v á '500 kr. = 6.720.000
Þar að auki cru fjórir auka-
vinningar á 50.000 krónur hver.
Fylgja þeir mfljón króna vinn-
ingunum. Þar sem nú eru tveir
heilmiðar af hverju númeri, get-
ur sá, er á númer í aukaflokkn-'
um, unnið tvær miljónir í þess-
um drætti. Og ef hann skyldi
eiga röð af miðum, gæti hann
þar að auki fengið 200.000 krón-
ur í aukavinninga.
Eins og venjulega hefst drátt-
urinn klukkan eitt. Vinningarn-
ir eru svo óvenjulega margir, að
drátturinn mun standa fram yf-
ir miðnætti. Unnið mun verða við
vinningaskrána allah sunnudag-
inn, en samt er varla að búast
við að hún komi út fvrr en á
þriðjudag.
Útborgun vinninga hefst svo
mánudaginn 19. desember. Munu
vinningarnir verða greiddir dag-
lega úr því frá kl. *lo til 11 og
1,30 til 4. Vinningar þurfa aft
vera áritaðir af umboðsmönnum.
ATVINNA HEFUR DREGIZT
SAMAN Á AKUREYRI
Akureyri 6/12 — Nú um helg-
ina brá til sunnanáttar og hláku.
Snjór minnkaði og vegir eru
orðnir allgreiðfærir- Vaðlaheiði
er ennþá ófær, en greiðfært er
um Dalsmynni- Fært er um allar
lágsveitir Eyjafjarðar og Þing-
eyjarsýslu. Öxnadalsheiði er
fær stærri bílum. en nokkuð hál
á köflum.
f þeirri kuldatíð sem verið
hefur hér að undanfömu hefur
útivinna dregizt saman og nokk-
uð borið á uppsögnum hjá
verkamönnum. Ekki er þó um
atvinnuleysi að ræða hjá körlum
erm sem komið er. Aftur á móti
er ekki nóg vinna fyrir konur.
Tveir af togurum Útgerðarfé-
lags Akureyrar landa afla sínum
erlendis tim þessar mundir-
Sléttbakur seldi í fyrradag í Cux-
haven fvrir 101 01 n mnrk n<»
Svalbakur selur i Grimsby á
fimmtudaginn, Harðbakur er á
veiðum og Kaldbakur er á leið-
inni til Akureyrar frá Revkja-
vfk, þar sem hann hefur verið
i slipp að undanfömu-
Húsþjófar teknir
Rannsóknárlögregran hefur haft
hendur i hári tveggja manna,
sem stundað hafa þjófnaði úr
húsum að undanfömu. Alis hafa
þeir farið inn á sextán stöðum
og stolið verðmæti (frökkum,
úlpum, peningum og þessháttar)
fyrir um 70.000 krónur. Stænsti
þjófnaðurinn var framin á
Laugaveginum, þar sem þeir
stálu peningakassa með 1300
krónum í. Mennimir sitja báðir
í varðhaldi.
i